Vísir - 23.04.1975, Blaðsíða 16
visir
Miðvikudagur 23. april 1975.
Sumri
fagnað
með
sýningum
og skrúð-
göngum
— óvenjuleg leiksýning
í Austurbœjarbíói
Aö vanda er það Barnavina-
féiagið Sumargjöf sem á mest-
an heiöur af sumarfagnaði i
borginni. Það efnir til dæmis til
barnaskemmtunar i Austurbæj-
arbiói á morgun. Það er þó al-
veg óhætt að segja að þar sé
eitthvaö á ferðinni sem hæfir
fullorönum jafnt.
Þarna er um að ræða leik-
sýningu með söngvum og er það
annar bekkur SÁL (Samtaka
áhugamanna um leiklistarnám)
sem hefur unnið aö henni i hóp-
vinnu i kennslustundum, með
aðstoð kennara sins, Sigurðar
Pálssonar.
Fleiri mætir menn koma
þarna við sögu. Gylfi Gislason
hefur aðstoðað við leikmynd, og
Ólafur Haukur Simonarson hef-
ur samið lög við texta.
Leikurinn cr m.a. byggður á
þekktu ævintýri eftir Kipling,
siberisku ævintýri og ýmsu
frumsömdu efni.
Sýningar verða tvær á morg-
un. Hin fyrri verður klukkan tvö
og sú siðari klukkan hálffjögur.
Sala aðgöngumiða hefst i
Austurbæjarbíói i dag kl. 4.
Meðal annarra atriða á morg-
un má nefna skemmtun fóstru-
nema i Árbæjar- og Breiðholts-
skóla og sýningu Leikbrúðu-
lands i Réttarholtsskóla.
Þá verður efnt til skrúð-
gangna með lúðrablæstri og öllu
tilheyrandi. Verða þær i
Árbæjarhverfi, Breiðholts-
hverfi, Bústaðahverfi, Háa-
leitishverfi, Vogahverfi og i
vesturbænum.
Merki Sumargjafar verða svo
seld á morgun og afhent sölu-
börnum i ýmsum skólum frá kl.
10-12 i fyrramálið.
—EA
Einkaskeyti fró AP í morgun — lýsing ó öllum skókum Guðmundar — margar fróbœrar skókir
Hrapar eftir 2 tapskákir
Guðmundur Sigurjónsson
hefur tapað tveimur siðustu
skákunum á mótinu I Lone I
Kaliforniu, segir i einkaskeyti
Associated Press fréttastof-
unnar I morgun. Nú eru aðeins
tvær umferðir eftir, og virðist
Guðmundur hafa misst af topp-
sæti.
Guðmundur hefur 4 1/2 vinn-
ing. Af skákmönnunum I mótinu
er helmingurinn stórmeistarar,
segir AP, sem lýsir ýtarlega
einstökum skákum hans.
Guðmundur haföi I áttundu
umferðinni, sem var tefld i gær,
svart gegn sovézka stórmeist-
aranum Vladimir Liberzon,
sem býr nú I Israel. Sovétmað-
urinn hóf öfluga sókn þar sem
framrás kóngspeðs var megin
uppistaða, og Guðmundur gaf
sig. 1 næstu umferð þar á undan
lék Guðmundur gegn núverandi
Bandarikjameistara, Walter
Browne. Guðmundur hafði
svart og beitti afbrigði af Sikil-
eyjarvörn og lenti i örðugri
varnarstöðu. Browne jók þrýst-
inginn jafnt og þétt, og þegar
skákin fór I bið hafði hann
skiptamun og peð fram yfir
Guðmund. Biðleikur Banda-
rikjamannsins var hins vegar
slæmur og Guðmundur fékk
jafnteflismöguleika. Svo illa
tókst til, að Guðmundur lék af
sér með þvi að færa kóng sinn,
og Browne malaði hann eftir aö
skáin hafði alls staðiö I sjö
klukkustundir. Bandarikjamað-
urinn lék endataflið með af-
brigðum vel, segir AP.
1,8 milljónir
i verðlaun
Teflt er samkvæmt sviss-
neska kerfinu á þessu móti, og
er mótið talið hið sterkasta, sem
teflt hefur verið samkvæmt þvi
kerfi. Þvi eru umferöirnar að-
eins 10 segir AP og lýkur mótinu
á morgun. Heildarverðlaunin
nema 1,8 milljón krónum og fær
sigurvegarinn 600 þúsund krón-
ur. Louis Statham, sem stendur
fyrir mótinu, er uppfinninga-
maður, sem veit ekki aura sinna
tal.
