Vísir - 05.08.1972, Blaðsíða 6
6
Vísir Laugardagur 5. ágúst 1972
Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakiö.
Blaðaprent hf.
Öll stjórnin ber ábyrgðina
Mikið hefur verið ritað og rætt um hin nýju
skattalög rikisstjórnarinnar, allt frá þvi að frum-
varpinu var með óafsakanlegri hroðvirkni hespað
gegnum þingið s.l. vetur. Sumir kunna ef til vill að
vera farnir að lita svo á, að það sé borið i bakkafull-
an lækinn, að halda þessum skrifum áfram nú, þeg-
ar skattskrárnar eru komnar út, og öll þjóðin veit,
hvaða áhrif þessi nýju skattalög hafa á afkomu al-
mennings, og ekki minnst þeirra, sem sizt máttu við
þvi að taka á sig aukna útgjaldabyrði. Skal
minnst á ályktun miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins
um þetta efni fyrir nokkrum dögum.
En hér er um svo mikið hagsmunamál alls þorra
skattborgaranna að ræða að flestum mun vera
ósárt um, þótt rikisstjórnin fái orð i eyra fyrir þetta
tiltæki sitt. Stjórninni sjálfri og stuðningsmönnum
hennar er nú orðið ljóst, hve mikilli gremju og
gagnrýni þessi skattpining hefur valdið meðal
landsmanna, og þess vegna lætur hún málgögn sin
daglega bera fram allar þær blekkingar og talna-
falsanir, sem hún getur upphugsað til þess að verja
sitt auma skinn.
Stjórnarandstæðingar sögðu það fyrir strax i upp-
hafi, hver afleiðing þessarar lagabreytingar mundi
verða og þær spár hafa reynzt réttar. En ósvifni
stjórnarliðsins er svo mikil, að það segir bara, að
hvitt sé svart. T.d. sagði Timinn i forystugrein nú i
vikunni, að höfuðatriðið fyrir launþega með lágar
og miðlungstekjur væri þetta:
„Hlutfallsleg skattabyrði hefur ekki aukizt á
þessum launahópum. Sami eða lægri hlutiaf launum
er tekinn i opinber gjöld en áður var. En fyrir þann
hluta, sem launþegar halda sjálfir, fá þeir nú miklu
meira en áður.” Svo mörg eru þau orð, og á eftir
fylgdu útreikningar i prósentum, sem áttu að sanna
þessar fullyrðingar blaðsins. Miklir pólitiskir trú-
menn mega þeir lesendur Timans vera, sem taka
mark á þessum skrifum.
í sömu forystugrein Timans er rikisstjórninni
hælt með sterkum orðum fyrir að hafa bætt kjör
bótaþega um mörg hundruð milljónir. Þeir sem lesa
Þjóðviljann hafa lika séð lofsönginn, sem þar er að
staðaldri kyrjaður um Magnús Kjartansson út af
umhyggju hans fyrir gamla fólkinu og bótaþegun-
um öllum. Hið sanna er þó, að hækkun sú á trygg-
ingabótunum, sem rikisstjórnin hefur komið i fram-
kvæmd er engin önnur en sú, sem ákveðin var i
stjórnartið Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins
og hefði þvi eins komið til framkvæmda, ef þeir
hefðu farið áfram með völd.
Alþýðubandalagsmenn viðurkenna skattahækk-
unina með þvi að ráðast á Framsóknarflokkinn fyr-
ir þær. En vitaskuld er öllum ljóst að rikisstjórnin
ber öll ábyrgðina á þeim. Alþýðubandalagsmenn
geta ekki skotið sér undan þeirri ábyrgð með þvi að
rægja samstarfsflokka sina og skella allri skuldinni
á þá. Framsóknarmönnum sviður að sjálfsögðu
undan þessu og reyna að bera hönd fyrir höfuð sér.
Þjóðviljinn hefur t.d. verið að tala um „Eysteinsk-
una” endurvakta og þykir það vist engum ofsyrði,
sem man eftir hugkvæmni Eysteins Jónssonar i að
finna upp nýja skatta, þegar hann stjórnaði fjár-
málum rikisins. En þetta er engin afsökun fyrir Al-
þýðubandalagsmenn. Þeir eiga sökina, engu siður
en hinir.
Mörj{um þætti vist gott að losna viö prófpúlið. Þessar íslenzku skólastúlkur eru að „slappa af”, þrekað-
ar i iniöjum prófum.
Danski menntamálaráðherrann gengur lengra en Gylfi:
Próflausir skólar
Danski menntamálaráðherr-
ann gengur töluvert lengra en
(jylfi gerði í grunnskólafrum-
varpinu. öll próf og allar ein-
kunnir skulu lagðar niður i grunn-
skólanum danska. Nemendur,
ekki skólinn, ákveða, hvort þcir
vilja fara i gagnfræöaskólann
(gymnasiet). Mcnn sitja ekki
„oítir i bekk” lengur.
Knud ileinesen menntamála-
ráðherra leggur þetta til.
Umsagnir skólans um nemend-
ur verða ekki sendar öðrum skól-
um. Það verður nemandinn, sem
ákveður, hverjir fá slikar um-
sagnir i hendur. Nemendur drag-
ast ekki með lélegar umsagnir
skólans alla ævi.
Nemendur fá að hafa hönd i
bagga um hvernig námsefni er
valið og hvernig háttað kennslu.
