Vísir - 07.06.1974, Page 8

Vísir - 07.06.1974, Page 8
Ljósmynd Bjarnleifur Sænska sundfólkið i Laugardalsiaug I morgun Framtíðarfólk Svía í Laugardalslauginni í kvöld ó afmœlismóti KR og Armanns Margt af bezta sundfólki Sviþjóðar — framtiðarfólk iands- ins — veröur meöal keppenda á afmælismóti KR og Ármanns I Laugardalslauginni I kvöld. Þar á meðal eru fimm úr sænska lands- liðinu og fimm úr unglingalands- liði Sviþjóöar I sundi. Sviarnir, sem allir eru félagar i sundfélagi Stokkhólmslögregl- unnar, eru að koma úr æfinga- og keppnisferðalagi frá Bandarlkj- unum og Bahamaeyjum, en þangað fór hópurinn um miðjan mai. Á móti i Helsinki I gærkvöldi kastaði Pentti Kahma 64.98 m i kringlukasti, sem er bezti árangur i greininni i Finnlandi i sumar. Pekka Pæiværinta sigraði i 3000 m hlaupi á 7:58.4 min. — tveimur tiundu á undan italanum Áldo Tomansini. Arese, italiu, hljóp á 7:59.4 min. og Olympiu- meistarinn Lasse Viren varð að láta sér nægja fjórða sætið á 8:00.4 min. i Kuusankoski kastaði Hannu Siitonen spjóti 86.70 metra I gær. A mótinu i kvöld verður keppt i eftirtöldum greinum: Karlar: 100 m skriðsund 400 m skriðsund 200 m bringusund 100 m flugsund 200 m tjórsund. Konur: 100 m skriðsund 100 m bringusund 100 m baksund 200 m fjórsund. Þá mun verða keppt i nokkrum greinum unglinga, og verða það allt 50 metra sprettir. Að lokum mun verða keppt i boðsundi. 1 þessu móti mun reyna mikið á okkar unga og efnilega sundfólk. Þeir, sem hafa veriö I sviðsljósinu á undanförnum árum, hafa nú yfirgefið laugina að mestu og láÞ iö hana eftir unga fólkinu. Verður gaman að sjá, hvernig þvi vegnar gegn hinum vel æföu og keppnis- vönu Svium i kvöld. —klp GLÆNÝR LAX Kr. 550 pr. kg. Laugalæk 2. REYKJAVIK, simi 3 5o2o tke Lindhgren, hinn frægi landsliðsþjálfari Svia, til lægri, ásamt aöstoðarmanni sinum. Lindhgren hef- ir þjálfaö landsliðiö frá 1964 — og islenzkir sund- nenn hafa verið hjá honum t.d. Höröur Finnsson og Lrni Kristjánsson. Þá varö Höröur sænskur meist- it-í < uio m hrinmisundi. Liósmvnd Biarnleifur. Skotar björguðu sigri í lokin! Með tveimur skailamörkum eftir auka- spyrnur bjargaði skozka HM-Iiðið andlitinu I Osló I gærkvöldi — tókst á siðustu 17 min. tvi- vegis að skora og hala sigur I land gegn Nor- egi 2-1. Fyrirliðinn Billy Brenner, sem að ööru leyti átti hreint afleitan leik, tók aukaspyrn- urnar — fyrst skallaði félagi hans i Leeds, Joe Jordan i mark á 73. min. og á þeirri 80. fékk Skotland aftur aukaspyrnu, og Kenny Dalglish skallaði þá knöttinn í mark. Tom Lund skoraði mark Noregs á 9. min. I fyrri hálfleik og lengi vel leit út fyrir, að það ætlaöi aö verða eina mark leiksins. Norð- menn notuöu atvinnumenn sina, og Geir Karlsen var hreint frábær I marki — mark Noregs var skorað eftir „risaútspark” Geirs — eitt þeirra, sem hann er hvað frægastur fyrir. Harald Berg fékk tvö opin færi I leikn- um — renndi knettinum framhjá I bæði skipt- in. Sorglegt hjá honum I siðara tilfellinu, þvl að Berg hafði leikiö á skozka markmanninn, Thompson Allen, og markið blasti við galop- ið. Skotar sóttu mjög I siðari hálfleiknum, og þaö bar árangur I lokin, en liðið verður að gera betur, ef það ætlar sér eitthvaö á HM. — Ahorfendur voru 18.432 og veður slæmt — rok og rigning. Eftir leikinn sagði norski lands- liösþjálfarinn George Curtis — Það var synd að tapa þessum leik — leikur norska liðsins veröur