Vísir - 14.04.1973, Side 3
Vísir. Laugardagur" 14. apríl 1973.
3
Fokhelt á einni viku
30% minni byggingarkostnaður með nýjum byggingaraðferðum
Að koma upp fok-
heldu húsi á einni viku
og fyrir 30% lægra verð
er — ef rétt er — heldur
en ekki tiðindi fyrir
okkur íslendinga, þar
sem flestir eru sér-
fræðingar i hús-
byggingum. En þetta
telja forráðamenn
Verks hf., að sé auðvelt
með verksmiðjufram-
leiðslu veggeininga úr
steinsteypu, sem siðan
eru settar saman á
byggingarstað.
Sýningarhús hefur verið reist
að Espilundi 10, í Garðahreppi.
Það hús er að mestu fokhelt, og
tók ekki nema tvo og hálfan dag
að koma upp öllum útveggjum
og reisa þaksperrur. Það gæti
veriö komið í fokhelt ástand á
einni viku og þar af leiðandi
lánshæft samkvæmt kröfum
Húsnæðismálastjórnar.
Framleiðslan byggist ásænsku
einkaleyfi, og eru vegg
einingarnar allar 60 senti
metra breiðar, en mismunandi
háar, 2,67 metrar, sem er full
lofthæð, 92 sentimetrar undir
glugga og 45 sentimetrar yfir
glugga. Ekki er nauðsynlegt að
nota krana við að koma eining-
Enginn mótauppsláttur
Ekkert mótatimbur
Verksmiðjuframleiddar
veggeiningar
Engin múrhúðun
utanhúss
unum upp, og eru veggeiningar
endanlega frágengnar að utan.
Steypuverksmiðjan Verk hf.
hefur nú hafið framleiðslu á
þessum veggeiningum, og með
verksmiðjuframleiðslunni og
meiri byggingarhraða telja for-
ráðamenn hennar sig geta lækk-
að byggingarkostnaöinn um að
minnsta kosti 30%.
Aðallega telja þeir að vinnu-
kostnaður sparist og einnig, að
mun betri nýting fáist út úr
steinsteypunni.
Sem dæmi um verðið benda
þeir á, að útveggir i meðal-
einbýlishús mundu kosta með
hinni nýju aðferð 120-140 þúsund
en það er ekki fjarri þvi, sem
kostar að múrhúða slikt hús að
utan. Einnig benda þeir á að all-
ur kostnaður við mótatimbur
fellur niöur og vinna við upp-
slátt.
Verk hf. býður upp á þak
sperrur, sem það framleiðir.
Forráðamennirnir telja, að með
nákvæmri hönnun og nýjung
um við samsetningu geti þeir
boðið þær ódýrari en ella.
Þrátt fyrir það, að aðal-
sparnaðurinn vegna hinna verk-
smiðjuframleiddu eininga komi
fram á fyrstu byggingarstigum,
þá telja forráðamenn Verks hf.,
að með þeim aðferöum, sem
þeir hafa i huga, þá geti þeir
lækkað heildarbyggingar-
kostnaðinn um 30%.
Verk hf. bendir sérstaklega
á, að hér getur opnazt leið til
sparnaðar á sérhæfðu vinnuafli
i byggingariðnaði, en ávallt er
hér mikill skortur á slikum
mönnum.
Margir aðilar hafa sýnt
þessari nýjung mikinn áhuga.
Eru nú þegar seld 50-60 hús, og á
að reisa þau viðsvegar um land-
ið, en nokkur eru þegar i bygg-
ingu. Flutninga um langan veg
telja þeir hjá Verki hf. ekki
vandamál, og er til dæmis verið
að ganga frá samningum um
sölu til kauptúna á Austurlandi.
— ÓG.
Kjartan Blördal og Birgir Frimannsson forstjórar Verks hf. fyrir framan nýja verksmiðjufram leidda einingarhúsið að Espilundi 10,
i Garðahreppi. Þeir standa við veggeiningarnar, sem eiga að fara i veggi bifreiðageymslunnar.
EIMREIÐIN RENNUR
AF STAÐ AÐ NÝJU
Fyrsti dýradag-
urinn ó morgun
Nýir eigendur og nýr ritstjóri taka við
hinu 79 óra gamla tímariti
Við fslendingar erum miklir
lestrarhestar og höfum stöðugt
verið að fá fram á markaðinn ný
og ný blöð og timarit. Blöð, sem
fæsteiga sér langa lifdaga. Hætta
þegar nýjabrumið er farið af
þeim. Eitt er þó það blaö, sem
aldrei hefur látið bilbug á sér
finna, nefnilega timaritið
EIMREIÐIN.
Það blað hefur nú hafið sinn 79.
árgang, en blaðið hefur komið út
óslitiðfrá upphafi. Aldrei fallið úr
einn einasti árgangur. Útgáfa
tölublaðs fyrir siðasta ár dróst
raunar eitthvað á langinn fyrir
sakir eigendaskipta, sem urðu þá
ÞINGMENN VILJA
ALGERT BANN VIÐ
LAXVEIÐI í SJÓ
Það hefur verið yfirlýst
stefna tslendinga að leyfa ekki
laxveiði í sjó. Frá þessu hefur
verið vikið með undanþágum,
sem ná til fáeinna aðila.
Þingmenn úr fjórum flokk-
um bera fram frumvarp um
algert bann við laxveiöi I sjó.
Þeir segja, að það veiki að-
stöðu okkar að hafa I lögum
undanþáguákvæði.
