Vísir - 04.07.1975, Síða 3
Visir, Föstudagur 4. júli 1975.
3
Trampa rnður blómin
og upprœta Emgerðin
ófögur lýsing á umgengni sameiginlegra svœða í Árbœjarhverfi
,,ÞaO er erfitt að koma upp
grasvöllum I Árbæjarhverfinu.
þetta er þriðja sumarið, sem við
sáum hérna i grasvellina með-
fram Rofabæ og á fleiri stöðum,
en allt kemur fyrir ekki,” sagði
Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri i
samtali við Vfsi á dögunum.
„Einnig höfum við reynt að
koma upp blómabeðum meðfram
strætisvagnabiðskýlunum, því að
grasið i kringum þessi skýli hefur
hingað til alltaf verið traðkað
niður. Við héldum að fólk myndi
frekar veigra sér við að troða á
blessuðum blómunum, en sú
ályktun reyndist röng. Þvi miður
hefur mikill hluti þessara nýgróð-
ursettu blóma hlotið sömu örlög
og grasið”.
„Sums staðar hafa heilu lim-
gerðin verið upprætt á einn eða
annan hátt. Við höfum gróðursett
þessi tré meðfram gangstigum og
við enda Rofabæjar”.
„Það er ekki hægt að kenna
bömunum um þessar skemmdir
eingöngu, þvi að fullorðna fólkið
er engir eftirbátar þess, nema
siður sé. Einhvers staðar sjá
börnin þetta lika fyrir sér”, sagöi
Hafliði.
„Hestamennirnir eru þó hvað
verstir. Þeir flengriða yfir nýsán-
ar flatirnar og svo að grasið sem
er að skjóta upp kollinum spark-
ast upp”.
„En það sem er ef til vill at-
hyglisverðast i þessu sambandi
er það, að umgengnin á lóðum
fólksins sjálfs er mjög þokkaleg.
Það er aðeins hin sameiginlega
landareign, þ.e. sú, sem snýr að
borginni að sjá um, sem verður
fyrir þessum freklega ágangi
fólks”.
„Þvi miður er margt ófrá-
gengiðenn I Árbæjarhverfinu, en
ekki flýtir það fyrir, að við verð-
um að vinna upp sömu verkin ár
eftir ár”, sagði Hafliði.
„Það væri hægt að gera marga
fallega hluti i Árbæjarhverfinu og
þar er margt fólk, sem er mjög
umhugað um hverfið sitt, að það
sé fagurt og þrifalegt. En þeir
virðast þó vera fleiri, sem litt
hirða um að fegra umhverfis sig
né hugsa um hve miklum fjár-
munum er kastað á glæ á þennan
hátt”, sagði Hafliði að lokum.
—HE
Blómabeðið I kringum biðskýlin eru nú rytjuleg og niðurbæld, troðin
af manna fótum.
Milljónatjón nyrðra út af sementsskorti
FREYFAXI HEFUR EKKI
VIÐ AÐ FLYTJA SEMENT
Við þennan gangstig var einu sinni tvöföld röð trjáa, en nú eru að-
eins fáeinar hrislur eftir. Má sjá á myndinni hjólför eftir reiðhjól,
sem hjálpað hafa til við eyðilegginguna.
Veitingahúsið Munaðarnesi:
Aðeins sérstakt verð
Veitingahúsið I Munaðarnesi er
rekið i tengsium við orlofsheimil-
ið. Það selur afsláttarkort til
þeirra, sem búa I orlofshúsum
B.S.R.B. og tjaldstæðum á svæð-
inu,” sagði Haraldur Steinþórs-
son, framkvæmdastjóri B.S.R.B.
Hann sagði, að i tilkynningu til
félagsmanna B.S.R.B. sem leigja
húsin, hafi m.a. verið gert ráð
fyrir afslætti á rétti dagsins og
einnig, að börn innan 8 ára séu
fyrir orlofsgesti
ekki krafin um gjald. Alursmark-
ið væri heldur undir þvi, sem al-
mennt gerist á veitingahúsum.
Fyrir alla aðra en dvalargesti
eru veitingar á boðstólum með
sömu skilyrðum og annars stað-
ar.
