Tíminn - 18.03.1966, Page 2

Tíminn - 18.03.1966, Page 2
TÍMINN FOSTUDAGUR 18. marz 1966 Castro rekur samstarfs- menn sína úr embættum NTB-IIavana, fimmtudag. Fidel Castro, forsætisráð- herra Kúbu, rak í dag trygg- asta samstarfsmann sinn, jafn- framt því, að fjölmargir leið- togar kúbanska kommúnista- flokksins voru handteknir. Ástæðan er sú, að þeir eru taldir hafa stundað eins konar „play-boy“-líf. Hér er um að ræða Efigenio Ameijeriras, sem er aðstoðar varnarmálaráðherra. Hann hef ur einnig misst stöðu sína í hernum og verið rekinn úr kommúnistaflokknum. Verður hann dreginn fyrir herrétt. Kommúnistaflokkurinn hóf nýlega víðtæka herferð gegn hinu ljúfa lifi kommúnistaleið- toga. Fyrir tveim dögu'm síðan réðist Castro í ræðu mjög harkalega á leiðtoga þá, sem eyddu miklum tíma í að dansa og drekka í samkvæmum, sem sendiráð kapitalista í Havana héldu, og þar sem gagnbyltinga kenndar skrítlur og klámsögur séu sagðar. HERMENN HRÆÐ- AST OG Fl ÝJA Fréttír af landsbyggðinm SJ, Patreksfirði. Afli hefur verið hér svipaður og annars staðar, en slæm tíð hef- ur hamlað bátunum. Mikill fjöldi báta stundar nú veiðar á Breiða- fjarðarmiðum og lætur nærri að þar séu 1000 netatrossur í sjó, þegar mest er. Togarar eru á veiðum á sömu slóðum og eru sjðmenn hér margir uggandi um fiskimiðin. Tálknafjarðarbátarnir hafa orð- ið fyrir talsverðu tjóni af völdum Ráðleggingarstöð í hjúskaparmálum Ráðléggingarstöð í hjúskapar- málum hefur verið rekin á vegum þjóðkirkjunnar um eins árs skeið. Hefur síra Hjalti Guðmundsson veitt henni forstöðu. Hann er nú fluttur til nýs embættis úti á landi. Hefur síra Erlendur Sigmundssón áður prófastur á Seyðisfirði verið ráðinn forstöðumaður stofnunar- innar. Ráðleggingarstöðin er til húsa á Lindargötu 9 og hefur síra Er- lendur viðtalstíma á þriðjudögum og föstudögum kl. 5—6 e.h. Biskupsstofa. togaranna, sem hafa skemmt og eyðilagt fyrir þeim heilar neta- trossur. Er óhætt að segja að tjón- ið hafi numið hundruðum þúsunda. Hér er fært um allar sveitir og opið hefur verið yfir Hálfdan yfir á Bíldudal annað veifið í vet- ur. KS, Eskifirði. Hafin er hér bygging sDdar- bræðslunnar og er von á 50 mönn- um í næstu viku frá Vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík til þess að vinna við bygginguna. Vinna hefur verið nóg hér í vet- ur við frystihúsið, hafnargerð o.fl Breytingar á ferðum Eimskipafélagsskipa FB-Reykjavík, fimmtudag. Á síðastliðnu sumri urðu nokkr- ar breytingar á ferðum skipa Eim- skipafélagsins frá útlöndum til ýmissa hafna hér á landi. Var höfnunum skipt niður í aðal- og aukahafnir, og komu skipin til þessara hafna eftir sérstökum regl- um. Af þeirri reynslu, sem síðan hefur fengizt, hefur nú verið ákveðið að sum áætlunarskipanna frá Evrópu komi reglulega við í Vestmannaeyjum, Siglufirði, Húsa Tónverk Hallgríms Helgasonar á efnisskrá með Strawinsky. Víðfrægt músíkforlag kynnir verk hans. Hinn 15. febrúar var á útvarps- hljómleikum í Berlín flutt fslenzk svíta fyrir strokhljómsveit eftir Hallgrím Helgason. Önnur verk á efnisskrá voru Nocturne con- certante fyrir píanó og hljómsveit eftir Carlernst Ortwein og kon- sert í D-dúr fyrir strokhljómsveit eftir Igor Strawinsky. Stjórnandi var Dietrich Knothe. Þetta tónverk Hallgríms hefur nú verið tekið upp í músíkforlag- ið Breitkopf & Hartel í Wiesbad- en og Leipzig, en það er hið elzta nú starfandi útgáfufyrirtæki í þess ari grein, stofnað 1719. Er það mikils metið víða um heim fyrir klassískar útgáfur á verkum m.a. Beethovens og Sibeliusar. Sama forlag hefur einnig gert samning við dr. Hallgrím um verk hans Intrada og Kanzóna. Fyrir nokkru var það flutt af fílharmón- ísku hljómsveitinni í Kraká í Pól- landi undir stjórn dr. Vaclav Smet acek, sem hér á landi er að góðu kunnar sem frábær hljómsveitar- stjóri. Um höfundinn stendur m.a. í efnisskránni: „Hallgrímur Helga- son er í röð fremstu tónlistar- manna íslenzkra. Af stærri hljóm- sveitarverkum