Tíminn - 17.05.1966, Blaðsíða 12
12
ÍÞRÓTTIR
TÍMiNN
EÞROTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 1966
Frá úrslitaleiknum á laugardag. Everton í sókn.
Everton enskur
bikarmeistari
- sigraði Sheffield W. í úrslitum 3:2
island vann
Bandaríkin
með 26:18
Everton varð enskur bikarmeist
ari á laugardaginn, þegar liðið
sigraði Sheffield Wedensday í úr-
slitaleiknum á Wembley með 3:2
Eitt hundrað þúsund áhorfendur
á Wembley-leikvanginum urðu
vitni að sögulegum leik og ein-
hverjum bezta úrslitaleik, sem
leikinn hefur verið á þessum
fræga leikvangi í langan tíma, svo
var einkum tveimur Everton-leik-
mönnum að þakka, þeim Temþle
og ‘ Mike Trebilcock, sem sneru
vonlítilli taflstöðu Everton svo
rækilega við, að.Sheffield Wedens
day varð mát undir lokin, en það
vóru endalók, sem fáa óraði fyirir
í upphafi síðari hálfleiks, þegar
Sheffield hafði tryggt sér tveggja
marka forskot, 2:0.
Fram og Valur
leika í kvöld
Fram og Valur leika í Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu í kvöld.
Leikurirtn fer fram á Melavellin-
um og hefst klukkan 20.30.
Þegar u.þ.b. stundarfjórðungur
var liðinn af síðari hálfleik skor-
aði Trebilcock fyrsta mark Ever-
ton eftir að hafa fengið sendingu
frá Temple Og litlu síðar bætti
þessi ungi leikmaður öðru marki
við, 2:2. Það var svo á 72. mín-
útu, sem Temple skoraði sigur-
markið, 3:2. Síðari hálfleikurinn
var mjög vel leikinn af hálfu Ever-
ton,, en ,í fyrri hálfleik var Shef-
field W. sterkari aðilinn.
Fyrir þennan úrslitaleik var
nafn Mike Trebilcock lítið þekkt.
Haip l.éjc, áður .með Plymputh, en
E\ erton 'KcJ'þti 'Hdn'nr uní1 s.l ára-
■móf- fyririi23 þús. sterlingspund.
Trebilcock hefur verið á vara-
mannabekkjunum, en fyrir úrslita-
leikinn tók framkvæmdastjóri Ev-
erton, Harry Catterick þá ákvörð-
un að hafa Pickering — einn skæð-
asta sóknarmann Everton og lands
liðsmann — fyrir utan liðið. Mörg
um þótti þessi ákvörðun vafasamt
fjárhættuspil, en sennilega hefur
framkvæmdastjóranum ekki liðið
allt of vel í hálfleik, því þá virtist
spilið tapað. En allt fór vel, Trebil
Framhald á ols. 15
Vamarleikurinn
sterkari hliöin
Markalaus leikur Vals og Þróttar.
Valur og Þróttur [óku í Reykja
víkurmótinu í knattspyrnu á
sunnudagskvöld og lauk leiknum
með jafntefli, 0:0. f heild var leik
urinn lélegur og einkenndlst áf
sterkum varnarleik beggja og ié-
legra sókna. Eftir öllum gangi
leiksins, var jafntefli sanngjiirn
úrslit.
Eftir þennan leik, er staða Þrótt-
ar óneitanlega bezt í mótinu, því
Þróttur hefur hlotið 5 stig úr 3
leikjum og á aðeins eftir að leika
gegn Fram. Valur hefur sömu
möguleika og Þróttur, en á eftir
að leika bæði gegn Fram og.KR
Golfmenn!
Golfklúbbur Reykjavíkur skor-
ar á alla félagsmenn sína að mæta
á golfvellinum kl 7 í kvöld til
þess að vinna að hreinsim á 7.
braut áður en grasvöxtur gerir
það illmögulegt.
GR.
og getur það orðið þungur róður.
Valsllííið var eins og höfuðlaus
her í leiknum á sunnudag án Her-
manns Gunnarssonar, sem er í
keþpnisför í Bandaríkjunum með
landsliðinu í handkattleik. Sú
breyting var gerð, að Bergsveinn
4-Í'fonsson fór ífrgmlínuna, en
Mfitthías Hjartarson fór í fram-
varðarstöðu. Matthías stóð fyrir
sínu, en Bergsveinn náði með
engu móti að fylla' skarð Her-
manns. Sóknarmenn Vals voru
mjög daufir, sérstaklega Reynir
og Bergsteinn. Ingvar reyndi
margt, en vantaði knattmeðferð-
ina til að geta rekið endahnú-
inn. Sterkari hlið Vals var vdrn-
in, Árni. Björn Júl., Halldór Ein-
arsson (efnilegur nýliði) og Þor
steinn Friðþjófsson.
Hjá Þrótti var Jón Björgvins-
son miðherji beztur, en auk1 þess
átti Örn Steinsen góðan leik. Fram
línuleikmennirnir voru daufir og
sköpuðu sér sárasjaldan tækifæri.
Steinn Guðroundsson dæmdi
leikinn.
