Vísir


Vísir - 11.04.1975, Qupperneq 6

Vísir - 11.04.1975, Qupperneq 6
Vísir. Föstudagur 11. apríl 1975. A vísrn Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Iielgason Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Slðumúla 14. Simi 86611. 7 Hnur Askriftargjaid 700 kr. á mánuði innanlands. t iausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. H/n óbeinu áhríf Eftir tuttugu ára fjáraustur og strit hafa Bandarikin og stuðningsmenn þeirra farið miklar hrakfarir i Indókina. Rikisstjórnirnar i Suður- Vietnam, Laos og Kambódiu ramba allar á barmi hruns gagnvart þjóðfrelsishreyfingum þeim, sem kommúnistar ráða að mestu. Sem afmarkað vandamál skipta þessar ófarir Bandarikin minna máli en margir halda. Aldrei var nein raunhæf von um, að byggja mætti upp vestrænt lýðræðiskerfi i þessum heimshluta, sem á sér allt aðra siði og sögu en við þekkjum á Vesturlöndum. Þar á ofan voru efnahagslegir hagsmunir Bandarikjanna ekki mælanlegir i þessum hráefnasnauðu og bláfátæku löndum. Hagsmunir Bandarikjanna liggja á allt öðrum stöðum. Þeir liggja fyrst og fremst i Evrópu, Japan og nokkrum öðrum löndum, sem eru virkir þátttakendur i hinu alþjóðlega og viðamikla efna- hagskerfi lifsgæða og hagsældar á Vesturlöndum. Þeir liggja einnig i Suður-Ameriku vegna ná- lægðarinnar og svo i einstaka þróunarlandi, sem kann auðæfa sinna vegna að geta tekið þátt i þessu mikla efnahagskerfi i náinni framtið. Hins vegar skipta ófarirnar i Indókina miklu óbeinu máli, eins og sést á þvi, að Frakkar hafa styrkzt i trúnni á, að hernaðarlega sé ekki unnt að treysta Bandarikjunum og að Frakkar verði sjálfir að byggja upp hernaðarlegan mátt sinn og megin. Nokkuð er til i þessum ugg. Bandarikjamenn eru að endurmeta samband sitt við umheiminn. Þar gætir vaxandi þreytu á pólitiskum og hernaðarlegum afskiptum utan landsteinanna. Til dæmis verður vart sivaxandi óánægju með byrðarnar af skuldbindingum Bandarikjanna gagnvart Atlantshafsbandalaginu. Menn gefa minna en áður fyrir hugsjónir Atlantshafssáttmálans um gagnkvæma og sjálf- virka aðstoð vinaþjóða. Bandarikjamenn eru i vaxandi mæli farnir að spyrja, hvort efnahagur þeirra sé raunverulega svo háður Vestur-Evrópu, að varnarsamstarfið sé virði allra þeirra peninga, sem i það eru lagðir. Jafnframt hafa vandamálin i Vestur-Evrópu breytzt. Hættan að innan er farin að skyggja á hættuna úr austri. Allir horfa nú á Portúgal sem tilraunastöð hinna nýju vandamála. Og afskipta- leysi Bandarikjanna af þróuninni i Portúgal er dæmigert fyrir hin nýju viðhorf þar vestra. Ef öflin, sem eru allra lengst til vinstri og hægri komast til valda, er ekki auðveldlega við snúið i rikjum, sem hafa áður búið við lýðræðis- lega hefð. Slik öfl láta ekki bola sér út með kosningum eins og dæmin sýna bæði i Austur-Evrópu og Suður-Evrópu. Spánn og Tékkóslóvakia eru hliðstæð dæmi úr þessum tveimur áttum. Vinstra einræði getur hæglega tekið við af hægra einræði, ekki aðeins i Portúgal, heldur lika á Spáni. Lýðræðið stendur einnig ótraustum fót- um i Grikklandi og á ítaliu. Vesturlönd eru þess vanbúin að mæta slikri innri hættu, enda er At- lantshafsbandalagið eingöngu varnarbandalag gegn ytri hættu. Vaxandi uggur er meðal stjórnmálamanna i Vestur-Evrópu, að þreyta Bandarikjamanna á ó- förunum i Indókina kunni að deyfa samstarfs- viljann i varnarsambúð Vesturlanda. -JK Umsjón: G.P. að siglingunum Það hefur farið litið fyrir Edward Heath, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, siðan hann vék úr for- mannssæti Ihaldsflokksins fyrir konu. Eftir aö stjórnmálaframi hans var meira og minna i molum oröinn, þar sem hann haföi beðið tvo kosningaósigra á einu ári og þar aö auki látiö i minni pokann fyrir Margrétu Thatcher i togstreit- unni um forystu Ihaldsflokksins, sneri Heath sér aftur að sinu fyrra hugöarefni, siglingunum. Alveg eins og í stjórnmálunum hefur Heath þekkt i siglingunum