Vísir - 07.10.1974, Page 5

Vísir - 07.10.1974, Page 5
Vísir. Mánudagur 7. október 1974. GíUN ÚTLÖND j MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson Gaullistar glötuðu ör- uggum þingsœtum Gaullistar eru sem lamaðir í Frakklandi eftir tvo algerlega óvænta ósigra um helgina, og liggur f Ifotinu, að ólga inn- an ráða þeirra kunni að leiða til glundroða í forystu f lokksins. Það voru þeir Jean- Philippe Lecat og Joseph Fontanet, sem biðu ósigur í aukakosningum í gær. Fontanet er fyrrverandi menntamálaráðherra — að vísu ekki i flokki Gaullista en nákominn þeim, en Lecat er lærisveinn Pompidous heitins og var komandi stjarna innan f lokksins. Missir þessara þingsæta var Gaullistum óskaplegur álits- hnekkir, þvi a6 þeir töpuðu þeim algerlega að óþörfu — svo að segja. Frönskum lögum samkvæmt, þá lætur þingmaður þingsæti sitt laust, þegar hann sezt i ráð- herrastól, en við tekur varaþing- maður flokksins. — Þeir Lecat og Fontanet voru báöir ráðherrar i stjórn Pompidous forseta. Varaþingmenn þeirra drógu sig svo i hlé til að efna þyrfti til auka- kosninga. Tilgangurinn var með þessu sá, að slá tvær flugur i einu höggi. Annars vegar að smala miklu fylgi og hressa upp á and- ann innan flokksins, sem hefur i siðustu kosningum tapað fylgi. Og hins vegar áttu varaþing- mennirnir að vikja, til að hátt- settari menn i flokksapparatinu gætu komizt á þing. En þá tókst svo hroöalega til. I skuggann af þessum ósigri hafa nær horfiö þau tiðindi, að fjóriraðrir fyrrverandi ráðherrar Gaullista hafa unnið aftur þing- sæti sin i aukakosningum undan- farinn hálfan mánuð. — Pierre Messmer, fyrrum forsætisráð- herra, og Oliver Guichard unnu sin sæti i fyrstu umferð, þvi að Þegar þeir œtluðu einmitt að fagna auknu fylgi og koma forystu- mönnum sínum á þing_____________________ þeirfengu meira en 50% atkvæða. Þó töpuðu þeir nokkru af þvi fylgi, sem þeir höfðu áður haft. Yves Guena vann auðveldan sigur i gær, en Henri Torre slapp naumlega inn Svo virðist sem innan Gaull- istaflokksins sé mikil óánægja með hversu litill munur er á stefnu hans og Giscard D’ Estaing forseta, og hafa yngri mennirnir krafizt þess, að flokks- forystan dragi skýr mörk, sem sýni hvar stefna hans er frá- brugðin stefnu Frakklandsfor- seta. Pyndaði herlögreglan fréttamann Newsweek? Sagður hafa játað á sig njósnir fyrir CIA í yfir- heyrslum herlögreglu í Brazilíu Fyrrverandi banda- riskur trúboði, sem sakað hefur öryggis- lögreglu Braziliu um að beita sig pyndingum, játaði að hafa njósnað fyrir CIA, leyniþjón- ustu USA. Eitt dagblaða Rio de Janeiro, „Jornal do Brazil”, segir, að Frederick Morris (40 ára), sem var um tima fréttaritari „Newsweek” og AP-fréttastof- unnar, hafi játað á sig njósnirn- ar fyrir öryggislögreglu hers- ins, sem handtók manninn fyrir viku. Talsmaður sendiráðs USA i Braziliu segist hvergi hafa heyrt á neinar njósnir minnzt fyrr i sambandi við Morris. En sendiráðið mótmælti á föstu- daginn við brazilisk yfirvöld pyndingum, sem Morris er tal- inn hafa þolað. Mái þetta þykir liklegt til að spilla mjög sambúð Bandarikj- anna og Braziliu. Morris bar sig upp undan þvi við bandariska ræðismanninn i Recife, að hann hefði orðið að þola rafmagnspyndingar og barsmiðar af hálfu herlög- reglunnar. — Ræðismaðurinn hefur staðfest, að áverkar hafi verið á baki Morris, þjóhnöpp- um og úlnliðum. Sendiherra Bandarikjanna, John Cummins, afhenti utanrik- isráðherra Braziliu, Antonio Azeredo da Silveira, skrifleg mótmæli vegna þessa á föstu- dagskvöld. Siðar þetta kvöld voru báðir þessir embættis- menn til staðar i veizlu, en yrtu þá ekki á hvor annan. Fleiri brazilisk blöð hafa tekið upp skrif um, að Morris væri njósnari. — En um þetta leyti eiga Bandarikjamenn ekki alltof miklum vinsældum að fagna i Suður-Ameriku eftir uppljóstranirnar um hlutdeild CIA i þvi að grafa undan völdum Allendes i Chile. Fórst f kapp- aksturs- keppni A myndinni hér við hliðina sjást rústirnar af kappaksturs- bifreið Austurrikismannsins, Helmuth Koiniggs, sem fórst á kappakstursbrautinni i Watkins Glen i New York I gær. — Bill hans rann út af brautinni og lenti undir öryggisgrindum en ekillinn lézt samstundis. Þetta var i annaö sinn, sem hann tók þátt I formúlu eitt-kappakstri, og um leið er þetta annað árið i röð, sem ekill ferst á Watkins Glen brautun- um. Sigurvegari i þessari keppni varð Carlos Reutemann frá Argentinu — En keppnin var um leið liður i heimsmeistaramóti I kappakstri, og varö Emerson Fillipaldi heimsmeistari með þvi að ná fjórða sætinu i þessari keppni. Rússnesku konurnar nœr öruggir meistarar Sovétrikin hafa nú 2-0 forystu i fjögurra skáka úrslitum i ólympiumóti kvenna i skák, sem fram fer þessa dagana i Bogota. Noma Grapirdashvili vann sina skák viö Elizabetu frá Rúmeniu og sömuleiðis Nana Alexandria, og þurfa þvi rúss- nesku konurnar ekki nema hálfan vinning úr báöum skák- unum, sem eftir eru, til að tryggja sér olympiumeistara- titil kvenna. A meðan er byrjað Marlboro- skákmótið I Maniia á Filipps- eyjum, þar sem til 1 milljónar 755 þúsunda króna er að vinna I verð- laun. Þangað hafa flykkzt 11 stór- meistara og 4 alþjóðlegir meist- arar, en þátttakendur eru alls 16, og hafa þeir þegar teflt tvær um- ferðir. Tigran Petrosjan hefur þegar tekið forystu, þvi að hann vann Quinteros frá Argentinu i fyrri skákinni,. en gerði jafntefli við Kavalek i annarri. Kavalek, Portisch, Ljubojevic, Vashiukov (USSR) og Cardoso frá Filippseyjum hafa allir einn vinning hver. Larsen gerði jafn- tefli I sinni fyrstu skák, en önnur skák hans fór i bið. — Quinteros, Andersson (sá sænski), Gligoric og Pfleger hafa allir hálfan vinning lika, en Gheorghiu er ekki kominn með neinn vinning, enda sat hann hjá i annarri umferö.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.