Vísir - 13.03.1975, Síða 16
vísm
Fimmtudagur 13. marz 1975;
Ljósastaur
fyrir bíl
Ljósastaur á mótum Stang-
arholts og Nóatúns varð fyrir
aðkasti bils um tólfleytið i gær
og skemmdust hvorir tveggja
nokkuð.
Ilálka var nokkur I gær og
missti bflstjóri, sem ætiaði að
taka beygju inn á Stangar-
holtið stjórn á bfl sinum með
þeim afleiðingum, að hann
hafnaði á ijósastaur. Engin
meiðsli urðu á þeim, er í bfln-
um voru.
—JB
Rœnt úr
þrem bílum
Sffellt verður algengara, að
stoliðsé úr kyrrstæðum bflum,
einkum þeim er standa fyrir
utan kvikmyndahús.
Þegar farið er að útbúa bfla
með fullkomnum útvarps- og
stereótækjum verða freisting-
arnar meiri og ófáir hafa þurft
að sjá af dýrum tækjum úr bll-
um slnum fyrir lltið.
í gær var lögreglunni
tilkynnt um þrjá stuldi úr
bflum. Buddu var stolið úr bii
við Arbæjarskóla, en tveir
piltar, er verknaðinn höfðu
framið náðust skömmu siðar
og skiluðu þeir buddunni. Eins
var i gær stolið úr bil I
Breiðholti og farið inn i bll,
sem stóð við Hafnarbíó á
Skúlagötu.
—IR
Slökkviliðið
í eltinga-
leik við
eldinn
Slökkviliðið varð að hefja
eitingaleik við strætisvagn
frá Landleiðum I morgun.
Málið var það, að
leigubilstjóri nokkur tilkynnti
til siökkviliðsins, að eldur
stæði aftur úr strætisvagni,
sem var áð leggja af stað frá
verkstæði við öskjuhlíð.
Slökkviliöið, sem hefur
aðsetur skammt frá, hélt
þegar af stað en náði ekki
eldvagninum fyrr en komið
var niður að Hljömskála. Þá
var strætisvagninn stanzaður,
enda virtist biistjórinn hafa
áttað sig á atburðum.
Fljótlega gekk að slökkva
eldinn, sem var I hemlabúnaði
vagnsins. Engir farþegar voru
með strætisvagninum, er
eldur kom upp.
—JB
Heyi stolið
í harðindum
Þegar bóndinn á Sólbakka
ofan við Reykjavik fór I gær að
lita eftir hlöðu, sem hann á
rétt fyrir ofan Faxaból, kom
hann aö opinni hiöðunni.
Bóndinn aðgætti vegsum-
merki þá nánar og kom I ljós,
að heyið hafði nokkuð rýrnaö
frá þvl hann hafði komið í
hlöðuna slöast. Heystuldurinn
var tilkynntur lögreglunni I
Arbæ, en var óupplýstur, er
siðast fréttist.
Það er geinilegt, að nú er
langt liöið á veturinn og menn
farnir að veröa heylitlir.
—JB
##
Við söfnum Winston
##
Iþróttaœskan eltist við
tóma sígarettupakka
— til að efla sjóði frjólsíþróttamanna
— fjóröfluninni illa tekið víða
Ný fjáröflunaraðferð Frjáls-
Iþróttasambands fslands hefur
fengið heldur misjafnar undir-
tektir viða um land, og sums
staðar að minnsta kosti eru
menn sárreiðir forustu FRt og
telja hana hafa sett ofan með
sllkri aðferð. Aðferðin er fólgin I
að auglýsa Winston slgarettur.
I plaggi, sem sent er til ung-
menna- og iþróttafélaga, er ósk-
að eftir þvi, að æskufólk safni
tómum pökkum undan Winston-
sigarettum og sendi Frjáls-
Iþróttasambandi Islands, en
siöan mun umboðsmaður þess-
arar tóbakstegundar ætla að
greiða FRÍ þrjár krónur fyrir
hvern pakka, sem safnast.
Jafnframt hefur FRÍ sent út
plaköt viðkomandi þessu og
plastpoka með mynd af Winston
sigarettum og áletruninni: VIÐ
SÖFNUM WINSTON.
Leiðtogum ungmennafélag-
anna þykir það litið I samræmi
við baráttu félaganna móti
reykingum en fyrir hollum lifs-
háttum, að lauma þannig inn á-
róðri fyrir þessari umræddu
sigarettutegund.