íslenzka landsliðið í handknatt-
leik sigraði Bandaríkin í Jands-
leik í New York á laugardaginn
með 26:18, en þetta var fyrri
landsleikurinn í Bandaríkjaför-
inni. ísland og Bandaríkin hafa
tvisvar áður háð landsleiki í hand-
knattleik, en það var hér heima
haustið 1964, og sigraði ísland í
báðum þeim leikjum með mun
stærra bili, eða 32:16 og 32:14.
Samkvæmt fréttum, sem borizt
hafa frá leiknum í New ■ Vork á
laugardaginn. hafði íslenzka liðið
Enginn ógn
ar veldi
Armanns
Ármann J. Lárussou varð. sigur-
végari í Íslandsglímunni, sem háð
var í Austurbæjarbíói s.l. laugar-
dag. Ármann hafði mikla yfir-
burði og lagði alla keppinauta
sína Ármann gnæfir hátt yfir
aðra ísl. glímunenn í dag, sann-
kallaður glímukóngur. og enginn
ógnar veldi hans.
Íslandsglíman á laugardag var
merkileg að þvi leyti, að um þess-
ar mundir eru 60 ár liðin, síðan
fyrst var keppt um Grettisbeltið.
Það var skemmtileg nýlunda að
láa 'glímuna fara fram í Ausur-
bæjarbíói, þrátt fyrir það að
glímuvöllurinn væri helzt til lítill.
Margir áhorfendur fylgdust með
keppninni, sem var skemmtileg.
Sem fyrr segir, bar Ármann sig-
ur úr býtum, en hann hlaut 7
vinninga. Næstur kom Sigtryggur
Sigurðsson, KR en hann hlaut 6
vinninga, tapaði aðeins fyrir Ár-
manni. Ingvi Guðmundsson, Vík-
verjum, varð þriðji með 5 vinn-
inga. Gunnar Pétursson, KR, hlaut
4 vinninga, Valgéir Halldórsson,
Ármanni, Hannes Þorkelsson Vík-
verjum og fvar Jónsson, Breiða-
blik, hlutu allir 2 vinninga. Og
Gísli Jónsson, Ármanni halut eng-
an vinning.
nokkra yfiriburði mest allan tím-
ann, en þó skildu aðeins tvö mörk
á milli í hálfleik, 11:9. f siðari
Framhald á bls. 15
Bæjarkeppni
Reykjavíkur
og Keflavíkur
Ákveðið er, að bæjakeppni milli
Reykjavíkur og Keflavíkur fari
fram á Mfelavellinum n.k. fimmtu-
dag, 19. maí Hefst leikurinn kl
2030
Hafnfirö-
ingar efst-
ir efftir
fyrri umferö
Fyrri umferð í Litlu bik-
arkeppninni lauk um helg-
ina, en þá voru leiknir tveir
leikir Hafnfirðingar léku
gegu Skagamönnum og varð
jafntefli, 2:2. Þá léku einnig
Keflavík og Breiðablik og
unnu Keflvíkingar með mikl
um yfirburðum, 7:0.
Eftir fyrri umferðina hef-
ur Hafnarfjörður forustu í
keppninni, en næstir koma
Keflvíkingar, þá Skaga-
menn og lestina rekur
Breiðablik. Hafnfirðingar
hafa komið nokkuð á óvart
með frammistöðu sinni
gegn 1. deildar liðum Akra-
aess og Keflavíkur og lik-
Iega gætu þeir náð langt í
2. deildar keppninni með
sameinað lið, þ.e. FH og
Haukar saman, en eins og
nú er háttað, senda bæði
félögin lið í keppnina
Síðari umferð Litlu bik-
arkeppninnar verður leikín
á hausti komanda. En vel
á minnzt, hvernig væri að
Ijúka keppninni frá í fyrra?
Ármann J. Lárusson
Þau syntu fyrst í Sundlaug Vesturbæjar. Matthildur Guðmundsdóttír til
vinstri, Jón AlfreSsson (í sjóstakk í tilefni sjómannadagsins) og Erlingur
Jóhannsson, sundlaugarforstjóri. (Tímamynd GE)
Hátt á fjórða hundrað
syntu fyrsta daginn
Norræna sundkeppnin er hafin.
Hún hófst samtímis hér í Reykja-
vík á öllum sundstöðunum. í sund-
laugunum, syntu fyrstir forsetl fs-
lands, Ásgeir Ásgeirsson, borgar-
stjórinn í Reykjavík, forseti ÍSÍ,
og formaður SSÍ. Erlingur Páls-
son.
Þegar fyrsta daginn syntu hátt
á fjórða hundrað Reykvíkíngar
200 -metrana, eða 383. Og í gær,
Úrslit í sund-
knattleiksmót-
inu á morgun
Miðvikudaginn 18 maí fer fram
i Sundhöll Reykjavíkur úrslitaleik
ur í Sundknattleiksmeistaramóti
i Framhald á bls. 15.
mánúdag, var góð þátttaka.
Íþróttasíðan hvetur fólk ein-
dregið til að synda 200 metrana.
fsland hefur góða möguleika á að
vinna keppnina að þessu sinni og
vinna um leið konungsbikarinn
sem keppt er um, þ.e. bikar þann
sem Ólafur Noregskonungur hef-
Framhald á bls. 15
2:0
Víkingur og Þróttur léku
í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu
á föstudagskvöld og urðu úrslit
þau, að Þróttur vann með 2:0
Leikurinn var í heild frekar lé-
legur. Þróttarar voru allan tím-
ann sterkari aðilinn, en gekk illa
að skora.