Tíminn - 16.06.1966, Síða 1

Tíminn - 16.06.1966, Síða 1
Oska eftir viðræðum án tafar Þrem skoiuiti siítið í gær Þessar glæsilegu stúdínur útskrifuðust úr Lærdómsdeild Verzlunarskóla íslands í gær, en þá var skólanum slitið. Menntaskólanum í Reykjavík var sömuleiðis slitið í gær, og í fyrradag fóru fram skólaslit Menntaskólans á Laugarvatni. Frá skólaslitunum segir nán- ar á 16. síðu. (Tímamynd GE). VIÐTAl VIÐ GUNNAR GUÐBJARTSSON UM AFURÐASÖLUMÁLIN FUNDIR BÆNDA VERÐA OKKUR TIL STUÐNINGS EJ Reykjavík, miðvikudag. Um helgina koma til Reykjavík- ur fulltrúar nefnda, sem bændur v;ða um landið hafa kosið til þess að ræða við Framleiðsluráð og ríkisstjóminá um verðlagsmál 'r'ænda, sagði blaðinu í dag, að fulltrúar þessara nefnda myndu rarða við Framleiðsluráð á mánu- daginn. Hann sagði, að Stéttar- Sókn boðar verkfall EJ—Reykjavík, miðvikudag Starfsstúlknafélagið Sókn sendi í dag verkfallsboðun til atvinnu rekenda sinna, ríkis og borgar. í boðuninni segir, að frá og með 25. júní n. k verði starfsstúíkur í verkfalli á Landsspítalanuin og I*vottahúsi ríkisspítalanna og hjá Borgarsjúkrahúsinu við Bar ónsstíg. Slysavarðstofan er þó undanþegin verkfallinu, ef til þess kemur- Blaðið hafði i dag samband við Margréti Auðunsdóttur, formann Sóknar, og sagði hún ,að tveir samningafundir hefðu vcrið haldn ir, en báðir verið árangurslaiisir. F.ins og kunnugt er, þá er ein aðalkrafa Sóknar 15% kauphækk un. sambandið og Framleiðsluráð myndi reyna til þrautar að vekja skilning á því, að leysa yrði þann vanda. sem nú væri við að glíma i framleiðslu- og sölumálum land- búnaðarins og taldi, að sú alda, sem risið hefði meðal bænda, myndi verða samtökum bænda til styrktar og stuðnings . við lausn vandamálanna. Blaðið hafði í dag samband við Gunnar Guðbjartsson og ræddi við hann um stöðu þessara mála í dag. — Hvað vilt þú segja um þá óánægjuöldu, sem risið hefur með- al bænda að undanförnu, Gunnar? — Ég skil vel, að það kemur illa við bændur, þegar þeir sjá fram á það, að kjör þeirra muni rýrna á sama tíma og ýmsar aðr- ar stéttir eru að hefja nýja kjara baráttu til þess að fá hækkuð laun. Það kemur illa við hag margra bænda ef tekjur þeirra rýrna eitthvað frá því sem nú er. En mér finnst það hafa komið óeðlilega mikið fram í þeim um- ræðum, sem orðið hafa um þær ráðstafanir, sem Framleiðsluráðið hefur ákveðið núna, að bændur hafa ekki skilið það, að féð, sem á vantar, næst ekki út úr afurða- sölunni, aðallega vegna óhagstæðs útflutnings á mjólkurvörum. Þær ráðstafanir, sem Framleiðsluráð hefur ákveðið að gera, eru byggð- ar á þeirri skyldu þess, samkvæmt Framleiðsluráðsiögunum, að jafna á milli framleiðenda, þannig að þeir beri sem jafnast úr býtum fyrir sína framleiðslu.Framleið.slu ráð gat engan veginn komist hjá því að framfylgja þeirri lagaskyldu það hefði að minnsta kosti alger- llega btugðist sínu hlutverki, ef | það hefði ekki gert það. Hins vegar sjáum við ekki fyrir- fram nákvæmlega hversu mikið fé um er að ræða, því að fram- leiðslumagnið ræður mjög miklu um það, hversu mikil skerðing þetta Jverður. Við munum að sjálf- sögðu fylgjast nákvæmlega með þróuninni í framleiðslunni og sölu málunum, og haga aðgerðum okk- ar eftir því — endurskoða