Vísir - 11.04.1975, Page 16

Vísir - 11.04.1975, Page 16
Föstudagur 11. apríl 1975. ss». Þeim stóru fjölgar við bryggjur um helgina Tvœr afsteypur af „Sœmundi ó selnum" — önnur til Asmundar - hin til Happdrœttis HÍ Ásmundur Sveinsson, mynd- höggvari, tekur á móti afsteypu af sínu eigin verki i dag, og er þaö gjöf frá Happdrætti Háskóia ts- lands. Er hér um að ræöa afsteypu af „Sæmundi á selnum”, sem lista- maðurinn segir vera tákn menn- ingarinnar, sem sigrar ómenn- inguna, eöa hið góöa, sem sigrar hiö illa. Talar hann einmitt um það, þegar hann tekur á móti af- steypunni klukkan fjögur I dag. Stúdentafélag Reykjavikur gaf Háskólanum eitt sinn stóra af- steypu af þessu verki Asmundar, en hann hefur átt þaö i upphaf- legri stærð i gipsi á safni sinu. Var samiö um aö gera tvær af- steypur úr varanlegu efni. Veröur önnur i aöalumboöi happdrættis- ins, en hin fer i safn Asmundar. — EA ,,Við höfum að minnsta kosti ekki enn- þá heyrt um neina stóra togara, sem hafa i hyggju að sigla til er- lendra hafna með afla sinn”, sagði Jónas Ilaraldsson, skrifstofu- stjóri L.Í.Ú., i viðtali við Visi i morgun. ,,Eini togarinn, sem það hefur gert er Dag- ný frá Siglufirði, sem seldi 104 tonn i Belgiu fyrir 7,í) milljónir, eða 70 kr. fyrir kilóið. Þokkalegt verð fyrir þann fisk, sem Dagný var með”, bætti Jónas við. Enn sem komið er hafa ekki nema fimm eða sex stórir tog- arar lokazt inni af völdum verk- fallsins, að þvi er Visir kemst næst. Einhverra mun vera von að landi á mánudag og upp úr miöri næstu viku má fara að bú- ast við að stóru togurunum fari að fjölga verulega i höfn. Á Ákureyri er enginn stór tog- ari fasturennþá. ,,Sá siðasti rétt slapp út fyrir miðnætti nóttina sem verkfallið skall á. Það var Sléttbakur”, sagði sá er varð fyrir svörum við Akureyrarhöfn i morgun. í Reykjavikurhöfn liggja nú fjórir stórir. Það eru Hrönn og Engey, sem ekki komust út i tæka tið, Vigri sem landaði I Hafnarfirði i fyrradag og sigldi til Reykjavikur i gær og loks Ogri, sem kom að landi i gær og er nú að landa. t Hafnarfirði er einnig unnið að löndun úr stórum togara. Það er Þormóður goði, sem þar er, en hann kom að landi i gær með um 160 tonn. A Dalvik er Loftur Baldvinss. fastur, en hann var nýkominn úr loðnu þegar verkfallið hófst. Togarinn Baldur koms hins veg- ar út rétt áður en verkfallið skall á. Björgvin er hins vegar væntanlegur til lands með afla um þessa helgi. Og þá má loks geta þess, að eini stóri togarinn, sem er í höfn á Akranesi,er Ver, en hann er búinn að liggja þar i hálfan mánuð og var ekki geré tilraun til að koma honum út fyrir verk- fall. Útgerðarmenn og sjómenn áttu siðast fund með sáttasemj- ara i fyrradag. Sá fundur varð árangurslitill. Nýr fundur hefur verið boðaður i’ dag. —ÞJM Togarinn Vigri við landfestar I Hafnarfirði, en þar landaði togarinn afla sinum og sigldi siðan i gær tii sinnar heimahafnar, Reykjavik- ur, þar sem hann fær að dúsa þar til verkfaliið leysist. —Ljósm: Bragi. TVEIR BANKAR OPNA í BREIÐ- HOLTI Á NÆSTUNNI Það hefur tekið Verzlunar- bankann :i-4 ár að fá leyfi réttra aðila til að fá að reka bankaútibú fyrir Breiðhylt- inga. Og nú eiga ibúarnir i af- skekktasta hverfi höfuðborg- arinnar von á tveim nýjum bankaútihúum. Iðnaðarhank- inn hcfur einnig ákveðið að setja á stofn hankaútibú þar efra. Verzlunarbankinn mun verða til húsa i Arnarbakka 2 i Breiðholti 1, en Iðnaðarhank- inn i Breiðholti :i við Völvufell. Langur vegur er þvi milli þessara tveggja útibúa. íbúum hverfanna er augljós liagur i að fá haukaútihú svo nærri og liklega getur margur fækkað bæjarferðum, hvort heldur er til að leggja inn fé eða horga giróreikninga sina. — JBP— VISIR Hlaut mikil Maður slasaðist I bruna að Hraunbæ 96 I morgun. Lögreglu- maður, sem var að koma heim af vakt klukkan rúmlega sex, fann einkennilega lykt, er hann kom inn i blokkina heima hjá sér. Hún reyndist koma þar frá kjallara- herbergi. Arbæjarlögreglan braut upp herbergið og fann þá manninn meðvitundarlausan og brenndan. Hann var fluttur á Landsspital- brunasár ann, og aö sögn Knúts Björnsson- ar, læknis, um klukkan tiu I morgun, var maðurinn kominn til meðvitundar og liöan hans eftir atvikum. Hann hafði hlotið um 35% brunasár. Eldurinn hafði dáið út af loft- leysi, en i herberginu brunnu gluggatjöld, legubekkur og dyra- karmur, og mikill reykur hafði myndazt. —SHH í sólbað í Sundlaugagestir i Laugar- dalnum kunnu vel að meta sól- ina i gær. Þeir settu litið fyrir sig frostnepjuna, og tylltu sér niður eftir sundsprettinn til þess að láta sólina leika um sig og ná sér sem fyrst I lit á fölan kropp- inn. Ekki er það alveg vist að eins vel viðri I dag fyrir sundlauga- frostinu! gesti, að minnsta kosti er ekki búizt við sólskini. t morgun spáð'u veður- fræðingar norðaustan kalda eða stin ningskalda og skýjuðu. Frost er um allt land, og hvorki meira né minna en 8 stig i Reykjavik i morgun. Viða norð- anlands fór frost yfir 10 stig I morgun. —EA/ljósm: Bragi

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.