Vísir - 12.07.1974, Blaðsíða 9

Vísir - 12.07.1974, Blaðsíða 9
Visir. Föstudagur 12. júli 1974. Visir. Föstudagur 12. júli 1974. Umsjón: Hallur Símonarson Nú skín Stjarnan - en Fylkir úr leik Nú er ekki annaö sýnilegt en Stjarnan úr Garöahreppi verði sigurvegari i B- riðli 3. deildar og 1R og Fylkir, sem þar höföu einnig möguleika til sigurs séu úr ieik. Stjarnan sigraöi Gróttu, Seltjarnar- nesi, I gærkveldi meö fimm mörkum gegn einu, og á nú aðeins tvo leiki eftir I riðlinum — gegn ÍR og Fylki. Nægir Stjörnunni 2 stig úr þessum ieikjum til aö komast i úrslitakeppnina. Fylkir og ÍR misstu raunverulega af lestinni á miövikudagskvöldið, er þau skildu jöfn i miklum baráttuleik, þar sem menn fengu óspart aö sjá gula spjaldið og einnig þaö rauða. Leiknum lauk meö jafntefli 2:2 og skoruöu IR- ingar jöfnunarmarkiö úr vltaspyrnu rétt fyrir ieiksiok. — klp — Bjóða „villt" í beztu knattspyrnumennina! Þessa dagana streyma tilboðin inn til þeirra knattspyrnumanna, sem tóku þátt i HM-keppninni I Vestur-Þýzka- iandi. Sérstaklega hafa Hollendingar gengið i augun á forráöamönnum rlku liöanna utan Hollands, og hafa sumir þeirra fengiö mörg og góö tilboð. Bakvörðurinn Wim Suurbier hefur t.d. fengiðtilboðfrá spánska 1. deildarliðinu Espanol, og er það upp á rúmar 50 milljónir Islenzkra króna. Samningur Suurbier við Ajax er að renna út um þessar mundir og er talið, aö hann muni taka þessu tilboði, sem er eitt það hæsta, er um getur, þegar um bakvörð er að ræða. Þá hefur gríska liðið Olimpiaqos boðið Ajax rúmar 70 milljónir I marka- skorarann Johnny Rep. Ekki er búizt við, að Ajax vilji selja hann, enda fátt eftir af skrautfjöðrum I liðinu. Þá hefur annað griskt lið — Panathinaikos — boðið enska liðinu Queen Park Rangers stóra upphæð i Stan Bowles. Upphæðin hefur enn ekki verið gefin upp, en hún mun vera alldrjúg að sögn þeirra, sem til þekkja. —itlp Leikurinn í dag telur! Undanfarna daga hefur veriö hér knattspyrnuiiö frá Fugiafiröi I Færeyj- um. Hafa Færeyingarnir leikið hér þrjá leiki og ieika sinn slðasta gegn Selfossi kiukkan sex I dag. Þeir léku viö Selfoss fyrr I feröinni og töpuöu 3:1 en síöan geröu þeir jafntefli viö Þór frá Þorlákshöfn 1:1. Þá hafa þeir leikið viö 2. deildarliö Hauka og sigruðu Haukarnir I þeim ieik 3:2. í leiknum við Selfoss I dag er keppt um bikar, sem Færeyingarnir gáfu, og er þetta I annað eða þriöja sinn, sem þessi lið keppa um hann. Hver borgar brúsann? 1 fyrrakvöid komu 1. flokks leikmenn Breiöabliks til Vestmannaeyja til aö leika þar viö heimamenn I Bikarkeppni 1. flokks. Engar ráöstafanir höfðu verið geröar varðandi dómara og iinuveröi á leikinn. Úr „landi” kom enginn og i Eyjum var eini maðurinn, sem hafði réttindi tii aö dæma þennan ieik.ekki heima. Þar eru aöeins 4 knattspyrnudómarar — einn meö héraösdómararéttindi og þrlr meö unglingadómararéttindi. Þeir hafa undanfarnar vikur óskað eftir þvi aö vera hækkaðir I „tign” svo aö þeir geti hlaupið undir bagga, ef menn meö meiri réttindi vanti á leiki i Eyjum. Þvi hefur enn ekki verið anzaö af Knatt- spyrnudómarasambandinu, sem hefur með