Vísir - 05.07.1975, Síða 12
12
Visir. Laugardagur 5. júli 1975.
VAáá! Það hlýtur
að vera meir en
kilómetri á lenqd
© King Feature* í
ite, Inc., 1974. World righu roerved.
Biðum næsta bréfs, meöan
rannsaka ég málið
1974. World rlahl.
Piltarnir segja alþjóöalögreglunni
alla söguna j
rSkeyti mannræningjanna
Unnu tvisvar, en töp-
uðu síðasta leiknum
- Knattspyrnuheimsókn Fœreyinga frá Vági á Suðurey lokið
Færeysku knattspyrnumenn-
irnir frá Vági á Suðurey, VB, sem
dvalið hafa að undanförnu I Sand-
gerði, hafa nú lokið leikjum sin-
um hér á landi. Þeir kepptu tvi-
vegis við gestgjafa sina, Reynis-
menn á Sandgerðisvelli, en einn
leik við Viði, á grasvellinum I
Garðinum.
VB—Reynir 3:1
Þrátt fyrir langa siglingu, með
Smyril, — enn lengri akstur, frá
Seyðisfiröi, létu VB-ingar það
ekki aftra sér að keppa viö Reyn-
ismenn um Albertshorniö, —
samdægurs og þeir komu til
Sandgerðis, eftir átján klukku-
stunda ferðalag i bifreið. Eigi að
slður sigruðu þeir Reynismenn
með þremur mörkum gegn einu
og unnu verðlaunagripinn til
eignar. Frændum okkar, Færey-
ingum, hefur mikiö fariö fram i
knattspyrnuiþróttinni á undan-
förnum árum. Fyrst, þegar
Reynismenn hófu samskipti við
þá árið 1957, voru langspyrnur
allsráðandi, en kerfisbundið spil
sást varla. En VB-ingarnir hafa
heldur betur söðlað um. Létt og
leikandi spil er mjög einkenn-
andi fyrir þá núna, — og kom
þeim það vel aö gagni gegn suð-
vestan kalsanum i fyrri leiknum
við Reyni, en þeir Páll Augustin-
i viö vitum
ekki hvaö
,þvi” er,
Mundi!—-
us og Jóhann Nielsen, hinn þrek-
vaxni, skoruöu sitt markið hvor,
eftir að Július Jónsson, haföi náð
forystu fyrir Reyni snemma I
leiknum. Hannemann innsiglaði
slðan sigur VB með glæsilegu
langskoti i „samskeytin,”
snemma i seinni hálfleik.
ÍÞRÓTTIR
UM HELGINA
LAUGARDAGUR:
VB—Víöir 3:2
Eftir stundarfjóröungsleik leit
út fyrir stórsigur Viðis, undir
stjórn Kjartans Sigurðssonar,
fyrrum markvarðar IBK, sem
bæði þjálfar og leikur meö Viði, —
miðframvörö. Jónatan Ingimars-
son og Guðmundur Jens
Knútsson höfðu þá skorað sitt
markið hvor og átti tvö önnur góð
færi — en þá var eins og Færey-
ingarnir áttu sig á grasinu. Skor-
uðu þrjú mörk áður en dómarinn,
Helgi Kristjánsson, sem dæmdi
sinn fyrsta „stórleik” — og geröi
það vel, flautaði til leiksloka.
Fyrsta markið skoraði Páll
Austin úr vitaspyrnu, annað
Mannbjörn Tausen, með skáskoti
úr þröngri stööu, en sigurmarkið,
Jóhannes Nilsen, en bæði Reynis-
og Viðismenn, áttu i miklum
erfiöleikum með aö gæta hans. I
þessutilvikifékk hann knöttinn á
miðlinu og stakk Viðisvörnina
hreinlega af. Mikkal markvörður
VB átti svo stærstan þáttinn að
hindra ákafa Viöismenn i að jafna
með góðri markvörslu sinni.
Reynir—VB, 4:0
Kjartan Másson, þjálfari
Reynismanna, sagðist eftir fyrri
leik þeirra við VB, að hann ætlaði
að beita annarri sóknaraöferð I
þeim seinni og við það stóð hann.
