Vísir


Vísir - 16.12.1972, Qupperneq 1

Vísir - 16.12.1972, Qupperneq 1
vísm (»2. árg. — Laugardagur 16. desember 1972 — 289. tbl. KOMA FRA ASTRAUU í FISKINN Á SUÐUREYRI — sjá baksíðu Gengislœkkun um helgina? Um eða innan við 10% gengisiœkkun. — Olafur Jóhannesson fer sennilega ekki frá. — Stjórnin fœr sér frest fram á vor til að undirbúa fallið óhætt er að fullyrða það núna með nokkuð mikilli vissu, að gengi islenzku krónunnar verður lækkað nú um helgina eða þegar upþ úr helginni. Jafnframt verður krónan ,,látin fljóta", þannig að verð er- lends gjaldmiðils lækki eða hækki eftir ásfandí milli- rikjaviðskipta og efna- hagsmála. Gengislækkunin mun verða innan við 10% Miklar samningaviðræður hafa staðið á milli stuðningsflokka rik- isstjórnarinnar. t gærkvöldi voru að nást samningar um gengis- breytingu samkvæmt tillögum Hannibalista, þó að gengið verði ekki fellt eins mikið og þeir höfðu krafizt. Eins og Vfsir hefur skýrt frá vildu Hannibalistar láta geng- ið falla um 15-16% — Samkvæmt þvi samkomulagi, sem var að nást milli stjórnarflokkanna i gær, verður þessi gengisfelling eina efnahagsráðstöfunin, auk þess sem áfengi og tóbak. ver-ður að siátfsQgðu hæ'kkað i verði. Ekki er ætlunin að mæla verð- hækkun þessara vörutegunda i kaupgreiðsluvisitölunni, nema ASl mótmæli. Það liggur i augum uppi, að það er ekki auðvelt fyrir stjórnar- flokkanna að fella gengið eftir all- ar þær fullyrðingar, sem þeir hafa komið óumbeðnir með um, að þessi rikisstjórn mundi aldrei fella gengið. — Þó að i rikisstjórn- inni sé hver höndin upp á móti annarri og heiftin manna á meðal þar sé að magnast upp i hreint hatur, eru þó Framsókn og Alþýðubandalag sammála um eitt a.m.k. Þeir eru ekki tilbúnir að fara frá, telja rikisstjórnina ekki undir það búna að skilja við. Þvi láta þeir nægja að gera smá gengislækkun, þó að þeim eins og efnahagssérfræðingum sé ljóst að hún sé allsendis ófullnægjandi. En hún nægir til að gefa rikis- stjórninni frest 44i 3ð buá sér i háginn áður en hún fer frá. Og svona i samræmi við islenzkt happdrættishugarfar vonast hún eftir stórkostlegri vetrarvertið með stórhækkandi útflutnings- verðlagi. Aðeins með þvi gæti stjórnin gert sér vonir um að halda þjóðarbúinu gangandi leng- ur en fram á vor án nýrra efna- hagsráðstafana. Þessi mál voru til umræðu á sérstökum þingflokksfundum, sem stjórnarflokkarnir héldu undir kvöld i gær, en á þessa þingflokksfundi voru ýmsir áhrifamenn flokkanna boðaðir, auk sjálfra þingmannanna. — Ekki er ljóst, hvort einhver áherzla hefur verið lögð á það, að Ólafur Jóhannesson segi af sér og annar framsóknarmaður taki við starfi forsætisráðherra. 1 flestum lýðræðisrikjum mundi það vera talið eðlilegt, með tilliti til þess sem á undan er gengið, ef krónan verður lækkuð. Talið er þó senni- legt að Ölafur tr.uui Sttja áíram. „Merkilega fullkomin njósnastarfsemi Mbl.” Eins og gefur að skilja voru talsmenn stjórnarflokkanna ekki tilbúnir til að staðfesta það, sem að ofan segir. Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins sagði, að engar ákvarðanir hefðu verið teknar enn um' þessi mál. Hann sagði þó, að miðstjórn bandalagsins hefði verið boðuð i dag til að fjalla um þessi mál. — En það var fleira, en efnahags- málin, sem voru til umræðu hjá stjórnarflokkunum i gær. — Hvernig fær Morgunblaðið hinar nákvæmu lýsingar sinar á lokuð- um fundum rikisstjórnarinnar og lokuðum fundum þingflokkanna i Alþingishúsinu? Það hlýtur að vekja nokkra furðu, að Morgunblaðið skuli hafa nákvæmar lýsingar á lokuðum fundum bæði i Alþingishúsinu og hjá rikisstjórninni, lýsíngár, sem þeir segja vera sannar. Þó að sumar séu hreinn uppspuni eru i öðrum tilvikum þess dæmi, að Morgunblaðið hafi upplýsingar af lokuðum fundum, sem engin leið er að átta sig á, hvernig hafa komizt i þeirra hendur, sagði Ragnar Arnalds — Það er merki- legt að þeir skuli hafa svo full- komna njósnastarfsemi. Það eru auðvitað margar aðferðir notaðar til að ástunda njósnastarfsemi og fréttastarfsemi af þessu tagi, sagði Ragnar. -VJ „Lífið" deyr Blaðadauðinn kveður enn dyra. Næststærsta frétta- myndablað sögunnar gefur upp öndina. Timaritið Life átti aðeins tvo beina keppi- nauta, cf fjárhagsörðug- leikar felldu það. Life var þekkt fyrir að spara ekkert til i þjónustu við lesendur sina. SJABLS. 6 Gagnrýni á bók Jónasar stýrimanns — sjá bls. 7 Jörðin opnaðist undan fótum konunnar — sjá NÚ-síðu á bls. 12 Nýjar hugmyndir um jólaskrautið - sjá INN-síðu á bls. 10 Vísnaþátturinn: KOMIÐ NÚ AÐ KVEÐAST Á — er á bls. 5 DAGAR TIL JÓLA Mk .wfm ■ ss MIKIÐ SKOÐAÐ Það kennir margra grasa i leikfangaverzlununum og ekki laust við aö óskalistinn geti orðið langur hjá þeim yngstu eftir að hafa horft á alla dýrðina og óskað þess að fá eitthvað af henni i jólagjöf. Horfðum ó sjónvarpið öngla í 600 þúsund krónur í gœr Nærri mun láta, að tekjur sjónvarpsins i gærkveldi hafi nálgazt 600 þúsund krónur, ef ekki meira. Fjöldi auglýsinganna var 70 og sýningartími þeirra hefur verið i kringum 25 minútur. Hver heil auglýsingaminúta kostar 22 þúsund krónur., en auglýsingarnar á einni minútur geta orðið allt að átta og eru það þá eitthvað um 30 þúsund krónur, sem minútan gefur af sér. „Það gleður mig mjög, ef auglýsingamagnið er það sem þið segið”, svaraði Pétur Guð- finnsson, framkvæmdastjóri sjónvarpsins, þegar Visir hafði tal af honum i gærkveldi. Sjálfur hafði hann ekki kynnt sér auglýsingamál sjónvarps- ins. ,,En þeim mun fleiri sem þær eru, þeim mun betra”. sagði hann, „Sjónvarpið hefur býsna mikla þörf fyrir þær tekjur”. Rétt er orðið. Tap sjónvarps- ins á yfirstandandi ári hefur verið reiknað um 55 milljónir, .eins og fram hefur komið i fréttum. Hann neitaði þvi, að i reglu- gerðum útvarps eða sjónvarps fyrirfyndust reglur um hámark auglýsingafjölda þeirra fjöl- miðla. „Hitt er annað mál, að i upphafi settum við okkur hjá sjónvarpinu sjálfir hálf bjart- sýnar ,,prinsip”-reglur, þar sem við miðuðum við, að aug- lýsingatimar sjónvarpsins væru ekki fleiri en þrir á kvöldi. Og auglýsingatiminn hverju sinni ekki lengri en þrjár minútur”. En Pétur endurtók þörf sjón- varpsins fyrir auglýsinga- tekjurnar. „Hvaða stofnun hefur nokkru sinni sett 'sér þær reglur, að spyrna á móti auð- fengnu fé?” spurði hann. Og við fáum að sjá fleiri aug- lýsingar á skerminum i kvöld og annað kvöld. Þá verða aug- lýsingarnar ekki færri en 100 samtals. — og enn vænkast hagur sjónvarpsins. Tæknimenn sjónvarpsins, em unnu að útsendingunni i gær- kveldi mundu ekki eftir öðru eins auglýsingamagni. „Þetta hlýtur að vera met”, sögðu þeir. Blöðin eru svo sem kýld út af auglýsingum siðustu dagana fram að jólum engu siður en sjónvarpið, eins og Pétur Guð- finnsson benti réttilega á i við- tali við Visi. En sjónvarpið á ekki eins hægt um vik og blöðin, sem auðveldlega geta fjölgað siðufjöldanum ef þeim biður svo við að horfa. —ÞMJ

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.