Tíminn - 18.08.1966, Blaðsíða 14

Tíminn - 18.08.1966, Blaðsíða 14
FIMMTUDAGUR 18. ágúst 1966 14 TÍMINN FIMM HÉRAÐSMÓT HEIGINA 20. OG 21. ÁGÚST Um helgina verða haldinn 5 Verða þau sem hér segir: héraðsmót Framsóknarmanna. FREYVANGUR EYJAFJARÐARSVSLA laugardaginn 20. ágúst kl. 9 s.d. Ræður flytja alþingismennirnir Einar Ágústsson bankastj. og Ingv ar Gíslason. Skemmtiatriði ann- ast Ómar Ragnarsson. Hljómsveit- in Laxar leikur fyrir dansi. DALVÍK sunnudaginn 21. ágúst kl. 9 s.d. Ræður flytja Einar Ágústsson. alþm. og Hjörtur Eldjárn, bóndi á Tjörn. Ómar Ragnarsson sksinmt- ir og Laxar leika fyrir dansi. SAIJDÁRKRÓKUR laugardaginn 20. ágúst kl. 9 s.d Ræður flytja Jón Kjartansson, forstjóri, og Vilhjálmur Hjálmars- son, bóndi, Brekku. Skemmtiatriði annast Klemenz Jónsson og Árni Tryggvason. Tónakvartfcttina frá Húsavík syngur. Gautar leika fyrir dansi. Ræður flytja alþingismennirnir Eysteinn Jónsson, form. Fram- sóknarflokksins og Páll Þorsteins son. Magnús Jónsson. operusöngv- ari syngur með undi-leik Ólafs Vignis Albertssonar. Alii Rúts skemmtir. Hljómsveit lerkui fyrir dansi. Einar Ingvar Í Einar Hjörtur 2, Jón Vilhjalmur NAFIRDI 2 Eysteinr. Páll ! er frestur til að ljúka byggingu bílskúra á lóðinni til 30. sept. 1968. Þá segir enn fremur, að allar sameiginlegar framkvæmdir svo sem gerðir gangstíga, lýsing þeirra, sem Rafmagnsveitan sér um, bifreiðastæða og leiksvæða, skuli greiddar af lóðarhöfum í hlutfalli við rúmmál bygginga. Lóðarhafar skulu ganga frá lóð hið fyrsta. Bílastæði og akbrautir á lóðum skal fylla með vönduðu fyllingarefni, a.m.k. 90 cm. þykku. Gangstíga skal helluleggja með 50x50 sm. hellum á a.m.k. 50 sm þykkt malarlag. í skilmálum fyrir fjölbýlishús er sagt, að þök húsanna skuli vera hlöðuþök og litaval á þökum og göflum háð samþykki byggingar- fulltrúa. Lárétt garðasvæði tilheyra íbúum fyrstu hæðar. Heimilt er að girða garðana með limgirðingu. í skilmálum fyrir einbýlishús er sagt, að óheimilt sé að hafa meira en eina íbúð í húsinu. Á hverri lóð skal reisa fjögur einnar hæðar einbýlishús og skal afmörk- un gerð með limgirðingum. Áætlað gatnagerðargjald miðað við 700 ■m3 byggingu, er kr. 161.000.- Steypa skal 2.10 m háan vegg frá hæð gólfplötu, að norðanverðu í hverjum lóðarhluta, og skal sá veggur vera gluggalaus og 22 m á lengd. Um litaval á þökum og veggjum á mörkum lóðarhluta skal leita til byggingarfulltrúa. í áætlun um heildarbyggingu svæð isins er gert ráð fyrir um 625 íbúðum í fjölbýlishúsum næst Bú- staðarvegi, um 300 raðhúsum, er væru ein og hálf hæð, um 90 einn- ar hæðar ráðhúsum svo og 210 sér stæðum einbýlishúsum, alls um 1.225 íbúðum. HERAÐSMÓT OG STJORNMALAFUND- UR AÐ BRÚN í BÆJARSVEIT Stjórnmálafundur Framsóknarfélag Borgfirðinga heldur aðalfund sinn og almenn an stjórnmálafund að Brún ' Bæjarsveit, sunnudaginn 21. ag n k. kl. 3 e. h. Frummælendur um stjórnmálaviðhorfið verða aiþingismennirnir Halldór E. Sig urðsson og Þórarinn Þórarinsson Héraðsmót Um kvöldið kl. 9 s. d. hefst hér aðsmót Framsóknarmanna l Bors arfjarðarsýslu á sama stað Ræður flytja alþingismennirmr Halldór E. Sigurðsson og Þórar inn Þórarinsson. Leikararnir Klemenz Jónsson og Árni Tryggva son flytja skemmtiþætti. Dúmbó sextett og Steini leika og syngja fvrir dansi. Halldór Þórarinn 7—8 M. Á FAST Framhald af bls. 1. jafnóðum og teíkningar þeirra hafa verið samþykktar, en engar teikn ingar hafa borizt enn. Búast má við að arkitekarnir, sem teikna húsin, þurfi 2—3 mánuði til að skila sínu