Guðmundur átti I fyrstu um-
ferð erfiða skák við David Levy
frá Skotlandi, alþjóðlegan
meistara. Levy lék drekaaf-
brigði af Sikileyjarvörn og kom
með snjalla nýjung gegn eftir-
lætisbragði Guðmundar i stöðu
af þessu tagi, segir AP. Guð-
mundur var mestalla skákina
hætt kominn, en náði jafntefli
eftir lélega leiki Skotans undir
lokin.
Gligoric
lá flatur
1 annarri umferð átti Guð-
mundur sina beztu skák á mót-
inu, gegn Arthur Drake og vann.
1 þriðju umferð varð ljóst, að
Guðmundur hugði á toppsæti,
segir AP. Júgóslavneski stór-
meistarinn Gligoric valdi
Njadorfafbrigði af Sikileyjar-
vörn. Guðmundur lék svonefnd-
um Robert Byrne leik og Gli-
goric lék af sér nærri samstund-
is. Guðmundur náði þá með sin-
um hvitu mönnum forystu, vann
siðar skiptamun, og Gligoric
átti sér ekki viðreisnar von.
Siðan gerði hann jafntefli
við kanadiska alþjóðlega
meistarann Peter Biyiasas I
fjörugri skák, þar sem Guð-
mundur beitti lokaðri Sikileyj-
arvörn. í fimmtu umferð glimdi
hann við Argentinumanninn,
Oscar Panno, stórmeistara og
átti Argentinumaðurinn aldrei
viöreisnar von. Panno fórnaði
skiptamun I vonleysi, en fékk
ekkert út úr þvi og tapaði.
Guðmundur haföi nokkurt
forskot I skákinni við banda-
riska stórmeistarann Larry
Evans en ekki nægilegt. Evans
beitti Najdorfafbrigðinu,
drottningaskipti urðu, og Guð-
mundur sótti i sig veðrið. Þó
náði Evans jafntefli án mikilla
vandræða, áður en lauk. Eftir
þetta var Guðmundur I topp-
sæti, sem hann siðan hefur glat-
að.
— HH
Báðir halda áfram
— kaupfélagsstjóri K.Á.
Kolbeins til baka
„Það er ekkert aö þvi að deila,
en þegar lausn hefur fengizt á
deilumáiinu á miskiiðin að vera
gleymd og grafin. Ég mun ekki
erfa þetta mál við kaupfélags-
stjórann,” sagði Kolbeinn Guðna-
son bifvélavirki á verkstæði
Kaupfélags Arnesinga. Hann var
mættur til starfa I morgun, eftir
að kaupfélagsstjórinn hafði dreg-
ið uppsögn hans til baka.
„Það var ekki fyrr en seint I
gærkvöldi, sem við ferigum bréf
frá kaupfélagsstjóranum, þar
sem hann skýrði frá ákvörðun
sinni,” sagði Snorri Sigfinnsson,
trúnaðarmaður bifvélavirkjanna
á verkstæði K.A., i viðtali við Visi
I morgun.
„Um miönætti komum viö
saman til fundar út af bréfinu,
flestir þeir, sem I verkfallinu
stóðu, en samtals vorum við 22,”
hélt Snorri áfram. „Fundurinn
stóð ekki lengi. Við vorum sam-
mála um það, að verkfallinu
skyldi aflétt, fyrst kaupfélags- (
stjórinn hafði gengið að þeim
kröfum okkar að draga uppsögn
Kolbeins til baka.”
,,Við vonumst til að eðlileg
sambúð takist að nýju við ráða-
menn kaupfélagsins og málið hafi(
engan eftirmája,” sagði Snorri.
Og hann bað Visi að koma á fram-
færi þakklæti til allra þeirra, sem
studdu þá i verkfallinu á einn eða
annan hátt.
, Verkfallið stóð i þrjár vikur, en
á þeim tima voru verkfallsmönn-
dregur uppsögn
um greiddar kr. 16 þúsund hverj-
um úr sjóði, sem bæði félög og
einstaklingar gáfu i. Mun eiga að
greiða úr þeim sjóði einhverja
upphæð til viðbótar næstkomandi
föstuda^.
„Það er ekki þörf fyrir mig ef
starfsmennirnir taka við stjórn-
inni,” sagði Oddur Sigurbergsson
kaupfélagsstóri i upphafi verk-
falls starfsmannanna. Dró hann
þá enga dul á það, að hann hygð-
ist segja upp störfum ef svo færi,
að starfsmennirnir hefðu það I
gegn, að uppsögn Kolbeins yröi
gerð ómerk.