hans má nefna for- leikinn Snorri Sturluson og verk það, er hér verður flutt, Intrada og Kanzóna, en það er fyrsta ís- lenzka tónverkið, sem hljómsveit okkar hefur flutt. Þetta verk var samið 1952, er tónskáldið dvaldi í Danmörku, og var frumflutt sama ár af Tivoli-hljómsveitinni undir stjórn höfundar. Hallgrímur Helgason hefur útsett fjölda ís- lenzkra þjóðlaga, en þangað sækir hann oft mótív í tónsmíðar sínar, sem hann þó jafnframt umsemur í anda tempraðri strauma nútíma- tónlistar." Músíkgagnrýnandi blaðsins Echo í Kraká ritar um konsertinn: „Hljómleikarnir hófust með því að flutt var hið fjörmikla verk Mussorgskis „Dögun við Moskvu- fljót" undir stjórn Smetaceks, þar næst píanókonsert Brahms í d-moll, og er Malcuzynski hafði lokið leik sínum og Smetacek var orðinn einn eftir á vigvellinum, voru flutt Itrada og Kanzóna eft- ir Hallgrím Helgason og 2. sin- fónía Pavels Borkovec. Fyrra verk ið (þetta er fyrsti flutningur þess hér) er athyglisverð tónsmíð ís- lenzks tónskálds, sem er mjög lítt þekktur hjá okkur, og var það nýstárlegur viðburður á hljóm- leikum gærdagsins. Aftur á móti var verki Pavels Borkovec, full- trúa eldri kynslóðar núlifandi tékkneskra tónskálda heldur dauf- lega tekið af áheyrendum. ‘ vík, Seyðisfirði og Norðfirði auk aðalhafna. Skip Eimskipafélagsins geta einnig komið við á öðrum höfnum á ströndinni, þegar um stærri vörusendingar er að ræða, en þá þurfa innflytjendur að til kynna fyrirfram um slíka flutn- inga, svo hægt sé að haga ferð- um skipanna þannig, að losun geti farið fram á endanlegum ákvörðunarstað án umhleðslu, en í slíkum tilfellum er strandferða- farmgja-ld fellt niður. Nú á næstunni mun Fjallfoss taka vörur til flutnings frá Kaup- mannahöfn, Gautaborg og Krist- iansand til hafna á ströndinni. Á sama tíma mun Askja lesta í Rott- erdam, Hamborg og Hull. Skip þessi eða önnur í þeirra stað, mun lesta erlendis með um það bil þriggja vikna millibili. NTB-Saigon, fimmtudag. Tilkynningar hafa borizt til Saig on þess efnis, að ofsahræðsla, og víðtækur flótti hermanna hafi átt sér stað við Ashau á dögunum, þar sem mjög harðir bardagar áttu sér stað milli hermanna stjórnar- innar í Saigon og bandarískra her- manna annars vegar og hermanna Viet Cong og Norður-Vietnam hins vegar. Segja góðar heimildir að yfirmenn bandaríska herliðs- ins í Suður-Vietnam hafi fyrirskip- að ýtarlega rannsókn í málinu, en stöð þessi er undir stjórn Bandaríkjanna. Sumar tilkynningar segja, að bandarískir hermenn, sem komu til að flytja hermennina á brott, hafi s-kotið á nokkra stjórnarher- FORSETAHEIM- SÓKNIN TIL ÍSRAEL FB-Reykjavík, fimmtudag. Á mánudaginn flýgur forseti ís- lands, hr. Ásgeir Ásgeirsson áleiðis til ísrael frá Kaupmanna- höfn, og er búizt við að hann komi til Tel-Aviv klukkan 14.10 og hefst þar með hin opinbera heimsókn hans til fsraels. Forset- inn fer aftur frá ísrael miðviku- daginn 30. marz eftir níu daga dvöl þar. Á þriðjudaginn mun forsetinn skoða sig um í Tel-Aviv, en þaðan Verður farið til Ashkelon í stutta kynnisför. Næstu daga verður far- ið til Cesarea, Massadah og Beer Sheba en á föstudaginn fer for- setinn og fylgdarlið hans til Nasar et og Tiberias og á laugardaginn siglir hann um Genesaretvatnið. Á sunnudag heimsækir hr. Ásgeir Ásgeirsson Kibbutz eða samyrkju- bú fyrir utan Haifa, og farið verð- ur í kastala, sem krossfarar reistu þar í borg. Haldið verður til Jerú- salem á mánudagsmorgun og borg- in skoðuð næsta dag; Forsætis- og utanríkisráðherrar ísrael munu ganga á fund forsetans á meðan hann er í Jerúsalem, og einnig mun forsetjnn ganga á fund Shaz- ar forseta fsrales. Haldið verður frá ísrael á mið- vikudag, 30. marz. Framhald á 14. síðu. FRÆÐANDI FUNDUR UM BARNAVERNDARMÁL Lögfræðingafélag íslands hélt fjölmennan félagsfund'15. þ.m. í Tjarnarbúð, þar sem rædd voru barnaverndarmál og frumvarp til laga um vernd barna og ung- menna. Frummælendur voru þeir prófessor Ármann