Vísir - 24.09.1973, Qupperneq 5
Vísir. Mánudagur 24. september 1973
5
AP/INITB UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson,
lluvvard llunt vill núna loks
vitna, um leið og hann vill draga
játningu sína til baka og fá mál-
ift upptekift.
gegn ráðgjafo
vill vitna
forsetans
Watergatenefndin byrjar yfirheyrslur aftur í dag að loknu sumarhlé. Talið, að Hunt
vilji vitna gegn Colson
Bæði fréttaritið
„Newsweék” og út-
varpsstöðin CBS i
Bandarikjunum skýrðu
frá þvi i gær, að E.
Howard Hunt, sem sak-
felldur var fyrir innbrot
i Watergatebygginguna
á sinum tima, væri
reiðubúinn að bera vitni
gegn Charles Colson,
einum af ráðgjöfum
Ilvita hússins.
Watergate-rannsóknarnefnd
öldungadeildar Bandarikjaþings
tekur til starfa i dag að loknu
löngu hlói. og er Hunt fyrsta vitn-
ið, sem byrjað verður að yfir-
heyra.
CBS heldur þvi fram, að Hunt,
sem hefur óskað þess, að mál
hans verði tekið aftur fyrir og vill
draga til baka játningu sina, sé
reiðubúinn til þess að vitna um,
að Colson hafi vitað fyrirfram um
innbrotsráðagerðirnar, þ.e.a.s.
innbrotið i skrifstofu sáifræðings
Daniels Ellsbergs i sept. 1971.
Newsweek segir, að Hunt ætli
að tilgreina Colson sem aðalupp-
sprettu fjármuna til þess að
standa straum af kostnaðinum
við innl>rolið.
Colson mætti fyrir þingnefnd-
ina, en neitaði að svara þar hverri
spurningunni á eftir annarri á
grundvelli þess, aö svörin gætu
sakfellt hann sjálfan.
Peron sigraði með
miklum yfirburðum
Isabel kona hans verður fyrsti kvenvaraforseti S-Ameríku
Juan Peron var kosinn
aftur forseti Argentinu i
gær, átján árum eftir að
herinn velti honum af
stóli og rak hann i út-
Nóbels-
skáld
Chile
látið
Fablo Neruda, nóbelsskáld
Chilc, andaöist um helgina.
Banamein hans var krabbamein.
Neruda hlaut nóbelsverðlaúnin
1971 fyrir ljóð sin og var eitt virt-
asta skáld S-Ameriku á sinum
tima. — Neruda var sendiherra
Allendes forseta i Paris, þar til
hann varð að láta af þeim starfa
vegna heilsubrests fyrr á þessu
ári.
Gaullistar
töpuðu
kosningu
Sósíalistaflokkurinn vann
mikiö á i fyrstu umferö
sveitarstjórnarkosning-
anna í Frakklandi i gær, en
Gaullistar töpuöu fyígi.
Gaullistarnir höfðu haldið þvi
fram i kosningabaráttunni, að
þær væru ópólitiskar, en sósialist-
ar héldu þvi fram. að það gerðu
þeir einungis til þess að gera
minna úr ósigri sinum.
Kosið var i 996héruðum, og töl-
ur frá 926 þeirra sýndu, að sósial-
istar höfðu 23,4% atkvaéða miðað
við 14,7% i kosningunum 1970.
Kommúnistaflokkurinn hafði
19,7% núna i stað 23,8% árið 1970.
Gaullistar höfðu að þessu sinni
10,7% miðað við 15,6% fyrir þrem
árum.
Kjörsókn var slæleg, enda ekki
sérlega mikill áhugi meðal al-
mennings fyrir niðurstöðum
kosninganna.
legð. Hann og kona
hans, Isabel Martinez,
sem verður fyrsta konan
til þess að gegna emb-
ætti varaforseta i Suður-
Ameriku, eiga að taka
við embætti 12. okt.
Æpandi, fagnandi múgurinn
safnaðist að Plaza de Mayo fyrir
utan Casa Rosada (Bleika húsið),
til þess að halda upp á sigurinn á
sama staðnum, þar sem fyrstu
sprengjurnar sprungu i bylting-
unni 1955, þegar Peron hrökklað-
ist I útlegð.
