Vísir - 24.09.1973, Qupperneq 12
ískmd enn í 14. sœti
Frá Stefáni Guöjohnsen,
Ostende. — 5. umferðir á EM i
bridge voru spiláöar um helgina,
Við vorum 25 undir gegn Ung-
verjum i hálfleik eftir mjög
slæman leik. Siöari hálfleikur var
betri, og þá unnum við 15 stig til
baka. 27-52 og 42-28. Allir spiluðu.
Leikur okkar við Israel var sér-
lega góður af beggja hálfu. I hléi
stóð 23-22 fyrir Israel, en Island
vann s.h. 22-11. Engin sveifla var
stærri en 5 stig. Ásmundur,
Hjalti, Stefán og Karl spiluðu
Leikur okkar við Libanon var i
skýjunum, 52-30 I hálfleik fyrir Is-
land. Á s.h. fóru Libanir 2200
niöur i 4 Sp. redobluðum, sem
gerði 18 stig. S.h. 60-44. As-
mundur, Hjalti, Páll og Jón
spiluðu leikinn. Gegn Tékkum
sögðum við alslemmu, þar sem ás
vantaði, og tókum svo aöra, þar
sem heppnaða svinun þurfti, svo
það jafnaöistút. En Tékkar sögðu
tvær heppnisslemmur og voru-
yfir 51-21 i hléi.
Eftir þessar 19. umferöir var
staöan þannig. 1. ttalfa 301, 2.
Frakkland 266 3. Sviþjóð 239 4.
Bretland 232 5. Austurriki 231 6.
Sviss 226 7. Israel 221 8. Pólland
219 9. Spánn 213 10. Noregur 212.
11. Júgóslavia 204 12. Belgia 203
13. Tyrkland 197 14. Island 182 15.
Irland 181 16. Holland 172 17. Dan-
mörk 158 18. Þýzkaland 158 19.
T^kkóslóvakia 146.20. Ungverja-
land 138 21. Finnland 125 22.
Libanon 67 og 23. Portúgal 10.
15. urniero. Þýzkal.-Portúgal
20-h4, Italia-Sviss 12-8, Belgia-
Pólland 2-18, Danmörk-Finnland
2-18, Bretland-lsrael 12-8, Hol-
land-Tékkar -f-2-20, Ungverjal.-
Libanon 3-17, Svíþjóð-Trykland 0-
20, Spánn-lrland 17-3, Júgóslavia-
Noregur 1-19, Austurriki-Finn-
land 4-16. Island sat yfir, 12 stig.
16. umferð. Italla-Pólland
20-=-3, Sviss-Þýzkal. 16-4, Frakkl,-
Belgia 11-9, Israel-Danmörk
12-8, Island-Ungverjai. 8-12, ir-
land-Sviþjóð 12-8, Tékkar-Bret-
land 2-18, Noregur-Spánn 18-2,
Finnland-Júgóslavia 18-2, Portú-
gal-Austurriki 0-20.
17. umferð. Þýzkal.-Svíþjóð 0-20
Belgia-Ungverjal. 18-2, Danmörk-
Holalnd 17-3, Bretland-Libanon 8-
12, ísrael-tsland 8-12, Frakkl,-
Tryk. 5-15, Pólland-trland 13-7,
Sviss-Noregur 7-13, Portúgal-
Finnland -=-4-20, Júgósl.-Tékkar
16-4, Austurriki-Spánn 8-12. ttalia
sat yfir.
18. umferð. Frakkl.-Þýzkal. 15-
5, Israel-Italia 4-16, Bretland-
Belgia 15-5, Tékkar-Danmörk 3-
17, Island-Libanon 18-2, Tyrkl.-
Holland 20-=-2, Island-Ungverjal.
16-4, Finland-Svþjóö 2-18, Portú-
gal-Spánn 5-15, Sviss-Júgósl. 9-11,
Póiland-Austurriki 11-9, Noregur
sat yfir.
19. Umferð. Þýzkal.-Israel 11-9,
ttalia-Bretland 19-1, Belgia-
Danmörk 12-8, tsland-Tékkar 6-
14, Libanon-Tyrkl. -M-20. Hol-
land-lrland 9-11, Ungverjal.-
Noregur 0-20, Sviþjóö-Portúgal
20-r4, Spánn-Sviss 19-1, Júgósl.-
Pólland 12-8, Austurriki-Frakkl.
14-6. Finnland sat yfir.
GJÖF UNGA FOLKSINS
SÆNSK URVALSVARA
TEG:
FÓKUS
N
w
Y
T
T
TEG:
ELISABET
Skreyting
blátt og
mosa-
grœnt
N
r
Y
T
T
Teg:
Anika
Skreyting appelsínugult og brúnt
Sérstaklega áferðafalleg matar- og kaffistell.