þetta mái aö gera. Þar sem enginn dómari var til I Eyj- um, varð að hætta viö ieikinn, og fóru Kópavogsbúar heim meö næstu flugvél. Þessi „fýluferö” er mikill kostnaöur fyrir félagið og leikmennina, sem marg- ir uröu að taka sér fri úr vinnu. En svona mistök ættu raunverulega aö greiðast af Knattspyrnusambandi ts- lands eöa Knattspyrnudómarasam- bandinu sjálfu... sökin er þeirra, en ekki Breiöabiiks eöa Íeikmannanna. —klp — Þeir keppa á Evrópu- móti unglinga í golfi Unglingalandsliðsnefnd Golfsam- bands íslands hefur valið unglinga- landsliðið I golfi, sem tekur þátt i Evrópumeistaramóti unglinga, sem fram fer I Finnlandi 25. til 28. júli n.k. Liðið skipa sex piltar þar af eru þrir, sem voru i liðinu I fyrra, en þá fór keppnin fram i Silkeborg i Danmörku. Þeir sem skipa liðið I ár eru þessir: Björgvin Þorsteinsson, GA Loftur Ólafsson, NK Atli Arason, GR, Sigurður Thorarensen, GK Ragnar Ólafsson, GR Jóhann Ó. Guðmundsson, GR Liðið heldur utan þann 21. júli n.k. en keppnin hefst á stærsta golfvelli Finna i Helsinki þann 25. júli. —kip Sovétrisarnir sigruðu Kúbu í körfuboltanum! Keppnin I HM áhugamannaliöa I körfuboltanum hélt áfram I Puerto Rico i gær. Sovézku risarnir unnu þá auðveldan sigur á Kúbumönnum — lokatöiur 83-66. Þeir hafa enn möguleika til sigurs I keppninni — meö þrjá sigra og eitt tap I úrslitariðlinum, en Banda- rikin hafa sigraö i öllum leikjum slnum, fjórum, og Júgóslavar, heimsmeistar- arnir, eru einnig ósigraöir — meö þrjá vinninga. Sovétrikin komust I 19-18 og höfðu íalltaf forustu eftir það I leiknum við Kúbu. Salnikov var stighæstur með 31 stig, Belov var með 17 og Boloshev 11. Þetta var 3ja tap Kúbu i úrslitariðlinum ifjórum leikjum. Aðeins unnið Kanada, en áður tapað fyrir USA og Júgóslaviu. 1 öðrum leik i úrslitariðlinum i gær sigraöi Brazilia Kanada með 75-74 — en Kanada hafði yfir, þegar 17 sekúndur voru til leiksloka. Þegar 5 sek. voru eftir skoraði Washington Joseph sigurkörfu Braziliu. 1 leikhléi stóð 32-20 fyrir Braziliu. Tvisvar sinnum fimm mörk í 2. deildinni! — Þróttur vann ísafjörð 5:0 og Selfoss - Breiðablik 0:5 Þeir hafa ástæöu til aö láta fara vel um sig og reykja stóra og dýra slgara mennirnir, sem skoruöu mörk V-Þýzkaiands I úrslitaieik HM I knattspyrnu sl. sunnudag. Gerhard Muller er til vinstri, en Paul Breitner til hægri og grlnast viö blaöamenn I veiziunni miklu eftir úrslitaleikinn. Player hinn eini sem réð við vindsveipina! Suöur-afriski snillingurinn I golfinu, Gary Player, var hinn eini, sem réö viö vindinn á St. Anne golfvellinum I gær — lék holurnar 18 á þremur „undir pari” og hefur nú fimm högga forskot á brezka meistaramótinu eftir 36holur. Þaö veröur erfitt að eiga viö hann úr þessu. Aðstæður i keppninni voru afar erfiðar eins og fyrri daginn — og aöeins einn annar lék undir pari, Geiberger, USA, sem var með 70 högg. Peter Oosterhuis lék á 71 höggi — og svo komu margir á 72 höggum, meðal þeirra Jack Nick- laus. Eftir þessar 36 holur er Gary Player með 137 högg samanlagt. Næstir koma þeir Bobby Cole, Suður-Afriku, og Oosterhuis —en siðan koma meistarinn