Vísir - 13.03.1975, Blaðsíða 5
Visir. Fimmtudagur 13. marz 1975.______________________________________________________________________________________________ 5
ID í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND Í MORGUN Ultisjón: GP
Leita í gömlum samn-
ingum við Spán, til að
fá Spinola afhentan
Portúgalska stjórnin
kafar i dag í 98 ára
gamalt samkomulag
við Spán um framsal á
eftirlýstum mönnum til
að kanna, hvort mögu-
leikar eru á þvi, að
Spinola fáist framseld-
ur.
Spænsk stjórnvöld
hafa ekkert látið frá
sér fara um málið, en
heyrzt hefur, að þau
séu treg til þess að
leyfa Spinola hers-
höfðingja að vera.
Það fer ekki á milli mála, að
stjóm vinstri sinna á Portúgal
hefur styrkzt i sessi eftir mis-
heppnaða uppreisnartilraun
hægri manna. Er landið alger-
lega á valdi þeirra afla hersins,
sem styðja stjómina
En ýmislegt bendir til þess,
að röð og reglu hafi ekki verið
komið fullkomlega á. Franskir
sjónvarpsmenn tóku t.d.
fréttamynd i fyrradag i Lissa-
bon, sem sýndi, hvar hermenn
skutu til bana mann og konu —
algerlega að ástæðulausu að þvi
er séð varð.
Herinn ákvað i gær að leysa
Tóku mynd
af hermönn-
um að skjóta
borgara
Franska sjónvarpið
sýndi i gærkvöldi frétta-
mynd sem tekin hafði
verið af portúgölskum
hermönnum að skjóta á
mann og konu i bifreið
fyrir utan herskála i
Lissabon.
Franska sjónvarpið sagði, að
myndin hefði verið tekin af
myndatökumönnum, sem sendir
upp nokkra borgaralega flokka
og hefur myndað sinar eigin
stjórnmáladeildir. Hægri flokk-
amir eiga yfir höfði sér, að
starfsemi þeirra verði bönnuð,
þrátt fyrir loforð herforingj-
anna um að efna til almennra
kosninga 12. april, þar sem öll-
um flokkum átti að vera frjálst
að bjóða fram. Slikt bann væri
kommúnistum mjög að skapi,
sem undanfarna mánuði hafa
með ofbeldi reynt allt til að
spilla þvi, að borgaralegu flokk-
amir gætu starfað eðlilega og
hafa hleypt m.a. upp útifundum
þeirra.
Frétzt hefur um að minnsta
kosti 60 manns, sem hafa verið
handteknir eftir uppreisnar-
tilraunina. Þar á meðal eru
tveir háttsettir aðstoðarmenn
Spinola fyrrum forseta og sjö
bankastjórar eins stærsta
banka Portúgals.
1 rauninni er enn allt á huldu
um raunverulegan þátt Spinola i
uppreisnartilrauninni. Enn
liggur ekkert fyrir um, að hann
hafi staðið að henni, annað en
orð andstæðinga hans. Haft er
Hermenn og óbreyttir borgarar i skotgröfum fyrir utan herskála i
Lissabon, meðan menn vissu ekki, hvernig uppreisninni reiddi af.
eftir Spinola sjálfum, að hann
hafi flúið herstöðina i þyrlu til
Spánar, þegar hann frétti, að
hann væri á lista yfir þá, sem of-
stækisfullir vinstrisinnar vildu
feiga og ætluðu sér að taka af
llfi. — Alla vega er augljóst, að
hann gat gengið að þvi visu,
þegar hann hafði pata af þvi að
uppreisn lægi í lofti, að honum
vrði kennt um hana, hvort sem
hann ætti nokkurn hlut að máli
eða ekki. Þurfti hann ekki að
vænta sér neins góðs, ef
uppreisnin færi út um þúfur,
sem hann var vel fær um að sjá
fyrirfram, maðurinn, sem til
skamms tima var mikilsvirtasti
hershöfðingi Portúgala.
Fyrrverandi starfsbræður
hans I hernum hafa heldur ekki
haldið þvi fram, að Spinola væri
leiðtogi uppreisnarmannanna.
