Tíminn - 07.08.1966, Blaðsíða 13

Tíminn - 07.08.1966, Blaðsíða 13
SUNNUDAGUR 7. ágúst 1966 TÍMINN 13 London - Amsterdam - Kaupmannahöfn Brottfarardagar: 14. ágúst og 4. september. — lSdagar. — Verð kr. 11.800,00. Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborgum Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. Milljónaborgin London, tilkomumikil og sögufræg höfuð- borg heimsveldis, með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heillandi og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við sundið“, Kaupmannahöfn þar sem íslendingar una sér betur en víðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tivoli og ótal aðra skemmtistaði. Það er hægt að framlengja dvöl í ferðalok. Þessi stutta og ódýra ferð hef- ur átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju ári. í fyrra voru farnar fjórar slíkar ferðir og komust færri með en vildu. í sumar er þegar búið að fara þrjár — allar fullskipaðar! Fararstjórar: Jón Helgason og Þorlcifur Guðmundsson. (Uppselt, nema það, sem kann að losna vegna forfalla). París - Rínarlönd - Sviss Brottför 19. ágúst. — 17 daga ferð. Verð kr. 17.650,00. Þessi vinsæla ferð hefur verið farin svo til óbreytt í sjb ár og jafnan við miklar vinsældir, enda fólk komið heim með óbrotgjarnar endurminningar. Fólki gefst hér tækifæri til að kynnast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu, í rólegri ferð. Flogið er til Parísar og dvalið þar í borg feg- urðar og gleði sólríka sumardaga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið í skemmtiferð suður yf- ir fjallaskörðin til Ítalíu. Frá Sviss er farið fljúgandi til Rínarlanda, og dvalið í fjóra daga við Rín í Rudesheim, einum frægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín. Þar er „Vnhátðin". þar sem drottningin er krýnd. Farið er í ökuferðir umRínarbyggðir og siglt á fljótinu með skemmtileg- um farþegaskipum. — Fararstjóri Jón Helgason. (Uppselt, nema það sem losna kann vegna forfalla). Edinhorgarhátíðin Brottför 27. ágúst. — 7 daga ferð. — Verð kr. 7.210,00. Þessi vinsæla ferð hefur verið farin á hvetjiu ári í sex ár og jafnan fullskipuð. Fara allmargir ár- lega, enda er Edinborgarhátíðin mikilfengíegasta listahátíð álfunnar, auk þess sem Edinborg er mjög fögur borg, og ánægjulegt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er í skemmtiferðir upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð en jafnan komið heim á hótel í Edinborg að kvöldi. Hægt er að framlengja dvölina og skreppa til London. Fararstjóri Gunnar Eyjólfsson. leikari. — (4 sæti laus). Ítalía - septembersól Nýjar ferðir -x' auglýstar í fyrsta sinn IVIallorka - Kaupmannahöfn 8. sept. og 22. sept. — 19 dagar. — Verð kr. 12.600,00. Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólrku Spánarstranda og glaðværu Kaupmannahafnar verða tvær í september, vegna fjölda áskorana. Við getum haft þær svona ódýrar, vegna þess að vin- sældir þeirra leyfa, að teknar eru heilar flugvélar á leigu, sem flytja farþegana á milli áfangastaða og hótelin gefa SUNNU a beztu fáanleg kjör, vegna þess. að skrifstofan semur um fyrir 4 rúmlega 600 gesti yfir árið. Búið er í tvær vikur á glæsilegum baðstrandarhótelum með einka. gð sundlaugum og baði með hverju herbergi, aðeins 7 km. frá miðri |j höfuðborginni Palma. Mallorca er vinsælasti ferðamannastaður- H inn í Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt, sem hugurinn girnist. I Sól, náttúrufegurð og fjölbreytt skemmtanalíf, góð hótel og góð- ’ an mat. Á heimleiðinni er stanzað fjóra daga í hinni glaðværu Kaupmannahöfn. Innifalið í verði ferðar eru flugferðir, ferðir milli flugvalla og hótela, gisting og þrjár máltíðir á dag á Mall- orka og gisting og morgunverður í Kaupmannahöfn. Fararstjóri: Þorleifur Guðmundsson. (Uppselt í ferðina 8. september. — Nokkur sæti laus 22. sept.) Kaupmannahöfn (Hamborg) Edinborg 21. september. — 10 dagar. — Verð kr. 6.900,00. Þessi ódýra og vinsæla haustferð var farin í fyrsta sinn í fyrra. Ferðin er svona ódýr vegna þess að SUNNA leigir eina af milli- landaflugvélum Flugfélags íslands til ferðarinnar. Dvalið er í hinni glaðværu Kaupmannahöfn, skroppið í tvo daga til Ham- borgar og stanzað í sólarhring í Edinborg á heimleiðinni. Þó þessi ferð sé nú auglýst í