Alþýðublaðið - 28.01.1922, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 28.01.1922, Qupperneq 2
s Samtaka nú. Kæru félagsbræður og systurl Verum nú samtaka. Göngum xem einn maður að kosningum í dag. Fylkjum okkur þétt um lista alþýðunnar. Munum kinnhestinn sem auðvalds, kaupmanna og heildsalaiiðið rétti að okkur 23. núvembar s. I. Munum að það var ekki aðför að einum manni, aliur Alþýðuflokkurinn átti sneið- ina. Aðförin átti að þýða það, að svona skyldu þeir taka í hnakkadrambið á okkur ef við vildum ekki sitja og standa eins og þessir háu herrar vildu vera láta. Þeir skyldu þá iofa okkur að sjá í kolsvarta byssukjaftana. Og sýnt er enn hvað þeir viija. Nú stilla þeir á auðvaldslista sinn tveimur hvítliðum, Morgunblaðið segir að heildsal arnir á lista auðvaidsins séu vai- inkunnir dugnaðarmenn. Gn við aiþýðumenn vitum vel í hverju dugnaður heildsaia og kaupmanna er innifalinn. Það er í því að reita af okkur vinnukörlunum blóðfjaðr irnar, ná til sín öllu sem við framleiðum svona að við að eins tórum. Nei, við þekkjum þá of vel til þess að látá þá fara með málefni okkar. Moggi ber sig aumlega yfír ástandinu, vill halda í okkur tii að þræla, svo biaak- ara auðvaidið geti fleytt rjómann af erfíði okte&r og þannig haft upp aftur það fé, sem það hefir sóað. Segir Moggi að þá megi fara að tala um skiftingu á auðn- um þegar þeir tímar koma. Nei og aftur nei. Við viljum engin efti'rkaup eiga við braskara auð- valdið, og því kjósum við okkar menn. Það þýðir ekkert fyrir þig, Moggi sæil, að ausa auri á okk&r beztu menn. Það sýnir bara hvað mikið er f þá spunnið, hvað þeir Ólafur Friðriksson og Héðinn Valdimarsson eru ykkur miklir þyrnar í augum, hvernig auðvaldið skammar þá látiaust. En það tök- um við alþýðumenn fyrir með- mæli. Þegar við heyrum á öllu að þið eruð hræddir um að þeir reisi alþýðuna við, svo að mínsta kosti við vitum hvað tii okkar friðar heyrir, og það vitum við nú þegar, og því kjósum við sem einn , maður okkar iista. Samein- aðir sigrum við. Alþýðumaður. ALÞYÐUBLAÐIÐ Skrijitojnjilk. Oft hefi eg furðað raig á hversu þrællundað margt skrifstofufólk er hér i bæ Venjuiega þegar talið berst að kosningum e*a stjórn málum, þá bregst það varla, að þetta (óik segist vera á sama máli og húsbóndi þess. Það er svo einkennilegt, af því að vitanlegt er að hagstnunir þessara aðilja fara alls ekki saman T. d. í fyrra skrifuðu skrifstofumenn og búðar þjónar í blöðin og kvörtuðu þá upphátt undan húsbændunum, sem von var, því margir þeirra lifa við sultarlaun og lúsarkjör, á meðan húsbóndinn lifir i „vellistiogum praktugiega*. En ef talað er um að þeir geti og ættu að kjósa með alþýðunni, þá hryliir þá og þeir hrista sig, að minsta kosti ef húsbóndinn heycir til. Þetta er kannske skiljanlegt. En skrifstofu- menn og konur, minnist nú, þeg- ar þér gangið næst ti! kosninga, að það er alþýðuflokkurinn sem berst fyrir kaupaækkun ykkar. Þetta hljómar kannske illa í eyium ykkar, en satt er það samt. Þér hljótið að muna, að „húsbóndinn" miðar stundum kaup ykkar við kaup verkamannsins Minnist að þér eruð einuagis verkamenn, og það er engin akömm að því að vera það, heldur heiður. Styðjið samhjálp verkalýðsins — ykkar fólks. Og minnist að samúðar og bræðralags hugsjón framtíðarinnar er að fæðast í verkiýðshreyfíng nnni. Þorið þér að standa á 'móti þeirri hugsjón? Og minnist að síð ustu, að „húsbóndinn* boífir ekki á ykkur á meðan þið kjósið, Þá stuadina megið þér þjóna bræðra laginu og samvizku yðar. Svo er það ekki nema mannlegt, að þér „heiðrið skálkinn, svo að hann skaði yður ekki“. A Kosningahngleiðingar. Mgblaðið hvetur borgaraflokk- ána til samtaka gegn Alþýðulist- anum, hvetur menn til að dauf- heyrast við neyðarópum hinna sveltandi fátæklinga þessa bæjar. Það er ekki nema skiijanlegt, að borgararuir reyni að verjast gegn hinum sívarandi áhrifum alþýðunnar hér á íslandi, því þar eru í veði hagsmunir auðvaidsius. Þeir vita gerla, að vaxi þessarri hreyfingu svo ásmegin, sem i öðr- um löndum, mcga þeir á hcerrf stundu búast við ráðstöfuaura hungraðra aiþýðumanna. En að þeir rtkuli jafnhliða dirfast, að mæla einu orði til þeirra manna, sen: svelta og kveljast af iilri aðbúð, er furðuleg bíræfni. Þeir herrar, Björn ólafsson og Jónatan Þorsteinsson, sem framar- lega stóðu í „hvitu hcrsveitinni“K ættu að kynna sér bsgi sumra verkamanna hér í bæ, áður en þeir ganga í annað sinn á máia hjá Ólafi Thors. Þeim myndi senni- lega holt, ef í þeim leynist nokk- ur mannleg tilfinning, að heyra þær raunasögur, sem við socialistar heyrum nær daglega. Vestur f bæ býr fátæk ekkja, Hún á fjóra syni, einn þeirra er uppkominn. Hann er duglegur og vinnusamur maður; eg hefi þekt hann síðan við vorum báðir drengir. Nú er hann atvinnulaus — hefir verið það f alian vetur. Hver mun vera hugur ekkjunnar þessa dagana? Arlega heldur „Hjálpræðisher inn“ jólaskemtanir fyrir fátæk gamaimenni. Það er eina jóla skemtunin, sem þessir úttauguðu; og gleymdu starfsmenn þjóðfélags ins fá. Einskisviít og hædd gam- almenni koma þar saman tii að njóta jólabátíðarinnar hjá góð- hjörtuðu fóiki, svift mannréttindum og umhyggju heimilis. Ólafur Thors, Bjöm Ólafsson og Jónatan Þorateinsson, hver hefir útþrælað þíssu fólki? Hver hefir launað þeim svo starf þeirra? Það er þjáðfélagsskipun ykkar. Með þvf að berjast fyrir henni fremjið þið hróplegt ranglæti. í skjóli þess deyja fyrir fátækt og vesaldómi börn þeirra manna, sem vinna fyrir yður, sem skapa ykkur hægt: og þægilegt Iíf. Visir tekur undir áskoranir Mgblaðsins. Hann bendir einkan- lega á eyðslustarfsemi jafnaðar- manna I bæjarstjórninni! Alþýðu- menn, eyðslustarfsemi jafnaðar- manna í bæjarstjórninni á að verða að fótakefii lista yðar. Hvað hafið þér orðið hennar varir? Hverjir

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.