Verðlag veitingahússins er
miðað viö það, að rekstur sé
hallalaus, eftir að söluskattur
hefur verið borgaður.
—EVI—
Halda mót við
Urriðavatn
Hekluferð ó
vegum Farfuglo
um helgina
Um þessa helgi eru Farfuglar
með ferð á Heklu en það hefur
verið venja i meira en tuttugu og
fimm ár að fara I Hekluferð
fyrstu helgina I júll. Þessar ferðir
hafa notið mikilla vinsælda.
A ferðaáætlun Farfugla er auk
annarra ferða Þórsmerkurferð
um hverja helgi I sumar.
Verði á ferðum Farfugla er
stillt mjög I hóf og kostar venju-
leg helgarferð um tvö þúsund
krónur.
Einnig er áætlað að fara I tvær
sumarleyfisferðir. Sú fyrri
verður 13.-26. júli og verður fariö
um Kjalveg til Akureyrar, siðan
um Sprengisand og Fjallabaks-
veg með viðkomu á mörgum
fallegustu stööum landsins.
Seinni sumarleyfisferðin
verður 16.-29. ágúst, en þá verður
hringvegurinn farinn og skoðaðir
helztu staðir, sem eru á þeirri
leið. —HE.
Skátafélagið Vifill heldur sitt
fyrsta stórmót 4.-6. júli og er boö-
ið til þess skátafélögum af Suður-
nesjum. Mótsstaðurinn er Urr-
iðavatnsdalir, milli Vffilsstaða og
Setbergs.
Nýtt skipulag verður á tjald-
búðum skátanna og munu þær
mynda hring, þannig að ekki
verður saman I heild hvert skáta-
félag heldur verða mótsgestir
meira blandaðir. Þá verður þeim
skipt niður I hópa við úrlausnir á
ýmsum verkefnum, óháð þvi
hvaöa flokki þeir tilheyra.
Offsetprentað blað verður gefið
út á staðnum, að heiti Sammi.
Nafnið dregur það af einkunnar-
oröum mótsins. Sameinaðir
stöndum vér, sundraðir föllum
vér.
Fjölbreytt dagskrá verður,
m.a. morgunleikfimi á morgn-
ana, og þátttakendur eiga að
spreyta sig á málaralistinni.
Mótsstjóri er Ólafur Haukur
Gislason og honum til aðstoðar
eru 5 aðrir.
„Það er hreint vandræða-
ástand hér fyrir norðan. Búið að
vera sementslaust frá þvl um
helgi,” sagði Hólmsteinn Egils-
son, framkvæmdastjóri hjá Möl
og sandi, á Akureyri og hann
bætti við, að það sement, sem
væntanlega kæmi um helgina,
myndi endast u.þ.b. 5 daga.
Um 50 manns vinna hjá fyrir-
tækinu og verður starfsfólkið þá
að fara I ýmis verk, svo sem til-
tektir og annað. Þeir bygginga-
menn, sem fengju steypu hjá
Möl og sandi yrðu að vinna með
hálfum afköstum og væri um
milljónatjón að ræða af þessum
sökum. Fyrir hálfum mánuði
var einnig sementslaust i heila
viku og auk þess, þegar verk-
falliö stóð yfir I sementsverk-
smiöjunni.
tsfirðingar vilja
fá laust sement
Jón Þórðarson, forstjóri
Steiniðjunnar á Isafirði hafði
sömu sögu að segja af sements-
leysi, og töfum vegna þess.
Hann sagði, að þeir væru með 50
tonna siló og hefðu þeir farið
fram á aö fá sementið flutt laust
á tankbilum eða að skip væri út-
búiö þannig, að það gæti verið I
slikum flutningum. Ekkert væri
I veginum fyrir þvl að hafa tæki
til að taka á móti sementinu á
þennan hátt, sem myndi spara
mikla vinnu, miðað við að þurfa
að losa úr hverju einasta poka,
eins og nú er gert.
Aðeins eitt skip er I flutning-
um fyrir Sementsverksmiðjuna,
Freyfaxi.
