Vísir - 16.07.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 16.07.1975, Blaðsíða 5
Vlsir. Miövikudagur 16. júll 1975. REUTER AP/NTB i MORGUN ÚTLÖNDÍ morgun útlönd i morgun Umsjón: Guðmundur Pétursson Rússnesku geimfararnir, Leonov og Kubasov, þegar þeir stigu inn I Soyuzgeimfarið fyrir flugtak I gær. — Myndavélin I flugstjórnar- klefanum brást og engar myndir hafa borizt af þeim utan úr geimn- Var Guillaume njósnari „37"? Meira en 90 dulmáls- skeyti, sem send höfðu verið á útvarpsbylgjum til njósnaerindreka ,,37”, en hafa nú verið ráðin af gagnnjósnurum vestan tjalds, voru lögð fram sem sönnunargögn i réttarhöldunum i máli Gunters Guillaume. Saksóknarinn i Dusseldorf heldur þvi fram, að Guillaume sé njósnarinn „37”, en hann og kona hans eru sökuð um landráð og þeim er borið á brýn að hafa Ijóstrað upp mikilvægum leyndarmálum stjórnar V-Þýzka- lands. Guillaume, sem varð einkarit- ari og sérlegur aðstoðarmaður Willy Brandts, þáverandi kansl- ara, kippti sér ekki upp við lestur þessara dulmálsskeyta í réttinum i gær. Hann brosti þó, þegar eitt þeirra, sem hafði að geyma að- finnslur vegna ódugnaðar, var lesið upp. — „Skýcslur þinar eru eins ónákvæmar og þú sjálfur, þegar þú mættir ekki á siðasta stefnumót’”, Menn minnast þess, þegar handtaka Guillaumes varð til þess, að Brandt kanslari sá sig tilneyddan að segja af sér. Var Brandt þá á hátindi vinsælda sinna. Guillaume er sagður hafa verið á snærum Austur-Þjóðverja og að honum hafi verið falið að koma sér áfram innan flokks sósial- demókrata, safna baktjaldaupp- lýsingum um stefnu. flokksins og ákvarðanir. í dulmálslyklunum var stjórn Sósialdemókrataflokksins kölluð „fyrsta sveit”, en framkvæmda- ráð flokksins „klUbburinn”. Guillaume varð vel ágengt við að koma sér áfram meðal sösial- demókrata. — En þegar hann var handtekinn fyrir 15 mánuðum, sagðist hann vera foringi i her Austur-Þýzkalands og krafðist þess, að með sig yrði farið sem slikari. 1 ibUð Guillaumes fundust mót- tökutæki, Utvarpstæki, sem lögð voru fram i réttinum. Þar á meðal var eitt transistortæki, sem Brandt kanslari hafði gefið honum. Réttinum var skýrt frá þvi, að það var eina tækið, sem var i lagi. Fischer í Coracas Bobby Fischer, fyrr- um heimsmeistari i skák, er farinn frá Caracas, höfuðborg Venezuela, aftur til Los Angeles að lokinni 10 daga viðdvöl til við- ræðna um möguleika á einvígi við braziliska stórmeistarann, Enrique Meckmg. Fischer kom ekki opinberlega fram þennan tima, sem hann dvaldi i Venezuela. Virðist sem hann sé ekki mikið breyttur i duttlungum sinum. Angel Zambrano, einn af framámönnum skáksambands Venezuela, sem bauð Fischer til landsins, sagði, að Bandarikja- maðurinn „hefði orðið bálreið- ur, þegar það fréttist, að hann væri i Venezuela.” Fischer hafði þá dvalið viku- tima á strandhóteli utan við Caracas, þegar fréttamenn komust á slóð hans. Mecking fór frá Caracas á laugardaginn eftir viðræður við Fischer um hugsanlegt einvfgi þeirra tveggja á Filippseyjum. Mecking sagði, að ekkert hefði verið endanlega ákveðið i þvi máli. Kubasov og Leonov í sjónvarpsviðgerð- um uppi í geimnum Geimskotin tókust bœði vel og geimförin á leiðinni á stefnumótið Á hringsóli sinu um- hverfis jörðina reyndu þeir Kubasov og Leo- nov, geimfararnir rússnesku, með skær- um og hnif að gera við galla, sem kom upp i Soyuzgeimfari þeirra. Þeir urðu að basla við að losa þilplötu af vegg og reyna að tengja að nýju leiðslur frá sjónvarpsmynda- tökuvél, sem brást þeim strax i flugtaki. Þeir frestuðu þvi að taka á sig náðir og voru að viðgerðartil- raunum sinum, meðan geimfar- ið fór heilan hring til viðbótar um