Vísir - 26.06.1975, Síða 8
Vísir. Fimmtudagur 26. júní 1975.
Visir. Fimmtudagur 26. júni 1975
JD
Fréttamenn „hótt
uppi" í Keflavík!
AAstaAa i|>róttafrcttamanna á
völlum landsins, að Reykjavik
undanskilinni, cr viðast hvar
hcldur bágborin. Von cr þó, að
ráðin verði bót á i þeim efnum á
næstunni, a.m.k. á einum stað, i
Keflavik. Sportmcnn ÍBK eru að
búa sig undir að smiða „blaða-
mannastúku" fyrir vestan gras-
völlinn, en þaðan vcrður einnig
hægt að fylgjast með leikjum á
malarvellinum.
Einn félaga Sportmanna ÍBK,
Sigurður Erlcndsson. (bróðir
Jóns, HSÍ-manns) mun sjá um
framkvæmdir. Tjáði hann okkur,
aö stúkan myndi verða um fjög-
urra metra há, „þið eruð alltaf
svo liátt uppi", skaut Sigurður
Steindórsson vallarvöröur inn i,
þegar þeir nafnarnir voru að út-
skýra fyrir fréttamanni — og
reyndar velta fyrir sér, hvernig
smiðinni skyldi háttað. Fullyrtu
þeir, að vel myndi sjást yfir
vallarsvæðið og skilyrði til
myndatöku —sjónvarps — ætti að
vera góð. „Fyrst verið er að ráð-
ast i að kaupa myndsegulband
handa ÍBK, af hálfu Sportmanna,
verður aðstaða til myndatöku að
fylgja með,” sagði Sigurður Er-
lendsson, um leið og þeir
félagarnir reistu sperru upp á
endann til að sýna, hvað frétta-
menn gælu átt von á þvi að verða
„hátt uppi" i Kcflavik.
Sigurðsson jafnvel fallið af
skránni, þar sem hann hefur litið
sem ekkert dæmt i vor, og þeir
Guðjón og Rafn færist upp i sæti
Einars og Hannesar.
1 b-flokknum eru þvi tvö sæti
laus, sem allmargir vilja gjarnan
ÞAÐ VAR MARK...
'Vegna hinnar hrottalegu árásar á
' formann félagsins hringja félagarnir i
Munda lögregluforingja i Paris
)/
Einn mikilvægur leikur verður 11. deildinni á Laugardalsvellinum I kvöld. Þar mætast Reykjavfkurlið-
in Fram og Vikingur og má búast við skemmtilegri viðureign. Guðgeir Leifsson, sem hérna er á mynd-
inni I röndóttu peysunni, leikur þá i fyrsta sinn gegn sinum gömlu félögum I Fram, eftir að hann gekk yf-
ir I raðir Vlkinga aftur. Myndin er tekin I leik Vikings og IBK á dögunum, en þá sigraði Vikingur 1:0.
Ljósmynd Bj.Bj.
Til hinna veigameiri starfa hjá
knattspyrnudómurum eru margir
kallaðir, en fáir útvaldir. 1 gær-
kveldi sat stjórn KDSÍ á rökstól-
um til að útnefna millirikja-
dómara til Evrópusambandsins
fyrir 28. júni. Sérstök hæfnisnefnd
er starfandi á vegum KDSÍ óg
leggur hún fram slnar tillögur,
sem KDSi tekur afstöðu til, en sjö
eiga að hljóta útnefningu, fjórir I
a-flokki, en þrlr I b.
Einar H. Hjartarson hefur nú
fallið úr hópnum aldurs vegna,
orðinn 50 ára, en margir vilja
erfa sætihans. Með honum voru i
a-flokki Guðmundur Haraldsson,
Magnús Pétursson og Hannes b.
Sigurðsson, en i b-flokki Guðjón
Finnbogason, Rafn Hjaltalin og
Eysteinn Guðmundsson.
Liklegt er talið, að einhverjar
breytingar hafi orðið Hannes Þ.
Danir unnu
Finna 2:0
nanmörk sigraði Finnland i
iandsieik I knattspyrnu I gær-
kvöldi með tveim mörkum gegn
engu. Fór leikurinn fram I
Kaupmannahöfn.
Björnemose skoraði fyrra
mark Dana á 10. minútu leiksins,
en síðara markið sáu Finnar
sjálfir um að skora fyrir Dani rétt
fyrir leikslok.
Þessi mynd er úr leik IBK og FH um slöustu helgi og er tekin eftir að
Keflvikingar skoruöu sitt annaö mark. Um helgina leikur IBK við IBV
en FH við KR.
