Vísir - 05.08.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 05.08.1972, Blaðsíða 2
2 visnsnt: Haldið þér að ölvun verði meiri eða minni um þessa verzlunar- mannahelgina heldur en aðrar? / Friftjón Þórajrinsson, nemandi: Ég hugsa að hún verði minni núna. Það gerir veðrið. Ég held, að fólk liggi bara i leti i sólinni yfir helgina og nenni hreinlega ekki að drekka sig fullt. li iið l> j ör g IVI a g n ú sd ó11 i r , bankaritari: Ja, ég veit ekki. Ef veðrið helztsvona fram yfir helgi þá er ég viss um það, að fólk vill heldur flatmaga i sólskininu heldur en að vera að drekka. Kalrin (iuðjónsdóUir, nemi: Eg held að hdn verði miklu meiri. Það eru nefnilega langtum fleiri krakkar sem fara út úr bænum núna en i fyrra, sérstaklega á Laugarvatn. Sigurlaug Kósinkrans húsmóðir: Auðvitað óska ég þess að ölvunin verði minni. Þvi miður þá hef ég grun um.að fólk drekki meira núna en i fyrra. Það er góða veðrið, sem gerir það, að fólk flykkist út á land eiginlega bara til að skemmta sér eins og það kallar það — þ.e. drekka áfengi. Sinilri Sigurjónsson, póstfulltrúi: Ætli það verði ekki álika. Vona þó að það verði minna. Bjarni Kjarnason starfsm. Rafveitu: Er þetta ekki alltaf að aukast? Það verður liklega meira núna um fylleri. Annars eru nú ellefu ár siðan ég hætti þessum ósóma, svo ég er nú ekki mikið inni i þessum málum. Visir Laugardagur 5. ágúst 1972 Áfram streymir endalaust Allt ó ferð og flugi Veðrið er nákvæmlega eins og það á að vera um verzlunar- mannahelgi, heiðskír himinn nema nokkrar meinlausar skýja- tjásur siglandi á hægri ferð á austurhvolfinu. Fólk að flýta scr, hílar að koma og fara, harnungar teipur aðrcgast með tjald og bak- poka. Leiðin liggur lil Eyja. Flogið á klukkutima fresti og Arni Johnsen mættur. Ég og guð crum i Þór Þú ætlar ekki að láta standa á þér, spyr ég þúsundþjalasmiðinn. — ()g ekki aldeilis, Eyjarnar i kvöld, Atlavik á morgun og Vaglaskógur á sunnudaginn. — Þú ert að slá ömari alveg viö, ætlarðu ekki að fá þér flugvél? — Kannski. Ég kann á flugvél, vantar bara prófið. — Veðrið i Eyjum? — Það er fint. Ég skal segja þér drengur minn að veðrið er alltaf finst, þegar Þór heldur Þjoðhátið- ina. — Þór? — Já, við erum i Þor, ég og guð, segir Arni og um leiö er kallað upp i hátalarann: Takið eftir: Flugfélagið til- kynnir brottför til Vestmanna- eyja. Þau sitja þrjú saman sunnan undir vegg og sleikja sólskinið, þeir i alveg eins peysum og hún með Jesus Christ Superstar á brjóstunum. — llvert ætlið þið krakkar? — A Egilsstaði. — Eruð þið að austan? — Nei, við erum frá Selfossi og ætlum að flýja sólskiniö, herrarnir hafa orðið og hún hlær olurlitið, finnst þeir sniðugir. — Af hverju ekki Laugarvatn? Iss, það er ekkert varið i það, maður er búinn að vera þar svo olt. Hvert liggur leiðin um helgina? Ætli það séu ekki Eyjarnar. Við ætlum sko að lita a landið, og enn er það karlkynið sem stendur fyrir svörum og sú litla með Jesus segir þetta ekkert tiltakanlega lágt og litur i kring um sig á eftir til að gá að hvort einhverjir hafi ekki heyrt hvað ’ hann sagði. Borðalagðir flugstjórar ganga um salinn og tindilfætt flugfreyja með kynþokka i mjöðmunum tiplar með bakka inn á skrifstof- una. ösin eykst og áfram er kallað i hátaiarann. Farþegar til Isafjarðar, Akureyrar, Egils- staða, Vestmannaeyja og úti heldur sólin áfram að úthella geislum sinum og flugvirkjar i hvitum sloppum klifra upp á ne'fið á sexunni sem stendur á tröðinni. I’aufast mcð svartadauða i flösku Klukkan er sex og hann hefur dregið upp á sig, sólin á undan- haldi. Fyrir utan Umferðarmið- stöðina skiði og gitarar og stúlkurnar tvær, sem standa þar hjá þesslegar, að endastöðin hlýtur að vera Kerlingafjöll. Þröngt á þingi innan dyra — liggur við að maður þurfi að olnboga sig áfram. 