Vísir - 01.10.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 01.10.1973, Blaðsíða 9
Vlsir. Mánudagur 1. október 1913 9 AUKIÐ . HEIMILISAIMÆGJUNA .. GRUNDIG RADIOFÓNI. Þetta er GRUNDIG Ballade 4, vandaður og glæsilegur stereo radiofónn á mjög hagstæðu verði. Viðtækið, sem er fullkomið og langdrægt, er með langbylgju, miðbylgju, stuttbylgju og FM. FM bylgjan er gerð fyrir stereo mót- töku, en væntanlega hefjast ster- eo útsendingar útvarps áður en of langt um líður. Plötuspilarinn, sem er af gerðinni Automatic 60, er auðvitað steréo líka. Er hann byggður hvort heldur sem er fyrir einstakar plötur eða 6—7 plötur með sjálfvirkri skiptingu. Stórir, vandaðir „superphon“ hátalarar tryggja góðan hljómburð, auk þess, sem úttak er fyrir 2 viðbót- arhátalara. í Ballade 4 er einnig hólf, sem nota má fyrir segul- bandstæki eða plötugeymslu. — Ballade 4 er í valhnotukassa, og eru utanmál hans þessi: Breidd 133 sm, hæð 76 sm og dýpt 36 sm. í fáum orðum sagt, Ballade 4 er fallegt og fullkomið hljómtæki með 3ja ára ábyrgð og kostar aðeins 49.920,00. Væri ekki heilla- ráð að líta við og kanna málið nánar? NESCOHF Langstærsta fyrirtæki landsins á sviði sjónvarps- útvarps- og hljómtækja Laugavegi 10, Símar: 19192 - 19150

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.