Reynismenn hafa i langan tima
vart leikið betur en þeir sýndu
gegn VB i seinni leiknum.
Akveðnir i að sigra gekk samleik-
urinn eins og vel smurð vél, og
mörkin komu eitt af öðru. Marinó
Einarsson, fyrrum landsliðsmað-
ur 1 spretthlaupi, skoraði fyrsta
markiö I leiknum, en hann var si-
ógnandi með hraöa sínum. Annaö
markið skoraði Július Jónsson úr
vltaspyrnu, eftir aö Marlnó hafði
verið brugðið. Tvö seinni mörkin
skoraði Ari Arason, ungur og
efnilegur piltur sem hingað til
Frjálsar iþróttir:
Kaplakrikavöllur kl. 14,00: Meist-
aramót þeirra yngstu. Fyrri dag-
ur.
Knattspyrna:
Ármannsvöllur kl. 14,00: 2. deild.
Armann — Haukar.
Húsavlkurvöllur kl. 14,00: 2.
deild. Völsungur — Reynir Á.
Ólafsvikurvöllur kl. 16,00: 2. deild
Vikingur Ó — Þróttur.
Auk þess leikir i 3. deild og yngri
flokkunum um allt land.
Golf:
Akranesvöllur kl. 10,00: SR-mót-
ið. Forgjöf 14 og hærra. Opið mót.
Selfossvöllur kl. 13,00: Volvo bik-
arinn. Innanfélagsmót.
Hvaleyrarvöllur kl. 13,00: Hjóna-
keppni. Innanfélagsmót.
Vestmannaeyjavöllur: öldunga-
og unglingakeppni. Innanfélags-
mót.
SUNNUDAGUR:
Frjálsar iþróttir:
Kaplakrikavöllur kl. 14,00: Meist-
aramót þeirra yngstu. Siðari dag-
ur.
Knattspyrna:
Kópavogsvöllur kl. 20,00: 2. deild.
Breiðablik — Selfoss. Auk þess
leikir i 3. deild og yngri flokkun-
um um allt land.
Golf:
Akranesvöllur kl. 10,00: SR-mót-
ið. Forgjöf 13 og lægra. Opiö mót.
Gefur stig til landsliðs GSl.
Nesvöllurkl. 13,30: Afmælisbikar
GN. Innanfélagsmót. Forgjöf 20
til 24.
Ýmislegt:
Valsvöllurinn kl. 14,15: Valsdag-
urinn.
hefur fremur getið sér betri orð-
stir sem markvörður en fram-
herji. Nokkurrar þreytu var fariö
að gæta hjá VB, en hún afsakaði
ekki allt. Jóhannes Nilsen var sá
eini þeirra VB-inga, sem virki-
lega reyndi að berjast, en átti
óhægt um vik fyrir Gústafi
Adólfi, bakverði Reynis, sem
aldrei sleppti honum úr augsýn.
En VB-ingar voru ekki alveg
einir á ferð. í samfloti viö þá voru
bridgespilarar, — þannig að það
var um 40 manna hópur sem gisti
Sandgerði, — og þreyttu þeir
kapp við heimamenn. Gekk þeim
öllu verr en knattleiksmönnun-
um. Töpuöu báðum leikjum sin-
um með nokkrum mun.
—emm
Þetta er f lagg-
skip keisarans....
Sent eftir ykkur.
Þessi geimskip lita
út fyrir að vera eins
þunn og sápukúlur.
Hvernig starfa
þessi „farartæki"?
Ég sé engar
vélar.
Þau eru það. Og
þúsund sinnum
sterkari en stál.
Alveg frábært!
Orugg?
Það eru nú
ýmsar hættur
[i geimnum.
Erf itt að trúa þvi
að við séum úti I
geimnum.
Svo friðsælt... Við
erum öruggari en á
‘götum stórborgar.
Skip á reiki... allt
götótt?
Ein af
hættunum.
KVEIKIÐ Á
VIÐVORUN-
'x'ARBJOLL
Xl-UNUM!
/o-&
l næstu