frá I fyrra Tom Weiskopf og John Morgan, Bretlandi, sem var fyrstur ásamt Player eftir fyrstu 18 holurnar, með 144 högg. Einnig á 144 er Li- ang Huan Lu, Formósu. Hubert Green, USA, er með 145 högg og Jack Nicklaus á 146 ásamt þeim A1 Geiberger og Neil Coles, Bret- landi. Meðal þeirra, sem eru með 147 högg, er Johnny Miller. „Gary Player leikur snilldar- lega og hann var heppinn að vera meðal þeirra fyrstu, sem hófu keppnina i dag”, sagði Nicklaus i gærkvöldi. „Þetta er golf eins og það getur gerzt bézt hjá mér”, sagði Player. Keppnin hófst að nýju í morgun. Nicklaus kemur hingað til lands á sunnudag beint frá mótinu — og jafnvel fleiri kappar eins og Arn- old Palmer, Tom Weiskopf og Johnny Miller til hvíldar og veiða. — hsim. Selfyssingar og ísfiröingar steiniágu fyrir mótherjum sinum, Breiöabiiki og Þrótti, 12. deildinni Evrópumet Irena Szewinska, Póliandi, hiaupakonan snjalla, setti I gær nýtt Evrópumet I 220 jarda hlaupi á móti I Aþenu. Hún hljóp vega- lengdina á 22.8 sekúndum — og það er þriöja met hennar I hlaupum á nokkrum vikum. Tvö heimsmet áöur 1200 m á 22.0 sek. og 400 m á 49.9 sek. Á mótinu I Aþenu hljóp Jim Bolding, USA, 440 jarda grinda- hiaup á ágætum tlma 49.2 sek. Heimsmethafinn Dwight Stones, USA, sigraði I hástökki á 2.18 metrum, en sömu hæö stukku Kanadamennirnir Greg Joy og Dean Bauch. Norðurlandamet Heikki Kangas, Finnlandi, setti I gær nýtt Norðurlandamet I sleggjukasti á móti I östermark. Hann kastaði sleggjunni 71.12 metra og bætti finnska metið sitt um rúmlega hálfan metra. Þaö var 70.60 m. Metið var sett á alþjóðlegu frjálsiþróttamóti I Östermark. Hannu Polvi varö annar meö 67.88 m. 1 langstökki kvenna sigraði Pirkko Helenius meö 6.43 m. Lasse Malin hljóp 100 m. á 10.6 sek. og Juhani Mæki- Maunus stökk 7.53 m i lang- stökki. Hættiö strax. Eruð þiö vit- 'lausir? \. I .'X Þaö er skömm að þessu Fariö meö Bomma á iiicu ouiiiiiid a sjúkradeildina/ v Er þetta slæmt læknir? 'j Getur —— hann leikið framar? Látum okkur nú sjá! BONHOF BQNUOf <t) iK ,///""' ' A 1?IJ5B£f?6FN 'MUUEM f/OSN£SS y i gærkveldi. Bæöi töpuöu meö sömu markatöiu...fimm mörkum gegn engu. Þróttarar léku við ísfirðinga á Þróttarvellinum, og þeir þurftu ekki nema fimm mlnútur til að finna leiðina I markið fyrir 1. markið af fimm. Jöhann Hreiöarsson skoraði það. Jóhannes Eðvaldsson fyrirliöi Vals. Tekst honum aö leiöa slna menn til sigurs I leiknum I kvöld? Eyjaskeggjar leika við Val í kvöld Einn leikur verður ieikinn I 1. deildarkeppninni i knattspyrnu á Laugardalsvellinum i kvöid. Val- ur mætir Vestmannaeyingum og hefst leikurinn kl. 20.00. Bæöi þessi lið eru ekki meö öllu komin úr faiihættu, þótt staöa þeirra sé samt mun betri en bikarmeistara Fram. 1 fyrri leik liðanna, sem fram fór I Vestmannaeyjum sigruðu heimamenn 1:0. Skoruðu sigur- markið á síðustu sekundum leiks-. ins. Valsmenn hafa nú hug á að tryggja stöðu sina i deildinni. í kvöld fer einnig fram leikur i 2. deild. FH mætir Ármanni i Kaplakrika, og hefst sá leikur einnig kl. 20.00. Þá fara fram tveir leikir i 3. deild. Á Háskóla- vellinum leika Hrönn