Vísir


Vísir - 24.09.1973, Qupperneq 14

Vísir - 24.09.1973, Qupperneq 14
Leeds slœr ekki met Tottenham! — Náði ekki nema jafntefli á heimavelli gegn Manch. Utd. og fékk fyrsta leikmanninn bókaðan Þessi ínynd var tekin á White Hart Lane i Lundúnum 15. september, þegar Shcff. Utd. sigraöi Tottenham þar 2-1. Þaðer Martin Peters, sem sækir að markverði United, Tom McAlister, en John Flynn fylgist með. Hann skoraöi sigurmark Sheff. Utd. gegn Norwich á íaugardag — og Peters skoraði þá gegn Liverpool. Ekki tókst Leeds að bæta met Tottenham frá 1960 hvað beztu byrjun á leik- tímabili snertir — Manch. Utd. sá til þess á laugar- dag. Leeds, sem hafði sigr- að í sjö fyrstu leikjunum, varð nú að láta sér jafntefli nægja og það á heimavelli. En þriggja stiga forskotinu heldur Leeds í 1. deildinni. Ahorfendaf jöldinn var hinn mesti hjá Leeds i sumar, rúmlega 47 þúsund, en hrifning var ekki mikil. Leeds tókst ekki að skora og fyrsti leikmaðurinn liðs- ins á leiktimabilinu, Joe Jordan, var bókaður fyrir brot á Brian Kidd. Leeds sötti miklu meira i leikn- um, en tökst sárasjaldan að skapa sér tækifæri gegn sterkri vörn Manch. Utd., þar sem mið- vöröurinn Jim Holton átti stór- leik. Lokakafla leiksins sótti Leeds stanzlaust, en Manchest- er dró alla sina menn i vörn og meira að segja kippti þá sóknar- manninum Lou Macari út af, og setti varnarmanninn Martin Buchan inn á i hans stað. Það var annað upp á téningnum i Derby. Þar vantaði ekki mörkin. Derby komst i annað sæti með 6-2 sigri gegn Southampton. Kevin Hector, sem nýlega var valinn i enska landsliðshópinn, hélt upp á það með þvi aö skora þrennu — tvö markanna i lok leiksins. Alan Hinton hóf markaregn Dérby með þvi að skora úr vitaspyrnu á 8. min. eftir að brotið hafði verið á Hector innan vitateigs. Roger Davies skoraði á 22. min. og Hect- or sitt fyrsta á 37. min. með hörkuskoti. Brian O.Neil skoraði fyrir Dýrlingana og staðan i hálf- leik var 3-1. Davies kom Derby i 4-1 áöur en OnNeil breytti stöð- unni i 4-2, og svo komu lokamörk Hectors. Ahorfendur 25.500. Annars urðu úrslit þessi: 1. deild Arsenal—Stoke 2-1 Coventry—Newcastle 2-2 Derby—Southampton 6-2 Ipswich—Burnley 3-2 Leeds—Manch. Utd. 0-0 Liverpool—Tottenham 3-2 Manch. City—Chelsea 3-2 QPR—Birmingham 2-2 Sheff. Utd,—Norwich 1-0 West Ham—Leicester 1-1 Wolves—-Everton 1-1 2. deild Aston Villa—Orient 2-2 Blackpool—Middlesbro 0-0 Bristol City—Sheff. Wed 2-0 Carlisle—Oxford 2-1 C. Palace—Cardiff 3-3 Hull City-WBA 0-0 Nottm. For,—Preston 1-1 Portsmouth—Notts. C. 1-2 Sunderland—Luton 0-1 Swindon—Millvall 1-3 Leikur Liverpool og Tottenham var afar tvisýnn — og Chris Law- ler, bakverði, tókst að tryggja Liverpool sigur með siðustu spyrnu leiksins — og það voru bakverðir, sem skoruðu öll mörk Liverpool. Martin Peters náði forustu fyrir Tottenham á 8. min. eftir að Larry Lloyd haföi „blokkerað” fyrsta skot hans. Liverpool sótti mjög og Chris Lawler skallaði i mark og jafnaði fyrir heimaliðið. 1-1 i hálfleik. A 49. min. skoraði Martin Chivers annað mark Tottenham og Lundúnaliðið virt- ist stefna i sigur. En á 75. min. var dæmd vitaspyrna á Totten- ham — Emlyn Hughes tók hana, en Pat Jennings gerði sér litið fyrir og varði. En dómarinn var ekki ánægður — taldi Pat hafa hreyft sig áður en Hughes spyrnti, og spyrnan var endurtek- in. Þá kom Alec Lindsay, bak- vörður, til skjalanna og skoraði örugglega úr vitinu. Og á loka- minútunni skoraði Lawler svo sigurmarkið við mikinn fögnuð 49.200 áhorfenda. Arsenal vann sinn 3ja sigur i röð — á laugardag i erfiðum leik gegn Stoke. Þegar á 3ju min. skoraði Radford fyrir Arsenal, en eftir að Stoke hafði varizt grimmilega, tókst liðinu óvænt að jafna á 36. min. Jimmy Green- hoff. Varnarmistök Stoke á 72. min. gáfu Arsenal svo sigurinn — Alan Ball var skilinn eftir frir á vitateigspunkti, fékk knöttinn og skoraði einfaldlega. Eftir markalausan fyrri hálf- leik blossaði leikur Manch. City og Chelsea upp i þeim siðari. Fimm mörk á tólf minútum! Tony Towers og Francis Lee komu City i 2-0, en Tommy Bald- win minnkaði muninn i 2-1. Þá fékk City viti, sem Lee skoraði úr, og Baldwin bætti svo við öðru marki. Denis Law lék ekki i liði City vegna meiðsla, og missir af þeim sökum einnig landsleik Skota gegn Tékkum á miðviku- dag. Óheppnin eltir hann enn. Ahorfendur 32.000. QPR skoraði tvö mörk á einni minútu gegn Birmingham, og þá var útlitið dökkt hjá neðsta liði deildarinnar. Fyrra markið var sjálfsmark Roger Hynd, en Stan Bowles skoraði hið siðara. Bob Latchford tókst að minnka mun- inn i 2-1 rétt fyrir hálfleik. 