Egilsstaðir:
Sementsleysið ekkert
nýtt fyrirbrigði
Sementsleysið kemur mér
ekkert á óvart. Undangengin ár
hafa alltaf verið meira og minni
vandræði út af sementi yfir há-
annatlmann og truflað og tafið
framkvæmdir,” sagði Vilhjálm-
ur Sigurbjörnsson, forstjóri
byggingafélagsins Brúnáss á
Egilsstöðum.
Hann sagði, að I neyðartilfelli
hefðu þeir sjálfir fengið skip á
leigu til að flytja sement. Þær
umbætur, sem farið hefði verið
fram á við Sementsverksmiðj-
una t.d. eins og að koma upp
smábirgðastöðvum i hverjum
fjórðungi, væru talaðar fyrir
daufum eyrum. Þeir væru orðn-
ir bæði þreyttir og svekktir.
Sementsverksmiðjan væri
rikisfyrirtæki, sem einokaði
markaðinn og gengi hart eftir,
að varan væri greidd. Hún veitti
litla fyrirgreiðslu. Jafnvel
minni en önnur fyrirtæki. Þeim,
sem væru með steypustöðvar,
væri bannað að leggja á
sementið, og fyrirtækin sjálf
yrðu að greiða allan dreifingar-
kostnað. Flutningajöfnunar-
sjóöur greiðir þó flutnings-
kostnað frá Akranesi til Egils-
staða.
Við lltum á sölu á sementi
sem þjónustu, en hún er rekin
með verulegu tapi,” sagði Vil-
hjálmur.
Hann benti á, að stundum
hefði sementið verið flutt á bil-
um til Egilsstaða. Við það yröi
sementið 100% dýrara.
„Viö munum ekki linna látum
fyrr en einhverjar úrbætur
fást”, sagði Vilhjálmur, en hann
vildi taka það fram að starfs-
menn Sementsverksmiðjunnar
hefðu gert það, sem i þeirra
valdi hefði staðið til aö firra
meira tjóni heldur en orðið
hefði. Það væri skipulaginu við
verksmiðjuna að kenna,
hvemig málin stæöu.
Sementsverksmiðjan:
Eingöngu um
flutningavandamál
að ræða.
„Viðskiptavinir Sements-
verksmiðjunnar hafa fæstir að-
stöðu til þess að eiga nokkrar
birgðir af sementi, áður en aðal-
byggingatimabilið hefst, enda
geymist pakkað sement ekki
nema takmarkaðan tima án
þess að hætta verði á kögglun,”
sagði Haraldur Blöndal hjá
Sementsverksmiðjunni.
Og hann hélt áfram. „Þess
vegna verður dreifing á sementi
ekki eins hagkvæm og ella. Ms.
Freyfaxi, skip verksmiðjunnar,
hefur annazt sementsflutning-
ana að langmestu leyti. Undir
eölilegum kringumstæðum get-
ur hann fyllilega annað þvi
verkefni.
Astæður til sementsskorts úti
á landi er fyrst og fremst að
rekja til verkfalls I verksmiðj-
unum, sem stóð frá 12.-29. mai,
siðan til 5.júni. A þessum tima
hefja viðskiptavinir verksmiðj-
unnar venjulega pantanir sinar
fyrir sumarið. Vegna verkfalls-
ins var ekki unnt að afgreiða
þær. Þegar hægt var að lesta
Freyfaxa i sina fyrstu ferð lágu
fyrir pantanir á rúmlega 6 þús.
tonnum. Skipið tekur 1230 tonn, i
ferð. Það gefur þvi augaleið, að
einhverjir hljóta að verða út-
undan, þegar svo mikið og
óvanalegt verður..
Af hálfu Sementsverksmiðj-
unnar hefur verið gert allt, sem
hægt var til að leysa mál sem
flestra. Meðal annars var reynt
I fyrstu ferðum að jafna sementi
milli kaupstaða. Rétt er að taka
það fram, að um sementsskort
hjá verksmiðjunni er ekki að
ræöa heldur flutningavandamál
eingöngu, sem eiga eingöngu
rætur að rekja til verkfallsins.”
Að siðustu sagði Haraldur, að
þaö væri af fjárhagsástæðum að
ekki væri flutt laust sement út á
land. Það væri hreinlega allt of
dýrt.
—EVI—
—EVI—