og Aftureld- ing og I Grindavik leika heima- menn við Leikni úr Breiðholti. guíT MARKIÐ Hér er teikning af aðdragand- anum að sigurmarki — guli- markinu — Vestur-Þjóöverja i úrsiitaleiknum I HM eftir Charlie Bood, sem birtist i sænska blaðinu Expressen. „Það eru tveir á móti tveimur” hrópaði þulur BBC, þegar Bonhof geystist upp kantinn meö knöttinn. Haan fór á móti honum, en Bonhof renndi knett- inum „gegnum klofiö” á Hollendingnum og héit áfram. Rijsbergcn, sem gætti Múlier, varö þá aö fara á móti Bonhof — og markakóngurinn var augna- blik frir. Bonhof sendi á hann og Muiier skoraöi örugglega — Krol, sem upphaflega var Iangt úti á velli, var aðeins of seinn til varnar. Nokkur bið varð eftir marki númer tvö- eða nokkuð fram i siöari hálfleikinn. Þá hjólaði Sverrir Brynjólfsson i gegnum vörn IBÍ og skoraði. Þorgeir Þorgeirsson skoraði 3ja markið, sem var mjög gott mark, og Jóhann átti heiðurinn af þvi fjórða. Sverrir rak svo endahnút- inn á þennan stærsta sigur Þróttar i.deildinni i ár með þvi að skora fimmta markið. Tækifæri Isfirðinga i þessum leik voru heldur fá, og átti Jón Þorbjörnsson, markvörður Þróttar, náðugar 90 minútur i markinu i þetta sinn. Selfyssingar áttu skilið að komast á blað i leiknum gegn Breiðabliki á Selfossi. Þeir áttu nokkur gullin tækifæri til að skora — a.m.k. tvivegis komst einn maður upp að marki, og áttu þar að auki stangarskot. Én mörkin vildu ekki falla þeim i skaut. Aftur á móti gerðu þau það fyrir Kópavogsbúana, sem þar að auki sýndu mun betri knattspyrnu og meiri kunnáttu en heimamenn sem höfðu kappið og viljann á móti. Guðmundur Þórðarson skoraði fyrsta markið úr þvögu, og næsta mark þar á eftir kom einnig með svipuðum hætti. Þriöja markið var aftur á móti stórfallegt, en það skoraði Hörður Harðarson með góðu skoti. Fjórða mark Breiðabliks skoraði hann einnig og var það ekki siðra en það fyrra. ólafur Friðriksson skoraði svo fimmta markið með góðu skoti efst upp i markhornið. —klp VALLARMETIÐ SLEGIÐ ..OG SLEGIÐ AFTUR! Einn hinna ungu kylfinga i Golfklúbbi Suöurnesja, Þórhallur Hóimgeirsson, setti um siðustu helgi nýtt vallarmet — 18 holur — á velli GS i Leiru. Hann lék á 71 höggi, sem var einu höggi betra en gamla vallar- metið, er Þorbjörn Kjærbo átti. Þórhallur fékk aö halda þessu meti i fjóra daga þá var Þorbjörn búinn aö ná þvi aftur. Hann lék hoiurnar á þriðju- dagskvöldið á 70 höggum, sem er mjög góður árangur. Þorbjörn á einnig vallarmetið á Nesveliinum á Seltjarnarnesi, en það er 71 högg. — klp — Þorbjörn Kjærbo. V egamótaútibú Landsbankans er í Hafnarstræti Vegamótaútibú Landsbanka íslands hefur flutt starfsemi sína í húsakynni aðalbankans við gatnamót Pósthússtrætis og Hafnarstrætis (Ingólfshvol) Afgreiðslan verður opin á venjulegum afgreiðslutíma kl. 13-18,30 alla virka daga Landsbankinn, Vegamótaútibú, biður viðskiptavini sína velvirðingar á þessari tímabundnu breytingu á afgreiðslustað, um leið og reynt verður að tryggja sem eðlilegust viðskipti eftir sem áður LANDSRANKINN Vegamótaútibú Ingólfshvoli

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.