Vísir - 20.07.1974, Síða 6

Vísir - 20.07.1974, Síða 6
6 Vtgir. Laugardagur 20. júll 1974. VÍSIR (Jtgefandi: 'Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason Fréttastj. erl. frétta: Björn Bjarnason Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Slmar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Sími 86611 Ritsirórn: ' Siðumúla 14. Simi 86611. 7 línur Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands. 1 lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Sandurinn sigraður Sprengisandur er orðinn svo vel fær, að um daginn sást þar á ferð bill með hjólhýsi i eftir- dragi. Er þá litið orðið eftir af ógnum þessa sögu- fræga sands, er þægindi nútimans hafa lagt hann að velli með þessum hætti. Einn bezti vegur landsins liggur þráðbeint frá inntaksstiflu Búrfellsvirkjunar upp að Sigöldu og siðan með litlum sveigjum upp að Þórisósi. Þarna inni á eyðisöndum er verið að reisa mikil mannvirki, sem eiga að stuðla að þægilegu nútimalifi á íslandi. Þegar þessari breiðu braut sleppir, eru aðeins eftir um 120 kilómetrar til byggða norðan sands. Vegarstæði er mjög gott og þurrt á þessari leið, svo að tiltölulega ódýrt er að ryðja þar upp góðum malarvegi. Og Vegamálastjórnin er einmitt að láta athuga, hversu hagkvæmt sé að leggja slikan þjóðveg norður Sprengisand. Verktakinn, sem lagði veginn frá Búrfelli að Þórisósi, gizkaði á fyrir fimm árum, að leggja mætti góðan veg þessa 120 kilómetra fyrir um 35 milljónir króna. Þetta gæti hugsanlega sam- svarað um 100 milljónum króna á núverandi verðlagi, en er þó ekki há upphæð i samanburði við annan vegagerðarkostnað nútimans Um svipað leyti var gizkað á, að þunga- flutningabill, sem færiþessa leið til Akureyrar og stytti sér þar með leiðina þangað úr 450 kiló- metrum i 350 kilómetra, mundi spara sér 15.000 krónur i rekstrarkostnaði og viðhaldi, á leiðinni fram og til baka. Ef áætlað er, að þessi tala hafi magnazt með sama hætti og hin fyrri, má gizka á, að sparnaðurinn sé kominn upp i 40.000 krónur fram og til baka. Samkvæmt þessu nægðu 2.500 ferðir þungavörubila til að greiða kostnaðinn við Sprengisandsveg. Þetta eru ágizkunartölur, sem benda þó til þess, að mönnum sé óhætt að biða spenntir eftir niðurstöðum hagkvæmnisathugunar Vegamála- stjórnar. Beinn og breiður vegur yfir Sprengisand verður ekki lagður fyrir skemmtiferðir á sumrum. Ef hann hins vegar yrði nýttur á sumrin fyrir þunga- flutninga til Norðausturlands, er hugsanlegt, að hann gæti borgað sig niður á tiltölulega skömmum tima. Nokkur bið verður á þvi, að þetta verði að veru- leika. En á meðan eykst umferðin stöðugt á sandinum. Aætlunarbilar fara hann i reglu- bundnum ferðum, auk hópferðabila og einkabila. Ferðamönnum er til mikils hægðarauka, að viða hafa verið sett upp skilti, sem visa leið til skoðunarverðra staða. Menn eiga þvi ekki á hættu að fara af vangá framhjá náttúruundrum eins og Hrauneyjarfossi og Aldeyjarfossi. Hins vegar er sjálf vegarmerkingin viða orðin þreytuleg og aukaslóðir villugjarnar, eins og sést m.a. af þvi, að ferðamenn að sunnan villast iðu- lega inn i Sandbúðir, ef þeir ætla niður i Bárðardal. Þarfasti þjónninn þurfti bithaga, og þess vegna var Sprengisandur erfið leið á sinum tima. Nú hafa aðstæður hins vegar gerbreytzt með bilunum. Sandurinn, sem áður var hindrun i vegi ferðamanna, er nú orðinn hið ákjósanlegasta vegarstæði á bilaöld. Svo kann að fara, að þessi svarti sandur verði ein af meiriháttar samgöngu- æðum landsins. —JK Cheriton Dover-sund Göng fyrir eftirlitsmenn Tveggja hæöa flutningalest undir bila LONDON " Göngin undir Ermasund k—Dover^r^ ■; Norðursiór Ermasund Calais Fréthun Lest, er flytur flutningabfla, rútur o g hjólhýsi \\ PARIS >Vegalengd milli