Tíminn - 04.06.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 04.06.1966, Blaðsíða 16
124. tW. — Laugardagur 4. júní 1966 — 50. árg. NY HSKSTAUTA- VERKSMIDJA SH KJ-Reykjavík, föstudag. Aðalfundi Sölumiðstöðvar Hrað frystihúsanna lauk í dag, og voru þá afgreiddar ýmsar tillögur um ályktanir um frystihúsaiðnaðinn. Auk þess sem stjórnarkjör fór fram I lok fundarins. Meðal tillagna sem samþ.ykktar voru, var tillaga um nauðsyn þess að tryggja grundvöll þorskveið anna hér við land, tillaga um tolla lækkanir til handa fyrstiiðnaðin- um ,tillaga um aðstöðugjald, loð- dýraeldi, en frystihúsaeigendur hafa álhuga á að þeirri búgrein verði komið á stofn, fjöldi annarra tillagna og ályktana var samþykkt ur og verður þeirra væntanlega ®etið hér í blaðinu eftir helgina. Á aðalfundinum var samþykkt að stofna sérstakan sjóð sem tengdur skal nafni Elíasar Þorsteinssonar fyrrv. stjórnarformanns S.H., en hann lézt á síðasta ári. Samkvæmt samþykkitinni s'kal leggja Vi % af heildarútflutningsverðmæti Sölu miðstöðvarinnar ár hvert í sjóð þennan. Hlutverk hans er að veita félögunum lán til skamms tíma f samraemi við meginmarkmið fé i'; Kosningaskemmtun B-list- ans, sem haldin var fyrir alla þá, sem störfuðu fyrir Framsóknarflokkinn fyrir og við borgarstjórnarkosn- ingamar, fór fram í Súlna salnum að Hótel Sögu á fimmtudagskvöldið. Mikið fjölmenni var á skemmtun inni, og skemmtu allir sér hið bezta. Einar Ágústsson alþingismaður flutti ávarp, og Karl Guðmundsson flutti gamanþátt. Þá söng Sigur- veig Hjaltesteð við undrleik Skúla Halldórssonar, og Baldvin Halldórsson leik- ari las upp. Dansað var til klukkan eitt eftir miðnætti. (Bj. Bj. tók myndina á skemmtuninni.) laganna. Einnig að veita úr sjóðn um styrki til náms, tilrauna og vís indastarfa í þágu fiskiðnaðarins. Að lokum fór fram stjórnarkjör, og skipa þessír menn aðalstjórn S.H. Gunnar Guðjónsson, Reykja vík, formaður, Sigurður Ágústs- son, Stykkishólmi, varaformaður, Ingvar Vilhjálmsson, Reykjavik rit ari, Einar Sigurjónsson, Vest- mannaeyjum, Finnbogi Guðmunds son Gerðum, Gísli Konráðsson Ak ureyri, Guðfinnur Einarsson, Bol ungavík, Ólafur Jónsson, Sand- gerði og Tryggvi Ófeigsson, Reykjavík, f ræðu Þorsteins Gislasonar, framikvæmdastjóra Coldwater, dótt urfyrirtækis S. H. í Bandaríkjun um kom fram að undirbúningur að byggingu nýrrar fiskstautaverk- smiðju þar vestra er vel á veg kominn. SUMARHOTEL FR OPNUÐ 1. JÚLÍ FB-Reykjavík, föstudag. Ferðaskrifstofa ríkisins mun í sumar, eins oig nokkur undanfar in sumur, standa fyrir rekstri hótela í heimavistarskólum úti á landi. Hótelin verða opnuð 1. júlí næst komandi. í þremur skólum, Varmalandi, Eiðum og Skógasikóla verður fullfcominn hótelrekstur með gistingu og máltíðum, en annars staðar verður hægt að fá gistingu, morgunmat og kvöld kaffi. Á Laugarvatni verða 38 gesta rúm í sumar, og er þar morgun verður fáanlegur, en auk þess er Framhald á bls. 14 SJ-Reykjavík, föstudag. Mitt í hörmungum íslenzkrar togaraútgerðar, gerðist sá gleði legi atburður, að togarinn Marz seldi í Hull í gær um 240 iestir af ýsu, þorski og flatfiski fyrir hæsta verð sem greitt hefur verið á Bretlandi fyrr og síðar. — tæp lega 2.9 milljónir króna. Skip- stjóri á Marz er Ásgeir Gíslason, sem hefur verið á Marz undanfar in tvö ár, en áður var hann m- a. skipstjóri á Röðli og Hauk. As geir er tæplega fcrtugur, og