stööugt betri, en úthaldið brást. Nú er takmarkið - skokk alls staðar! tslenzkt þjóðfélag hefur tekið niiklum breytingum sfðustu ára- tugina — likamleg áreynsla minnkað og kyrrseta við hin ýmsu störf aukizt mjög. Kyrrsetu fylgja ýmsir hrörnunarsjúkdóm- ar, og þeim, sem stunda vinnu, scm ekki krefst likamlegrar á- reynslu, er þvi nauðsynlegt að hreyfa sig i tómstundum sinum, sagði Sigurður Helgason, formað- Ríkir - ef þeir sigra Þýzka knattspyrnusambandið hefur heitið hverjum leikmanni vestur-þýzka HM-liðsins 60 þús- und mörkum - eða um 2.2 milljón- um islenzkra króna — cf þeir sigra á heimsmeistarakeppninni, sem hefst nk. fimmtudag. Takist það hins vegar ekki, er þeim heit- ið 50 þúsund mörkum fyrir silfur og 40 þúsund fyrir brons, eða 3ja sætiö. Vestur-Þýzkaland er al- mennt talið sigurstranglegast á HM — og nær allir reikna með, að Þýzkaland leiki þar sinn 3ja úr- slitaleik á HM. (Sigur 1954 — silf- ur 1966 — brons 1970). Jafntefli í Helsinki Finnar og Danir gerðu jafntefli I landsleik i knattspyrnu i Hels- inki I gærkvöldi 1-1. Danir náöu forustu með marki Bjarne Pett- ersen á 42. min., en Matti Paatel- ainen jafnaði á 71. min. ur útbreiðsiunefndar FRÍ, á fundi með blaðamönnum i gær. FRl i samvinnu við íþrótta- sambandið hefur ákveðið að efna til keppni, sem hefst 15 júni og nefnist ,,FRl-skokkið 1974” og takmarkið er, að sem flestir landsmenn taki þátt i þvi. Hlaupi tvo km þeir, sem eldri eru en 13 ára, og einn km konur og börn. Hámarkstimi er enginn — keppn- inni lýkur svo 30. júli. Framkvæmdaaðilar sjá um að mæla út skokkbrautir og merkja þær — og telja æskilegt, að þær séu nálægt sundstöðum. 1 Reykjavik verða fjórar slikar skokkbrautir — i Vesturbæ, Laugardal, Breiðholti og i Arbæ. Þeir, sem ljúka skokkinu einu sinni, eiga þess kost að fá áletrað- an borða til minningar um keppn- ina — en þeir, sem hlaupa vega- lengdina fimm sinnum eiga kost á að kaupa trimmnælu ISÍ. Borð- arnir verða seldir á 100 kr. fyrir fullorðna, 50 kr. börn, en trimm- nælan kostar 200 kr. Eins og áður segir hefst keppn- in 15. júni og munu framkvæmda- aðilar auglýsa og dæma keppnina hver á sinum stað. Æskilegt er, að fólki sé gefinn kostur á þvi að taka þátt i skokkinu að minnsta kosti tiu sinnum á timabilinu fram til 30. júli. Þá lýkur keppn- inni — og gögn og uppgjör verða send til skrifstofu tSl. Sigurður Magnússon hjá 1S1 sagði á blaðamannafundinum i gær, að það væri von þeirra, sem að þessari keppni standa, að henni verði tekið vel af forustu- mönnum iþrótta og öllum al- menningi. Henni er ætlað að verða hvatning til aukinnar úti- vistar og hreyfingar meðal þjóð- arinnar. Só sterki náði heimsmeti á ný á Evrópumeistaramótinu í lyftingum Sovétmaðurinn Vassili Alek- sejev setti nýtt heimsmet i yfir- þungavigt — keppendur yfir 110 kg að þyngd — á Evrópu- meistaramótinu i lyftingum, sem haldið er I-Verona á Spáni um þessar mundir. Samanlagt lyfti hann 422,5 kilóum, sem er 2,5 kg betra en gamla heimsmetið. Þá setti hann einnig nýtt glæsilegt heimsmet i snörun, lyfti 187,5 kilóum, sem er 2,0 kg meira en gamla metið. Á undanförnum mánuðum liafa a.m.k. sex menn verið að „kroppa” ' i heimsmet Aleksejev, en nú tók hann tvö þeirra aftur. Aleksejev, sem er liðlega þri- tugur og námuverkfræðingur að atvinnu, hefur með þessum tveim metum sett hvorki meira né minna en sextíu heimsmet, sem er einsdæmi i Iþróttasög- unni, en