Vísir - 20.05.1974, Síða 24

Vísir - 20.05.1974, Síða 24
visrn Mánudagur 20. mal 1974. Séra Ingi- berg í stað w Asgeirs Séra Ingiberg J. Hannesson Hvoli, kemur i stað Asgeirs Péturssonar i 3. sæti á lista sjálf- stæðismanna á Vesturlandi. Jón Árnason alþingismaður verður i 1. sæti og Friðjón bórð- arson alþingismaður i 2. t 4. sæti er Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri tslenzks markaðar, 5. er Davið Pétursson hreppstjóri, Grund, 6. Jónina Michaelsdóttir, Gufuskálum. 7. Bjarni Helgason, garðyrkju- bóndi, Laugalandi. 8. Kristjana Ágústsdóttir, frú, Búðardal. 9. Anton Ottesen, bóndi Ytra-Hólmi, og 10. Valdimar Indriðason, for- stjóri, Akranesi. — HH Jón Sólnes efstur í Norðurlandi eystra Jón Sólnes bankastjóri mun verða i 1. sæti á lista sjálfstæöis- manna i Norðuriandskjördæmi eystra. Magnús Jónsson lætur nú af þingmennsku. t 2. sæti listans verður Lárus Jónsson alþingismaður og i 3. sæti Halldór Blöndal varaþingmaður. —HH Sigurlaug Bjarnadóttir í 3. sœtinu Sigurlaug Bjarnadóttir kennari mun skipa 3ja sæti á lista sjálf- stæðismanna á Vestfjöröum. bað sæti skipaði siðast Ásberg Sigurösson fógeti, Reykjavik. t 1. og 2. sæti verða áfram alþingismennirnir Matthias Bjarnason og borvaldur Garðar Kristjánsson. —HH Óbreytt í 3 efstu ó Reykjanesi Sömu menn og fyrr verða i þremur efstu sætunum á lista sjálfstæðismanna I Reykjaneskjördæmi. t þessum sætum verða alþingis- mennirnir Matthías A. Mathiesen I 1., Oddur ólafsson í 2. og Ólafur G. Einarsson I 3. Listinn mun aö ööru leyti ófrágenginn. —HH HRINGVEGURINNI SUNDUR í NÓTT Hringvegurinn fór i sundur i nótt. Var það vegna jökulhlaups i Kolgrimu, sem hófst seint i gær og var i há- marki i morgun. Upp úr miðnætti i nótt varð vegurinn ófær, en þannig hagar til, að það rennur yfir veginn beggja vegna brúar- innar, og i morgun kom i ljós, að straumurinn hafði sett stórt skarð i veginn. „Vegurinn verður ófær i dag og sennilega á morgun. En strax og vatn sjatnar, verður komið þarna á sambandi aftur”, sagði Arnkell Einarsson hjá vegaeftirliti rikisins I viðtali við VIsi I morgun. Arnkell viðurkenndi, að vegurinn á þessum slóðum væri einn veikasti hlekkurinn i hring- veginum. En samkvæmt vega- — vegna jökulhlaups í Kolgrímu áætlun er fyrirhugað að ráðast I smiði nýrrar brúar yfir Kol- grimu á næsta ári. „betta er nokkuð gömul brú, sem er byggð á klöppum, þar sem áin þrengist”, útskýrði Arnkell. „En það, sem þarna fer úrskeiðis, er það, að vatn hefur aukizt i Kolgrlmu núna á siðasta áratug, en hins vegar minnkað annars staðar”. . —bJM .. ■ HEYRÐU ANDARDRÁTT BJARN- DÝRSINS í GEGNUM DYRNAR Skutu bjarndýr norður í Fljótavík á Vestfjörðum. — Bangsi kom þeim að óvörum og átti 3-4 metra ófarna til mannanna, þegar þeir veittu honum eftirtekt „Okkur leið ekki vel þar sem við vorum lokaðir inni i skýlinu, meðan bangsi hnusaði af dyrunum og hélt okkur inni i drjúgan hálftima. Mestan kvíða höfðum viö þó vegna konunnar og drengjanna þriggja. Við höfðum skilið þau eftir i sumarbústaðnum 2 1/2 km i burtu, en þau gátu tekið upp á þvi I góða veðrinu að fá sér göngutúr til að lita eftir með okkur. bá kæmu þau beint i flasiö á bangsa”. bannig fórust Helga Geirmundssyni orð, þegar hann lýsti fyrir blaðamanni Visis þeirri kreppu, sem þau sjö höfðu lenti i á laugardag i ferð, sem i upphafi var ósköp saklaus, farin til að dytta að sumarhúsi norður i Fljótavik. „Við eigum, tvær fjölskyldur, sumarhús I Fljótavikinni, og við ætluðum þrir að fara og setja véli jeppa,sem viðgeymum hjá ■slysavarnaskýlinu þarna norður frá. — Hinir tveir voru Jón Gunnars trésmiður og Ingólfur Eggertsson útvarpsvirki, en kona Ingólfs, Herborg Vernharðsdóttir, slóst I förina og svo þrir drengir okkar Magnús og Helgi, báðir 11 ára, og Hörður 16 ára. Við komum norður i Fljótavik svona um hálftólf og vorum búin aö vera þar i rúmar tvær klukkustundir, þegar við sáum bjarndýrið. — bað hlýtur aö hafa komið utan frá Kögri. Liklega hefur það heyrt til okkar og runnið á hljóðið. Hins vegar veittum við þvi enga eftirtekt, þegar það kom að. bað heyrðist ekkert i þvi og vissum ekki af neinu þvi, sem var i kringum okkur, þar sem við vorum önnum kafnir við að segja vél I jeppskrifli, sem við