1 einu horni bakkabúðarinnar þrir unglingar að paufast meö stóra Svarta- dauðaflöskur. Kanski hafa þeir borið hvitu kyrtlana s.l. vor eða jafnvel eiga það eftir, þeir eru meö sitt hár og ósköp lágir i lofti. Aberandi aldursflokkar þrettán, fjórtán fimmtán og upp i sextán. Við hliðína á mér á bekk sitja roskin hjón, hún dálitið dogguð með finheitins eyrnarlokka og hann góður með sig augsýnilega eigandi eitthvað undir sér. Hún: Veiztu, að ég er bara með eina skó. Hann: Maður fer nú varla að klifra fjöll. Hún: Ég var að taka dragtina úr hreinsun, heldurðu hún krumpist? Hann: Fer ekki rútan að fara? Hún: Sér nokkuð á mér elskan? ()g hann stendur upp reistur og fattur og polli með eplakinnar rekst á hann og segir ekki „fyrirgefðu” og maðurinn tautar: ,,Þeir kunna sig ekki mikið þessir unglingsdjöflar.” Þau hópast saman með töskur, tuðrur, poka og pinkla vera að doka eftir dóttur sinni, sem er að koma af reiðskóla, hann fellur illa i kramið. Hávær kliður, sambland af háværu unglingatali, diska- glamri, uppköllunum i hátalara, og klikkinu i peningakössum. Oti biða rúturnar það eru fullorðnir rútubilar, halfrútubilar og allt niður i tólfmannakálfá, og klukkan að halla í sjo og unglingarnir hópast saman á hlaðinu með böggla, pinkla, bak- poka, töskur tuðrur, og kannski eins og eina flösku i felum og ég spyr einn með ljóst hár, hvert straumurinn liggi. — Það er Laugarvatn ma’ r, það er bezt að smúla inn spútti þar. Ut i horni liggur ungur sveinn og hallar sér upp að hvilu- pokanum sinum, hann er ekkert nema rólegheitin, bara biður þolinmóður, og án sýnilegrar eftirvæntingar. Rykið þyrlast upp, þegar rúturnar þeysast úr hlaði hver af annarri. Það ýrir ofurlitið úr lofti, en roði á vesturhimni. En vel á minnst segir ekki einhvers staðar: Kvöldroðinn bætir og morgunroðinn vætir? Og að lokum: Áfram streymir endalaust o.frv. B. Sleikja sólskinið og ætla i Atlavik Christ á brjóstunum er hætt og hlæja, lagar gleraugun á nebbanum og teygir úr bifunum. Þrir töffarar á bekk A hlaðinu fyrir framan flug- stöðina er bill frá Sæmundi að taka á móti túristum fra Horna- firði og þýzk kerling með stórt nef og staf segir: Es ist wunderbar. Angalitil dama með rauðar slaufur i ljósum tikarspenum segir á dönsku að hún sé að fara með pabba og mömmu til Græn- lands langt i burtu. Þrir toffar á bekk. Einn á hvitri peysu með hálfum ermum og tattóveraða handleggi upp aö olnbogum. Sá á hvitu peysuni stendur upp, þenur út brjóstkassann og segir: — Þetta helviti er ekki hægt strákar, að sitja hér eins og hænur á priki, komum fram á kló- sett og fáum okkur sjúss. Hann Það er Laugarvatn inar Þrjú sænsk ungmenni við boro að drekka kaffi þær tvær. Hvert er ferðinni heitið spyr ég. — Til Húsavikur, svarar hann, og sú ljóshærða með gleraugun leið- rettir hann og segir Húsafell. — Er langt siðan þið komuð hingað? — Nei, bara tveir dagar, það er voða vont að fá farartæki, við ætluðum að fá okkur bilaleigubil, en ómögulegt. Það er ..roligt” hér i Reykjavik. segir pilturinn og brosir. Kristjón forstjóri vagar um með pipuna og antvistast i bakka- búðarréttinni, setur flöskur i frystikistu og stjórnar stúlkunum sinum. Hann er þreyttur i göngu- laginu. en ábúðarmikill i and- litinu. tslenzkur Idiplómat frá Washington röltir um og segist Tveir ferðaklórir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.