Vísir - 20.02.1975, Side 3
Vísir. Fimmtudagur 20. febrúar 1975.
3
Orka Grímsár og Lagarfoss nœgir
við venjulegar kringumstœður
dísilstöðvarnar verða áfram á sínum stöðum til að hlaupa undir bagga
„Það verður að sjálf-
sögðu háð vatusstöð-
unni i Leginum, hve
mikið verður hægt að
spara af disilorkunni,
þótt Lagarfossvirkjun
verði tekin i gagnið,”
sagði Erling Garðar
Jónasson, rafveitu-
stjóri á Egilsstöðum i
viðtali við Visi. ,,En
virkjunin á að geta af-
kastað rúmlega sjö
megavöttum, og það
þýðir, að ef vatnið er
eðlilegt i Leginum, er
það likt afl og við not-
um frá disilvélum að
meðaltali á dag.
En þegar vatn er komið i árn-
ar, höfum við i Grimsá og
Lagarfossi um 10 megavatta
afl,sem á að nægja undir venju-
legum kringumstæðum.
Slðan er vandamál i dreifing-
unni, aðalflutningnum. Það get-
ur við vissar kringumstæður
þurft að nota disilvélar til að
halda uppi eðlilegum flutningi
eftir aðalkerfinu. Eins þurfum
við sjálfsagt að gripa til þeirra,
þegar kólnar i veðri og lækkar i
ánum — þær verða sem sagt
ekki fluttar i burtu, þvi vatnið i
Grimsá getur horfið — raunar i
Leginum lika.
Engu að siður er þetta stór-
kostlegur áfangi fyrir Austfirð-
inga að fá þessa virkjun til
starfa. En með þvi að ekki
fékkst leyfi til að hafa vatnsborð
Lagarins i hagkvæmri hæð
fyrir virkjunina, hljóta að verða
meiri truflanir á rekstri hennar
en ella. En áfanginn er stórkost-
legur fyrir raforkusögu Austur-
Við höfum raunar miklu
meira disilafl, en þetta er svip-
uð stærðargráða eins og disilafl-
ið er.
Það sem gerzt hefur, er
náttúrlega það, að út féllu ákaf-
iega stórir notendur, bræðslan á
Neskaupstað og Hafsild á
Seyðisfirði. Samtimis hefur það
svo orðið, að það er engin fryst-
ing á loðnu, sem er mjög afl-
fredi. Þetta gerir það að verk-
um, að aflgjöf okkar i vetur náði
aldrei þvi marki, sem reiknað
var með.
Lagarlossvirkjun tekur til starla nú a næstunni. Fremst á myndinni er tengivirkið, sem er fyrir flutning orkunnar niður á Egilsstaði,
þar sem hún fer inn á dreifikerfið. Til hægri sér f stöðvarhúsið. Ljósm. VIsis Bjarni Arthúrsson.
lands, hvort sem þessir tima-
bundnu rennsliserfiðleikar gera
vart við sig yfir veturinn eða
ekki. Að fá þarna vatnsorku inn
á svæðið mun gjörbreyta við-
horfunum til orkumálanna i
rauninni, möguleikum manna
til að nýta og fá raforku,” sagði
Erling Garðar Jónasson.
— SH.
Tónleikar
á hverju
kvöldi...
Islendingar \ annað
sinn á Ung Nordisk
Musikfest
tsiendingar verða nú I annað
skipti þátttakendur f Ung Nordisk
Musikfest, áriegri tónlistarhátfð
ungs fólks á Norðuriöndum.
Hátiðin verður nú haldin i
Helsinki i Finniandi, dagana 23.
febrúar til 1. marz.
Héðan fara 10 manns og eru þar
af 8 virkir i tónlistarflutningi
hátiðarinnar. Fjögur verk til
flutnings á Ung Nordisk Musik-
fest 1975 bárust islenzku UNM
nefndinni,en „Taijah” heitir það,
sem varð fyrir vali dómnefndar.
