Vísir - 26.08.1974, Blaðsíða 9
9
Armenmngar
héldu velli
Sigruðu Breiðablik í 2. deild
ó föstudaginn 4:2
Armenningar tryggðu sér
áframhaldandi veru i 2. deild með
þvi að sigra Breiðablik- i Kópa-
vogi- á föstudagskvöldið með 4
mörkum gegn 2.
Hafa þeir nú hlotið 9 stig og eiga
einn leik eftir við Hauka á
Ármannsvellinum. Völsungur er
með 7 stig og á tvo leiki eftir og
Isafjörður 5 stig og á einnig eftir
tvo leiki....þar af annan við
Völsung.
Allt útlit var fyrir að Breiðablik
ætlaði að fara með sigur af hólmi
i leiknum á föstudaginn. Hinrik
Þórhallsson skoraði fljótlega
fyrir Breiðablik og Ólafur
Friðriksson bætti öðru marki við
skömmu siðar.
Kópavogsbúarnir óðu i tæki-
færum i fyrri hálfleiknum en
tókst ekki að skora fleiri mörk
mistókst meira að segja að skora
úr vitaspyrnu.
Rétt fyrir hálfleik minnkaði
Sigurður Leifsson bilið íyrir
Ármann i eitt mark og i siðari
hálfleiknum bætti hann tveim
mörkum við, en þá réðu Ár-
menningar mestu um gang
leiksins. Guðmundur Sigur-
björnsson innsiglaði svo sigurinn
fyrir Ármann með þvi að skora úr
vitaspyrnu skömmu fyrir
leikslok.
Loftur bœtti við
tveim mörkum
er Haukar sigruðu Selfoss í 2. deild 3:0
Haukar sigruðu Selfoss f 2.
deild islandsmótsins i knatt-
spyrnu á Selfossvellinum á föstu-
daginn með þrem mörkum gegn
engu
Haukarnir höfðu mikla yfir-
burði i þessum leik og áttu að geta
skorað mun fleiri mörk en heima-
menn, sem voru með daufara lagi
i þetta sinn
Leikið
þegarnœst
er fœrt
Óveðrið um helgina varð til
þess að fresta varð tveim mikil-
vægum leikjum i 1. og 2.
deild.leik isafjarðar og Völs-
ungs, sem átti að fara fram á
isafirði og leik Vestmannaeyja
og Akureyrar, sem átti að fara
fram í Eyjum.
Ekkert flugveður var og kom-
ust liðin þvi ekki á ákvörðunar-
stað en við fyrsta tækifæri munu
þau halda þangað.
Leikurinn i Eyjum mun fara
fram einhvern næstu daga, en
nokkur bið getur orðið á þvi að
leikurinn á ísafirði verði leik-
inn. Völsungar eiga að leika I
bikarkeppninni á miðvikudag-
inn og siðan aftur i deildinni um
helgina. Þá eiga tsfirðingarnir
einnig að leika og getur þvi orð-
ið að biða eftir þessum leik fram
i næstu viku.
Evrópu -
met í
kúluvarpi
Sovétmaðurinn Alexander
Baryshnikow setti nýtt Evrópu-
met I kúluvarpi á Znamensky
leiknum, sem fram fóru i Moskvu
um helgina.
Hann kastaöi kúlunni 21,70
metra, sem er þrem sentimetrum
lengra en gamla Evrópumetið.
Þrir islenzkir keppendur tóku
þátt i þessu móti....Óskar Jakobs-
son, Sigfús Jónsson og Agúst
Ásgeirsson, en okkur hafa ekki
borizt fréttir af árangri þeirra á
þessu stóra móti.
Markakóngur 2, deildar —-
Loftur Eyjólfsson — skoraði tvö
af mörkum Hauka i þessum leik
og er nú kominn með 13 mörk i 13
leikjum, sem er mjög gott afrek i
knattspyrnu.
Hann skoraði fyrra mark sitt
snemma i leiknum og það siðara,
er um 10 min. voru liðnar af siðari
hálfleiknum. Ólafur Torfason
skoraði svo 3ja mark Hauka rétt
fyrir leikslok.
Enginn dómari mætti á þennan
leik og varð formaður knatt-
spyrnudeildar Selfoss Björn
Gislason að taka að sér dóm-
gæzluna, og fórst það ágætlega úr
hendi.
Overath hœttur!
Wolfgang Overath, sem var
einn bezti leikmaður Vest-
ur-þýzka landsliðsins f sfðustu
HM-keppni, tilkynnti f gær, að
hann léki ekki með landsliöinu
framar.
Hann er annar maðurinn úr
heimsmeistaraliðinu, sem
tilkynnir þessa ákvörðun sina á
rúmri viku..hinn var Gerd
Muller.
Overath, sem er þritugur að
aldri, hefur leikið 74 iandsleiki
fyrir Vestur-Þýzkaland á
siðustu 11 árum, en hann var 19
ára gamall er hann lék sinn
fyrsta landsleik. —klp
2. deild
Staðan i 2. deild eftir leikina um
helgina:
Breiðablik—Ármann 2:4
Selfoss—Haukar 0:3
FH 13 10 3 0 34:4 23
Þróttur 13 7 5 1 22:10 19
Haukar 13 7 3 3 23:15 17
Breiðablik 13 5 2 6 26:17 12
Selfoss 13 5 0 8 14:28 10
Ármann 13 4 1 8 17:30 9
Völsungur 12 3 1 8 17:29 7
tsafjörður 12 2 1 9 13:33 5
Markhæstu menn:
Loftur Eyjólfsson, Haukum 13
HelgiHagnarsson.FH 8
Ólafur Friðriksson, Breiðab. 8
Ólafur Danivalsson, FH 8
Næstu leikir:
Laugardaginn 31.
ágúst: ....Völsungur-Breiðablik,
FH-ísafjörður. Selfoss-Þróttur. 1.
september: Áriu ann-Haukar.
Þar fyrir utan er svo eftir leikur
Isafjarðar og Völsungs, sem
frestað var um helgina.
NÝJUNG—NÝJUNG—NÝJUNG
TIVOLI 1,2 og 3 stólarnir.
Betri og fallegri armar,
vandaðri og fallegri krossfœtur.
Framleiðum létt, sterk og þægileg hús-
gögn i eldhús, félagsheimili, skrifstofur,
og fleira.
Fjölbreyttasta úrvalið fáið þið hjá okkur.
KRÓM-
r ••
Suðurlandsbraut 10
Simi 83360.
Framleiðandi:
Stáliðjan h.f.
Kópavogi.
I HERRABUÐINNI VIÐ
LÆKJARTORG
mánudag, þriðjudag, miðvikudag
Herraföt. Mikið úrval af góðum fötum
Til vetrarins, kuldablússur með loðkraga
Einstakt tœkifœri til að gera góð
kaup fyrir veturinn