Foreldrar hafa einnig tillögurétt,
en þeir geta ekki hindrað, að börn
þeirra fái sérstaka kennslu ef
börnin vilja.
Lýðræði, frelsi
og umburðarlyndi
Heinsen gengur allra manna
lengst i skólabyltingu. Málið mun
ekki ganga fram með þögn.
Dönsk blöð spá hávaðasömun
deilum milli skólamanna. Ráð-
herra rökstyður breytinguna með
eftirfarandi: Nemendur eiga að
öðlast i skólanum þekkingu,
kunnáttu og hæfni, vinnutækni og
tjáningaraðferðir, sem leggja
grundvöll fyrir fjölbreytta, al-
hliða þroska ungmennisins, and-
lega og likamlega, tilfinningalega
og félagslega. Nemendur eiga að
öðlast „meiri löngun til að læra og
( þroska hugarflug sitt, beita hæfi-
‘ leikum til sjálfstæðs mats og af-
stöðu, þroskast með trausti á eig-
in getu og möguleika, sem sam-
féiagið býður”.
„Nemendur skulu búnir undir
'( að taka þátt i lýðræðislegu þjóð-
skipulagi, þess vegna skal allt
skólalifið byggjast á lýðræði,
frelsi og umburðarlyndi.”
ilialdsmenn og sósial-
istar andvigir þessu
„Skólinn má ekki,” segja tor
vigismenn skólabyltingarinnar
dönsku, ” reyna visvitandi að fá
börnin til að tileinka sér sérstakt
lifsviðhorf eða sérstakar skoðan-
ir.”
1 danska „folkeskolen” er smá-
barnabekkur i eitt ár, og siðan
grunnskóli i 9ögl0. árið er frjálst.
Þegar nemandi fer úr skóla að
loknu námi, á hann aö fá vitnis-
burð (umsögn) um, hvaöa grein-
ar hann hefur lagt stund á, og
hvernig honum hefur gengið.
Hann fær einnig umsögn kennara
i hverri grein, og skólinn getur
gefið honum vitnisburð um sam-
vinnuhæfileika hans.
Illlllllllll
asw
Umsjón:,
Haukur Helgason
Knud Heinesen ráðherra byggir
tillögu sina um afnám einkunna á
þvi, að „einfölduð einkunn geti
ekki gefið jafn góðar hugmyndir
um ungmennið og vel samin
greinargerð frá kennurum, al-
mennari eðlis.”
Tveir ólikir flokkar, ihalds-
flokkurinn og sósialistiski
flokkurinn, hafa risið gegn mörg-
um þessum tillögum jafnaðar-
mannsins Heinesen. Flestir
flökkar virðast annars klofnir.
Ihaldsmenn og sósialistar segjast
vilja halda einkunnagjöfinni. Þeir
benda á áhrifin á hugmyndir for-
eldra um, að kennari sé hliðhollur
eða „á móti” ákveðnum börnum,
en slikt fylgir skólamálum alls
staðar.
„Alveg steinhissa”,
segja nemendur.
„Ég er alveg steinhissa, ” sagði
formaður landssambands nem-
enda, Kulavig, þegar hann frétti
um þessar ráðherratillögur. „Við
höfðum ekki minnstu hugmynd
um, að þetta væri i aðsigi. Þetta
er samt einmitt það, sem við höf-
um barizt fyrir af allri hörkunni
undanfarin ár, svo að við getum
verið ánægð.”
Ýmsir kennarar mæltu með
breytingunum, en aðrir gegn. Til
dæmis hefur verið bent á, að
nemendur ættu að eiga kost á ein-
hvers konar prófum, svo að þeir,
sem finnst kennarinn ,,á móti”
sér i „umsögninni”, verði ánægð-
ari.
Ganfræðaskólakennarar voru
yfirleitt sæmilega ánægðir. Kenn-
arasamtökin almennt benda á
agnúa.
Danir enn reiðu-
búnir til „tilrauna”.
Skólalýðræði, sem kallað er,
verður grundvöllur danskra
skóla, ef ráðherrann má ráða og
þingið samþykkir. Nemendur fá
mun meiri áhrif á skólann sinn en
áður, val námsgreina og allt
fyrirkomulag kennslu og val
stjórnenda.
Heinsen er þvi töluvert lengra
kominn en islenzk skólalöggjöf i
átt til þess „skólafrelsis”, sem
deildt er um hvarvetna. Er það
börnum og ungmennum fyrir
beztu að ráða sem mestu? Verður
það til þess, að þau læri i rauninni
fremur það, sem þau sjálf geta
notað og það sem hagnýtt er og
raunhæft i nútimanum, i stað
upptugginna dauðra náms-
greina? Eða leiðir það af sér
þjóðfélagshnignun, leti og aðra
ómennsku?
Við þessum spurningum fæst
raunar ekkert ótvirætt svar, fyrr
en skólalýðræði hefur verið reynt
með nokkuð róttækum hætti, og
Danir eru eins og fyrri daginn til-
búnirað gera þá tilraun. Tillögur
ráðherrans verða samt varla
samþykktar óbreyttar, og með
ferð þingsins mun skera úr um,
hvort gengið verður jafn langt og
hann vill eða numiö staðar skrefi
fyrr.
vísrn
Utgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson,
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611 (5 linur)