Vísir - 05.08.1972, Page 7

Vísir - 05.08.1972, Page 7
Vfsir Laugardagur 5. ágúst 1972 7 „Barnabœkur eiga að efla málþroska auka þekkingu örva hugmyndaflug" . . . getum við ekki bœtt einhverju við? Umsjón: S B Mamma, mamma, mamma. Langdregið kall frá barni, sem sit- ur ásamt öðrum börn- um í bilnum. Fyrir ut- an bilinn sitja fjórir fullorðnir á sólstólum við borð og njóta úti- verunnar. Loksins svarar mamman kall- inu og segir: „Viltu hætta þessum hávaða”. ,,Er þetta uppeldi? spyr Else Mia Sigurðs- son forstjóri Norræna hússins og bókavörður, sem varð vitni að þess- um atburði hjá Krýsu- vik um daginn. Hvað vitum við um uppeldi? Það er hætt við þvi að viðhorfin hafi breytzt mikið frá þvi i Skemmtun fyrir bömin í aftursœtum bílsins — er ein af barna- og uppeldisbókunum á sýningunni í Norrœna húsinu, sem börnin hafa meiri áhuga á að sœkja en foreldrarnir sveitaþjóðfélagi gömlu dag- anna, en það skortir vist mikið á, að foreldrar almennt geri sér grein fyrir þvi. Nú undanfarin ár hefur mikið verið skrifað og rætt um barnauppeldi af leikum sem lærðum, en þær umræður hafa oftast farið fram á öðrum vettvangi en hér á landi. Það getum við merkt af ýmsum staðreyndum. Ein þeirra er, að þeir sem fjölmenna á barna- bókasýningu Norræna hússins, sem er i tilefni fóstrumótsins ' eru fóstrur, kennarar og svo börnin, sem virðast hafa leyni- sambans sin á milli, sem visar þeim veginn á þá staði, sem vænlegir eru til afþreyingar. Það býður sýningin upp á með leikrými, leikföngum og bókum, fyrir utan möguleikann á að teikna. Foreldrar hafa hins vegar lit- ið látið sjá sig á sýningunni, þar sem má sá fjölbreytt úrval barnabóka flokkuðum eftir aldri auk fjölda bóka um uppeldis- mál. Þá erum við komin aö öðru at- riðinu, sem bendir til þess, að uppeldismálin, sem slik hafa ekki enn komizt inn i umræð- urnar, og það er sá fjöldi rita um uppeldismál, sem hafa verið skrifuð á islenzku eða þýdd á is- lenzku. Það eru einar 17 bækur og eru allar á sýningunni i Nor- ræna húsinu. Þar er mikilsvirk- asti rithöfundurinn Dr. Matthias Jónasson. Til samanburðar höfum við svo það sem aðrar þjóðir, aðal- lega Norðurlandaþjóðirnar, hafa gefið út um sama efni og er það þó hvergi nærri tæmandi. Við sjáum, að leikskólarnir taka á móti börnunum á þann hátt að geínir eru út bæklingar með feiðbeiningum fyrir foreldra og mun bæklingur Valborgar Sigurðardóttur skólastjóra Fóstruskólans „Uppeldismál, fræðsla handa foreldrum” geta svarað þörfinni að einhverju leyti. Þessi bæklingur kom út i tengslum.við fóstruþingið og i samvinnu Norræna hússins og Sumargjafar. En þegar litið er á ýmsa titla bókanna á sýningunni er margt freistandi að sjá. Við sjáum, að Færeyingar eru komnir lengra en við i fræðslu um kynferðis- mál handa yngsta aldursflokkn- um. Þeir hafa þýtt á færeysku bók Sten Hegeler, sem er ekta barnabók með teikningum sem virðast svo saklausar að þær ættu ekki að geta hneykslað siðavöndustu sálir og þaðan af siður börnin. Við sjáum lika bókina „Bilsjov for börn pa bagsæd'et”' eða „Skemmtun fyrir börnin i aftur- sætum bilsins”. Það ætti ekki að vera ónýtt fyrir foreldra að hafa kynnt sér þessa bók áður en þau leggja upp i feröalagið fyrir verzlunarmannahelgina eða sumarleyfið. En þessi bók er ekki til i islenzkri þýðingu frem- ur en aðrar bækur umuppeldis- mál sem virðast mjög skemmti- legar, bæði fyrir foreldrana sem börnin. Eða eru uppeldismál ekki með skemmtilegri við- fangsefnum fyrir foreldrana? Barnabókasýningin sýnir að svo getur verið. ■p 3i>r\S Ka/v\ 'Uea GÍ Wuys\ oJí Þaö er lika hægt að sjá bókina um börn og fjölskylduna og bók- ina um börn og matinn og litlu skemmtilegu bókina um það hvernig á að hugga börnin. Hún er ætluð systkinunum ekki siður en foreldrum og meö teikningunum, afar auðvelt og skemmtilegt lesefni. Svo sjáum við lika sigildar bækur um uppeldismál, sigildar að þvi leyti, að alltaf er hægt að sækja fróðleik og gaman i þær, bæði fyrir börn og foreldra. „Leikur barna og afþreying” er ein þessara sigildu bóka og er eftir Anna Marie Nörvig. Og af henni hefur Else Mia Sigurösson 1 haft kynni og notað og segir frá einu dæmi. „Það er hlutverka- leikurinn t.d., þegar börn og foreldrar skipta um hlutverk, • börnin leika foreldranna og for- eldrarnir börnin. Með þessum leik sér maður hvernig maður hefur beitt uppeldinu. Kannske á maður von á óþægilegri upp- lifun, ef börnin skamma mikið, en augun ættu að opnast fyrir vissum hlutum. Og þarna sjáum við lika „Börnemetorik”, sem fjallar um það hvernig handahreyfing- ar og starfsemi heilans fylgjast að og tengist þvi hvaða leikföng er hægt að láta börnin hafa og hvenær. Undirtitill þessarar bókar er „hreyfingarþroski smábarna”. Sýningin er byggð upp á bók- um úr bókasafni Norræna húss- ins og Fóstruskólans. „Við höfum mjög sómasam- legt safn uppeldisbóka hér”, segir Else Mia Sigurðsson. „Og fyrir þessa sýningu höfum við pantað mikið af bókum frá Norðurlöndum og fengið þær, þótt Finnarnir hafi verið seinir til að afhenda sinar.” Og einhverjir eru áhugasamir um uppeldismál vegna þess, að bókin hennar Thea Bank Jensen „Dramatisk leg” eða bókin um leikinn er oftast nær i útláni frá safninu. En ákjósanlegast er þó aö fá bækurnar i islenzkri þýðingu, þá ekki siður bækur fyrir börnin sjálf eins og bókina á sýning- unni, þar sem börnin geta lært á klukkuna og lært á peninga með leiðbeiningu foreldrisins áður en farið er að sofa. Þótt margir foreldrar fari út úr bænum þessa sólarhelgi þá eru það kannske jafn margir sem dveljast i bænum. Er þá ekki úr vegi að lita á sýninguna i Norræna húsinu, sem er opin frá 2-7 bæði laugardag og sunnu- dag. Börnin eru velkomin. — SB -

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.