Flutningsmenn eru Geir
Hallgrimsson (S), Steingrim-
ur Hermannsson (F), Jón A.
Héðinsson (A) og Helgi F.
Seljan (AB). Frumvarpiö var
samið i samráöi við sjávarút-
vegsráöherra.
—HH
á blaðinu, en nú hefur verið sett á
markaðinn rit, sem kemur út sem
78. árgangur EIMREIÐARINN-
AR.
,,Ég er á leiðinni með fyrsta
tölublað þessa árgangs í prentun,
en það kemur væntanlega út
snemma i næsta mánuði”, sagði
nýskipaður ritstjóri timaritsins i
viðtali við Visi i gær. Magnús
Gunnarsson heitir hann og er við-
skiptafræðingur að mennt.
Hann upplýsti, að fyrst til að
byrja með hygðist hann gefa út
þrjú tölublöð á ári, en þegar fram
i sækti vonaðist hann til að þau
gætu orðið fleiri.
„Með nýrri ritstjórn er EIM-
REIÐINNI ætlað að færast nær
Björn Jónsson stóð með stjórn-
arandstöðunni við atkvæða-
greiðslu um fjárveitingu til stofn-
linu milli Norður- og Suðurlands.
Magnús Jónsson lagði til, að ekki
yrði ákveðið um fjárveitingu til
lagningar slikrar linu, heldur
varið fé til rannsókna á möguleik-
um til orkuöflunar fyrir Norður-
land.
Við nafnakall um breytingartil-
lögu Magnúsar sagði Björn já, en
flokksbróöir hans, Magnús Torfi
Ólafsson ráöherra, nei. Var
uppruna sinum, þ.e. fjalla um
visindi, þjóðmál, listir og bók-
menntir”, útskýrir Magnús i rit-
stjórnarspjalli sinu.
Og hann segir ennfremur: „Fá
blöð á tslandi geta státað af svo
háum aldri. EIMREIÐIN var á
sinum tima eitt viðlesnasta tima-
rit landsins. Liggja til þess vafa-
laust margar ástæður, en harð-
fylgin og umdeild skrif blaðsins
um islenzk þjóðmál, islenzkar
listir og bókmenntir áttu stærstan
hlut i velgengni þess á þeim tima.
í EIMREIÐINA 72 rita margir
landskunnir menn um ólik mál-
efni, en viðtal ritsins er að þessu
sinni við Jónas Haralz banka-
stjóra, og ber það yfirskriftina:
„Kjölfesta frjálshyggjunnar er
trúin á manninn”.
„Með þessum orðum kemur
kannski bezt fram sá andi, sem
blaðinu er ætlað að fylgja”, sagði
Magnús Gunnarsson að lokum.
— ÞJM.
breytingartillagan felld meö jöfn-
um atkvæðum.
Breytingartillagan var viö
þann lið framkvæmdaáætlunar
stjórnarinnar, sem segir, að 13
milljónum skuli verja til lagning-
ar stofnlinu Norður-Suöurland,
þannig að orka geti fengizt að
sunnan. Var i umræðum minnzt á
hættur af jarðskjálftum og eld-
gosi, sem gæti eyðilagt orku-
stöðvar fyrir norðan, sem væru á
jarðskjálfta- og gosasvæði.
Framkvæmdaáætlun stjórnar-
innar var siðan samþykkt. —HH
Fyrsti dýradagurinn
hér á landi er á morgun,
en þá gengst Samband
dýraverndunarfélaga á
íslandi fyrir tveim
skemmtunum i
Reykjavík.
Fyrr um daginn á að
skemmta börnunum. Verður
borgarbörnum gefinn kostur á
að koma á dýrasýningu, sem
sett verður upp á Fákssvæð-
inu. Þar veröa til sýnis m.a.
geitur, kiðlingar, kaninur og
svo auðvitað valdir reiðhest-
ar.
Verður börnunum gefinn
kostur á að hoppa á bak, og
þau sem tolla nógu lengi á
baki geta lika fengið tekna af
sér mynd til að eiga.
í Fáksheimilinu verður
hægt að tylla sér niður eftir að
hafa skoðað sýninguna og fá
sér kaffi og kökur.
Þá er að geta kvöld-
skemmtunar, sem haldin
verður i Austurbæjarbiói ann-
aö kvöld, en þar veröa forseta-
hjónin á meðal gesta.
A skemmtuninni ávarpar
Laxness gesti, og Litiö eitt
mun leika nokkur lög. Ein-
söngvarakórinn mun flytja
nokkur lög og sömuleiðis Guð-
rún Á. Simonar. Sýnd verður
stutt kvikmynd um dýr og
menn, og sitthvað fleira verð-
ur á dagskránni.
A þessari skemmtun Dýra-
verndunarsambandsins verö-
ur Mark Watson gerður að
heiðursfélaga, en Watson hef
ur sýnt dýraverndunarfélög-
um hérlendis velvilja sinn oft-
lega i verki, núna siðast er
hann ákvað að gefa hingað visi
að langþráðum dýraspitala.
Þess má geta, að dýra-
spitalinn kemur hingað til
lands seinnipart næsta
sumars. Hafa yfirvöld ákveð-
ið, að fella niður tolla og að-
flutningsgjöld af sendingu
þessari. — ÞJM
VISIR
VISAR A VIÐSKIPTIN
SIIV1I 86611
Björn með stjórnorand-
stöðunni í línumólinu