þyk ir snjaii skipstjóri — einkum i veiðum fyrir Bretlandsmarkað, sem gefur hátt verð fyrir ýsu og flatfisk. Gamla sölumetið átti tog arinn Víkingur, en hann seldi í maímánuði í fyrra 276 tonn af þorski veiddum við V-Grænland fyrri 22.576 pund, sem er í eðli sínu ckki síðri sala en hjá tog aranum Marz nú. Afli Marz fékkst í 13 daga veiði ferð á heimamiðum. Togarinn Marz hefur, eins og flestir aðrir togarar, ýmist landað hér heirna eða í erlendum höfnum frá ára- mótum. Togararnir sigla eftir því hvað kvótinn leyfir hverju sinni, , og hvort þeir fá heppilegan fisk fyrir erlendan markað, en Eng- lendingar vilja t. d. ekki karfa eða ufsa nema í smáum etíl. Þessi sala samsvarar tveim með alsöluferðum, svo gera má ráð fyrir að eigendur togarans hugsi hlýtt til skipstjóra og áhafnar þessa dagana. Samkviæmt upplýsingum frá LÍÚ eeldi Surprice nýlega í Grims by uim 175 tonn fyrir 17.213 pund, sem er ágæt sala. 70 tonn af aflan um var þorskur. Togarinn Víkingur seldi einnig í Englandi þorskfarm frá Græn- landi fyrir 15.651 pund- Að undanförnu hefur verið mik ið framiboð á þorski á Bretiands markaði, en skortur á ýsu og flat fiski, þannig að Marz hefur komið með afla sinn á mjög hentugum tíma. Eftir löndunarbannið á Bret landi 1956 var gerður samningur til 10 ára um landanir íslenzkra togara og samkvæmt honum er i leyfilegt að selja fyrir 450 þús- | und pund á ársf jórðungi — 180 þúsund pund af ýsu og flatfiski og 270 þúsund pund af þorski og öðr um tegundum. Landanir í Þýzfcalandi eru aftur á móti frjálsrar en það er tekið fram í viðsldptasamkomulagi milli Framhald á bls. 14 Ásgeir skipstjóri I HVERFISSTJÓRAR 0G Fundur verður haldinn í Fríkirikjuveg, uppi, þriðjudaginn 7. júní, klukkan 8.30 siðdegis. Á fundinum verður rætt um viðhorfin að afloknum bæja- og sveitarstjórnarkosningum, kosningastarfið í Reykjavfk, næstu verk efni, útbreiðslu Tímans og fleira. Frummælendur verða Eysteinn Jónsson, formaður Framsúknar flökksins, Kristján Benediktsson, framlkvæmdastjóri Tímans, og Þráinn Valdimarsson, framkvæmda stjóri Framsóknarflökkisins. Á þennan fund eru boðaðir allir aðal- og varamenn í fulltrúaráðinu og hverfisstjórar frá síðustu borgarstjórnarkosningum. Mætið vel og stundvíslega. Stjóm fulltrúaráðsins. I I Islenzkar og erlendar verðlaunabækur sýndar j FB—Reykjavík, föstudag. Félag íslenzkra teiknarg hefur ákveðið að gangast fyrir sýningu ! á bókum, sem eru sérstaklega at- i hyglisverðar vegna útlits, prentun ar, pappírs, bókbands. skreytinga og yfirleitt alls þess, sem hægt er að veita sérstaka athygli í eiHni bók. Sýningin verður opnuð í Iðn skólanum 11. júní n.k. og verða á henni 20 íslenzkar bækur og auk þess 25 bækur frá hverju eft irtalinna landa, Danmörku, Nor- egi, Svíþjóð, Sviss, og ag öllum líkindum Þýzkalandi, en þaðan hafa bækurnar þó ekki borizt enn. Blaðið sneri sér í dag til Torfa Jónssonar, formanns Félags ís- lenzkra teiknara og innti hann nánar eftir þessari fyrirhuguðu sýningu. Sagði hann, að hugmynd in að henni hefði fyrst komið fram í fyrra, en erlendis væru haldnar sýningar sem þessi á hverju ári. Nú hefðu verið valdar 20 íslenzkar bækur, sem komu út árið 1965, og hefðu þær hlotið við urkenningu dómnefndar. Umsögn verður látin fylgja hverri bók á sýningunni, og þar fjallað um allt Framhald á bls. 14

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.