1 siðari hálfleiknum missti Lundúnaliðið Bowles meiddan — og fjórum min. fyrir leikslok tókst Burns að jafna. Ahorfendur 18.700. Með venjulegum mótherja i marki hefði West Ham náö góðum sigri gegn Leicester, en liðið mætti engum venjulegum manni, þar sem Peter Shilton var. Hann varði hreint ótrúlega i leiknum - en mistök hans áttu þó þátt i marki West Ham. Shilton mis- heppnaðist þá spyrna frá marki — knötturinn fór beint til Dudley Tyler, sem sendi þegar á Pop Robson og markakóngur 1. deild- ar frá i fyrra, sendi knöttinn framhjá Pétri. En fjórum min. fyrir leikslok urðu hinum sterka miðverði Tommy Taylor á mistök — Frank Worthington náði knettinum og jafnaði fyrir Leicester. Enn gengur litið hjá Olfunum — aðeins jafntefli gegn Everton á heimavelli. Markaskorarinn mikli frá siðasta leiktimabili, John Richards, getur ekki skorað nú. Hann missti af opnu færi i leiknum af 2ja metra færi! Joe Royle skoraði fyrir Everton i byrjun siðari hálfleiks, en Derek Dougan tókst að jafna. Dave Cle- mence lék sinn fyrsta leik með Everton og stóð sig vel. Coventry og Newcastle gerðu jafntefli i stórgóðum 'leik að við- stöddum 24 þúsund áhorfendum, þar á meðal var landsliðsein- valdurinn Ramsey. Malcolm Mc- Donald skoraði fyrsta mark leiks- ins fyrir Newcastie á 24. min. en Coventry tókst að ná forustu fyrir hlé. Brian Alderson jafnaði með þrumuskoti utan vitateigs og Colin Stein kom Coventry i 2-1 með ágætu skalla marki á 40. min. Stein meiddist i siðari hálf- leik og þá fór mestur broddur úr heimaliðinu. John Tudor, gamli Coventry-leíkmaðurinn hjá New- castle, jafnaði fyrir lið sitt eftir undirbúning McDonalds. Burnley, liðið, sem komst upp i 1. deild i vor, tapaði nú sinum fyrsta leik og það i Ipswich. Lam- part var þeim erfiður ljár i þúfu. Hann lagði upp öll mörk Ipswich. Bryan Hamilton, irski landsliðs- maðurinn, kom Ipswich i 2-0 áður en Leighton James skoraði fyrsta mark Burnley. Staðan i hálfleik var 2-1 og Ipswich komst i 3-1 á 56. min. þegar Colin Harper skoraði. En Burnley gafst ekki upp — Doug Collins skoraði, en ekki tókst Burnley að bjarga stigi. I 2. deild kom tap Sunderland á heimavelli mest á óvart. Bristol City er þar nú i efsta sæti með 11 stig eftir 7 ieiki. Aston Villa, Nottm. Forest, Fulham og Middlesbro hafa 9 stig, Orient og Luton átta. 1 3. deild er Bristol Rovers i efsta sæti með 12 stig — Tranmere og Oldham hafa tiu. Staðan i 1. deild er nú þannig. Leeds 8 7 1 0 19 4 15 Derby 9 5 2 2 14 8 12 Coventry 9 5 2 2 11 7 12 Newcastle 8 4 3 1 14 8 11 Leicester 8 3 5 0 10 6 11 Burnley 8 4 3 1 15 10 11 Manch. City 8 4 2 2 12 9 10 Liverpool 8 4 2 2 10 8 10 Sheff.Utd. 8 4 1 3 11 8 9 Arsenal 8 4 1 3 12 11 9 Everton 8 2 4 2 9 8 8 Q.P.R. 8 1 5 2 10 11 7 Manch. Utd. 8 3 1 4 8 10 7 Ipswich 8 2 3 3 12 17 7 Chelsea 8 3 0 5 11 11 6 Southampton 8 2 2 4 9 16 6 Stoke 8 0 5 3 7 1(1 5 Tottenham 8 2 1 5 10 15 5 Norwich 8 1 3 4 8 14 5 Wolves 8 2 1 5 8 14 5 West Ham 8 0 4 4 10 15 4 Birmingham 8 0 3 5 8 18 3 Smjör&Ostur Hreysti og glaðlyndi úr nestispakkanum. Ostur er alhliða fæðutegund. Úr honum fá börnin eggjahvítuefni (protein), vítamín og nauðsynleg steinefni, þ. á m. óvenju mikið af kalki. Kalkið er nauðsynlegt eðlilegri starfsemi taugakerfisins. Smjörið veitir þeim A og D vítamín. A vítamín styrkir t. d. sjónina og D vítamín tennurnar. Gefiö þeim smjör og ost í nestið.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.