verki, og svo er að heyra á flestum, að þeir hefjist ekki handa fyrr en að vori, þó munu nokkrir byrja strax í haust. í Fossvogshverfinu munu búa milli 6—7 þúsund manns þegar það verður fullgert. Strangar regl- ur gilda um byggingamar, stærð ir þeirra og útlit, t.d. er litaval á þökum og húsgöflum háð sam- þykki byggingarfulltrúa. í skilmál- um fyrir ráðhúsin er kveðið á um, að jarðveg skuii setja á bílskúrs- þök. sem ýmist eru ætluð sem hluti leiksvæði eða húsagarða, og BANASLYS Framhald af bls. 16. vann að rannsókn málsins fram eftir nóttu, vildi engar upplýs ingar gefa, og eigi er unn.t að skýra frá nafni drengsins aö svo stöddu, þar sem ekki bef ur náðst til allra ættingja hans. Þama er verið að grafa fvrir hitaveitu. KASTAÐI 16 ÚT Framhald af bls. 1. Einn þeirra manna, sem lögregl- an fjarlægði var lögfræðingurinn Arthur A. Kinoy, sem er fulltrúi Walter D. Teague, formanns nefnd ar þeirrar, sem stofnuð hefur ver- ið til aðstoðar við Vietcong. Hann var dreginn út úr herberginu, þeg- ar harln neitaði að hætta að láta í ljósi mótmæli og aðfinnslur við vitnisburði, sem gefinn var um Teague. Annar lögfræðilegur ráðu- nautur Teagues, William Kunstler, hrópaði: — Kastið okkur öllum saman út, þegar Kinoy var fleygt á dyr. Hinir tóku undir hrópin. Sjö voru síðar fjarlægðir, þegar þeir fögnuðu ákaft yfirlýsingum eins vitnis, sem lýsti sig andvígt styrjöldinni í Víetnam. SJONVARP Framhaío ai hls. 16 inn 24. ágúst n.k., að því er Jón Óskarsson, fulltrúi bæjarfógeta, tiáði blaðinu í dag. Þar munu væntanlega mæta i'ul trúar frá Ríkisútvarpinu og Félagi sjónvarpsáhugamanna í Eyjum. Er við því búizt, að sjónvarpsáhuga- menn muni biðja um frest í má',- inu. Guðrún Þorfinnsdóttir frá Brandsstö'ðum, verður iarðsett frá Bólstaðarhlíðarkirkju, laugardaginn 20. ágúst n. k. Athöfnin hefst kl. 2 e. h. Vandamenn. AÐVENTISTAR Framhald af bls. 2. verk kirkjunnar sé ekki einungis prédikun, heldur beri henni að mæta mönnum á því stigi, sem þeir eru á — og sýna anda hins kristna boðskapar með því að veita þá hjálp, sem ríkjandi aðstæður útheimta. Starfsemi Sjö- unda dags Aðventista nær um all- an heim. Grænland er í nágrenni við okkur, þess vegna beinum við gjöfum okkar þangað. Hliðstætt verk er unnið víða um heim — i Afríku, í Suður-Ameríku og í Víetnam. Sjöunda dags Aðventist- ar iíta svo á, að kristindómurinn ieggi mönnum þær skyldur á herð- ar, að þeir láti sig kjör annarra nokkru skipta. HEIMUR í HNOTSKURN Framhaid af bls. 2. ríkin sendu síðdegis í dag (ísl. tími) á loft sólfarið „Pioneer 7“ sem á að útvega upplýsingar um útgeislun geislavirkra efna frá sólu, einkum í því skyni, að vísindamenn geti ákveðið, hvort sú geislun sé geimförum hættuleg. Mun hnötturinn hafa komizt á rétta braut í kvöld. Verðbólga í Suður-Afríku NTB-Höfðaborg. — Fjármála- ráðherra S-Afríku, Eben Dong- es, tilkynnti í dag 5% hækkun á tekjuskatti, hærri gjöld á brennivíni, sígarettum, bifreið um og lúxusvörum, og 5% skatt á gull- og demantsfyrirtækin. Er hér um að ræða tilraun til þess að draga úr vaxandi verð- bólgu. „Strait dollar" lagður niður NTB-Kuala Lumpur. — Malays ía og Singapore tilkynntu í dag, að frá og með 12. júní næsta ár muni hvort ríkið um sig hafa sérstakan gajdleyri. Mun því hinn frægi „straits dollar'* falla niður frá þeim tíma. Þessi gjaldeyrir hefur mikið verið notaður á þessu svæði, enda ‘er Singapore mesta hafnar- boirg svæðisins. FERÐAMENN Framhald al hls. 16. til einnihluta síðustu viku að létti til. Skartaði þessi