Þvert á móti hefur t.d. Jorge
Correia Jesuino, hershöfðingi
og upplýsingamálaráðherra
vinstristjórnarinnar, sagt, að
það væri afar erfitt að trúa þvi,
að Spinola hefði staðið að svo
örvæntingarfullu ævintýri. —
Og vissulega er jafn fálmkennd
aðgerð, og uppreisnartilraunin
viröist hafa verið, litið lik þvi,
að snjallasti herforingi
Portúgals hafi skipulagt hana.
Sendiráð V-Þýzkalands var
umkringt trylltum skril i gær,
sem heimtaði, að sendiráðið
seldi fram fjóra uppreisnar-
menn, sem leitað höfðu þar hæl-
is. Var látið undan þvi i gær-
kvöldi.
til að fylgjast með
uppreisnartilraun-
höfðu verið
eftirköstum
arinnar.
A myndinni sáust maður og
kona i borgaralegum klæðum
stiga inn i bifreið, en að þeim
þyrptust hermenn og fleira fólk
og æpti að þeim: „Fasistar!”
Þegar bifreiðin ók af stað, sást,
hvar hermennirnir hófu skothrið
á hana úr rifflum sinum. Hún
rann um 25 metra áður en hún
nam staðar. Sáust hermennirnir
þá draga blóðug likin út úr biln-
um.
Lengri var sú frétt ekki.
hersins i april 1974. Hún sýnir, hvar hermenn handtaka einn af meölimum „PIDE”, hinnar hötuðu
leynilögreglu fyrrverandi stjórnvalda. — Myndin var valin Fréttamynd ársins ’74 og ljósmyndarinn
verðlaunaöur.
Enn einn að
falli kominn
Harðir bardagar hafa verið und-
anfarna daga um bæinn Ban Me
Thout á miðhálendi S-Vietnams,
en hvað eftir annað hefur bærinn
verið að þvi kominn að falla i
hcndur kommúnista. Stjórnar-
hermönnum hefur þó tekizt með
þvi að gera útrás aö hrinda á-
hlaupum, en siðustu fréttir i nótt
hermdu, að þeir höfðu orðið aö
hörfa inn til bæjarins aftur. Er
þessi mynd hér að ofan þaðan
komin.
Telja sig hafa fundið
ráð við skalla?
Tveir finnskir visinda-
menn telja sig hafa
fundið ráð gegn skalla.
Ekki bara sem stöðvar
skallamyndun, heldur
ráð, sem einnig dugir til
þess að hárið vaxi aftur
á sköllóttum manni.
Þeir búa sig undir að
setja hármeðalið á
markað i næsta mánuði.
Sjálfboðaliðar, sem báru á sig
hársalva þennan I 28 vikur, fundu
— i sex tilvikum af tiu — að hár
sprattá höfði þeirra á nýjan leik.
Hárfellirinn og skallamyndunin
stöðvaðist á fjórum vikum.
Læknisfróöir menn hafa tekið
þessum tiðindum með varúð.
Enda að vonum. Af öllum þeim
fjölda, sem i gegnum aldirnar
hefur talið sig eiga óbrigðult ráð
við skalla. hefur ekkert staðizt til
lengdar.
En uppfinningamennirnir,
prófessor Kai Setala og dr. Llona
Schreck-Purola við háskólann I
Helsinki, eru sannfærðir um
ágæti þessa hármeðals.
Kœrð fyrir
barnabrunann
Forstöðumaður vöggustofu
muuuðarluusra. sem brann I
höfuðborg S-Kóreu, (eins og
kom fram [ fréttum VIsis I
gær) hefur nú verið kæröur.
Honum og fóstru heimilisins
er gefið að sök að hafa i ógáti
orðið fjórtán kornabörnum að
bana.
Börnin tæplega mánaðar-
gömul brunnu inni, þegar
kviknaði i húsinu út frá raf-
magnsofni. — 36 börnum var
bjargað úr brennandi húsinu.
Lögreglan segir, að kviknað
hafi I, meðan fóstrurnar tóku
sér matarhlé.