Vísir - 01.08.1972, Side 17

Vísir - 01.08.1972, Side 17
17 Visir Þriðjudagur 1. ágúst 1972 u □AG | D KVÖLD | rn □AG | D KVÖLD | C í DAG | Sjónvarp að loknu fríi: Einn úr fjölskyldunni, David fyrir framan sprengjuflugvél sína. Hjónaerjur og hvers kyns óhyggjur í Ashton fjölskyldunni Sjónvarp kl. 21.00: Ashton fjölskyldan 14. þóttur:Ný viðhorf Þá er sjónvarpið komið úr friinu sinu.tvieflt eftir hvildina. Þeir byrja i kvöld sjónvarpsmenn að skyggnast inn i lif Ashton-Fjöl- skyldunnar vinsælu eftir að hafa gefið þeim fri frá störfum i nokkra mánuði. Og nú er sem sé Ashton aftur á dagskrá i öllu sinu veldi og verður áreiðanlega kærkominn gestur, þegar fólk kveikir nú aftur á tækjunum sinum. Þegar siðast fréttist til fjölskyldunnar i vor var ýmislegt að gerast i lifi hennar. Ættarhöfðinginn gamli, Edwin Ashton, hafði hækkað heldur betur i tign, og er nú orðinn prent- smiðjustjóri hjá mági sinum. En hann er ekki vel ánægður þessa stundina. Honum likar illa yfir- gangur Briggs og honum stendur til boða að fá vinnu annars staðar. Það liggur i loftinu að hann muni hætta störfum fyrir Briggs. Heima fyrir á Edvin i álika vandræðum og i starfi sinu. Þau eru orðin lei'ð hvort á öðru gömlu hjónin eftir 30 ára stapp. Eilifar áhyggjur út af krökkunum verða ekki til að bæta samkomulagið. John Porter , tengdasonurinn er ennþá týndur og kona hans farin að svipast um eftir öðrum. Um áramótin '40 - '41 kemur fjöls- skyldan svo öll saman á heimili gömlu hjónanna til skrafs og ráðagerða. Allir eru fremur langt niðri og hálfgerður feigðarblær svifur yfir Það hjálpast lika allt að.striðsá- lagið og heimiliserjurnar eru einna þyngstar á metunum. Litill árangur verður af ,,friðarvið- ræðunum” i kvöld og einskis að vænta i þá átt. Það er þvi komin hálfgerð „stifla” i sjölskyldunni sem vonandi lagast i næstu þáttum. GF. SJONVARP ÞRIÐJUDAGUR 1. ágúst 1972. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Frá Ileimsmeistara- einviginu i skák 21.00 Ashton-fjöiskyldan. Brezkur framhaldsmyndaflokkur um lif stórrar miðstéttarfjölskyldu i siðari heimsstyrjöldinni. 14. þáttur. Ný viöhorf. Þýðandi Jón O. Edwald. Við tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið i vetur. Þessi þattur gerist um áramótin 1940 - 41. Tony Briggs hefur gefið sig fram til herþjónustu. Edwin Ashton er orðinn framkvæmdastjóri fyrir prentsmiðju Sheftons Briggs, en er óánægður og þykir mágur sinn ekki sýna sér nægilegt traust. Nokkurrar þreytu gætir einnig i sambúð Ashtonhjón- anna. 21.45 Setið fyrir svörum. Umsjónarmaður Eiður Guðna- son. 22.20 iþróttir. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 23.20 Dagskrárlok. „Hvernig skyldi okkur líða að vakna einn morguninn með nýtt andlit" Útvarp kl. 22. 