Talning sýndi ljóslega, að hinn
78 ára gamli Peron mundi fá
rúmlega 50% atkvæða (reyndar
60% samkvæmt siðustu tölum),
sem nægir til þess, að komizt
verður hjá nýjum kosningum. —
Helzti keppinautur hans, Ricardo
Balbin, hefur einungis um 25% at-
kvæða.
Peron getur fagnað þvi, að
hann hlýtur fleiri atkvæði en stað-
gengill hans, Hector Campora
hlaut i kosningunum i marz.
Kjörsókn var mikil i gær og
kom til litiis háttar óeirða. 1
Buenos Aires voru sprengjur
sprengdar við skrifstofur sumra
flokkanna. En ekki er vitaö um
neitt manntjón, og i heild sinni
fóru kosningarnar friðsamlega
fram, miðað við það, sem átt hef-
ur sér stað i kosningum i Suður-
Ameriku.
Peron og Isabel á svölum
ibúftarhússins, sem Peronistar
gáfu þeim eflir útlegftina. Isabel
verftur fyrsta kona, sem fer ineft
embætti varaforseta i Suft-
ur-Ameriku.
Gerðum byltinguna alveg
einir og hjálparlaust
— segir herforingjastjórnin í Chile og þvertekur fyrir,
að Bandarikin hafi nœrri komið
Augusto Pinochet,
hershöfðingi og höfuð-
paur herforingjaráðs-
ins, sem stýrir nú
Chile, þvertekur fyrir
það i viðtali, sem
fréttaritið Time birti i
gær, að Bandarikin
hali verið á nokkurn
hátt viðriðin bylting-
una gegn Allende.
Hershöfðinginn skýrði frá þvi
I viðtalinu, að hersveitirnar
hefðu fundið i forsetahöllinni
birgðir vopna, sem Allende för-
seti heföi sankað þangað, ,,en
hann var að undirbúa borgara-
styrjöld", eins og hershöfðing-
inn sagði.
Pinochet hershöfðingi sagði,
að borgarastyrjöldin hefði átt
að skella á eftir aðéins örfáa
daga. —
,,Við fengum hvergi hjálp. Þið
getið skrifað það með stórum
stöfum. Við 'gcrðum þetta sjálf-
ir. Borgarar i Chile og herinn. —
Marxistastjórnin hafði haft
Menn hafa margir vcrift vift hinu versta búnir af herforingjastjórninni. þvi aft allskonar kvittur hefur
komift upp. M.a. barst þaft uin alla Santiago, aft herforingjastjórnin muiidi láta krúnuraka hvern. sem
fvndisl meft of sitt hár. Miklar hiftraftir mvnduftust vift rakarastofur og höfftu hárskcrar gott upp úr
krafsinu. áftur en stjórnin lýsti þvi yfir, aft þetta væri tiihæfulaust.
nánar gætur á okkur. Njósn var
höfð um ferðir okkar. simar
okkar hleraðir, og þegar við
urðum þess vör. fór okkur að
gruna margt. og þvi létum við
til skarar skriöa."
Herforingjaráðið sagði i Chile
i gær, að-ekki væri ..minnsti fót-
ur fyrir" frélt bandariskra
hjóna, sem sögðust hal'a séð 500
manns tekin af lifi á aðalknatt-
spyrnuvelli Santiago.
,,f:g fullvissa menn um. að
ekki ein einasta manneskja.
hvað þá heldur 400-500. hefur
verið tekin af lifi." sagði tals-
maður herforingjast jórnarinn-
ar.
En bandarisk hjón. sem komu
frá Chile til Miami um helgina.
sögðust hafa horft á fjöldaaf-
tökurnar. Þau sögðust hafa ver-
ið i haldi i eina viku á leik-
vanginum.
Herforingjast jórnin hefur
viðurkennt. að milli 5000 og 7000
manns hafi verið haíðir þar i
haldi, siðan bvltingin var gerð.
En samkvæmt upplvsingum nú-
verandi yfirvalda Chile hefur
flestu þessu fólki verið sleppt.
Stjórnin hefur hótað þvi, ,.að
sósialistar, sem staðnir eru að
hervirkjum gegn sveitum hers-
ins. verði teknir af lifi". Het'ur
hún tilkynnt, að 5 hafi verið
teknir af lifi til þessa.