Vísir - 07.11.1974, Blaðsíða 7
Þarna opnaðist vörn Fram illa — Hörður Kristinsson svifur inn I teiginn og skorar. Ljósmynd Bjarnieifur
Armanns-liðið brotnaði
síðustu 10 mínúturnar!
— Reykjavíkurmeistarar Fram sigldu framúr og sigruðu með 16-12
Glæsileg markvarzla Ragnars
Gunnarssonar, markvarðar
Ármanns, hleypti mikilli spennu i
annan leik islandsmótsins i
Laugardalshöllinni i gærkvöldi.
Það var ekki fyrr en slðustu tiu
minúturnar, sem úr rættist fyrir
Reykjavikurmeistara Fram. Þeir
breyttu stöðunni úr 11-11 í 16-12 —
skoruðu þá fimm mörk gegn einu
— og það urðu lokatölur leiksins.
Fyrstu tiu minúturnar sendu
Ármenningar knöttinn hins vegar
fimm sinnum i mark Fram, sem
aðeins tókst að svara einu sinni
fyrir sig — og áhorfendur voru
farnir að búa sig undir óvænt úr-
slit.
verkið og skoruðu fjögur
siðustu mörk Fram — tvö hvor.
Fram-liðið var lengi að ná sér á
strik i leiknum — og það var
einnig einkenni á liðinu i
Reykjavikurmótinu á dögunum.
Það átti vissulega i miklum erfið-
leikum með Armann, þó úr
rættist I lokin — en Ármenningar
hafa oft verið leikmönnum Fram
erfiðir siðustu árin. Fram hefur
jöfnu, allgóðu liði á að skipa og
Björgvin er nú greinilega kominn
I betra form en á Reykjavikur-
mótinu. Þrátt fyrir alla lands-
liðsmennina í liðinu vakti þó
leikur Árna Sverrissonar hvað
mesta athygli. Hann hefur
sjaldan leikið betur.
Armenninga skorti úthald i
lokin og féllu á þvi, en Armann
getur orðið hættulegt hvaða liði
sem er i mótinu. Aðall liðsins er
sterk vörn og góð markvarzla —
en sóknarleikurinn hefur löngum
ekki verið nógu skarpur. Þó eru
margír leikmenn liðsins með
hörkumikil skot — en leikmönn-
um liðsins hættir til að þjappast of
mikið inn á miðjuna. Breidd
vallarins ekki nýtt. Vilberg Sig-
tryggsson, linumaðurinn snjalli,
leikur ekki með Ármanni i vetur
— fluttur á Akranes — en
Armanni hefur bætzt góður liðs-
styrkur, þar sem Hörður Harðar-
son, áður Breiðablik, er. Afar
leikinn piltur.
Mörk Fram skoruðu Björgvin 4,
Pálmi 4 (3 viti), Pétur 3 Guð-
mundur Sveinsson 2 (1 víti), Árni,
Arnar Guðlaugsson og Stefán
Þórðarson eitt hver. Fyrir
Armann skorðu Jón 3, Björn
Jóhannesson 3 (2 viti), Hörður
Kristinsson 2, Pétur Ingólfsson,
Stefán, Ragnar Jónsson og
Hörður Harðarson eitt hver.
Dómarar voru Magnús Pétursson
og Valur Benediktsson og þurfa
að undirbúa sig betur fyrir
„átök” vetrarins. —hsím
Derby komst
áfram á
vítaspyrnum
(Jrslitin í einstaka leikjum
I „UEFA-keppninni” i gær-
i kveldi:
Portadown N Irlandi —
IPartizan Júgóslaviu
1:1..Partizan áfram 6:1.
Real Zaragoza Spáni-
Grasshoppers Sviss
15:0..Real áfram 6:2.
FC Porto Portúgal —
I Napolí italiu 0:1.Napoli
áfram 2:0
Racing White Belgiu — FC
Twente HoIIand 0:1...FC
I Twente áfram 3:1
Banik Ostrava Tékkó-
I slóvak. — Nantes Frakklandi
2:0..Banik áfram 2:1.
Fortuna Vestur-Þýzka-
, landi — Raba Vasas Ung-
| verjalandi 3:0..Fortuna
, áfram 3:2.
Steagul Rosu Brasov
Rúmeniu — SV Hamburg
I Vestur-Þýzkal.
