Tíminn - 18.08.1966, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 18. ágúst 1966
2 TÍMINN
Hér er verið að koma síðustu fatakössunum á vörubílspallini. (Tímamynd Bj. Bj.)
Aðventistar senda fata-
gjafir til Grænlendinga
EINAR HANNESSON KJORINN
FORMAÐUR UNGTEMPLARA
HZ-Reykjavík, miðvikudag.
Sjöunda dags Aðventistar á ís-
landi hafa tvö undanfarin ár sent
fatagjafir til Grænlands og munu
einnig í ár viðhalda þeim sið. Ljós
myndari og blaðamaður Tímans
lögðu leið sína í dag út í Ingólfs-
stræti, þar sem Aðventistar hafa
bækistöð sína. var verið að hlaða
fatakössum á vörubíl, og hjá hon-
um fundum við að máli Júlíus
Guðmundsson, formann Aðvent-
ista á íslandi og báðum hann að
skýra frá þessum fatasendingum.
— Systrafélagið Alfa í Reykja-
vík og systurfélög þess í öðrum
söfnuðum landsins hafa safnað fatn
aði í þessa 60 kassa, sem vega rúm
2 tonn. Varnarlið Bandaríkjanna
hefur sýnt þá vinsemd að flytja
þessar vörur til Grænlands endur-
gjaldslaust.
Þessi sending hefur veirið í und
irbúningi allt frá s.l. áramótum
og hafa kvenfélög safnaðanna veitt
fatnaði þessum viðtöku, lagfært
hann og pakkað honum. Fatnað-
urinn hefur borizt frá fjölmörg-
um einstaklingum og nokkrum fé-
lögum utan safnaða Aðventista. All
margar verzlanir hafa gefið mikið
magn af varningi, nýjum fögum
og skófatnaði.
Allt útheimtir þetta mikla vinnu
og vörðu flest systrafélögin einu
síðdegi í viku hverri í vetur til
undirþúnings þessara gjafa. Það
er vandasamt verk að útbúa fatn-
aðinn.
Fatnaðurinn verður sendur til
Godtháb í Grænlandi, er þar er
miðstöð Aðventistanna. í Godt-
háb reka Aðventistar kirkju og
lækningamiðstöð — Skodsborg
Klinikken — og þar sem gigtsjúk-
dómar hrjá marga Grænlendinga
er lækningamiðstöðin vinsæl, því
að heit böð, rafmagnslækningar og
sjúkraleikfimi gera undur.
Takmarkið er að koina upp fleiri
miðstöðvum á hinum þéttbýlu stöð
um Grænlands, og ennfremur er
það markmið starfs okkar í Græn
landi að stuðla að því, að illa klædd
og helblá börn sjáist þar ekki. Veðr
átta Grænlands er mun kaldari
en íslenzk veðrátta og hafa fata’
sendingar héðan reynzt betur en
frá öðrum löndum. fslenzkur ullar
fatnaður, íslenzkar úlpur og hlýr
skófatnaður eru kostagripir í
Grænlandi.
Aðventistar líta svo á, að hlut-
Framhald á bls. 14.
GÞE-Reykjavík, miðvikudag.
Vogakaffi heitir veitinga- og mat
sölustofa, er opnuð var að Súðar-
vogi 50 í gær. Er þetta fyrsti mat
sölustaðurinn, sem er opnaður í
Vogahverfi. Vogakaffi er miög
vistlegur staður, og innrétting af-
ar hagkvæm, en staðurinn er að-
eins 150 fermetrar að stærð og
rúmar þó 100 manns í sæti.
Eigendur Vogakaffis hafa undan
farin ár rekið Múlakaffi við Hallar-
múla undir framkvæmdastjórn
Stefáns Ólafssonar, en hann verður
og framkvæmdarstjóri Vogakaffis,
þó að þessir tveir matsölustaðir
KT-Reykjavík, miðvikudag.
Um síðustu helgi var haldið hið
árlega Jaðarsmót fslenzkra ung-
templara að afloknu ársþingi sam-
bandsins. Þingið sátu 40 fulltrúar,
en á mótið kom um 1500 manns.
Á þinginu baðst formaður íslenzkra
ungtemplara, séra Árelísus Niels-
son undan endurkjöri og var Ein-
ar Hannesson kosinn formaður í
hans stað.
Ársþing IUT var haldið að Jaðri
s.l. föstudag og laugardag. Þingið
setti formaður sambandsins, séra
Árelíus Níelsson og flutti hann
skýrslu stjórnar. Kom fram í skýrsl
unni, að merkasta viðfangsefni
stjórnarinnar á árinu var norr-
æna ungtemplaramótið, sem hald-
ið var í Reykjavík í júní s.l.
Séra Jón Bjarman, æskulýðsfull-
trúi Þjóðkirkjunnar flutti á þing-
inu erindi um vandamál æskunn-
ar.