Tilgangur hátiðarinnar er i
fyrsta lagi að veita norrænum
tónskáldum undir þritugu tæki-
færi til að heyra verk sin flutt af
norrænum tónlistarnemum og
mönnum. t öðru lagi að auka
skilning á hvers kyns nútimatón-
list, bæði hjá flytjendum og hlust-
endum, og endurspegla þá tón-
listariðju, sem ungt fólk stundar á
Noröurlöndum. 1 þriðja lagi áð
auka menningarsamstarf
Noröurlandanna, kynni og við-
sýni tónlistarmanna þeirra.
t Helsinki verður hátiðin með
þvi sniði, að hljóðfæraleikarar,
yngri en 30 ára viðsvegar að af
Norðurlöndunum munu sjá um
flutning 35 verka eftir jafnmörg
ung norræn tónskáld. Hljóðfæra
skipun verkanna er allt frá
sinfóniskri stærö niður i einleiks-
verk. Sinfóniuhljómsveit Helsinki
mun flytja einhvern hluta
sinfóniskra verka, en tónleikar
verða á hverju kvöldi. Þá verða
einnig haldnir fyrirlestrar.
—EA
75 þós. páskaegg á dagl
— ný vél tíl sœlgœtisgerðarinnar Víkings en þar á að
framleiða 21 tonn af páskaeggjum í ár
Vélin, sem framieiðir páskaeggin, er svo nákvæm, að öil eggin,
hvar sem við þau er komið, eru jafnþykk. Þarna er súkkuiaðið látið
renna i mótin.
Ekkert silfurhnegg þetta árið
Það virðist ekki vera i tizku að
verðlauna menn fyrir vcl gerða
hiuti. Þannig munu bókmennta-
gagnrýnendur dagblaðanna ekki
verðlauna islenzkan rithöfund að
þessu sinni. Samstaða gagn-
rýnenda rofnaði, þegar Morgun-
blaðið tók þá ákvörðun að hætta
að hafa silfurhestinn á fóðrum
ásamt hinum blöðunum. Hin
fjögur blöðin stóðu siöan fyrir af-
hendingu siifurhestsins I fyrra,
var það Hannes Pétursson,
Ijóöskáld, sem hlaut gripinn. Þá
telja gagnrýnendur að gagnrýni
hafi birzt stopult I fyrra, og ekki
sé ástæða til verðlaunaveitinga
að þessu sinni.
Fimmtán þúsund páskaegg á
dag. Það hefðu líklega fæstir á
móti þvi að komast 1 það góð-
gæti, en þetta er það magn af 20
gramma páskaeggjum,
minnstu gerð, sem ný véi I sæl-
gætisgerðinni Viking getur
framleitt á dag.
Vél þessi kom til landsins rétt
fyrir páskana i fyrra, en nú
fyrst er hún notuð af fullum
krafti við páskaeggin. Jón
Kjartansson framkvæmdastjóri
fyrirtækisins sagði Visi, að búizt
væri við að framleitt yrði 21
tonn af páskaeggjum fyrir
þessa páska. Það er þreföldun
frá þvi i fyrra.
Það fer eftir stærð páskaeggj
anna, hversu mörg er hægt aö
framleiða á dag. 20 gramma
eggin eru minnst, en ef fram-
leidd eru t.d. 550 gramma egg,
erhægt að framleiða 11-1200 egg
á dag. Þá er miðað við átta
vinnustundir.
l.byrjun janúar var hafizt
handa við að framleiða páska-
eggin, en þetta er nokkuð fyrr
en venjulega. Oftast hefur ekki
verið byrjað fyrr en i i febrúar.
Þá má geta þess að með til-
komu þessarar vélar hefur haf-
izt samvinna milli NÓA og
VÍKINGS um framleiðslu
páskaeggja. 1 þessari vél er
hægt að framleiða miklu meira
magn á dag en áður, eða um ti-
falt meira.
Nýja vélin er keypt frá
Þýzkalandi, og þegar ekki er
verið að búa til páskaegg i
henni, er til dæmis hægt að nota
hana fyrir plötusúkkulaði.
Og þvi má bæta við, að nú er
búizt við 50% hækkun á páska-
eggjunum frá þvi i fyrra.
—EA
Þetta tæki, sem vð sjáum þarna, snýst stööugt I hringi og formar
súkkulaðið inn i mótunum. Með þessari nýju tækni Vikings er hægt
að framleiða miklu fleiri egg á dag en áður. Ljósm: Bragi.