Ungmennafélag Stafholts-
tungna hefur afþakkað þetta
boð FRÍ og hvetur aila ung-
mennafélaga um allt land til að
gera slikt hið sama. „Ung-
mennafélagshreyfingin hefur
ætið barizt gegn hvers konar
nautna- og ávanaefnum. Við
teljum það vera fyrir neðan
virðingu ungmennafélaga,
Iþróttafólks og allra þeirra, sem
að æskulýðs- og iþróttamálum
starfa, að taka þátt I þessari
söfnun. Okkur er ekki sama,
hvaðan þeir fjármunir koma,
sem bezta iþróttafólk okkar
hlýtur, eða hvernig þeir eru
fengnir. Við þekkjum vel og
skiljum fjárþörf iþróttahreyf-
ingarinnar, en trúum þvi ekki,
að iþróttaáhugafólk leggist svo
lágt að selja til slikra starfa,
sem hér er farið fram á”, segja
ungmennafélagarnir I Borgar-
firði i fundarályktun.
Vitað er, að fleiri ungmenna-
félög og félagasambönd hafa
samþykkt slik mótmæli eða
hafa þau til meðferðar. —SHH
Þaö er ekki laust við að þaö sé vor I lofti og ýmsir farnir að gera vor-
hreingerningarnar nú þegar. Það verður að sjást almennilega til
sólar og þeir, sem annast gluggaþvott, verða vinsælli meö hverjum
deginum sem líður. Þeim mun meira sem sólin hækkar á lofti, þeim
mun oftar þurfa þeir að klifra upp stiga slna. Þessi var að þvo
gluggana I húsi Silla og Valda I Austurstræti, þegar veðriö var sem
bezt I gærdag. —ÞJM/Ljósm: Bragi.
Vilja sjó til sólar
Fundur fram ó nótt
„Árangurslaust"
— segir Björn Jónsson
„Nei, fundurinn var að mln-
um dómi þvi miður árangurs-
Iaus,” sagði Björn Jónsson for-
seti ASt i morgun I viðtali við
Vísi.
Samningafundur hófst i gær
klukkan tvö og stóð fram undir
klukkan eitt i nótt. Næsti fundur
er boöaður á morgun klukkan
tvö.
Komu fram tilboð á fundinum
i gær?
„Nei, engin tilboð, að minnsta
kosti ekki formleg,” sagði Björn
Jónsson.
—HH
ÞRJÚ SLUPPU LÍTTMEIDD
Kona varð fyrir bll á Laugaveg-
inum á móts við hús númer 159
skömmu eftir hádegið I gær.
Konan beið færis á að komast
yfir götuna á gangbraut, sem
þarna er. BIll, sem kom vestur
Laugaveginn stanzaði fyrir kon-
unni, en bill, sem kom næstur á
eftir hugðist fara fram úr. Konan
lenti fyrir honum, er hún gekk
yfir götuna, en slapp þó Iítið
meidd.
Annað minni háttar umferðar-
slys varð I Skipholtinu um klukk-
an fimm i gærdag. Þar hljóp pilt-
ur norður yfir götuna á móts við
Brauðgerðina og lenti á bil. Pilt-
urinn var sendur á slysavarðstof-
una, en var litið meiddur.
Þriðja umferðarslysið varð á
Laugarásveginum i gærmorgun.
Sá, sem þar lenti fyrir bil, var
heppinn og slapp litt meiddur frá
óhappinu.
—JB
Jörfagleði hjó menntskœlingum:
LÖGREGLU-
BÍLARNIR
KOMU f'
RÖÐUM
,, Bakka að!"Það lá við,
að þetta þyrfti að segja
við bílstjóra allra þeirra
lögreglubíla, sem komu í
Sigtún í gærkvöldi, er
Menntaskólinn við Tjörn-
ina hélt þar árshátíð sína.
Niu sinnum var lögreglan
kvödd til i þvi skyni að f jarlægja
þá, sem ofurölvi voru orðnir,
þrátt fyrir það að engar vin-
veitingar væru innan dyra.
Foreldrar voru látnir sækja
suma, er yngstir voru, á
skemmtistaðinn, en öðrum var
ekið heim eða afhentir
foreldrum sinum á lög-
reglustöðinni.
Um tima snerust athafnir
lögréglunnar i Reykjavik vart
um annað en þessa Jörfagleði
og skaut jafnvel upp þeirri hug-
mynd, að fljótlegra 'væri að
flytja þá er ódrukknir voru á
brott, en skilja hina eftir i Sig-
túni.
—JB