15: Kvöldsagan: „Maðurinn sem breytti um andlit" eftir Marcel Aymé Karl ísfeld íslenzkaði — Kristinn Reyr byrjar lesturinn Hvernig skyldi okkur liða ef við vöknuðum einn góðan veðurdag, litum i spegil og sæjum að við værum komin með nýtt andlit? Það hlýtur að vera spennandi svona I og með. Og þó. Það væri enginn til þess að þekkja okkur og við yrðum að byrja nýtt lif. Nýja kvöldsagan sem hefst i út- varpinu i kvöld ber einmitt nafnið „Maðurinn sem breytti um andlit” eftir franska rithöfundinn Marcel Aymé. Aymé þessi var upphaflega læknir en hvarf frá þvi starfi sinu og gerðist rit- höfundur. Eitthvað mun hann hafa skrifað af leikritum og tölu- vert af skáldsögum, sem hlutu góðar undirtektir. Aymé lézt um 1950. „Maðurinn sem breytti um andlit” kom út 1948 i islenzkri þýðingu Karls ís- felds. Karl var einn af okkar snjöllustu þýðendum og þýddi ókjör af bundnu og óbundnu efni. Jöfnum höndum þýddi hann jafnt skáldsögur sem heila ljóða- bálka eins og Kalevala eftir finnska skáldið Sillenpá sem einna lengst mun halda nafni Karls Isfelds sem þýðanda á lofti. Karl var i hópi þeirra sem hlaut verðlaun úr móðurmálssjóði Björns Jónssonar fyrrum ráð- herra, sem þeir synir hans (Sveinn forseti o.fl.) stofnuðu. Jafnframt þýðingarstörfum sinum var Karl sjálfur skáld og gaf út nokkrar ljóðabækur. Hann lézt árið 1955. Kristinn Reyr rithöfundur sem les sögu Aymé um manninn sem breytti um andlit sagði okkur það hjá Visi, að þetta yrðu liklega eitthvað um 20 lestrar,20 minútur i senn. Hann sagði að nafn sögunnar skýrði sig sjálft. Maður nokkur breytir um andlit og þar með byrjar hann nýtt lif. „Það er ýmislegt sem hendir hann i þessu nýja lifi”, segir Kristinn sem varla er hægt að segja frá ef það á að takast að fá fólk til að hlusta á söguna með athygli. Utvarpið hefur valið þessa sögu og fær mig til að stauta fram úr henni. Það er allt og sumt.” Og það er vist ráðlegast að vita sem minnst um manninn sem breytti um andlit þvi að spenningurinn byrjar á fyrstu blaðsiðu og i meðförum Kristins ætti hann að geta haidið áfram og ekkertannað að gera en að hlusta með athygli næstu vikurnar á lesturinn. GF. Olympíuleikarnir í Miinchen Nokkrir miðar ásamt hótelherbergi til sölu. Uppl. i sima 36208 milli kl. 7 og 8 á kvöldin. ^☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆■ttttttWWW-íi Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 2. ágúst. m m UL Irá & Hrúturinn, 21. marz.-20 april. Skemmtilegur dagur á margan hátt. Vissara að viðhafa alla að- gæzlu i umferð, einkum á vegum úti, og ætla sér sem rúmastan tima. Nautið, 21.april-21.maí. Skemmtilegur dagur og rólegur heima fyrir. Ef til vill dálitið tafsamur á ferðalagi og þvi vissara að reikna með þvi. Tviburarnir, 22.mai-21. júni. Dagurinn getur orðið skemmtilegur, einkum ef þú leggur ekki allt of mikla áherzlu á smáatriði i fari annarra, sem þú kannt ekki sem bezt við. Krabbinn,22.júni-23. júli. Góður dagur að mörgu leyti, en óvæntar tafir geta þó sett nokkurn svip á hann, sem þú fellir þig ef til vill ekki að öllu leyti við. Ljónið24.júli-23. ágúst. Góður dagur en hætt við að ekki verði um mikla hvild að ræða. Ef þú verður á ferðalagi skaltu fara að öllu með gát, einkum á vegum úti. Meyjan 24. ágúst-23.sept. Það litur út fyrir að dagurinn verði þér einkar skemmtilegur, einkum þegar á liður. Ef til vill öllu skemmti- legri heima en að heiman. Vogin, 24.sept.