Vísir - 20.05.1974, Blaðsíða 9

Vísir - 20.05.1974, Blaðsíða 9
Vlsir. Mánudagur 20. mal 1974. 9 Þjóðhátíðarmynt 1974 10.000 króna gullpeningur 500 króna silfurpeningur 27,75 mm aó þvermáli 35 mm aó þvermáli 1.000 króna silfurpeningur 39 mm aó þvermáli Bakhlið peninganna Seðlabanki íslands gefur út gull- og silfurmynt í tilefni af 1100 ára afmæli byggðar á íslandi. Peningarnir eru þrír og þannig gerðir: 10.000 króna gullpeningur, 27,75 mm að þver- máli og 15,5 gr að þyngd. Á framhlið er mynd af Ingólfi Arnarsyni er hann varpar öndvegissúlum sínum fyrir borð. 1.000 króna silfurpeningur, 39 mm að þvermáli og 30 gr að þyngd. Á framhlið er sýnt, hversu karl- menn helguðu sér land. Skyldu þeir kveikja eld, er sól var í austri að morgni, og síðan aðra elda, svo að hvern sæi frá öðrum, uns sól væri í vestri. Svæðið milli eldanna markaði stærð landnámsins. 500 króna silfurpeningur, 35 mm að þvermáli og 20 gr að þyngd. Á framhlið er mynd af konu, sem leiðir kú sér við hlið. Landnám kvenna skyldi ekki vera víðara en svo, að kona gæti leitt um þaó tvævetra kvígu vorlangan dag sólsetra millum. Á bakhlið peninganna allra eru landvættirnar fjórar, naut, fugl, dreki og bergrisi. Gullpeningarnir eru 900/1000 aö skírleika, sem samsvarar nálægt 22 karötum, en silfurpeningarnir eru 925/1000 að skírleika (sterling silfur). Þröstur Magnússon teiknaði peningana, sem slegnir eru hjá Royal Mint í London. SÉRUNNIN SLÁTTA. Hluti upplags myntarinnar er sérlega vönduö, sérunnin slátta (proof coins). Þessir peningar verða með mattri áferð mynda og leturs, en sléttir fletir gljáfægðir, Verða þeir seldir yfir nafnverði, enda dýrari að gerð og ætlaðir fyrst og fremst til söfn- unar. Þeir eru í vönduðum öskjum og fást ýmist allir þrír eða silfurpeningarnir saman. VENJULEG SLÁTTA Meiri hluti myntarinnar verður hins vegar sleginn eins og gerist um gjaldmiðil. Þessi slátta er einnig fáanleg í öskjum, gullpeningurinn sér og silfurpeningarnir sanrán. PÖNTUN TIL SEÐLABANKA ÍSLANDS Vinsamlega sendiö mér neðangreinda þjóðhátíðarmynt 1974 að andvirði kr.................. , og fylgir greiðsla með þessari pöntun. ......öskjur (hámaric 3), sérunnin slátta, 1 gull- og 2 silfurpeningar á kr. 23.000.- = kr................. ......öskjur (hámark 5), sérunnin slátta, 2 silfurpeningar.......á kr. 3.200,- = kr. ......öskjur (hámark 3), venjuleg slátta, 1 gullpeningur.........á kr. 10.200- = kr. ......öskjur (hámark5), venjuleg slátta, 2 silfurpeningar........á kr. 1.700.- = kr. Samtals kr. NAFN:...................................................’......... HEIMILI:..................................................... Seðlabankinn afgreiðir pantanir í þeirri röð, sem þær berast, þar til upplag þrýtur. n J AÐ EIGNAST MYNTINA. Þjóðhátíðarmyndna skal panta á þar til gerð- um eyðublöðum hjá bönkum, sparisjóðum og helstu myntsölum eða beint frá Seðlabanka Islands. Staðgreiðsla fylgi pöntun. Dreifing fer fram frá pöntunarstað og verður auglýst sérstaklega. TAKMARKAÐ UPPLAG. Þeim, sem vilja tryggja sér myntina til eignar eða gjafa, skal bent á, að bæði er upplag takmarkað og jafnframt er búist við verulegri erlendri eftir- spurn. Því er ráðlegt að gera pöntun strax. Til þess að sem flestir geti eignast myntina, er nauðsynlegt að setja hámark þess, sem hver getur pantað, við þrjá gullpeninga af hvorri sláttu, en fimm af hvorri samstæðu silfurpeninga, eins og nánar er skýrt á pöntunarseöli. Hámarksupplag myntarinnar er efdrfarandi: SÉRUNNIN SLÁTTA 10.000 króna gullpeningur 8.000 stk. 1.000 króna silfurpeningur 58.000 stk. 500 króna silfurpeningur 58.000 stk. VENJULEG SLÁTTA 10.000 króna gullpeningur 12.000 stk. 1.000 króna silfurpeningur 70.000 stk. 500 króna silfurpeningur 70.000 stk. VERÐMÆT EIGN. Vonast ertil, að þjóðhátíðarmyndn verói safngripir, sem veróa eigendum sínum til ánægju og minja um merkan atburð í sögu þjóðarinnar. Jafnframt eru peningarnir gjaldgeng íslensk mynt, slegin úr gulli og silfri. ÍÉMí seðlabanki H/ ÍSLANDS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.