fyrsta sinn eru margir búnir að panta af þeim, sem voru með í fyrra. Fararstjórar: Geir Aðils og Guðni Þórðarson. í SUNNUFERÐUM Brottför 21. september 21 dagur. — Verð kr. 21.300,00. Þessi lúxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðstæðar ferðir vegna hagkvæmra viðskiptasambanda SUNNU á Ítalíu. — Flogið til Milano og ekiðþaðan um fegurstu byggðir Ítalíu, með 3—4 daga viðdvöl í þessum borgum: Feneyjum, hinni„Fljótandi borg“ ævintýra, söngs og sögu. Um ferðin líður fljótandi um skurðina frægu, milli skrauthalla og hótela. Florenz. hin fagra höfuð- borg listanna á miðöldum Ítalíu. Róm eru helgaðir fimm dagar, því að þar er margt að sjá. Frá Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pompei til Sorrento. hinnar undurfögru borgar við Caprí- flóann. Skroppið er út til Caprí. Eftir ökuferðir um fegurstu byggðir Ítalíu kemur að því ævintýri ferðarinnar að sigla með einu glæsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michelangelo (63 þús. smál. að stærð) og ganga á land í Cannes á frönsku Rivieran og aka síðan til Nizza, þar sem dvalið er síðustu daga ferðarinnar. Frá Nizza er flogið heim með viðkomu í London, þar sem hægt er að framlengja ferðinni. ef óskað er. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur. — (2 sæti laus). Ítalía og Spánn Brottför 23. september. — 21. dagur. — Verð kr. 24.860,00. Þessi óvenjulega og glæsilega ferð var farin í fyrsta sinn í fyrra, fullskipuð og komust færri en rildu. Hefur fólki ekki áður gefizt kostur á að kynnast bæði Ítalíu og Spáni í einni og sömu ferðinni. Flogið er til Feneyja og dvalið þar. Flogið til Rómar og dvalið þar í nokkra daga. til Napoli og alla leið til Sorrento. Frá Napoli er síðan siglt með glæsilegu hafskipi til Spánar. Það- an er ekið til Torremolinos, baðstrandarbæjarinsfræga á Sólströnd Spánar. Frá Sólströndinni er flogið til Madrid og að dvöl lokinni þar, er flogiðtil London og höfð þar tveggja daga viðdvöl. Fararstjóri: Jón Helgason. — (Uppselt, nema það, sem losna kann vegna forfalla). Ævintýraferðin til Austurlanda Brottför 7. október. — 21 dagur. — Verð 23.700,00. Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt í þessum vinsælu ferðum SUNNU á ævintýraslóðir Austurlanda, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum. sem fyrir augun ber. Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er í tvo daga. Flogið til Beirut. Skoðaðir leyndar- dómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austurlöndum nær. Heimsóttir persneskir teppasalar i fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Kairo og dvalið á góðu hóteli á bökkum Nílar. Frá Kairo er flogið til Jerúsalem, dvalið í fimm daga og skoðaðir allir helztu sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerú- salem er flogið til London og hægt að framlengja dvöl, ef óskað er. — Fararstjóri: Guðni Þórðars on. — (Uppselt nema það, sem losna kann vegna forfalla). eru eingöngu notuð góð hótel. Flogið lengstu leiðirnar og ekið eingöngu þar sem landsfegurð er mest. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu, sem reynt hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið um nákvæma fcrðaáætlun og pantið sncmma, því yfirleitt komast aldrei allir, sem vilja í SUNNU-ferðir. Það eru ferðir, sem fólk getur treyst, og síðast en ekki sízt: — SUNNA auglýsir aldrei ferð, sem ekki er farin. Hótel okkar á Mallorka. Bankastræti 7 — Símar 16400 og 12070. mnm SUNNUFERÐIR til sólarlanda Vinsælar utanlandsferðir með íslenzkum fararstjórum. Margra ára reynsla og ótvíræðar vinsældir tryggja farþegum okkar snurðulaust ferðalag undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðimar, viðurkennd- ar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. Á síðasta ári komu yfir 800 ánægðir farþegar heim úr SUNNU-ferðum og það sem af er þessu ári hafa rúmlega 700 bætzt í þann hóp, eða fleiri en farið hafa á sama tíma með öll- um öðrum íslenzkum ferðaskrifstofum til samans. Við auglýsum sjaldan, því ánægðir viðskiptayinir komnir heim úr vel heppnuðum og skemmtilegum SUNNU-ferðum, eru okkar bezta auglýsing. — Enda er svo komið, að nú er upppantað í nær allar okkar auglýstu ferðir, nema þær, sem hér eru auglýstar í fyrsta sinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.