höfðum með okkur frá ísafirði. Jeppann höfum við þarna til að létta okkur ganginn. Bangsi hélt okkur þannig inni i hálftima, meðan hann þefaði úti fyrir dyrum, vitandi vel af okkur inni fyrir. Við heyrðum I gegnum dyrnar andardráttinn i honum fyrir utan. — begar hann fékk leið á að skoða dyrnar, fór hann i dótið okkar. At þar appelsinur og gleypti heilt franskbrauð, en annað fann greyið ekki. Ferðaútvarpstækið okkar vakti mikla athygli hans. Hann hlustaði vendilega eftir músikinni og velti tækinu um koll með hrömmunum. Svo vék hann sér nægilega frá til þess að ég taldi óhætt að freista þess að ná til úlpunnar, Helgi Geirmundsson, — hann banaði birninum i Fljótavik Ljósm. Leó og þá var ég ekki höndum seinni að smella skoti i einhleypuna. Og eins og færið var stutt, þá var ekki vandinn að sálga bangsa. Ég sendi honum kveðjuna beint i hausinn. bað dugði. — Að visu sendi ég honum annað skot til þess að vera alveg viss, þvi að biðin inni I skýlinu hafði ekki beinlinis verið til þess að róa okkur félagana”, sagði Helgi. Vopnið, sem varð Isbirninum að bana, var rússnesk einhleypa af hlaupvidd nr. 12, og skotin voru með ósköp venjulegum „fuglahöglum”, eins og Helgi sagði. En heppilegt hafði það reynzt að hafa byssuhólkinn með. „Já, það var nú annars meiri tilviljunip”, sagði Helgi blaða- manni VIsis. „Ég hef farið i þetta sumarhús fjölskyldunnar á hverju ári frá þvi að ég man bara eftir mér og aldrei hef ég nokkurn tima haft með mér byssu. — En mest fyrir einhverja gleymsku hefur þessi byssa verið i bátnum hjá mér um skeið, en hins vegar engin skotfæri I hana. begar við vorum svo að fara i gærmorgun, mundi ég allt I einu eftir byssunni, og þvi, að engin voru i hana skotin. bá datt mér allt i einu i hug að hlaupa inn og sækja nokkur skot, sem ég stakk i úlpuvasann. — bað var meiri happahugsunin”. „Hvað ætlið þið að gera við dýrið?” „íslenzka dýrasafnið er búið að biðja um það, og ég hef heyrt, að bæjarstjórnin hérna á ísa- firði sé lika að hugsa um það. — Ég veit ekkert, hvað úr verður, en á meðan er hann hafður hér i frystihúsi”. —GP Á MILLI BÆJA... „Við þurfum að skutla þessu húsi suðureftir”, sögðu þeir flutningamenn, sem lögreglan stöðvaði á mörkum Reykja- vikur og Kópavogs, þegar umferðin var hvað mest síðastliðið laugardagskvöld. Húsið, sem þeir voru að flytja var um átta metrar á breidd og flutningurinn allur mjög hægfara. Enda voru ökumenn, sem á eftir fylgdu i bflum sinum, orðnir harla óþolin- móðir, þegar lögreglan stöðvaði loks flutninginn. Að lokum var ákveðið að gera hlé á honum og var ferðinni ekki haldið áfram fyrr en á sunnudagsmorgun, þegar umferð var sáralitil orðin. Ljósm.: B.P. Framsókn ráðstafar „lausu þing- sœtunum" Framsóknarflokkurinn hefur ráðstafaö ýmsum sinna „lausu þingsæta”, sem mikil barátta hefur staðið um, sum hver. Eysteinn Jónsson og Páll bor- steinsson láta af þingmennsku i Austurlandskjördæmi. Vilhjálm- ur Hjálmarsson flyzt upp i 1. sætið, en „slagurinn” i 2. og 3. lauk með þvi, áð Tómas Árnason, Framkvæmdastofnun, fluttist úr 4. sæti i 2., Halldór Ásgrimsson, sonur Ásgrims Halldórssonar kaupfélagsstjóra, Hornafirði, kemur i 3. sætið. Tveir þingmenn Framsóknar hætta i Suðurlandskjördæmi, Ágúst borvaldsson og Björn Fr. Björnsson. Talaö var um, að Einar Agústsson ráðherra kynni að flytja sig þangað, en við það er hætt. Enn stendur slagur um þessi sæti, og eru helzt nefndir bórarinn i Laugardælum, Jón Hjálmarsson, Skógum og Jón I Seglbúðum. Gunnlaugur Finns- son, bóndi i Hvilft, tekur sæti i Vestfjarðakjördæmi, þar sem Biarni Guðbjörnsson hættir. Gunnlaugur ýtir þar til hliðar Halldóri frá Kirkjubóli, sem áður var 13. sæti og stóð þvi næstur, að þvi leyti. Ólafur bórðars., Súgandafirði verður 3. og Bogi bórðarson, Pat- reksfirði 4. Ingi Tryggvason, blaðafulltrúi, reif sig upp fyrir Jónas Jónsson, ráðunauti Norðurlandi eystra og fer i sætið, sem Gisli Guðmunds- son hafði. bar verða Ingvar Gislason,. þingmaður, og Stefán Valgeirsson, þingmaðúr, i tveimur efstu sætum. A Vesturlandi verður skipan 3ja efstu sæta óbreytt: Asgeir Bjarnason, Halldór E. Sigurðsson og Alexander Stefánsson, oddviti, Ólafsvik. — HH

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.