sagt er að hann fái 1000 rúblur fyrir hvert met sem hann setur. Þurfum oð fara að vinna leik! — og gott vœri að fá fyrstu stigin á heimavelli. Ármann-FH i kvöld Það er kominn timi til, að viö Ármenningar förum að vinna leik i 2. deildinni — og vissulega væri Einar Hjartarson, knattspyrnudómari: Sjaldan ríður sannleiks- ástin við einteyming Einar Hjartarson, knatt- spyrnudómari, hefur beðið i- þróttasiöu Visis að birta eftirfar- andi grein vegna skrifa i Þjóð- viijanum að undanförnu um leik Þróttar og Breiðabliks I 2. deild. Einar dæmdi þann leik. Þó eðii- legra hefði verið, að hann hefði snúið sér til Þjóöviljans með skrif sin, vill Visir þó ekki skorast und- an aö birta grein Einars, enda kemur þar ýmislegt fréttnæmt fram. —hsim. „1 sorgarramma birtist grein á iþróttasiðu Þjóðviljans 5. júli sl. undir fyrirsögninni „Fádæma ruddaskapur”. Ef fyrirsögnin hefði átt að lýsa skrifum höfundar þá var yfirskriftin rétt, en þvi var ekki að fagna. Greinin átti að skýra með orðum Kópavogsbúa — áhanganda Breiðabliks —, sem jafnframt stendur svo vel að vigi að skrifa um iþróttir i Þjóðvilj- ann, hvers vegna Breiðablik gat ekki unnið Þrótt i umræddum leik. Þessi nýbakaði iþróttafrétta- ritari, Gunnar Steinn Pálsson, ræðst að mér undirrituðum með fádæma svivirðingum og ósann- indum að furöu sætir. Iþrótta- fréttaritarinn segir, að ég hafi sýnt áhorfendum ruddaskap. Þar liggur hundurinn grafinn. Ég sýndi iþróttafréttaritaranum þann „ruddaskap” að biðja hann að gjöra svo vel og flytja sig frá endalinu leikvallar og út til hliðar við völlinn, hverju hann neitaði, þar til maður gekk undir manns hönd að fá hann og félaga hans til að færa sig. Þetta var svo mikil móðgun við hann sjálfan, að ein- hvern veginn varð hann að ná sér niðri á mér. Þá var ritvöllurinn nærtækastur, þvi ekki get ég haft áhrif á sora þann, sem svo létt lekur úr penna hans. Iþróttafréttaritarinn segir i klausu sinni. — „Látum vera þótt knötturinn hafi legið i neti Þróttar þrisvar sinnum”. — Engin skýr- ing gefin á þvi i klausunni hvort um löglega skoruð mörk var að ræða — sem ekki var. Auðvitað ætlast iþróttafréttaritarinn til, að Breiðablik vinni sina leiki og | skiptir þá ekki máli hvernig — I jafnvel að dómarinn hjálpi liðinu ef annað dugar ekki. Um það að yfirsézt hafi að dæma vita- spyrnu, þá held ég að enginn hafi séð það annar en iþróttafréttarit- arinn. Hvað varðar framkomu mina við þjálfara Breiðabliks, þá var hún sú, að þegar hann kom til leiks með lið sitt kl. 20.04 eða fjór- um min. eftir að leikurinn átti að hefjast, þá fann ég að slikri fram- komu með allhörðum orðum. En iþróttafréttaritarinn „gleymir” þvi, að þegar þjálfari Þróttar mætti kl. 19.59 eða einni minútu fyrir auglýstan leiktima, þá fékk hann nákvæmlega sömu móttök- ur. En hvað gerði það til. Hann mátti „skamma” hann var ekki þjálfari „mins” liðs. Ég álit það vafasaman greiða við Breiðabliksliðið, að segja það svo taugaveiklað, að það þoli ekki að heyra dómara „hnerra”, þá sé allt hrunið, sem upp hefur verið byggt. Alla vega hef ég annað álit á þeim piltum, sem i þvi liði leika. 