Vísir - 22.03.1975, Blaðsíða 2
2
Visir. Laugardagur 22. marz 1975.
vimsm:
Hvernig lizt yður á efnahagsráð-
stafanir rikisstjdrnarinnar?
Einar Eserason, gullsmiður: —
Ég hef ekkert vit á þessu. Mér er
alveg sama um þessi mál. Nei,
annars, það er ófært, að ég segi að
mér sé alveg sama.
Lilja Jónsddttir, húsmdðir: —
Mér finnst þetta alveg hryllilegt.
Mér llzt bara illa á þessa dýrtið
og alla hennar fylgifiska. Nei, ég
hlustaði nú ekki á umræðurnar i
útvarpinu I gær.
Petrina Jakobsddttir, tækniteikn-
ari: — Ég hef ekki stúderað þess-
ar áætlanir nægilega. Hitt er vist,
að eitthvað varð að gera. En það
er erfitt að sjá fyrir áhrifin af
þessum aðgerðum og spurningin
er, er þetta rétt og er þetta nóg?
Bolli ólafsson, húsgagnasmiður:
— Mér lizt hreint ekkert á þær. Ég
get engan veginn séð fram á að
þessi rikisstjórn bjargi málunum
við.
Margrét Björnsdóttir, húsmóðir:
— Ætli nokkrum litist vel á þær?
Þessir menn ráða ekkert við
efnahagsmálin.
Olfar Eysteinsson, matreiðslu-
maður: — Mér lízt vel á þær. Ég
nefni flugvallaskattinn til dæmis.
„Gullfiskar" til umrœðu í þinginu:
/Endurtaka útvarps-
fréttimar óbreyttar'
Valdimar hringdi:
„Hvað yrði sagt, ef þið á dag-
blöðunum birtuð sömu fréttina
óbreytta tvisvar eða þrisvar
sinnum? Ég er hræddur um að
það mundu einhverjir láta til sín
heyra. Hins vegar hef ég ekki
orðið þess var, að gerðar væru
athugasemdir við það, að I
fréttatímum útvarpsins er
sama fréttin oft lesin óbreytt i
hverjum fréttatímanum á fætur
öðrum.
Ég lít svo á, að ef ekkert nýtt
er að frétta af málinu, skuli
fréttin látin niður falla. Það hef-
ur mjög oft komið fyrir, að frétt
er lesin I morgunútvarpi, síðan
aftur I hádegisútvarpi og loks
um kaffileytið llka. Eins heyrir
maður nokkuð af tiufréttum út-
varpsins endurtekið óbreytt að
morgni. Þetta er ekki frétta-
mennska fyrir fimmaura.
Og fyrst ég er að láta til mln
heyra út af frammistöðu þeirra
I útvarpinu, langar mig til að
láta I ljós þá skoðun mina, að I
morgunútvarpi á ekki að heyr-
ast neitt annað en fjörug og
hressileg lög. Það er svo oft að
maður vaknar hálfúrillur á
morgnana og þá eru lögin I út-
varpinu oft það sem bjargar
manni. Þannig var það t.d. I
gærmorgun: Ég var ákaflega
niðurdreginn þegar ég vaknaði
og bjó mig af stað til vinnu. A
leiðinni á vinnustað kveiki ég á
útvarpinu og er þá verið að leika
lög úr söngleiknum ,,My Fair
Lady”. Áður en ég vissi af var
ég farinn að raula með. Skapið
var komið I lag.
Annars er ég mikill morgun-
hani og er iðulega kominn á fæt-
ur klukkan sex á morgnana. Þá
læt ég það jafnan verða mitt
fyrsta verk að stilla á BBC
(Radio two). Þar er lagavalið
svona fyrst á morgnana stór-
kostlegt. Þið mættuð mikið læra
af þeirri útvarpsstöð, ágætu út-
varpsmenn.”
„ÞOKKALEG HÚSALEIGA"
Sigurður Ellasson hringdi:
„Eitthvað yrði nú sagt, ef hót-
elin tækju upp á því að verð-
leggja húspláss sitt eftir sömu
verðskrá og þeir hjá tollinum.
Mér brá illa við þegar ég núna
i vikunni leysti út þrjá böggla,
sem voru samanlagt um 18 klló
að þyngd. Sendingin kom I toll-
inn þ. 14. febrúar, en samkvæmt
reglum má varan liggja hjá
þeim I 15 daga. /
Sökum þess, að það reyndust
vera smávægilegir gallar á
faktúrunni dróst það I rúman
mánuð, að ég leysti út vöru-
sendinguna. Þegar kom að þvi
að ég tók við henni, var mér gert
að greiða kr. 1800 fyrir geymsl-
una.
Við, svona venjulegir borgar-
ar, köllum svona óskaplega
„húsaleigu” ekkert annað en
okur.”
„Hvað gerðist ef hótelin tækju upp sömu verölagningu og tollur-
inn?”
56 rúðstefnumenn gefa
rúmlega 5,5 milljónir
Likleg eyðsla 56
manna hóps, sem hingað
kæmi til ráðstefnuhalds
frá ýmsum stöðum i
heiminum, er um fimm
og hálf milljón króna,
eða nákvæmlega
5.558.143 kr.
Þetta kemur m.a. fram I tillögu
til þingsályktunar sem flutt var á
Alþingi I gær. Eru opinberir aðil-
ar hvattir til að hafa frumkvæði
varðandi fjölþjóðlegar ráðstefnur
hér á landi, meðal annars vegna
hinna miklu gjaldeyristekna,
sem ráðstefnuhald skapar.
Þá er þess einnig getið hversu
mikla þýðingu það hefur að auka
nýtingu flutningatækja og þjón-
ustuaðstöðu utan hins skamma
annatlma yfir hásumarið.
1 tillögunni er tekið fram að 56
manna hópur sé litill á alþjóðlega
vísu, en mjög viðráðanlegur fyrir
Islenzkar aðstæður og vel það, þó
að hann væri töluvert stærri.
Gert er ráð fyrir 56 mönnum frá
8borgum, sjö mönnum frá hverj-
um stað. 1 fargjöld færu 3.606.303
kr. Gisting yrði samtals 405.280
kr., og er miðað við að ráðstefnan
stæði I þrjá daga, sem þýðir fimm
daga með ferðum og gistingu hér
i fjórar nætur. Matarkostnaður
væri 524.160 kr. Flutningar I lang-
ferðabilum 62.400 kr. Ýmis annar
kostnaður, svo sem prentun á
dagskrá, kostnaður vegna pósts
og slma o.s.frv. yrði 402.000 kr.
Ekki er talið ósennilegt að per-
sónuleg eyðsla t.d. innkaup, gjaf-
„Fleiri alþjóðlegar ráðstefnur verði haldnar hér á landi,” er markmiö frumvarpsins. Þessi mynd er frá
setningu alþjóðaþings flugumferðarstjóra i Þjóðleikhúsinu á sinum tlma. Stúlkan I þjóðbúningnum er
Geirlaug Þorvaldsdóttir.
ir, leigubilar o.fl. yrði samtals
448.000 kr.
„Ljóst er af ofangreindu að hér
er um mjög mikilvægt mál að
ræða fyrir Islenzka þjóðarbúið.
Aukið ráðstefnuhald utan sumar-
tlmans nýtir fyrst og fremst þá
aðstöðu, sem þegar er fyrir hendi
og væri ónotuð ella og færir þjóð-
arbúinu milljónir I erlendum
gjaldeyri.”
—EA
LESENDUR HAFA ORÐIÐ