— segir Hafsteinn Guðmundsson formaður íþróttabandalags Keflavíkur
um ásakanir þjálfarans sem yfirgaf ísland í gœr
fl
Hafsteinn Guömundsson,
formaður IBK.
„Við höfum hvorki hlunnfarið
Hooley I launagreiðslum né
heldur svikiö gefin loforð,”
sagði Hafsteinn Guömundsson,
formaður ÍBK, er við hittum
hann að máli á Iþróttavellinum i
Keflavik, þar sem hann var aö
fylgjast með æfingum
meistaraflokks. „Frekar væri,
að viö hefðum gert meira fyrir
hann en samið hafði verið um.”
„Agætt var að fá það fram i
blaðinu i gær, hvað það var, sem
hann neri okkur um nasir,”
sagði Hafsteinn, ,,en
fullyrðingar hans eru auðhrakt-
ar. Hooley sagði upp með
mánaðarfyrirvara, eins og
„Ekki er þvi að neita, að
sviptingar i þjálfaramálunum
höfðu slæm áhrif á IBK-liðiö, en
undir stjórn þeirra Guðna
Kjartanssonar og Jóns
Jóhannssonar eru strákarnir
staðráðnir i aö standa sig og
mæta tviefldir til næsta leiks,”
sagöi Hafsteinn.
samningurinn hljóðaði upp á, en
óskaði eftir að mega hætta strax
— og fékk það. Eftir að það var
gengið i gegn, krafðist hann
ferðakostnaðar, — aukaferðar
fyrir fjölskylduna til Englands,
—■- sem hvergi var tekið fram i
samningi og engin loforð gefin
um að greiða.”
— Annars fátt um óvœnt úrslit í þeim átta leikjum sem leiknir voru
í Bikarkeppninni í gœrkvöldi
setjast i. Einna likiegastir eru þar
Grétar Norðfjörð, Hinrik Lárus-
son og Steinn Guðmundsson, sem
byrjaður er að dæma af fullum
krafti aftur. Ragnar Magnússon,
Óli Olsen, Þorvarður Björnsson
og Baldur Þórðarson hafa verið
nefndir, en koma varla til greina,
þótt sumir eins og Ragnar hafi
dæmt feikilega mikið að undan-
förnu.
Tilllögur KDÍS veröa sendar
KSI, sem tekur endanlega afstöðu
um hverjir hreppi sætin.
Ml MI2 ILLI ISKI sv, ILN Æ1 IN )A- GUR
— olli því að dómaratríóið mœtti ekki á leikinn í Ólafsvík
Búið er að ákveða, að leikur
Vikinga, (ólafsvik) og Völsunga,
fari fram n.k. miðvikudag, en
hann féll niður um seinustu helgi,
þar sem dómari var ekki til
staðar, þegar bæði liðin voru
mætt til keppni.
Hvað mistökunum olli, hefur
ekki verið gefin skýring á, en
samkvæmt þeim upplýsingum,
sem við höfum aflað okkur, var
ekki um gleymsku að ræða heldur
misskilning. Talið var vist, að
búið væri að fela ákveðnum aðil-
um að dæma alla leiki á umræddu
svæöi, sem ekki reyndist rétt.
Þegar mistökin urðu ljós, tókst
þó aö útvega „dómaratríó”, sem
var reiðubúið að fljúga vestur á
Ólafsvik, en það var um seinan.
Völsungarnir voru þá búnir að
ákveða að fljúga norður aftur.
Auövitað voru þetta dýr mistök
sem áttu sér stað með dómarann i
þessum ákveðna Olafsvíkurleik,
en þess ber einnig að gæta, að
tugum leikja þarf að sinna á viku
hverri og þvi I mörg horn að lita.
Miklum erfiðleikum er oft bundið
að fá menn til dómarastarfa,
enda fremur óvinsælt, en KDSl,
mun gera allt, sem unnt er, til að
koma f veg fyrir annan „ólafs-
vikurskandala”.
• •
„VIÐ HOFUM EKKI
HLUNNFARIÐ HOOLEY"
HVER ERFIR SÆTI EINARS?
Margir knattspyrnudómarar vilja komast á UEFA listann í stað Einars Hjartarsonar
sem er kominn yfir aldurstakmörkin hjá UEFA
Ármann sló Breiðablik
út úr Bikarkeppni KSÍ
Óvæntustu úrslitin i fyrstu
umferð I bikarkeppni KSt, sem
leikinn var I gærkvöldi, eru
tvimælalaust sigur Armanns yfir
Breiðabliki á Kópavogsveliinum
og sigur 3. deildarliðs tsafjarðar
yfir Víkingi, ólafsvik, sem leikur
i 2. deild á isafiröi.