Á þinginu voru samþykktar
nokkrar ályktanir. Meðal annars
lýsti þingið ánægju sinni yfir þeirri
þróun, sem orðið hefur á skemmt-
anahaldi um verzlunarmannahelg’
verði fullkoml. hvor öðrum óháðir.
í Súðarvogi og Kænuvogi og nær
liggjandi götum eru mörg iðnfyr-
irtæki, þar sem margt manna vinn
ur. Fæstir þessara manna hafa að-
stæðu til að fara heim í mat, en
svo sem fyrr segir hefur til þessa
ekki verið neinn matsölustaður á
þessum slóðum. Vogakaffi er reist
með þarfir þessara manna fyrir
augum. Þama verður á bpðstólum
einn óbreyttur réttur dagiega og
auk þess geta viðskiptavinirnir
fengið þarna smurt brauð, kaffi
og kökur. Vogakaffi verður dag-
lega opið frá kl- 7 árdegis til kl.
6 síðdegis til að byrja með.
ina, og sem hófst með bindindis-
mótunum að Húsafelli á sínum
tíma. Þá beindi þingið þeim til-
mælum til löggæzlunnar í landinu
að eftirlit með vinveitingum verði
Framhald á bls. 15.
Æskulýðsbúð-
ir í Saltvík?
SJ-Reykjavík, þriðjudag.
Eins og kunnugt er keypti
Reykjavíkurborg í fyrra jörðina
Saitvík á Kjalarnesi af Stefáni
Thorarensen, lyfsala. Nú hefur
Æskulýðsráð falazt eftir við bogar
ráð að fá Saltvík til að koma þar
á fót æskulýðsbúðum. Húsin hafa
staðið auð að undanförnu, en synir
Ólafs í Brautarholti hafa haft tún
in á leigu og heyjað þau fyrir gras
mjölsverksmiðju sína.
Hugmyndir hafa verið á lofti
um að koma upp heimavistarskóla
að Slatvík, t.d. fyrir gagnfræðastig
verknáms, en mikil vöntun er á
slíkri stofnun, þar sem ýmsar
ástæður á heimilum valda því, að
unglingar þyrftu að komast
í heimavistarskóla.
Héraðsfundir Her-
námsandstæðinga
Um helgina, 19.—21. ágúst, efna
Samtök hernámsandstæðinga til
héraðsráðstefna úti á landi. Eru
ráðstefnur þessar haldnar til und-
irbúnings að landsfundi samtak-
anna, sem haldinn verður eftir
röskan hálfan mánuð, eða 3.—4.
september í Bifröst í Borgarfirði.
Á ráðstefnunni verður rætt um
hernámsmálin, undirbúning fund-
arins-.
Héraðsfundimir verða haldnir á
eftirtöldum stöðum: Brún í Bæjar
sveit, Sauðárkróki, Grafarnesi, Ak
ureyri, Selfossi og Egilsstöðum.
ÓKU AD LAKA
VV-Klaustri, mánudag.
Fyrir helgina kom hingað 53
manna hópur á þrem bifreiðum
og hélt að Laka. Tókst ferð þeirra
þangað mjög vel, enda er nýbúið
að laga veginn þangað, þannig að
hann er nú fær stærri bílum ef
þurrt' er.
Þessi ferðamannahópur kom að
Klaustri um nyrðri Fjallabaksleið
á föstudag. Hélt hópurinn að Ein-
túnshúsum, þar sem dvalið var um
nóttina. Daginn eftir var haldið
að Laka og gist þar um nóttina.
Var síðan farið sömu leið til baka,
og fór hópurinn syðri Fjallabaks-
leið til Reykjavíkur.
Fólk hér úr sveitunum í kring
hefur farið nokkrum sinnum upp
að Laka í jeppum og minni bíl-
um, og hópur frá Ferðafélaginu
fór þangað einnig fyrir helgina.
Síðustu tvö árin hafa hópar frá
FÍ reynt að komast að Laka, en
það ekki tekizt fyrr en nú.
í sumar hefur verið hér mikill
ferðamannastraumur, enda betri
tíð hér en víða annars staðar á
landinu. Geysilegt fjölmenni va/
hér um helgina í sambandi vif.
Framsóknarmótið. Y'ar mikill hluts.
þess fólks úr nærsveitunum.
I
Miðvikudag, 17. ágúst.
Leita hins morðingjans
NTB-Stokkhólmi. — Mesta
glæpamannaleit í sögu Svíþjóð
ar hélt áfram í dag, þegar lög-
reglan reyndi til hins ýtrasta
að ná í Clark Olofsson, sem
lýst hefur verið eftir í sam-
bandi við morðið á lögregiu
manninum Ragnar Sandhal.
Clark komst undan, er vinur
hans Gunnar Norgren — sem
hefur játað að hafa átt þátt
í morðinu — var handtekinn
í íbúð í Gautaborg. Þeir eru
einnig grunaðir um bankarán.