-23.okt. Mjög skemmtilegur dagur, einkum fyrir yngri kynslóðina, og mun gagnstæða kynið koma þar mjög við sögu. Ef til vill lika hvað þá eldri snertir. Drekinn 25.okt.-22.nóv. Þú átt notadrjúgan og fremur skemmtilegan dag i vændum, en hætt við að það verði ekki beinlinis neinn hvildar- dagur4hvorki heima né heiman. Bogmaðurinn 23. okt.21.des. Skemmtilegur dagur og flest gengur nokkurn veginn sam- kvæmt áætlun hjá flestum. óvænt atvik geta orðið til að auka á ánægjuna. Steingeitin, 22.des.-20.jan. Skemmtilegur dagur flestum, en um leiö nokkuð erfiður, að minnsta kosti á ferðalagi. Vatnsberinn, 21. jan-19.febr. Þetta verður að öllum likindum góður dagur. Hætt er við að ein- hverjir nákomnir valdi þér nokkurri fyrirhöfn, en þú munt þó ekki telja eftir. Fiskarnir, 20.febr.-20.marz. Skemmtilegur dagur, en krefst þó allrar gætni og fyrirhyggju, og þó einkum á ferðalagi. Láttu engan taka af þér ráðin.ef i það fer. <x <t <t ýt -» -s -s ■ct -» -ts -Ct -d ■» ít -Ot ■ít -tt -tt -tt -tt -ot -tt ■ot -tt -ít -tí -tt -tt -tt -ts -tt -tt -ot -ts -tt -ot -vt -tt -tl -tt -01 ■ot -tt -ot -tt -0t -01 -Ot -tt -ot -tt -tt -ct -01 •Ot -tt ■ot •Ot -Ot -tl -ot -Et -ít -ot -Ot -Ot -yt -ot -Et -tt -ti -ot -vt -Ot ■g -tt -01 -ts -tt -Ot <t -Ot ■ot -Ot -tt -ot -ot -tt -Ot -Ot -Ot -Ct -Ot -tt •Ot -Ot -Ot ■Ot ■d -ot t}. 3f. t}. q. ÍJ tf. q. t}. q. q. q. q. q. q. t? t? V V- V- t? t? t? ty t? tf-J? J? J? tj- V- V- V- V- í1 V í5 V'-Ot ÚTVARP • ÞRIDJUDAGUR 1. ágúst 13.00 Eftir hádegiö Jón B. Gunnlaugsson leikur létt lög og spjallar við hlustendur. 14.30 Siðdegissagan: „Loftvogin fellur” eftir Richard Ilughes. Bárður Jakobsson les (2). 15.00 Fréttir. Tilkynningar 15.15 Miðdegistónleikar. Wilhem Kempff leikur Krómatiska fantasiu og fúgu i d-moll eftir Bach og „Jarnsmiðinn söngvisa”, stef og tilbrigði úr sembalsvitu nr. 5 i E-dúr eftir Handel. Salomon og hljóm- sveitin Filharmónia leika Pianókonsert nr. 3 i c-moll op. 37 eftir Betthoven. Herbert Menges stj. 16.15 Veúrfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. Heimsmeistara- einvigið i skák 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Fréttaspegill. 19.45 íslen/.kt umhverfi.Snæbjörn Jónasson verkfræðingur talar um vegina og umhverfið. 20.00 Lög unga fólksins. Sigurður Garðarsson kynnir. 21.00 iþróttir.Jón Asgeirsson sér um þáttinn. 21.20 Ferðin með „Frekjunni” Ingibjörg Jónsdóttir ræðir við einn skipsmanna, Úlfar Þórðarson lækni. 21.45 „Dumbarton Oaks”, konsert í Es-dúr eftir Stravinsky. Hljóðfæraleikarar úr Columbiu sinfóniuhljómsveitinni leika, höf. stj. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Maðurinn sem breytti um andlit” eftir Marcel Aymé. Karl Isfel islenzkaði. Kristinn Reyr byrjar lesturinn. 22.35 Harmonikulög. Benny van Buren leikur með hljómsveit sinni. 22.50 A hljoðbergi „The Barretts of Wimpole StreeC’eftir Rudolf Besier. Fluttir verða þrir þættir leikritsins, sem fjallar um fyrstu ástir skáldanna Elisabetar Barretts og Roberts Brownings. Með hlutverkin fara Katherine Cornwell og Anthony Quayle. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dag- skrárlok.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.