Vísir - 18.12.1973, Síða 5
Þriðjudagur 1K. desember
Jólagjafahandbók Vísis 5
Þetta er góð jólagjöf handa börnum yngri en 5 ára.
Gallarnir, sem hér um ræðir, fást i Gefjun, Austurstræti
10. Þessi er i rauðum lit, en þeir eru einnig til I bláum og f
4 stærðum. Úlpan kostar 1675 en buxurnar 1.185 kr.
Þetta leikfang má einnig kalla þroskaleikfang, en þetta
er smiðadót. Skrúfur úr plasti eru settar á borðiö og barn-
ið á að finna rétta lykilinn fyrir hverja skrúfu. Leikfangið
kostar 196 krónur og það fæst í Liverpool Laugavegi l8a.
Það getur oft veriö erfitt aö fá hentuga barnakuldaskó,
en hér koma einir, sem barninu mun áreiðanlega Ilka.
Þessir fást I skóverzlun Steinars Waage I Domus Medica,
Egilsgötu 3. Þeir eru norskir og eru til i brúnum og rauð-
um lit. Veröiðer frá 2.123 kr. Fást f númerunum 22-30.
Jólagiöfin
handa 6 - 12 óra börnum:
OG NU HEFST
AIVARA IÍFSINS
Þau eru kannski ekkert sérstaklega hrifin af þvl að vera
að þvo sér einum of oft krakkarnir á þessum aldri. En
kannski sápa I fótboltaltki eða sápa I llki Andrésar-andar
hjálpuðu til? Þessar sápur fást I Tlbrá, Laugavegi 19. Fót-
boltinn kostar 85 krónur, en hin 102 kr.
Hér er litiö ferðaútvarpstæki, sem gaman gæti veriö að
gefa yngri kynslóðinni, sem hefur orðið gaman af að
hlusta á útvarp, t.d. barnatlma eða annað. Þetta fæst I
Heimilistæki, Hafnarstræti 3, og kostar 1.825 kr. Það er af
gerðinni Philips.
Hér er Hklega eitt það bezta til að hjálpa börnunum að
festa islandssöguna sér f minni. Það er Söguspil svokall-
að, sem fæst I Pennanum Laugavegi 178. Þetta er tslands-
sagan eins og hún leggur sig, og þegar börnin spila, fara
þau i gegnum svarta-dauða og ýmis önnur tfmabil. Spilið
kostar 785 kr. og svipar kannski aö mörgu leyti til Matador
spilsins.
Nú getur barniö hvilt sig frá teiknimyndum kvikmynda-
húsanna. Ilér er kvikmyndavél, sein ineð fylgja kasettur.
A hverri kasettu er teiknimynd sem er álika löng og
teiknimynd I bió. Barnið snýr svcif á vélinni og þá hreyfist
ntyndin nákvæntlega eins og i raunvcruleikanum. Myndin
er i litum og til eru 5 gerðir af kvikmyndum. Fæst I leik-
fangavcr Klapparstig 40 og kostar 995. Ein kasetta kostar
495 kr.
Börn hafa mjög gaman af þvi að grúska i ýmsum hlut-
um og rannsaka. Hér er þá eitt gott tæki til þess, það er
smásjá. Þessi kostar 1.490 krónur og er með Ijósum. Hún
fæst I Sportval Laugavegi 116.
FRAMHALD A
NÆSTU SÍÐU