Vísir - 05.08.1972, Side 1
VISIR
62. árg.—Laugardagur 5. ágúst—176. tbl.
Slagœð ferðamennskunnor
Heyrt á flugstöðinni i gær!
„Þetta helvitier ekki hægt
strákar, að sitja hérna eins
og hænur á priki, komum
fram á klósettog fáum okkur
sjúss.” Hundruð ef ekki
þúsundir manna voru að fara
i ferðalög i gær, og á flug-
stöðinni Fiugfélagsmegin á
Reykja vikurflugvelli og
eins i Umferðarmiðstööinni
var ys og þys allan daginn.
Björn Bjarman heimsótti
þessar slagæðar ferða-
mennskunnar i gærdag.
SJA BLS 2.
HHHHHBBB
Stúlko á
baðströnd með
barnið í maganum
Maria N. fjögurra og hálfs
árs gömul gerði myndina
„stúlka á baðströnd meö
barn i maganum” sem
skreytir dagskrá fóstru-
þingsins. Fleiri barna-
teikningar og ekki sízt bækur
fyrir börn og bækur um
uppeldismál eru á bóka-
sýningunni i Norræna
liúsinu, sem sett var upp
vcgna fóstruþingsins. Frá
sýningunni er sagt á BLS 7 i
blaðinu i dag.
Þegar neyðin
er stœrst. . .
Billinn fer aðhiksta og hósta,
— ökumaöurinn að bölva og
ragna. „Ætlar druslan ekki
að hafa það af, — rétt einu
sinni!” Og þegar bíllinn er
stopp, þá er eins gott að vita
að hjálpin er nálæg. FIB, Fé-
lag islenzkra bifreiðaeig-
enda er stöðugt með þjón-
ustu sina úti á þjóðvegunum
um ferðahelgar, og um
verzlunarmannahelgi af tvö-
földum krafti. SJA BLS. 4
(og takið með ykkur i
helgarferðalagið).
Þeysingur
ú þjóðvegum
Þeysingurinn um þjóövegi
landsins getur orkað svo á
menn að sæluvikan sem
sumarfriinu er ætlað að
vera, getur breytzt i
svartasta örlagastríð.
Eins og betri helmingurinn
sagði,hingaö og ekki lengra,
eftir að hafa eitt hálfu
sumarfriinu i það að komast
miöja leið til áfangastaðar-
ins, heimili tengda-
foreldranna. Frúin hélt hins
vegar ferðinni áfram i fússi,
og síðan haf þau hjón ekki
sézt! -Sjá bls. 8
Eiga krakkarnir
að róða öllu?
„Eiga nú krakkarnir að ráða
öllu i skólunum?” spyrja
þeir Danir sem þykir
inenntamálaráðherra þeirra
sýna mikið frjálslyndi i nýja
grunnskólafrumvarpinu
sinu.
Það er búist við þvi, að
miklar deilur spretti upp i
danska þinginu áöur en þetla
frumvarp nái fram að
ganga, þar sem skólakerfið á
i framtíðinni að byggjast á
„meira lvöræði”.
SJA NANAR A BLS 6.
Kyn
mir
hér
fyrsti Búddamunkurinn heimsœkir ísland
Fyrsti Búddamunkurinn, sem
heimsækir tsland, kom hingað i
gær, og ætlar hann að kynna trú-
arbrögð sin og hugleiðslu hér á
landi. Hann heitir Piyadassi,
ritstj. útgáfusambands Búdda-
trúarmanna og er kominn alla
leið frá Ceylon. Aður hefur hann
fimm sinnum farið umhverfis
hnöttinn og kynnt trúarbrögð
Búdda.
Að gömlum og góðum islenzk-
um sið ætlaði undirrituð að heilsa
Piyadassi með handarbandi og
kynna sig, en fátt varð um kveðj-
ur, þar sem Búddamunkum er
bannað að snerta konur. Urðu við
þvi að láta okkur lynda að heilsa
Piyadassi að sið Búddatrúar-
manna, hneigja okkur með lófana
saman i bænastellingu. Piyadassi
býr hér hjá Haraldi Dungal. Við
þiggjum kaffisopa og Piyadassi
drekkur ávaxtasafa. „Ég bragöa
aldrei áfengi” segir hann. „Og
dýr drep ég ekki mér til matar”.
Hann er einstaklega liflegur,
opinn og skemmtilegur viðræöu,
talar mikið með liprum, brúnum
höndunum og hann segir okkur
frá trú sinni.
„Búddisminn byggir á algyðis-
trú, hann trúir ekki á einn varan-
„Búddisminn hefur orðið geysilega vinsæll á Vesturlöndum á seinni árum,” segir Piyadassi, Búdda-
munkur frá Ceylon, sem farið hefur fimm sinnum umhverfis hnöttinn f trúboðserindum.
Vindsœngur hœttu-
legar fleytur
Forsiðumyndirnar i
Visi tvo siðustu dagana
hafa ekki vakið aðdáun
þeirra hjá Slysa-
varnarfélaginu, þótt
um fallegar stúlkur
hafi verið að ræða.