margróm- aða sveit öllu sínu fegursta um síðustu helgi, og mátti þá strax merkja aukinn ferðamannafjölda þar. Þess má geta að þegar hretið gerði, flúðu allir úr tjöldum sín- um og í hús, og þeir sem ekki komust í hús leituðu skjóls í ná- lægum hellum. Þá er það áberandi þar nyrðra hvað minjagripasala hefur verið miklu minni til útlendinga, og á það áreiðanlega rót sína að rekja til hækkandi verðlags á öllum við- um, og þá hvað útlendingar fá miklu minna fyrir gjaldeyri sinn hér núna. SMALAR AÐ NÓTTU TIL Framhald af bls. 16. ljós skilningsleysi almennings, það ætti jafnvel til að segja: „Það á engin kind að vera hér, maður minn,“ og eitthvað þaðan af ljót- ara. Guðmundur sagði, að í gær hefði hann ásamt 40 unglingum smalað Austurbæinn frá sjónum inn að Meltungu, og heimt um 70 kindur. Þessar kindur eru úr Kópavogi, Reykjavík, Hafnarfirði, Garða- hreppi og Bessastaðahreppi. Hefðu eigendum verið gert aðvart um að fjarlægja þær. Þó eru enn í vörzlu Guðmundar um 35 kindur. Guðmundur sagði að afréttur Kópavogs og Reykjavíkur væri upp við Sandskeið og þar í kring, en féð hefði greiðan aðgang til bæj- •arins, þótt Heiðmarkargirðingin væri frá Rauðhólum og suður að Hafnarfirði. Um væntanlega lausn á þessu vandamáli kvaðst Guðmundur hafa heyrt, að Reykjavík fengi haga uppi við Geitháls jafnvel á næsta ári, og að Kópavogur ætlaði að fá að geyma sitt fé þar líka. SURTSEY Framhald af bls. 1. ur Hallgrímsson læknir í Vest- mannaeyjum. Lögðu þeir baikteríu æti víða um eyna og söfnuðu þannig bakteríu auk þess sem geng ið er á reka o.fl. Á morgun koma hingað t.d. Hlynur Sigtryggsson veðurstofustjóri sem e.t.v. mun setja upp veðurathugunartæki Þor- björn Sigurgeirsson prófessor og dr. Sturla Friðriksson erfðafræð- ingur. Þá munu hefjast rannsókn- ir á botndýralífi hér í kringum eyjarnar á næstunni. Auk þessa fylgjast jarðfræðingar oig jarð efnafræðingar stöðugt með öllum breytingum sem verða á eyjunum. — Og hvernig líður ykkur svo þarna úti í eynni? — Okkur líður alveg ágætlega. Hér höfum við ágætan bát til að fara á í næstu eyjar, þar sem við fáum okkur fugl, og rennum í leiðinni fyrir fisk, svo ekki skort ir nýmetið. Húsið er vistlegt og gott og við höfum allt til alls. Surtseyjargosið er nú orðið með lengstu gosum á fslandi, sem sögur fara af, ef ekki það lengsta. Eina gosið, sem getur hafa varað lengur eru Mývatnseldar, sem var lensta gos áður en Surtsey byrjaði að gjósa 14. nóvember 1963. 100 NÝIR Framhald aí Ms. 16. nýs skóla fyrir Árbæjarhverfið, en verkið hefur ekki verið boðið út ennþá, og má þá teljast gott ef nýi skólinn verður orðinn kennslu hæfur á réttum tíma næsta haust. IÞRÓTTIR Framhald af bls. 13. inga, Páll Pálmason bjarg aði oft vel. Með þessum úrslitum hef ur hagur Fram í 2. deild vænkað og nægir liðinu jafn tefli á móti Vestmannaeying um í síðari leiknum til að sigra í riðlinum, svo fram arlega sem það vinnur Vík- ing, en sá leikur fer fram á sunnudag. Magnús Pétursson hafði góð tök á leiknum. STÖLKII helzt vana bakstri vantar okkur sem allra fyrst. Hótel Tryggvaskáli, Sel- fossi. TREFJAPLAST PLASTSTEYPA Húseigendurl Fylgizt með tímanum. Ef svalirnar eða þakið þarf endurný{unar við. eða ef þér eruð að byggía, þá látið okkur ann- ast um lagningu trefja- plasts eða plaststeypu 4 þök, svalir, gólf og veggi á húsum yðar, og þér burfið ekki að hafa áhyggjur af þvl i framtíðinni. Þorsteinn Gíslason, málarameistari, simi 17-0-47. Auglýsið í TÍMANUM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.