Tíminn - 12.01.1966, Page 3
MI*VVTK*Tr>AOTTO 1 ?. Í3«<'.nr 1O0R
3
TÍfVIBNN
Hin fagra, þýzka leikkona Dag
mar Putz, 22 ára, var áður fyrr
hjúkrunarkona, en hún komst
til Cannes og með því að nota
fegurð sína og hæfileika var
hún kjörin ,,drottning kvik
myndahátíðarinnar", sem svo
aftur varð til þess, að hún fékk
reynslu hlutverk hjá 20th Cent
ury Fox í Hollywood og samn
ing hjá kvikmyndafyrirtækinu.
Adolf Eichmann, stríðsglæpa
maðurinn, sem var dæmdur til
dauða og hengdur í ísrael fyrir
að hafa skipulagt morð á 6
milljónum Gyðinga, var sann-
færður um að fölsku tennurnar
hans hafi átt sök á því að Gyð-
ingar handtóku hann í Argen
tínu 1960.
Eftir að hann hafði verið hand
tekinn skrifaði hann lýsingu
á aðdraganda þess að hann var
handtekínn. Þessi iýsing birtist
síðan fyrir skemmstu í þýzíku
blaði.
Hann lýsti Því yfir að ráðizt
hefði verið á hann á heimili
hans í Argentínu. ,,Eg datt og
missti gleraugun mín. Án
þeírra sé ég mjög illa. Fölsku
tennurnar mínar hrukku ofan
í mig. Þetta hefði sannarlega
farið öðru vísi, ef það hefði
ekki gerzt. Ef til vill væri ég
þá ekki hér (í fangelsi í fsra
el).“
★
Kvikmyndaleikarinn Ant-
hony Quinn, sem nú er fimmt-
ugur er nú nýlega genginn í
hjónaband. Konan, sem hann
nú giftist er 31 árs gömul
stúlka frá Róm og voru þau
búin að búa saman í mörg ár
og eiga tvo drengi. Ástæðan
til þess að þau nú fyrst nafa
getað gift sig er sú að Quinn
gat ekki fengið fyrr skilnað frá
fyrri konu sinni, sem hann
hafði verið giftur í 27 ár.
+
Nú hefur Anna Maria
Grikkjadrottning haldið sína
fyrstu ræðu á grísku við mik-
inn fögnuð Grikkja.
Drottningin, sem er aðeins
nítján ára hélt þessa ræðu sína,
þegar hún skar fyrstu sneiðina
af nýársköku við veizlu, sem
haldin var til ágóða fyrir góð-
gerðarstarfsemi.
„Ég þakka ykkur öllum fyr-
ir vinnu ykkar og iðni á und-
anförnum árum. Ég læt í ijósi
ósk mína um að nýja árið gefi
Heímsmeistarinn í þungavigt
í hnefaleikum, Cassius Clay,
var nýlega handtekinn í Chic
ago vegna ósæmilegrar fram-
komu á almannafæri. Hér sést
hann skrifa nafnið sitt í sekt
arbókina á lögreglustöðinni ó-
venju hógvær á svip, en honum
var sleppt eftir að hafa greitt
25 dollara í sekt.
★
okkur nýjan styrk til þess að
þjóna landi okkar með góðum
árangri." sagði drottningin og
talaði hátt og skýrt og átti
ekki í neinum erfiðleikum með
grísku orðin en talaði þó með
örlitlum hreim.
★
Frans'ka kvikmyndastjarnan
Martine Carol er nú orðin þreytt
á Thahití og hyggst nú snúa
1 sér aftur að kvikmyndunum eft
ir þriggja ára hlé. Maríine er
41 árs og var ein mesta kvik
myndastjarna Frakka þar til
hún dró sig í hlé og leitaði
friðs og róar á Kyrrahafseyj
unni Thahiti. Nú hefur ferða-
mannastraumur þangað aukizt
svo mikið, að Martine finnst
hún alveg eins geta verið í
París. Fyrsta kvikmyndin, sem
hún leikur í heitir Helvíti er
' svo tómt og það er eitt sem
kvikmyndahúsgestir fá ekki að
sjá og það er leikkonan í
skúmbaði.
★
Blýantsteikning af fótum
Johns F. Kennedy, forseta var
fyrir skemmstu seld á upp-
boð.t 1 New York fyrir 950
dollara. Teikningu þessa
gerði skósmiður nokkur í Lon
don, þegar hann átti að smíða
skó handa öldungadeildarþing-
manninum Kennedy. Hafði
Kennedy sjálfur skrifað nafn
sitt á teikninguna, sem bók-
sali nokkur í New York síðar
keypti. Á sama uppboði var
selt bréf frá Jacqueline Kenn
edy á 900 dollara. Bréfið var
svar við auglýsingu hjóna nokk
urra, sem sóttu um stöðu sem
þjónustufólk.