Snævar, háskóla rektor, og Ólafur Jónsson, full- trúi lögreglustjóra. Prófessor Ár- rnann flutti ítarlegt og froðlegt erindi, þar sem hann meðal ann- ars skýrði hugtakið barnavernd, og rakti sögu og þróun bama- verndarmála hér á landi og víðar. Þá vék hann að frumvarpi til laga um vernd barna og ungmenna sem borið var fram á alþingi árið 1964 og reifaði þau nýmæli, sem það geymdi, en prófessor Ármann Snævar átti sæti i nefnd þeirri, sem frumvarpið samdi. Frumvarp þetta hlaut ekki afgreiðslu á því þingi. Ólafur Jónsson, fulltrúi lögreglu stjóra, sem hefur verið formaður barnaverndar Reykjavíkur undan- farin fjögur ár, gerði í glöggu er- indi grein fyrir störfum barna- verndarnefndar og lýsti þeim vandkvæðum, sem þær ættu við að stríða vegna skorts á þeim stofnunum og starfsliði, sem nauð- synlegt væri til að sinna barna- verndarmálunum á viðunandi hátt. Þó hefði talsvert áunnizt í þessum efnum i Reykjavík upp á síðkast- ið og verið væri að vinna að frek- ari úrbótum. Þá tóku til máls þeir dr. juris Gunnlaugur Þórðarson og prófess or Símon Jóh. Ágústsson, en þeir áttu og sæti í nefnd þeirri, sem samdi umrætt frumvarp. Fundin- um stjórnaði form. félagsins Þor- valdur Garðar Kristjánsson. Góður rómur var gerður að máli ræðumanna, sem lögðu allir áherzlu á mikilvægi þess fyrir þjóð félagið, að góð rækt væri lögð við barnaverndarmálin og nauð- syn þess að hlú betur að þeim málum en gert hefur verið, og þá einkum að auka félagslega þjónustu i því sambandi og bæta starfsskilyrðin. menn, sem vildu komast upp í yfirfylltar þyrlurnar, sem fluttu hermennina á brott úr herstöð- inni. Er sagt, að tvær bandarískar þyrlur hafi hrapað af því að of margir tróðust upp í þær. Kvikmynd um sjón- varpsmyndir Á morgun, laugardag, verður kvikmyndasýning á vegum félags- ins Germanía og þar sýndar frétta myndir frá helztu viðburðum í Vestur-Þýzkalandi í þessum og síð- asta mánuði, þ.á.m. frá kappreið- um í Berlín og frá sýnirigu um skautahlaup, er sýnir þróun þess- arar íþróttar í fimm aldir. Fræðslumyndir verða einnig þrjár. Er ein þeirra um skordýrin. Önnur er um tréskurð og aðra listsiköpun í samræmi við fyrir- myndir úr náttúrunni. En sú fræðslumyndin, sem væntanlega vekur mesta athygli hér, er upp- taka mynda fyrir sjónvarp, hvern undirbúning þarf við að hafa í því sambandi, hvernig valdar eru til skiptis myndir frá hinum ýmsu myndavélum og annað þar að lút andi. Kvikmyndasýningin er í Nýja bíó og hefst kl. 2 e.h. Öllum er heimill aðgangur, börnum þó ein- ungis í fylgd með fullorðnum. Vídalíns minning í Skálhoiti Á sunnudaginn kemur 20. marz, verður Jóns biskups Vídalíns minnzt við guðsþjónustur í öllum kirkjum landsins, en nú eru liðin rétt þrjú hundruð ár frá fæðingu hans. Minningarhátíð verður í Skál- holtsdómkirkju á sunnudagskvöld kl. 9. Þar flytur dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, prófessor, erindi um meistara Jón. Þá mun biskup- inn, herra Sigurbjörn Einarsson, lesa upp úr postillu Vídalíns. Einn ig mun síra Bernharður Guðmunds son lesa upp. Auk þessa verður orgelleikur og söngur. Guðjón Guð jónsson, stud. theol., leikur á orgel ið. Skálholtskórinn og guðfræði- stúdentar syngja undir stjórn dr. Róberts A. Ottóssonar, söngmála- stjóra. Forsöngvari verður Krist- inn Hallsson. Þá verður almennur söngur og bænagjörð, sem sókn- arpresturinn, síra Guðmundur Ó. Ólafsson, annast. Öllum er heimill aðgangur að þessari minningarhátíð í Skálholti. í tilefni þessarar Vídalínsminn- ingar hefur Skálholtsdómkirkja verið flóðlýst. Lýsingu þessa hef- ur frú Anna Johnsen, ekkja Gísla J. Johnsen, stórkaupmanns, gefið til minningar um eiginmann sinn. í ráði er að á vegum Skálholts- staðar verði gerð vönduð mynd af meistara Jóni Vídalín og verði hún til sölu. Einnig er ráðgert að gefa út á þessu ári minningarrit um hann með völdum kjarnyrðum úr ritum hans. (Frá Biskupsstofu).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.