fyrri ákvarðanir og breyta þeim ef ástæða þykir til. Ef framleiðsla á mjólk yrði t.d. minni í sumar en hún hefur verið undanfarandi ár, og minni þörf yrði því á fjár- magni til verðjöfnunar, þá mynd- um við að sjálfsögðu draga úr þessu innvigtunargjaldi, og þac verður jafnvel fellt niður þegar kemur fram á haustmánuðina. — Er það rétt hjá landbúnað- arráðherra, að aukafundur Stétt- arsambands bænda hafi ekki farið fram á hækkun útflutningsupp- bóta? — Já, það er rétt, en fyrir fund inn hafði ég, ásamt nokkrum mönnum öðrum úr Framleiðslu- ráði, rætt við landbúnaðarráðherra og spurt hann um, hvort hann treysti sér til þess að beita sér fyrir hækkun útflutningsuppbót- anna. Svar ráðherrans var, að hann treysti sér ekki til þeess, enda tæþast við því að búast að auknar yrðu útflutningsbætur á vinnzluvörur úr mjólk, sem eru ■mjög óhagstæðar í útflutningi. Framhald á bls. 14. EJ—Reykjavík, miðvikudag. Sambandsstjórn Verka- mannasambands íslands hélt fund í dag, og samþykkti ein- róma ályktun um samninga- málin, þar sem segir, aS fund- urinn lýsi „vonbrigðum sín- um og vanþóknun á viðbrögS um atvinnurekendasamtak- anna um kjarabætur lægst launuSu stétta þjóSfélagsins, sem stuðla myndu að friði á vinnumarkaðinum". Er fram- kvæmdastjórninni falið aö vinna áfram að því að ná fram bráðabirgðasamningum til haustsins án tafar, og skor- ar „á verkalýðsfélögin að véra viðbúin þeim átökum, sem framundan kunna að vera'. Blaðinu barzt í kvöld fréttatil- kynning frá VerkamannasambanJ inu og þar segir, að framikvæmda stjóm sambandsins hafi á fundin um gert grein fyrir gangi samn ingamálanna. og eftir ítariegar umræður hafi eftirfarandi ályktun verði samþyk’kt einróma: „Fundur sambandsstjórnar Verkamannasambands fslands, haldinn í Reykjavík 15. júní 1966. lýsir fyllsta samþykki sínu við fil raunir framkvæmdastjórnar sam- bandsins að undanförnu til að ná. fram heildarsamningum, sem mótað gætu í aðalatriðum kjara- framkvætndastjórnin hefur beini anna. Fundurinn telur eðUlegt,, að samninga almennu verkalýðsfélag samningaumleitunum að bví, að ná fram bráðabirgðasamningum t.il hausts vegna hins m.iög ótrvgga ástands, sem nú ríkir á ýmsum sviðum efnahagsmála. er mik'u varða fyrir kjör verkafólks og telur þá lausn mála nauðsynlega eins og nú er ástatt. Fundurinn lýsir vonbrigðum sín um og vanþóknun á viðbrögðum Framhald á bls. 15 2 plastbátar meö sjö mönnum sukku KT—Reykjavík, miðvikudag. í gærkvöldi fóru sjö ungir menn á hraðbátum út úr Vest mannaeyjahöfn. Þeir höfðu verið að skemmta sér og tóku a.m.k. annan bátinn í leyfis- leysi. Þessir bátar eru gerðir úr plasti og eru notaðir til þess að halda síldarskipum upp í vindinn, þegar þau eru að snurpa. Piltarnir komust austur fyrir Bjarnarey, en er þangað koín sökk annar báturinn, en í honum voru fimm menn. Piltarnir á hin um bátnum, sem var minni, tóku félaga sína upp í bátinn og var hann þá of hlaðinn. M. b. Jón Stefánsson var að veið um skammt frá og hirti hann upp piltana, en á meðan á því stóð sökik minni báturinn ,en náðist fljótt upp aftur. Rannsókn í málinu £ór fram 1 Franahald & bls. 15 Gerizt askrifendur að Tímanum. Hringið i sima 12323. Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.