Hér eru tvær mæðgur á Lund
únaflugvelli. hin ungversk ætt
aða leikkona Eva Bartok og
átta ára dóttir hennar. Deana
Eva Bartok var að koma heim
til Bretlands eftir nokkra mán
aða dvöl í Berlín, þar sem
hún lék í músik-revíu lnnan
skamms mun hún halda til ísr
ael og leika þar aðalhlutverk í
nýjum leik „Sabina and her
Harem“
I
r
Á VÍÐAVANGI
Vísindaleg verðbólga
Gylfi Þ. Gíslason, viðsldpta-
málaráðherra, og mesti efna-
hagsmálaspekingur ríkisstjóm-
arinnar, ritar fræðilega grein
um fósturbarn ríkisstjórnarinn-
ar, verðbóiguna, í blað sitt í
gær og lýsir þar eindæma lang-
lundargeði stjórnarinnar við að
sitja með króann í skauti á ráð
herrastólum. Gylfi hefur grein
sína á þessum orðum, og ber
vafalaust að líta á þau sem
hina vísindalegu skýringu á
hugtakinu verðbólga, þó að
orðalagið sé ofurlítið vafninga-
samt og lítið skiljanlegra en
sjálft fyrirbærið:
„Þegar menn tala um verð-
bólgu í blöðunum og í daglegu
tali, er venjulega átt við það,
þegar almenn hækkun verður
á verðlagi í kjölfar þess, að
meiri hækkun verður á heildar-
eftirspurninni í þjóðfélaginu,
það er heildarpeningamagninu,
er svarar til þeirrar aukningar
á raunverulegum verðmætum,
sem þessi heildareftirspurn
beinist gegn“.
Svo mörg og hávísindaleg eru
þau orð.
Að fara eða sitja
Síðar í greininni segir Gylfi:
„Svo fór og að lokum (og er
þá átt við vinstri stjómina) að
verðstöðvunarstefna stjórnar
Hermanns Jónassonar beið
skipbrot, óábyrg stefna í kaup-
gjaldsmálum fékk yfirhöndina,
sprengdi verðlagskerfið og rík-
isstjórnina“.
Þessi orð eru í sjálfu sér rétt,
en þau birta í sjónhendingu
meginmuninn á lýðræðislegri
skyldurækni ríkisstjóma.
Stjórn Hermanns Jónassonar
barðist ötullega við verðbólg-
una, og henni tókst að halda
henni niðri á þriðja ár. Þá
tókst ábyrgðarlausum aðilum,
aðallega vegna áróðurs Sjálf-
stæðisflokksins, að „sprengja
verðlagskerfið“ með hækkuniun
eins og Gylfi segir, og það
„sprengdi" ríkisstjórnina líka.
Vegna hvers „sprengdi" þetta
vinstri stjórnina, munu menn
spyrja? Vegna þess, að þá var
forsætisráðherra maður, sem
hafði þá pólitísku siðgæðisskoð
un, sem næsta ríkisstjórn virð-
ist telja úrelta, að ríkisstjóm í
lýðræðisríki beri að segja af
sér, þegar liún kemur ekki
fram yfirlýstri stjórnarstefnu
sinni. Og ha...í baðst lausnar
fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Sprengjuheld ríkis-
stjórn.
Það var einnig sem kunnugt
er aðalstefnuheit „viðreisnar“-
stjórnarinnar að hafa hemil á
verðbólgunni, og' hún greip til
gamalkunnra íhaldsráðstafana í
því efni. Þær dugðu ekkert.
Hvað eftir annað „sprakk verð
Iagskerfið" í höndum hennar.
Verðbólguvísitalan þaut upp úr
öllu valdi. Allt fór úr skorðum,
ekki vegna of mikilla kaup-
hækkana, þvi að enn er kaup-
máttur launa ekki meiri en
1959, heldur beinlínis vegna
óviturlegra stjórnarathafna. En
þetta „sprengdi“ ekki ríkis-
stjórnina! Hún hefur reynzt
algerlega sprengjuheld, hvað
=p>n á hefur gengið. Þó að yfir-
' stjórnarstefna hennar hafi
þannig beðið skipbrot og
strandað hvað eftir annað, sit-
Framhald á bls. 14.