Niu leikir áttu að fara fram i
gærkvöldi, en einn féll niður, þar
sem dómarinn gat ekki mætt. Var
það leikur á Austurlandi á milli
Vals og KSH en um hann mun
fara fram á miðvikudaginn i
næstu viku.
Stóri leikurinn i gærkvöldi var á
milli Breiðabliks og Armanns i
Kópavogi. Honum lauk með 3:1
sigri Armenninga og komu þau
úrslit mjög á óvart, þvi að
Breiðablik hefur vegnað mjög vel
i leikjum sinum að undanförnu.
F'yrsta mark leiksins skoraði
Jón Hermannsson fyrir Armann
beint úr hornspyrnu —
stöngin/þversláin inn — og var
staðan þannig i hálfleik. I siðari
hálfleik skoraði Viggó Sigurðsson
með skalla fyrir Armann, en
Hinrik Þórhallsson minnkaði bilið
i 2:1 skömmu siðar.
Viggó innsiglaði svo sigurinn,
þegar Ólafur Hákonarson mark-
LANDSLIÐIÐ SEM ISLAND
MÆTIR HEITIR SPARTA!
Samkvæmt upplýsingum, sem
við höfuin aflað okkur, verður
landslið Sovétrikjanna, sem leik-
ur gegn íslandi i undankeppni
oly mpíuleikanna, svo til eingöngu
skipað leikmönnum úr 1. deildar-
liðinu Sparta frá Moskvu.
Blaðamaður frá norska blaðinu
VG, sem hafði samband við okkur
út af landsleiknum við Færeyjar,
sagði okkur, er við spurðum
hann, að Sparta hefði leikið báða
leikina á móti landsliði
IR mót í kvðld
Innanfélagsmót hjá IR i frjáls-
um iþróttum veröur á Melavellin-
um i kvöld og hefst kl. 18.30.
Keppnisgreinar verða: Sleggju-
kast, 400 metra grindahlaup,
langstökk og 200 metra hlaup.
Júgóslavfu i forkeppninni, en
Dynamo kæmi aftur á móti fram
sem landslið Sovétrikjanna i
Evrópukeppni landsliða.
Sparta er eitt af beztu félagslið-
um Sovétríkjanna — hefur verið i
einu af efstu sætunum i deildinni
undanfarin ár og er með marga
frábæra einstaklinga i sinum röð-
um.
Styrkleiki liðsins sést bezt á
þvi, að það gerði jafntefli við
ólympiulið Júgóslaviu á útivelli —
1:1 — en sigraði i leiknum heima
3:0. Með liðinu þá lék einn maður
frá öðru félagi, og annar var
varamaður, en allir hinir voru úr
Moskvuliðinu. — klp —
vörður Breiðabliks sendi knöttinn
til hans i dauðafæri — og Viggó
þakkaði fyrir sig með þvi að
senda hann i netið.
Eftir það var Ólafur tekinn út af
— hafði þá þegar fengið að sjá
gula spjaldið — og átt að geta
komið i veg fyrir öll þessi mörk.
Á tsafirði sigraði IBl Viking frá
Ólafsvik 2:0 og á Húsavik sigraði
Völsungur Leiftur, Ólafsfirði 4:1,
Þróttur Reykjavik sigraði Aftur-
eldingu, Mosfellssveit 5:0 og
Þróttur Neskaupstað sigraði Hött
9:0 — og hefur enn ekki fengið á
sig mark i sumar.
Austri, Eskifirði, tapaði fyrir
Huginn, Seyðisfirði 2:1 á heima-
velli og var sigurmarkið
sjálfsmark Eskfirðinganna. Þá
sigraði Reynir Arskógsströnd
UMSS á Sauðárkróki 3:1 og Þór
Akureyri sigraði KS Siglufirði 6:1
eftir að Siglfirðingarnir höfðu
skorað fyrsta mark leiksins. -klp-
Sendi 19 útof!
Nitján leikmönnum var vikið
af velli i landsleik Uruguay og
Chile I gærkveldi I Santiago.
Dómarinn Sergo Vasqoes varð
að stöðva leikinn, þegar allt
logaði i handaiögmálum milli
leikmanna, þegar staðan var
3:1 fyrir Uruguay.
Tiu minútum fyrir leikslok
brutust út óeirðir á áhorfenda-
pöllunum, og I fimmtán minútur
mátti lögreglan verja 1
Uruguayleikmennina fyrir æst-
um múg, sem lét flöskum og 1
öðru lauslegu rigna inn á
leikvanginn, áður en hægt var '
að koma kyrrð á.
