Vísir


Vísir - 07.10.1974, Qupperneq 3

Vísir - 07.10.1974, Qupperneq 3
Vísir. Mánudagur 7. október 1974. 3 Vestfirðingar óttast vatnslítinn vetur „Við erum hræddir um vatnslitinn vetur. Jörðin er þurr og skaflar litlir. Reiðhjallavirkjun við Bolungarvik og Fossa- virkjun við ísafjörð hafa nú þegar of litið vatn”. Þessar upplýsingar fengum við hjá Aage 'Steinssyni, rafveitu- stjóra hjá Rafmagns- veitum rikisins á Vest- fjörðum, þegar við inntum hann eftir þvi, hvernig Vestfirðir væru undir vetur búnir með rafmagn. Mjólkárvirkjun hefur hins vegar yfirfljótandi vatnsafl eins og er. Þar voru viðbótarmiðlan ir teknar i notkun siðastliðinn vetur, og einnig er unnið að stækkun stöðvarinnar, sem á að komast i gagnið næsta sumar. Þá e'r lika unnið að þvi að auka disilaflið til rafmagnsfram- leiöslu um 1400 kilóvött, en enn- þá er ókomin ein vél til þess að þvi marki verði náð. Vonir standa til, að hún verði komin á sinn stað i nóvember. Um 15% af orkuframleiðslu Vestfjarða fékkst með disilvélum á siðast- liönum vetri, en Aage taldi, að það myndi verða nær 20% i vetur. Þegar stækkun Mjólkár- virkjunar lýkur, dugar það til þess að stöðva disilvélarnar um sinn og meira en það, en gert er ráð fyrir, að eftir tvö ár þar frá verði orkuþörfin komin i það há- mark, sem hægt verður að framleiða með raforku i vatns- aflsvirkjunum á Vestfjörðum. ,,Þá vonumst við til að komin verði tenging við „megin- landið”. Við höfum sett upp til- raunastöð á einum stað á há- lendinu og biðum eftir meiri snjó til að komast nógu langt upp með tvær aðrar. Þetta eru mælar, sem eiga að mæla Isingartogið, en hálendisleiðslu af þessu tagi er einna hættast vegna Isingar,” sagði Aage að lokum. —SH styttum nýkomið Skólavörðustig 16 simi 13111 Pjbbum pbur eingöngu órbalöbb’rur til gjafa Deilt um sundlaug ó Álafossi: Sagði Álafossi upp húsnœði, sem þeir telja sig eiga sjólfir í uppsiglingu hjá bæjarfógetanum í Hafnarfirði er deilumál sem risið hefur vegna gamla sundlaugar- hússins að Álafossi. Verksmiðjan að Álafossi hefur á siðustu árum notað þetta hús undir pökkunar- deildina, en nú eru þarna vörugeymslur. Asbjörn Sigurjónsson hefur látið þingfesta hjá bæjar- fógetanum i Hafnarfirði út- burðarmál, þar sem hann telur, að hann eigi húsið en ekki verksmiðjan, en hún hafi fengið að nota húsið endurgjaldslaust I öll þessi ár. Ásbjörn sagði verk- smiðjunni upp húsnæðinu þann 14. febrúar siðastliðinn. Forstöðumenn verksmiðjunnar töldu þá uppsögn hina furðu- legustu og önzuðu ekki tilmælum, þar sem þeir hafa aldrei efazt um það, að þeir eigi húsnæðið sjálfir. Gerðarbeiðandinn, Ásbjörn Sigurjónsson, telur einnig að verksmiðjan hafi rýrt þessa eign sina með þvi að fjarlægja naglfasta hluti og selja sumt af þeim. Þykir honum það of langt gengið, þar sem húsið tilheyri ekki verksmiðjunni, en hún hafi