jörðina, en urðu að gefast upp og stjórnstöðin i Moskvu skipaði þeim að fara að sofa. Ahöfn Apollo fann sömuleiðis galla i sinu geimfari, en taldi, að þar hefði verið um að ræða heliumloftbólu i leiðslunum frá eldsneytisgeymum geimfarsins. Bólan myndaðist, þegar Vance Brand ýtti af vangá á skakkan takka. —- En enginn skaði hlauzt af. Bilun myndavélarinnar i Soyuz leiddi til þess, að engar sjónvarpsmyndir komu innan Ur geimfarinu af þeim félögum, eins og ætlazt var til strax i flug- taki. „Poyekhali” (nU förum við) heyrðist hrópað i talstöðinni. Það var Leonov, þegar Soyuz tókst á loft frá Baikonur. — En engin kom hins vegar myndin. Myndavél þessi átti að flytja til jarðar myndir af þeim félög- um, þegar þeir i útvarpi og sjón- varpi skýra frá gangi ferðarinn- ar. Þrjár myndavélar aðrar eru um borð i Soyuz, en ekki er vitað annað en að þær séu i lagi. Á þær reynir þó ekki strax. Donald Slaytoft var engu minna kátur en Leonov, þegar Apollo þaut af stað út i geiminn sjö og hálfri klukkustund eftir flugtak Soyuz. — „Þetta er ægi- fögur sjón. Það var svo sannar- lega þess virði að biða i 16 ár eftir þessu,” hrópaði hann i tal- stöðina. — Hinn 51 árs gamli geimfari fékk ekki að fara i loft- ið i ein 10 ár, þvi að yfirmenn hans höfðu hann grunaðan um að vera með hjartakvilla. Apollogeimfarið I flugtaki á Canaveralhöfða I gærkvöldi. Fjöldagöngur og mótmœli í Lissa- bon gegn hernum Tugir þúsunda sósial- ista mótmæltu kröftug- lega i gærkvöldi með fjöldagöngu um götur Lissabon og útifundi við flokksskrifstofur sinar, viðleitni herstjórnarinn- ar til að gera Portúgal að kommúnistisku riki. — Fólkið æpti til stjórn- málahreyfingar hersins, að hún væri „kommún- istar i einkennisbúning- um”. Mario Soares, leiðtogi sósial- ista, sagði á Utifundinum, að portúgalska þjóðin væri æ óánægðari með stjórn hersins og mundi aldrei sætta sig við að lifa i fangabúðum. Göngufólkið veifaði rauðum fánum og æpti „sósialismi, já, einræði nei!” — Veifað var spjöldum með stuðningsyfirlýs- ingu við ákvörðun flokksforyst- unnar um að segja sig Ur stjórn- inni á dögunum. Fundarmenn kröfðust þess, að Vasco Goncalves, forsætisráð- herra, sem flestir setja i samband við kommúnistaflokkinn, segði af sér, og Saraiva de Carvalho, yfir- manni öryggissveita Copcorn, voru valin skammaryrði ein. Dr. Soares varaði herstjórnina við því, að það sem heyra mætti þarna hrópað, kæmi beint frá hjarta portúgölsku þjóðarinnar. Hann sagði, aö flokkur hans mundi styðja stjórnmála- hreyfingu hersins, ef hún sýndi, að hún vildi starfa með meiri- hluta þjóðarinnar — en ekki bara framfylgja vilja minnihlutans (kommúnista sem fengu aðeins 12% i aprilkosningunum, þegar sósialistar fengu 38%.). „Við erum sannfærðir um, að það er til leið Ut Ur yfirstandandi vanda. En hún krefst þess, að stjórnmálalegt lýðræði riki i PortUgal, og að virtur verði vilji þjóðarinnar”, sagði Soares. Soares, sem kommUnistar hafa sakað um að æsa til uppnáms og óeirða, sagði, að flokkur hans væri skipulagður um land allt og mundi efna til „lamandi að- gerða” (verkfalla) i hverju landshorni til að sýna, hvað þjóð- in vildi. „En sósialistar sá ekki til óreglu og öeirða”, sagði hann, þegar mannfjöldinn bjó sig undir að halda að skrifstofum dag- blaðsins Republica, sem var i eigu sósialista, en er nú i höndum kommúniskra prentara. Var slik- ur vigamóðurinn á mörgum fund- armanna, að þeir vildu gera áhlaup á skrifstofurnar og heimta þær aftur Ur höndum kommún- ista. En Soares latti þá. — „Ofbeldisaðgerðir hafa aldrei leyst neinn vanda”, sagði hann til að sefa þá æstustu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.