Dómarinn sá sér ekki annað '
fært en að slita leiknum fimm
minútum fyrir tilskilinn tfma,
en þá var staðan 4:1 fyrir
Uruguay.
Svíinn tók
heimsmetið
af Jipcho
Sviinn Anders Gerderut setti i gærkvöldi
nýtt heimsmet I 3000 metra hindrunarhlaupi
á landskeppni milli Svia, Austur-Þjóðverja
og Norðmanna I Osló.
Hann hljóp á 8:10,04 min., sem er nær 4
sekúndum betra en gamla metið, sem
Kenyamaðurinn Ben Jipcho — nú atvinnu-
maður i frjálsum — setti i Helsinki fyrir
tveim árum.
Yfir 3000 áhorfendur hvöttu hann óspart,
þegar þulurinn tilkynnti, að Sviinn hefði
möguleika á að setja nýtt heimsmet, þegar
1500 metrar voru búnir af hlaupinu.
A þessu móti voru sett fjögur norsk met,
þar á meðal met i 10.000 metra hlaupi — Knut
Boro — sem hljóp á 27:56,02 min. sem er bezti
timi, sem hefur náðst i þessari grein i ár. -klp-
Þrjár vikur á
sjúkrahúsi
— eftir meiðsli í 1. deildarleik
í knattspyrnu
i leik Keflavikur og Fram I 1. deild tslands-
mótsins i knattspyrnu, sem fór fram fyrir
rúmum þrem vikum, varðþað óhapp, að einn
af efnilegustu leikmönnum Fram, Trausti
Haraldsson, lenti I árekstri viö Þorstein
Ólafsson, markvörð Keflvlkinga, og slasaðist
illa.
Fékk hann högg á bakiö og skaddaðist
annað nýrað það mikið, að hann hefur legið á
sjúkrahúsi þar til i gær að hann fékk að fara
heim. Hann má samt ekkcrt reyna á sig á
næstunni, og knattspyrnuskóna verður hann
að leggja til hliðar — a.m.k. næstu vikur og
jafnvel mánuði. -klp-
Nóg að hafa
um helgina
Mikið verður um að vera hjá islenskum
golfmönnum um þessa helgi og úr mörgum
mótum að velja fyrir þá — bæði opnum mót-
um og einnig innanféiagsmótum.
Tvö opin mót verða um helgina — annað á
Akureyri og hitt í Hafnarfiröi. A Akureyri fer
fram Saab-Toyota keppnin, sem er 36 holu
opin keppni i karlaflokki, og i Hafnarfirði
stendur Toyota umboðið á tslandi fyrir opinni
öldungakeppni — 50 ára og eldri — þar sem
leiknar verða 36 holur á tveim dögum.
Hjónakeppni, þar sem konan slær boltann
siðasta spölinn að holunni, verður I Vest-
mannaeyjum og hjá Golfklúbbi Suðurnesja.
Þá er keppni hjá Ólafsfiröingum og
meistaramót Golfklúbbsins Jökuls á Ólafsvik
hefst á sunnudaginn.
Hjá Golfklúbbi Reykjavikur hefst á laugar-
daginn undirbúningur fyrir Hvitasunnu-
keppnina, sem þar er árlegur viðburður. Þá
fer fram hjá Golfklúbbi Ness keppni um
tékknesku krystalsvasana, en þar eru ein-
hver glæsitegustu golfverðlaun. sem til þekk-
ist hér á islandi i boði — og eru þau þó vfða
góð i golfinu.
Ákveðnir í að mœta
ekki Rússum!
Bandariska frjálsiþróttasambandiö —
AAU — hefur Itrekað, að það muni ekki mæta
til leiks I hina fyrirhuguöu landskeppni við
Sovétrikin, þar sem Sovétmenn hefðu meinað
bandariskum sjónvarpsstöðvum að taka upp
og sýna myndir frá keppninni.
Aftur á móti muni liðið — 20 karlmenn og 14
konur — mæta I keppnina við Tékkóslóvakiu
og Pólland eins og ákveðiöhafi verið, en sú
keppni á að fara fram dagana 7. og 8. júlí n.k.
Karlaliö Bandaríkjanna tók þátt I „Heims-
leikunum”, sem hófust i Finnlandi í gær, og
cinnig munu þeir táka þátt I keppni I
Stokkhólmi 30. júni og 1. júli n.k. Konurnar
munu á hinn bóginn taka þátt I miklu kvenna-
móti sem á að fara fram i Osló dagana 3. og 4.
júli n.k. — en þaðan halda þær til Prag I 3ja
landa keppnina þar. -klp