fengið að nota það endurgjalds- laust til þessa. Málið snýst þó ekki nema að nafninu til um útburðarkröfuna, heldur er deilt um hver eigi húsiö. Forráðamenn verksmiðj- Sundlaugarhúsið er til vinstri, en til hægri er möguneyti starfsmanna. Það hlýtur að vera heldur óvenjulegt aö lækur renni mitt undir hús, eins og þarna er. Ljósm. BG. unnar standa fast á þvi að verk- smiðjan eigi húsið og hafi alla tið átt frá þvi rikið tók við rekstrinum og framkvæmda- sjóður gerðist hluthafi að verk- smiðjunni árið 1948. Segir verk- smiðjustjórnin engum blöðum um það að fletta, að i þeim yfir- færslum hafi fylgt öll hús tilheyrandi verksmiðjunni og þar með sundlaugarhúsið, en þessi hús voru áður i einkaeign Sigurjóns Péturssonar ásamt verksmiðjunni i heild. Asbjörn hefur áður hótað útburðarmáli á hendur verk- smiöjunni úr sama húsi, en málið var þá fellt niður. Nú er útburðarmálið hins vegar aftur á döfinni og verður það tekið fyrir hjá bæjarfógeta i Hafnar- firði þann 9. október. —JB Fórnin rann út í Niunda einvigisskák þeirra Korchnois og Karpovs varð jafn- tefli, eins og menn höfðu spáð i bið- stöðunni á föstudagskvöld. Er það sjöunda jafnteflið. Korchnoi byrjaði meö enska leiknum, eins og hann hefur gert undantekningarlaust, en að þessu sinni var það sem Karpov brá út af I öðrum leik. — Siðar I skákinni hafnaði Karpov peðsfórn, sem Korchnoi rétti að honum, en fórnaði sjálfur I 17. léik riddara til þess að opna drottningu sinni og biskup rými til athafna. — Þessi tilþrif dofnuðu þó smám saman niður I þref um stööuávinninga, þar sem hvorugur vildi skipta upp og rann taflið út I jafntefli. jafntefli Keppendurnir tefldu aðeins tvo leiki i biðskák- inni og sættust þá á jafntefliö. Korchnoi hafði hvitt I þessari skák, sem hér er I heild sinni: 1. c4 - Rf6; 2. Rc3 - e5; 3. Rf3 - Rc6; 4. g3 - Bb4; 5. Bg2- 0-0; 6. 0-0 -e4; 7. Rel - Bxc3; 8. dxc -h6;9. Rc2-b6; 10. Re3-Bb7; U.Rd5-Re5; 12. b3-He8; 13. a4 - d6; 14. Ha2 - Red7; 15. h3 - a5; 16. Be3 - Rxd5; 17. cxd - Df6; 18. c4 - Dg6; 19. Dbl - Bc8: 20. Bb4 - Rc5; 21. Kh2 - Bd7; 22. Hgl - h5; 23. Hd2 - He7; 24. Dcl - Df5; 25. De3 - f6; 26. Hc2 - Kf7; 27. Hc3 - Hac8; 28. Hfl - Kg8; 29. Dcl - Dg5; 30. Dxg5 - fxg; 31. He3 -Kh7; 32.Hhl-Kg6; 33. Kgl -Ra6; 34. Kh2 -Rb4; 35. Hcl - g4; 36. h4 - Bf5; 37. Kgl - Kh7; 38. Kfl - Bg6; 39. Kel - Hf7; 40. Bhl - Kg8 . Hér voru skákskýrendur sammála um, að skákin væri jafntefli, þótt keppendurnir mættu til þess að hreyfa menn tvisvar til viðbótar, áður en þeir sættust á jafnteflið. Rýmingarsala - Rýmingarsala Rýmingarsala ó kuldaúlpum. Barna og unglinga úlpur fró 1.000 kr. Fullorðins úlpurfró 1.500 kr. Vinnuúlpur fró 1.500 kr. Vinnublússur fró 900 kr. Vinnufatabúðin - Vinnufatabúðin - Vinnufatabúðin Laugavegi 76 Hverfisgötu 26 Hafnarstrœti 5

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.