Allir hlutir seldir í stykkjatali til að safna
upp í stell.
Tilvaldar brúðar- og tœkifœrisgjafir, sem
koma unga fólkinu vel.
Sendum í póstkrðfu um land allt
Laugav. 22 - Hafnarst. 1 - Bankast. 11 - Reykjavik
BUSAHOLD
Símar
U 12527
,L/' 19801
GLERVORUR
Jon Jonsson, yngri bróöir Ólafs
H. Jónssonar, er farinn aö vekja
mikla athygli i Valsliöinu —
ieikmaöur, sem stööugt er i
framför. Hér stekkur hann hátt
upp — lengst til hægri — og
sendir knöttinn I mark Fylkis.
Ljósmynd Bjarnleifur.
AÐEINS TÍU KÍLÓUM
FRÁ EVRÓPUMETI!
Guömundur Guöjónsson, KR, i
bekkpressu. þar sem hann lyfti 150
kg. i hnébevgjulyftu setti hann
liins vegar nýtt tsiandsmet i létt-
vigtinni — lyfti 232,5 kilóum.
Einar Þorgrimsson,
lyftingamaðurinn knái i KR,
setti uýtt íslandsmet i
millivigt i bekkpressu á
kraftlyftingamóti KR, sem
háð var i „Kraftahöll” Ár-
manns að Brautarholti 22 á
laugardag Hann bætti eigið
íslandsmet um fimm kiló —
lyfti 155 kilóum i bekkpress-
unni, sem er aðeins tiu kiló-
ísafjörður
í úrslit
Það verða ísfirðingar, sem leika til
úrslita viö Reyni, Sandgeröi, I 3.
deildarkeppninni i knattspyrnu i dag
— það er cf veður leyfir. Liöiö sem
sigrar i þeim leik, leikur f 2. deild
næsta keppnistimabil.
A laugardag tókst lsfiröingum aö
sigra Fvlki —eftir framlcngdan lcik —
og komast þar meö I úrslitin. Þaö var
tvisýnn leikur. Ekki var skoraö i fyrri
háifieiknum, en siöan tókst tsfirðing-
um að skora, en Fylkir jafnaöi. Eftir
venjulegan ieiktíma stóö þvi 1-1 og var
framlengt. Lengi vel virtust úrslit ekki
ætla aö fást, en rétt fyrir lokin skoruöu
tsfiröingar svo tvivegis.
Þorbjörn meistari
Þorbjörn Kjærbo sigraöi i meistara-
keppni Flugfélags tslands i golfinu,
sem háö var á golfvellinum i Grafar-
holti um helgina. Hann lék til úrslita
við Július Júliusson. t B-flokki sigraöi
Einar Guönason.
um minna en Evrópumetið í
greininni— og eftir þvi, sem
við vitum bezt, nýtt Norður-
landamet.
Eitt annað Islandsmet var sett á
mótinu. Guðmundur Guðjónsson, KR,
setti metið i hnébeygju i léttvigt — lyfti
232,5 kilóum, en eldra Islandsmetið
var 230 kiló.
Annars urðu úrslit þessi á mótinu.
Dvergvigt. Gunnar Jóhannsson, KR,
lyfti samta.ls 305 kilóum. I bekkpressu
70, hnébeygju 105 og i réttstöðulyftu
130 kilóum.
Millivigt. Einar Þorgrimsson, KR,
lyfti samtals 570 kilóum. I bekkpressu
155, hnébeygju 205 og i réttstöðulyftu
210 kilóum.
■
Léttvigt. Guðmundur Guðjónsson, KR,
lyfti 150 kg. i bekkpressu og 232.5 kg. i
hnébeygju, en mistókst i réttstöðu-
lyftu.
Þungavigt. Óskar Sigurpálsson, Ar-
manni, lyfti samtals 710 kg. I bekk-
pressu 160, hnébeygju 270 og i rétt-
stöðulyftu 280 kilóum. Annar varð
Sigurður Stefánsson, KR, með samtals
420 kg. Hann var með 120 i bekkpressu,
130 I hnébeygju og 170 i réttstöðulyftu.
Yfirþungavigt. Kristinn Baldvinsson
Keflavik, lyfti samtals 632.5 kg. I
bekkpressu 162.5, hnébeygju 215 og I
réttstöðulyftu 255 kg. Sigtryggur
Sigurðsson, KR, varð annar með sam-
tals 600 kg. 140, 220 og 240 kg i hinum
einstöku lyftum.
Einar Þorgrímsson, KR, skortir aö-
eins 10 kg á Evrópumetið.