Mikil flóð í USSR
NTB-Moskvu. — Mikil flóð hafa
átt sér stað víða í sovézku Aust-
ur-Asíu. Hefur fólk verið flutt
frá mörgum bæjum og þétt-
byggðum stöðum öðrum. Ekki
hefur verið sagt, hvort einhver
hefur farizt í flóðunum, né held
ur um efnalegt tjón. Hermenn
hafa verið sendir íbúunum til
aðstoðar.
Óbreytfir borgarar
drepnir við Da Nang
NTB-Saigon. — Am.k. 24 Suð-
ur-Víetnamar fórust, þegar
bandarísk sprengjuþota hlaðin
sprengjum hrapaði niður í þorp
skömmu eftir flugtak af Da
Nang-flugvelli. Tvær 4'50 kílóa
sprengjur sprungu, er flugvél
in kom til jarðar, og skotfæri
sem í vélinni voru sprungu
einnig. Þetta er í sjötta sinn
í þessum mánuði, að banda-
rískar flugvélar hafa á einn
eða annan hátt orðið óbreytt-
um borgurum að bana, að því
er vitað er. Flugmaðurinn gat
bjangað sér.
Aðeins einn nú ófundinn
NTB-London. — Tveir þeirra
þriggja manna, sem lýst hefur
verið eftir í sambandi við
morðin á þrem lögreglumönn-
um í London í síðustu viku,
hafa nú verið handteknir, og
leikur því aðeins einn þeirra,
Harry Roberts, lausum hala.
John Duddy var handtekinn
í Glasgow í dag án þess að
hann veitti mótspyrnu, og var
hann fluttur til London síðar
í dag. Þriðji maðurinn var hand
tekinn fyrir nokkrum dögum.
Horfur á atvinnuleysi í
Bretlandi
NTB-London — Efnhagsaðgerð
ir stjórnar Wilsons virðast þeg
ar hafa borið nokkurn árangur
en á kostnað aukins atvinnu-
leysis, einkum innan bílaiðn
aðarins. Tugir þúsunda manna
hafa fengi tilkynningu um það
síðustu dagana, að þeir megi
búast við því að verða sagt
upp, og mörg hundruð hafa
þegar fengið uppsagnarbréfið.
Eden: Loftárásir útkljá
ekki Vietnam-stríðið
NTB-London. — Loftárásir
Bandaríkjanna á Norður-Víet
nam munu ekki útkljá Víet-
na/mstríðið sagði fyrrveranai
forsætisráðherra Bretlands,
Anthony Eden (nú Avon lá-
varður) í brezka sjónvarpinu
í gærkvöldi. Taldi hann óhugs-
andi, að hernaðarsigur gæti
leyst vandann og sagði að
gera ætti Suðaustur-Asíu hlut-
lausa. Avon lávarður var annar
formaður Genfarráðstefnunnar
um Indókína árði 1954.
Súkarnó við sama
heygarðshornið
Ntb-Djakarta. — Súkarno, for-
seti Indónesíu, hélt í dag áfram
andstöðu sinni við friðarsamn-
inginn við Malaysíu. Sagði hann
í ræðu, er um ein milljón
manna hlustaði á í dag, að
Indónesía myndi ekki taka upp
stjórnmálasamband við Malay
síu fyrr en kosningar hetðu
verið haldnar í Sabah og Sarah
og Sarawak.
Ólæti í Chicago
NTB-Chicago. — Um 800 hvítir
menn köstuðu grjóti og
íkveikjusprengju að um 60
blökkumönnum í Jeffersons
Park í Chicago í gærkvöldi.
Enginn særðist, en lögreglan
handtók hvítan ungling og
dreifði síðan mannfjöldanum.
Meðal hvítu mannanna var
dreift áróðursbæklinigi frá
bandaríska nazistaflokknum.
Ritskoðun aflétt í kosn-
ingunum
NTB-Saigon. — Ritskoðun verð
ur aflétt í S-Víetnam 26. ágúst
í sambandi við fyrirhugaðar
bosningar, sem fram eiga að
fara þar í landi 11. september.
Góðar heimildir segja, að ef
niðurfelling ritskoðunarinnar
„reynist ekki vel,“ muni hún
aftur tekin í gildi eftir kosn-
ingarnar.
Kekkonen á veiðiferð
í USSR
NTB-Helsingfors. — Forseti
Finnlands, Urho Kekkonen, fer
í næstu viku í nokkurra daga
heimsókn til Sovétríkjanna í
boði Aleksei Kosygin, forsætis-
ráðherra. Tilgangur heimsókn-
arinnar er sagður veiðiskapur.
Heimboðið hefur komið mjög
á óvart í Finnlandi.
„Pioneer 7" á loft
NTB-Kennedyhöfða. — Banda-
Framhald á bls. 14.
Vogakaffi opnað