Vísir - 26.03.1973, Síða 4

Vísir - 26.03.1973, Síða 4
4 Vísir. Mánudagur 26. marz. 1973. Full ABYRGÐ tekin 6 öllum varahlutum aBsi^ n Skeílunnl 3e-Slmi 3*33*45 Fyrirliggjondi rafmogns benzindælur fyrir allor gerSir bifreiða^ og véla 6, 12, 24 volt Mjög hagstætt verð BSUSAmma^ ri U*nrnrl’( Skellunnl 3e-Simi 3*33*45 W Bjóðum aðeins það bezta Sokkabuxur á gamla verðinu munstraðar sokkabuxur, sléftar sokkabuxur, þykkar sokkabuxur, þunnar sokkabuxur, þykkir sportsokkar, þunnir sportsokkar — auk þess bjóðum við viðskiptavinum vorum sérfræðilega aðstoð við val á snyrtivörum. Snyrtivörubúðin Laugaveg 7(» simi 12275. Snyrtivörubúðin Völvufell 15 ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Tœldu hermennina í morðingjahendur Brezkar öryggissveit- ir á N-írlandi leituðu i nótt dyrum og dyngjum i Belfast að tveim lag- legum stúlkum, sem kallaðar eru Jean og Pat, en þær ginntu þrjá brezka hermenn i hendurnar á morðingjum. Tveir hermannanna létu þegar lifið fyrir kúlum morðingjanna, en sá þriðji komst af og var lagður inn á sjúkrahús milli heims og helju. — Lögreglumenn biðu við rúmstokk hans i allan gærdag eftir þvi að hann fengi rænu og gæti gefið þeim lýsingu á stúlkunum. Stúlkurnar höfðu seint á föstu- dagskvöld boðið hermönnunum með sér i samkvæmi, en þegar i samkvæmið var komið, reyndust þar ekki vera aðrir. önnur stúlkan fór til þess að sækja fleiri, en kom aftur með tvo menn vopnaða vélbyssum. Mennirnir tveir neyddu her- mennina til þess að leggjast á gólfið og skutu þá siðan. Tveir hermannanna biðu þegar bana, en sá þriðji var með lifsmarki þegar að var komið. Hann var þó alvarlega særður. Ein kúlan hafði lent i hryggnum á honum og skaddaði mænuna, og auk þess haföi hann hlotið höfuðsár. Þegar hann komst til með- vitundar i gær, gaf hann lögregl- unni lýsingu á stúlkunum og gat sagt til um nöfn þeirra. — Var þegar i stað hafin leit að stúlk- unum og lýsing á þeim send út til allra lögreglustöðva. Báðar eru taldar kornungar, sennilega innan við tvitugt, og er talið lik- legt, að þær tilheyri öfga- samtökum kaþólskra eða kvennadeild irska lýðveldis- hersins, sem bannaður er með lögum. Campora til Rómar á fund með Peron Dr. Hector Campora, sigurvegarinn úr forsetakosningunum, hittir i dag Juan Peron í Róm til skrafs og ráðagerða, en Peron útnefndi Campora sem frambjóðanda Justicialistaflokksins (Peronista). Dr. Hector Campora, sem sigraði i forseta- kosningunum i Argentinu, er væntan- legur i dag til Rómar, þar sem hann mun eiga viðræður við Juan Peron, sem er hinn raunverulegi sigur- vegari kosninganna. Hinn 77 ára gamli Peron út- nefndi sjálfur Campora sem frambjóðanda Peronista i for- setakosningunum og skipulagði kosningabaráttuna. Enda var það slagorð andstæðings Campora i kosningunum, að „kysu lands- menn Campora, þá fengju þeir Peron i stjórn”. Aður en Campora lagði upp i Rómarferðina frá Buenos Aires neitaði hann að láta nokkuð uppi um, hvað viðræður hans við Peron mundu snúast. — En flestir gera ráð fyrir, að þar verði efst á baugi afstaða næstkomandi nýju stjórnarinnar og Peronista- hreyfingarinnar til núverandi stjórnar herforingjaklikunnar. Herforingjastjórnin hefur bannað Peron að snúa aftur til Argentinu, fyrr en hinn nýi forseti hefur formlega verið settur i embætti, en það verður 25. mai. Peron hefur lengst af i útlegð sinni siðan 1955 dvalið á Spáni undir verndarvæng Francos, þar til hann fékk loks að koma til Argentinu i desember s.l. Frá þvi um jól hefur hann verið á ferða- lögum viða, en dvelur um þessar mundir i Róm. Maraþon námagröftur — í von um að bjarga 7 námamönnum, lokuðum niðri í námunni Sjö námamenn hafa verið innilokaðir niðri i námu i Yorkshire á sjötta sólarhring, 750 fetum undir yfirborði jarðar. Björgunarsveit hefur unnið stanzlaust að þvi að grafa ný göng til þess að komast að loftholu, sem myndaðist i námunni, þegar náma- göngin hrundu á þriðju- dag og vatn flæddi inn i þau. Björgunarmennirnir hafa sprengt sér leið i gegnum klett, og seint i gær, þegar siðast fréttist. áttu þeir eftir 20 fet aðeins að loft- holunni, enda hafði verið grafið með miklum hraða, eða 16 fet á klukkustund. En þá þorðu menn ekki öðru en draga úr hraðanum af ótta viö að leggja lif sjö- menninganna i hættu annars. Engin vissa er þó fyrir þvi að mennirnir sjö séu ennþá á lifi, og ekki einu sinni vitað, hvort þeir komust i loftholuna — en það var talin eina vonin, til þess að þeir hefðu komizt af, þegar vatnið flæddi inn i göngin.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.