I bréfi sinu til starfsmannanna,
sem kaupfélagsstjórinn sendi út I
gær, segir hann frá þvi, að hann
hafi viljað segja upp starfi sinu
hjá kaupfélaginu, ef það mætti
verða til þess að leysa Kolbeins-
málið. Siðan segir orðrétt i bréf-
inu: „Kaupfélagsstjórnin hefur
neitaö að taka boð mitt I þessum
efnum til greina, og m.a. með til-
liti til þeirra erfiðu rekstrarskil-
yrða, sem nú fara i hönd, hef ég
ekki talið mér fært að taka ein-
hliða ákvörðun i málinu. Einnig
ber á það að lita, að brotthvarf
mitt úr starfi er I sjálfu sér engin
trygging fyrir lausn málsins.”
—ÞJM
Kolbeinn var mættur til starfa á bifreiðaverkstæöi K.A. snemma í
morgun. Hér vinnur hann að viðgerð á bfl framkvæmdastjóra Kaupfé-
lagsins. —Ljósm: Bragi.
FRIÐRIK A ENN
VEIKA VON UM
ANNAÐ SÆTIÐ
Tveir af þremur,sem ofar eru en hann,
eiga eftir að sitja yfir
Friðrik ólafsson á enn von, en
mjög veika, um að komast allt
upp i annað sæti á skákmótinu á
Kanarieyjum. Hann er i 4.-6.
sæti, en tveir af þeim þremur,
sem eru fyrir ofan hann, eiga eftir
að sitja hjá i annarri af umferð-
unum tveim, sem eftir eru.
Friðrik vann Fernandez, Spáni,
I gær. Hann hefur 8 vinninga,
ásamt Tal og Andersson. Efstur
er Ljubojevic með 10 og annar
Mecking með 9 1/2, en sá siðar-
nefndi á eftir skák við Friðrik og
hjásetu i einni umferð. Ef svo
tækist til, að Friðrik ynni Meck-
ing og einnig hina skákina, sem
hann á eftir, kæmist hann i 10
vinninga og upp fyrir Mecking. í
þriðja sæti er Hort með 8 1/2 vinn-
ing. Hann á eftir eina skák og hjá-
setu I einni umferð. Friðrik gæti
þvi komizt upp fyrir hann, án þess
að sérstakt lán þyrfti til.
Auðvitað geta þeir, sem nú eru
jafnir Friðriki.Tal og Andersson,
ætt upp f.' rir Friðrik ef hann
verður ekki i essinu sinu i siðustu
umferðunum. Næstur fyrir neðan
þá kappana er Petrosjan með 7
1/2 vinning, og gæti hann auðvit-
að ruðzt upp fyrir Friðrik, ef
vindurinn blæs á þann veg. — HH
Ætla að draga Hvassa-
fellið út á vindum
Brezka björgunarskipið Life-
line liggur nú hjá Hvassafelli á
strandstað þess við Flatey á
Skjálfanda, og björgunarstarfið
er komið i fullan gang.
Rafsuðumenn frá Akureyri
vinna nú að þvi að sjóða milli-
dekk í vélarrúmið, og er siðan
ætlunin að blása sjónum úr þvi
með þrýstilofti. Horfið var frá
þvi ráði að bæta götin utan frá,
þar sem það gæti skemmzt þeg-
ar farið verður að hnika skipinu.
Rafvirkjar frá Akureyri eru
einnig að störfum i skipinu, en
niður með siðum þess að inn-
anverðu liggja rafmagnskaplar,
sem verður að aftengja og
draga upp svo unnt sé að sjóða
millidekkið i.
Meiningin er að færa lika
þunga til I skipinu, svo sem taka
stýrið af og moka til áburðar-
graut, sem enn er aftast i skip-
inu. Allt á þetta að vera til þess
að auðvelda að það náist á flot.
Björgunarskipið Lifeline er
ekki dráttarbátur og hefur ekki
af miklu vélarafli að státa, en
það er öflugt vinnuskip og vel út
búið. Það hefur mjög kraftmikl-
ar vindur og mörg akkeri, og er
ætlunin að festa akkerin ramm-
lega og taka svo á skipinu með
margföldum taliukrafti. Akker-
um verður einnig varpað út frá
Hvassafelli og tekið á með vind-
um þar um borð. Leiðin út
grynningarnar er talin 3-400
metrar, en gæti reynzt styttri.
Að sögn Sverris Þórs, deildar-
stjóra hjá Samvjnnutrygging-
um, hafa samningar um björg-
un skipsins ekki verið endan-
lega undirritaðir og I morgun
var ekki alveg ljóst, hvorir
myndu undirrita þá, tryggjend-
ur skipsins eða eigendur, en það
er nánast formsatriði, sagði
Sverrir.
—SHH
Þannig situr Hvassafellið klossfast við Flatey. Eins og mönnum
hlýtur að skiljast, þá verður það erfið raun að losa skipið. Ljós-
myndina tók Jón Jóhannsson á Húsavlk.