bæöi sæta sigra og dapurlegt mótlæti. — Hann fór með sigur I 680 milna siglingakeppni frá Sidney til Hobart I janúar 1970 i seglskútu sinni ,,Morgunský”. Þaö var sú fyrsta meö þvi nafni. Hann var fyrirliði þriggja siglara sveitar Breta, sem vann aðmirálsbikarinn 1971, og var þá kominn með „Morgunský II”. En „Morgunský III” varð honum mikil óhappa- fleyta. Hún brást honum I keppninni um aðmiráls- bikarinn 1973, þegar hún stóöst ekki öörum snún- ing, vegna þess aö ekki gafst nógu mikill byr. En áfallið varö I september I fyrra, þegar hún fórst undan strönd Sussex" með tveimur af áhöfn Heaths. Annar þeirra var 23ja, ára guðsonur Heaths, Christopher Chadd. Þetta nægði þó ekki til þess, að Heath gerðist frá- hverfur siglingaiþróttinni. Hann biður nú þess, að bátasmiðastöð ljúki smiði fjórða „Morgunskýs- ins”. Sá farkostur verður úr áli og vonast Heath til þess, að hann eigi eftir að reynast honum hrað- skreiðari, öruggari og gæfurikari en undanfararn- ir. Heath stefnir að þvi að verða fulltrúi Bretlands i keppninni um aðmirálsbikarinn, sem fram á að fara I ágúst næsta. Þar etja kappi saman frægustu kappsiglingaskútur heims. Það verður mikið kapphlaup við tlmann. Skútan er I smlðum I Gosport I Hampshire og á að verða tilbúin til sjósetningar eftir þrjár vikur. En þá verður naumur tími til stefnu að þrautreyna hana, áður en kappsiglingarnar hefjast i júni, þar sem keppt verður um, hverjir skulu keppa fyrir hönd Bretlands I aðmírálsbikarnum. — Sextán þátttak- endur hafa látið skrá sig i valkeppnina, miðað við 29 sem tóku þátt I henni 1973. Þetta er nokkur fækkun, en þaö þýðir ekki, að keppnin verði ekki hörð. Heath heimsótti bátasmiðastöðina núna I vik- unni til að fylgjast með þvi, hvernig verkinu mið- aði. Hann sagði fréttamönnum eftir á, að hann kviði því ekki að neitt kæmi upp á slðustu stundu, sem tefði afhendingu skútunnar. Og sjálfsöruggur eins og ávallt kvaðst hann viss um að vinna val- keppnina jafnvel og áhöfn hans væri undir hana búin. Nýi siglarinn verður 45 fet á lengd og er teiknað- ur af Rod Stephens hjá Sparkman og Stephens I New York, sem teiknað hefur öll „Morgunský” Heaths. Það varð úr, að skútan yrði gerð úr áli, þvi að ella hefði smlði hennar aldrei verið lokið I tlma fyrir aðmlrálsbikarkeppnina. — „Morgun- ský III” var hins vegar úr mahóni frá Hondúras. „Morgunský IV” verður um 1,800 kg léttari en fyrirrennari hennar. Heath hefur látið setja I hana öryggisflothólf til þess að draga úr slysahættu. „Hún verður erfiðari I siglingu,” sagði Heath við fréttamenn eftir að hann skoðaði farkostinn I bátasmiðastöðinni. „Seglum hennar verður að hagræða oftar og hafa hraðar hendur til þess að ná úr henni öllu þvi sem hægt er.” Heath neitaði að láta uppi, hvað þetta tóm- stundagaman hans kostar hann i fjárútlátum. En menn ætla, að nýja skútan kosti milli 70.000 og 90.000 sterlingspund (um 25 milljónir isl. kr. lág- mark). — Tryggingarnar greiddu honum 55.000 sterlingspund i bætur fyrir „Morgunský III”. En það er ekkert óalgengt, að menn þurfi að leggja út 100.000 pund til að geta tekið þátt I -keppninni um aðmlrálsbikarinn, sem er stærsti viðburður siglingalþróttarinnar. Hún er háð ann- að hvert ár. Síðan þessi keppni hófst 1957, hefur aðalkeppnin verið milli þriggja, Bandarlkjamanna, Astraliu- manna og Breta. En fyrir tveim árum blandaði vel þjálfuð áhöfn Vestur-Þjóðverja sér I keppnina og vann með yfirburðum. Skipstjóri þýzku skút- unnar, Saudade, — Berend nokkur Beilken — hreppti einstaklingsverðlaunin einnig. Þessi sigur nýrrar áhafnar hefur orðið öðrum þjóðum mikil hvatning, og vitað er, að 20 lönd að minnsta kosti munusenda þriggjaskútu sveitir til þátttöku. — Meðal þeirra verða Frakkland, Belgia, Noregur, Brazilia, Argentlna og kannski Kanada. Og svo auðvitað Astralia, Bandaríkin, Bretland og Nýja-Sjáland. Heath snýr sér

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.