Framarar og Víkíngar
verða skœðir í vetur
fyrir íslandsmeistara Vals. Reykjavíkurmótið hófst ó laugardag
Það er greinilegt eftir
fyrstu leiki Reykjavik-
urmótsins i handboltan-
um, sem hófst i Laugar-
dalshöllinni á laugar-
daginn, að keppni i þess-
ari iþróttagrein verður
mikil i vetur.i íslands-
meistarar Vals fá áreið-
anlega mjög harða
keppni frá Reykjavikur-
meisturum Vikings og
einnig Fram, en þessi lið
verða tvimælalaust
sterkari i vetur, en þau
voru á siðasta keppnis-
timabili.
Vikingur hefur fengið sterkan
markvörð, þar sem Sigurgeir Sig-
urðsson er, og Jón Hjaltalin
Magnússon er væntanlegur heim
frá námi næstu daga. Þetta styrk-
ir Vikingsliðið mjög auk þess,
sem Karl Benediktsson þjálfar
liðið og mátti greina gjörbyltingu
i varnarleik liðsins þegar i fyrsta
leik.
Þrir snjallir leikmenn, sem
ekki léku með Fram i fyrravetur,
verða nú með liðinu, þeir Arnar
Guðlaugsson, Pálmi Pálmason og
Stefán Þórðarson og munar um
minna — það bætir vel upp, að
Ingólfur Óskarsson hefur lagt
skóna á hilluna og meira en það.
Fjórir leikir voru háðir á laug-
ardag og sunnudag og var aðeins
spenna i einum — en Vikingur,
Fram og Valur unnu yfirburða-
sigra.
Fyrsti leikurinn á laugardag
var milli Vikings, sem hóf vörn
titils sins gegn Armanni. Viking-
ar sýndu bráðsnjallan leik i fyrri
hálfleiknum — einkum var vörnin
sterk — og skutu Armenninga
hreinlega niður. Oll spenna varð
fljóll úr leiknum — aðeins spurn-
ing hve Vikingssigurinn yrði stór.
I hálfleik stóð 12-3 og það er nýtt
hjá Vikingsliðinu að fá aðeins á
sig þrjú mörk á þrjátiu minútum.
1 siðari hálfleiknum sóttu Ar-
menningar talsvert i sig veðrið
samfara þvi, að Vikingar
slöppuðu af og reyndu alla sina
inenn. Úrslit i leiknum urðu 17-11
fyrir Viking.
Næsti leikur var alar tvisýnn.
Hann var milli KR og Þrótlar —
tveggja liða, sem leika i 2. deild i
vetur. Jafntefli varð 17-17.
Fyrri leikurinn i gærkvöldi var
milli Fram og 1R, og vann Fram
þar nokkuð öruggan sigur, 22-18,
og var sá sigur aldrei i hættu. 1
hálfleik stóð 9-6 fyrir Fram og að-
eins einu sinni i siðari hálfleikn-
um tókst 1R að ógna — þá stóð 11-
10 fyrir Fram. Hjá Fram vantaði
Sigurberg Sigsteinsson og Stefán
Þórðarson. Aðalmenn liðsins
voru að venju Axel Axelsson, sem
skoraði átta mörk, og Björgvin
Björgvinsson, sem sendi knöttinn
sex sinnum i mark 1R.
Lið 1R verður litið dæmt eftir
þessum leik — Gunnlaugur
Hjálmarsson, Jóhannes Gunnars-
son og Asgeir Eliasson léku ekki
með að þessu sinni, auk þess, sem
aðalmarkaskorari liðsins frá sið-
asta keppnistimabili, Brynjólfur
Markússon, leikur ekki með 1R i
vetur. Hann þjálfar KA á Akur-
eyri og mun leika með þvi liði i 2.
deild i vetur. Ágúst Svavarsson
skoraði flest mörk lR-ing'a eða
sex, en Vilhjálmur Sigurgeirsson
þrjú.
Siðari leikurinn var milli Vals
og Fylkis og vann Valurstórl ’2-9
eftir að hafa haft yfir 12-3 i hálf-
leik. Það vakti nokkra alhygli, að
Ólaíur Benediktss. lék ekki i
marki Vals. Bergur Guðnason
var markhæstur Valsmanna með
sex mörk — ekkert þeirra þó úr
vitum, en hann helur verið aðal-
vilaskytta Vals undanfarin ár. Nú
tóku Ijórir leikmenn Vals vita-
köstin. Jón Karlsson skoraði þrjú
mörk — öll úr vitum — Gisli Blön-
dal fjögur, eitt viti, Jón Jónsson
þrjú, eitt viti, og Þorbjörn Guð-
mundsson þrjú, eitt viti. Guð-
mundur Sigurðsson skoraði þrjú
mörk fyrir Kylki.
Nýi Ijósgrœni liturinn frá
Electrolux
í Svíþjóð
Eldavélar, uppþvottavélar, kœliskápar, frystiskápar,
kœli- og frystiskápar og gufugleypar.
©
H3
Electrolux