1 siðari grein iþróttafréttarit- arans er haft eftir þjálfara Breiðabliks, Reyni Karlssyni, að ég hafi kallað hann og leikmenn inn i litið herbergi til að skamma þá. Ég hefði siðast trúað þvi, að Reynir Karlsson færi með ósann- indi til að reyna að réttlæta það, að hann mætti sjálfur fjórum minútum eftir að leikurinn átti að hefjast og þá með ófullkomna leikskýrslu. Sannleikurinn er sá að ég „skammaði” Reynifram á gangi, en lét leikmennina fara inn i her- bergi, svo ég gæti skoðað skó þeirra og gengið úr skugga um að aðbúnaður þeirra væri löglegur. Þá vil ég taka fram, að sömu meðferð fékk Þróttarliðið og þjálfari þess. Að lokum þetta. Það er virðing- arvert framtak hjá Þrótti að hafa leiki sina á heimavelli, en félagið þarf að gera sér grein fyrir, að það þarf meira en völlinn, sem leikið er á. Það þarf einnig sæmi- lega aðstöðu fyrir aðkomuliðið og svo dómara og linuverði. Mistökin, sem þarna áttu sér stað, voru, aö forsvarsmönnum Þróttar láðist að láta Breiðabliks- menn vita um það i tima hvar þeir áttu að klæða sig úr. Afleið- ingin varð sú, að þeir urðu of seinir til leiks. Afsökun fyrir lið Þróttar að mæta of seint til leiks er ekki til, þar sem leikmenn fé- lagsins vissu hvernig að hlutun- um skyldi staðið fyrir leikinn. Undirritaður mætti á leikstað 40 min. fyrir auglýstan ieiktima til að ganga úr skugga um, að að- stæður væru löglegar og til að hafa fataskipti. Linuverðir komu á svipuðum tima, en gallinn var sá, að engum frá framkvæmda- aðila leiksins, Þrótti, þótti taka þvi að láta dómara og linuverði vita um hvernig á stæði. Lái mér hver sem vill, þótt ég hafi verið orðinn óhress nokkuð, þegar þjálfurum og keppendum þókn- aðist að mæta til leiks — of seint. Við hinn nýbakaða iþrótta- fréttaritara Þjóðviljans úr Kópa- vogi vil ég nota sömu orð og hann notaði sem yfirskrift á siðari grein sina ..Aðgát skal höfð....” Einar H. Hjartarson. gaman aö ná sigri i fyrsta leikn- um, sem við leikum á heimavelli i deildarkeppninni, sagði Bragi Jónsson, formaður knattspyrnu- deildar Armanns I morgun. Ármann leikur i kvöld viö eitt bezta liðið i 2. deild, Fimleikafé- lag Hafnarfjarðar, og verður leikið á velli Armanns við Sigtún. Þar er allsæmilegur grasvöllur — og Armenningar hafa ákveðið að leika sina heimaleiki á vellinum i sumar eins og önnur Reykjavik- urfélög, Fylkir og Þróttur, hafa tekið upp meö góðum árangri fjárhagslega. Ármannsliðið hefur enn ekki hlotið stig i 2. deild, og eitt er vist, að róðurinn verður erfiður i kvöld gegn hinu sterka FH-liði. Mynd- ina hér að ofan tók Bjarnleifur af Ármannssvæðinu I morgun. Keppt í 15 greinum á EÓP-mótinu í kvöld Hið árlega E.Ó.P. mót I frjálsum iþróttum fer fram á Laugardalsvellinuin i kvöld og hefst kl. 20.00. Mótið hefur venju- lega farið fram nokkru fyrr, en KR-ingar tóku þann kostinn að fresta þvi I ár til að komast með það inn á Laugardalsvöiiinn. 1 mótinu I kvöld veröur keppt I 10 greinum karla, 3 greinum kvenna og 2 greinum pilta. Flest af bezta frjálsiþróttafólki lands- ins veröur meöal keppenda á þessu móti, er segja má að sé fyrsta stórmótið I frjálsum íþróttum utanhúss, sem fram fer á þessu ári. eru fáenlegir hér á landi hinir heimsþekktu paradiso tjaldvagnar Paradiso hefur góða innréttingu Paradiso hefur gaseldavél Paradiso hefur vask Paradiso hefur svefnpláss fyrir 4 til 5 Paradiso hefur kosti hjólhýsis Paradiso hefur þó þá kosti framyfir hjól- hýsi, að það byrgir ekki útsýni og er mjög létt og stöðugt i drætti. Paradiso er reist á 3 sekúndum Tll CVMIC. * TIL 9lNl9. 0g alla helgina. Búsport Rofabæ 27, Arbæjarhverfi. Simar 84348 — 83097.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.