: 2:2....Hamburg áfram 10:1.
Lyon Frakklandi —
Borussia Mönchengl.Vestur-
Þýzkal 2:5.....Borussia
áfram 6:2.
Valez Mostar Júgóslavlu
— Rapid Austurriki
1:0..Valez áfram 2:1.
Juventus italiu —
Hibernian Skotlandi
4:0..Juventus áfram 8:2.
Dukla Pragh Tékkó-
slóvakiu — Djurgarden
Sviþjóð 3:1.Dukla áfram
5:1.
FC Köln Vestur-Þýzka-
landi — Dynamo Bukarest
Rúmeniu 3:2....FC Köln
áfram 4:3.
DynamoMoskva Sovétr. —
Dynamo Dresden Austur-
Þýzkal. 1:0 eftir framleng-I
ingu. Dresden áfram eftir
vitaspyrnukeppni.
Atletico Madrid Spáni — t
Derby Englandi 2:2 eftir
framíengingu. Derby áfram
eftir vitaspyrnukeppni.
Enn á eftir að leika tvo
leiki i „UEFA-keppninni”
Royal Antwerpen Belgiu-
Ajax HoIIandi, og FC
Amsterdam Ilollandi -
Inter Milan ttaliu.
Svo varð þó ekki. Fram skoraði
næstu þrjú mörk leiksins og hafði
jafnað i 6-6, þegar fjórar mínútur
voru eftir af fyrri hálfleiknum.
Jón Ástvaldsson, hinn harðskeytti
skotmaður Ármenninga, skoraði
svo siðasta mark hálfleiksins —■
eins og það fyrsta — og staðan
var 7-6 fyrir Ármann i leikhléi.
Aðeins þrettán mörk voru
skoruð I hálfleiknum og ber það
vitni um góðan varnarleik — og
þó einkum góða markvörzlu, þvi
bæði liðin hafa góðum skotmönn-
um á að skipa. í Fram-liðinu voru
allir landsliðsmennirnir inná nær
allan timann i fyrri hálfleiknum
— sex af sjö leikrnönnum — en að-
eins sex sinnum tókst þeim að
koma knettinum framhjá Ragn-
ari Gunnarssyni. Leikurinn var
frábær — meðal annars varði
hann viti frá Pálma Pálmasyni,
og svo annað i siðari hálfleiknum
— og hann kemur sterklega til
greina i landsliðið eftir þessa
frammistöðu. Já, meira að segja
virðist hann sjálfsagður eftir þá
markvörzlu, sem sýnd var I
landsleiknum við Færeyjar.
Ragnar lék i landsliðinu i fyrra-
vetur. En Fram-liðið var einnig
með góðan markvörð — Guðjón
Erlendsson, sem leikið hefur
nokkra landsleiki I haust, átti
einn af sinum betri dögum og það
segir mikið — jafnvel þó hann
næði ekki Ragnari.
Stefán Hafstein skoraði fyrsta
mark siðari hálfleiks fyrir Ár-
mann — en siðan tók Fram sprett.
Skoraði þrjú mörk i röð og komst i
fyrsta skipti yfir i leiknum eftir
átta minútur. Armann jafnaði I 9-
9, siðan aftur i 10-10 og 11-11, en þá
koma lokasprettur Fram, sem
Armann réð ekki við. Þá léku
linumennirnir i Fram-liðinu —
landsliðsmennirnir. Björgvin og
Pétur Jóhannesson, aðalhlut-
Fyrst sendum
við þá úr landi
Sífellt auknar tæknikröfur gera þjónustu viö eigendur
nútíma skrifstofuvéla, svo sem rafreikna,
bókhaldsvéla og ritvéla, ómögulega án tæknimennt-
aðra viðhaldsmanna með sérþekkingu á hinum
ýmsu tæknikerfum.
Þess vegna sendum við tæknimenn okkar til
sérnáms erlendis áður en þeir taka til starfa hjá
Skrifstofutækni.
Tæknideild okkar, sem sér um viðhald og eftirlit,
hefur nú til umráða rúmgóða vinnuaðstöðu,
að Hafnarstræti 17 (Tryggvagötu megin), sem gerir
okkur kleift að fullnýta þekkingu þeirra í yðar þágu!
olivetti
SKRIFSTOFUTÆKNIHF
Tryggvagötu (Á móti Eimskip).