Parisar og London: Ferðin tekur 3 klst. og 40 minútur. rg.............................. 450 km. Bretar telja sig þurfa aö fresta gerð jarðganganna undir Ermasund um sinn. Wilson og Giscard prútta um olíu Wilson lét verða sitt fyrsta verk, þegar hann komst I stjórn, að sækja um endurskoðun aðildar- skilmála Bretlands I EBE. — Hann ræddi það við Frakklands- forseta f gær. og EBE D’Estaing forseti mætir beiðni Breta með gagnkröfu. Evrópu á undanförnum áratug eða svo, kann að ganga undir erfiða prófraun vegna þess arna. Valery Giscard D'Est- aing Frakklandsforseti. og Harold Wilson, forsætis- ráðherra Bretlands, hófu viðræður f gær í París í leit að lausn á vanda, sem sprottinn er upp í sambúð ríkjanna. Agreiningurinn, sem kominn er upp milli þessara tveggja nágranna, stafaöi i upphafi af beiðni Breta um breytingu á samningunum varðandi inngöngu og aðild þeirra að EBE. Hafa Frakkar sett sig á móti slikum breytingum og lita á beiðni Breta sem ógnun við EBE, eins og það er i dag. Það var þvi að vænta, að Giscard D’Estaing forseti mundi árétta á fundinum i gær við Wilson, að Frakkar liti svo á, að Rómarsáttmálanum sé ekki unnt að hagga, en hann er einskonar grundvöllur EBE. — Fyrr i vik- unni gaf franski utanrikisráð- herrann, Jean Sauvagnargues, tóninn, þegar hann lýsti þvi yfir, að bandalagið yrði að haldast i þeirri mynd sem það er i dag. Þvi er varla að búast við þvi fyrir Wilson, að Frakkar muni á þessum fundum slaka neitt til. Þvert á móti hafa þeir látið á sér skilja, að þeir muni koma með gagnkröfur. Diplómatar meö umboöi Frakklandsforseta hafa látiö á sér skilja, að Frökkum þyki miklu miður, hvernig Bretar gera sig liklega til þess að sitja alveg einir að oliu- og gasauðlind- llllllllllll Umsjón: G.P. unum fyrir Bretlandsströndum. Hafa þeir stungið að Bretumj að það mundi vinsælt meðal næstu nágranna þeirra, ef leyfðu þeir góðum grönnum að njóta af með sér. Viðbrögð Breta við þessum óformlegu uppástungum eru þeg- ar ljós. Stjórn Wilsons fylgir hér sömu stefnu og thaldsstjórn Heaths: „Það sem er okkar — er okkar, en ef einhver afgangur verður, þá munum við með ánægju deila þvi með vinum okkar”. Oliuæðið felur i sér sömu hættur og gullæðið, sem hefur rekið bræður til að vega bræður. Þær þjóðir, sem ramba á mörkum þess að teljast grannar og vinir eða skæðir keppinautar, kunna að sjá ofsjónum yfir heppni hins. Sú eining, sem náðst hefur innan Af Bretlands hálfu var það ætl- unin, að á fundum leiðtoganna yrði rætt fyrst og fremst um aðildarskilmálana að EBE, eins og að ofan er getið, en siðan um framtið Concord-áætlunarinnar um jarðgangagerðina undir Ermasund og svo ýmis pólitisk vandamál: , sem spretta i kjölfar Kýpurmálsins. Bretar, sem eiga I miklum efnahagserfiðleikum i kjölfar verkfalla, verðbólgu og óhag- stæðrar utanrikisverzlunar, verða helzt að fá frestun fram- kvæmda varðandi gerð jarð- ganganna undir Ermasund, sem ljúka átti 1980 fyrir 200 milljarða króna. Fréttaskýrendur gera ekki ráð fyrir, að Wilson verði I miklu ágengt við Frakklandsforseta. Franska stjórnin er ekki trúuð á, að stjórn Wilsons endist lengi úr þvi sem komið er. Hefur minni- hlutastjórn Wilsons beðið hvern ósigurinn á fætur öðrum i neðri málstofu brezka þingsins núna að undanförnu, og flestir eru þeirrar skoðunar, að ekki verði hjá þvi komizt að efna til nýrra þing- kosninga I haust. Bretar gera sér grein fyrir þessu sjálfir, utanrikisráðherra þeirra, James Callaghan, sagði nýlega I viðtali við Associated Press-fréttastofuna, að hann grunaði bandamennina innan EBE um að tefja afgreiðslu á beiðni Breta um endurskoðun aðildarskilmálanna, vegna þess að þeir búist viö kosningum á næstunni.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.