Aðallega eru það þó
farartækin, sem
stúlkurnar eru á sem
slysavarnarmenn reka
augun i.
Hannes Hafstein
hafði ýmislegt að at-
huga við þennan búnað.
Hann sagði um klæðn-
að annarrar stúlkunnar
að hann hafi verið fyrir
neðan allar hellur og þá
helzt fótabúnaðurinn,
sem var með háum
leðurhæl.
— Það þarf ekki nema einn lit-
inn nagla á svona skóm til að
rifa loftið úr lofthylkjunum.
Svona skófatnaður er stórhættu-
legur, það eina sem dugir eru
gúmmiskór eða strigaskór.
Ekkert björgunarvesti sást á
myndinni og klæðnaðurinn þarf
að vera skjóllegur ef eitthvað
kynni að koma fyrir.
Stúlkan sem sást á vindsæng-
inni er dæmigerð fyrir hættu-
lega misnotkun, þar sem vind-
sængur eru ekki gerðar fyrir að
vera fljótandi farartæki. Það
eru engar höldur á vindsæng-
um, hætt við að fólk renni út af
þeim og alveg ógjörningur að
komast upp á þær aftur.
t sambandi við þetta mál má
lika minnast á létta bolta sem
börn fá oft til að leika sér að við
vatn eða synda með. Þetta er
svo létt að það berst fljótt frá
landi og er ekki fyrir nokkurn
mann að ná þeim á sundi. Það
er þvi betra að reyna ekki að ná
boltanum þótt hann sé kær gjöf
heldur láta hann fara sina leið.
Og Hannes lýkur þessum
pistli um hættur við vötn, sem
fólk ætti að hafa i huga, þegar
það er statt nálægt vatni nú um
verzlunarmannahelgina. —SB—
legan guð, ekkert i heiminum er
varanlegt. Hugur mannsins er
frumkraftur lifsins, hann einn ber
alla ábyrgð, viö getum ekki kast-
að ábyrgðinni á einhverja guöi.
Búddisminn er umburðarlyndur
og hefur engin boð eða bönn.
Þekking og skilningur er frum-
skilyröi-, að uppbötva og reyna,
það er þýðingarmest i lifinu.
Búddisminn er huglæg visindi.”
„Nú hefur Búddisminn orðið
geysilega vinsæll á Vesturlöndum
á seinni árum.”
„Ungt fólk i dag vill reyna eitt
og annað, það vill ekki láta skipa
sér fyrir verkum. Mjög margar
trúarstofnanir eru ólýðræðislegar
og skortir umburðarlyndi.
Maðurinn hefur einbeitt sér of
mikið aö ytri visindum, efnisleg-
um en ekki huglægum. Búddism-
inn er hugvisindi og hugleiðsla
Búddatrúarmanna er ekki
„mystisk”, heldur fullkomlega
eölileg.”
„Tekur Búddatrú afstöðu til
stjórnmála?”
„Búdda var einn affrumkvöðl-
um lýðræðis i heiminum og það er
enn i dag frumatriði trúar-
bragðanna. Margir Búddamunk-
ar hafa fórnað lifi sinu i Vietnam,
i striöi, sem ekki er trúarbragða-
legt, heldur pólitiskt, og þannig
sýnt öllum heiminum, að þeir eru
reiðubúnir að fórna sér fyrir
lands sitt og þjóð. Búdda vildi að
fólkið hefði valdið og hann er einn
af þeim fyrstu sem hefja konuna
upp i sama sæti og manninn.
Hann hvatti foreldra til þess að
láta mennta dætur sinar, eins og
syni, til þess að þær gætu átt
sömu möguleika i lifinu og
piltarnir.” Og nú verðum við að
koma með siðustu spurninguna
og þá sigildustu:
„Hvernig lizt þér á Island”
Óg Piyadassi ljómar: „Dásam-
legt land, fallegi fossinn ykkar, ég
kalla hann „mini Niagara”, hann
er dásamlegur, (Gullfoss). Og
svo hafiö þið enga herskyldu, það
þykir mér dásamlegast. Þar sem
engin her er, þar verður ekki bar-
izt.”
Og þar meö kveðjum við
Piyadessi að Búddasið. Piyadessi
mun halda fyrirlestur á þriðjudag
og hugleiðslu á miðvikudag og
verður það auglýst nánar. —ÞS
Fram, fram í stríð
- ip Iwm Knttku w». *
Fengu fjall að gjöf
- „Arivm «4 ólfo v*rí*ef»«, þoi gœti
vínsaril ótsý»!«fo4»r" segir Árw' ' '
san fr«nkv*n«los»|W NdHunmertKhwráSj
*»>»'« M, « „„ »
awgn A»eaK«i3P-
«fc.Atí l«))««tvr
**t*rtob*x
ÓPÍUM OG MORFÍN NÚ ÓÞÖRF LYF —BLS. 5