Vísir


Vísir - 28.07.1975, Qupperneq 12

Vísir - 28.07.1975, Qupperneq 12
b^eidmc r Hermann Gunnarsson marka- kóngurinn mikli skoraði sitt fyrsta inark i 1. deild I ár i leikn- um gegn Viking á föstudags- kvöldið. Á efri myndinni hefur hann auga á holtanum og á þeirri neðri þenur boltinn net- möskvana. Valur sigraði i leikn- um 2:1. Ingi Björn Albertsson skoraði annað mark Vals, en Stefán Halldórsson mark Víkings. Ljósmyndir: Jim. Skagomenn púður- lausir án Matta! Töpuðu 1:0 fyrir FH í Hafnarfirði — nokkuð sem engum kom tH hugar eftir 7:1 sigur þeirra í fyrri leiknum Ekki voru það kátir karlar, sem héldu heimleiðis upp á Akranes eftir viðureign FH og 1A i Kapla- krika á iaugardaginn. Engan skal undra, þótt Skagamenn væru dá- litið súrir i bragði. 1 fyrri leik þeirra við FH uppi á Skipaskaga vannst yfirburðasigur, svo flestir álitu, að FH-ingar yrðu þeim auð- veld bráð I þeim seinni, en það fór — eins og oft i knattspyrnunni — á annan veg. FH-ingar gengu með sigur af hólmi, skoruðu eitt mark, sem tryggði þeim bæði stigin og bætti mjög stöðu þeirra i 1. deild- inni, og hafa nú hlotið 9 stig. En Akurnesingar fengu þó að- eins smyrsl á sárin. Framarar, þeirra skæðustu keppinautar, töpuðu einnig sinum leik við Eyjamenn, en sælt er sameigin- legt skipbrot stendur einhvers staðar. H játrúarfullir knatt- spyrnuunnendur telja, að tala stiganna, sem toppliðin hafa hlot- ið, eigi sinn þátt i óförunum, — en bæði hafa hlotið 13 stig, — tölu, sem mörgum liðum hefur reynzt erfitt að yfirstiga i 1. deildinni og svo ætlar einnig að reynast nú. En svo allri hjátrú sé sleppt, þá hljóta þeir ólafur Danivalsson miðherji og Gunnlaugur Gunn- laugsson markvörður að teljast hetjur dagsins hjá FH. Ólafur fyrir sitt eina mark, — sigur- markið — á fyrstu minútu og Gunnlaugur fyrir góða frammi- stöðu i markinu i sinum fyrsta leik, og er þar áreiðanlega mjög gott markmannsefni á ferðinni. Fæstir áhorfenda höfðu trú á þvi, að hið óvænta mark Ölafs Dan. strax i upphafi yrði eina mark leiksins, en FH-ingar hafa nú greinilega, rétt eins og hin lið- in, lært þá kúnst að þjappa sér i KR-ingar í „kiallaranum í 1. deild eftir helgina Keflvikingar eru aftur komnir I toppbaráttuna, eftir sigur yfir KR-ingum 4:2 á Laugardaisveil- inum I gærkveldi. Að tlu um- ferðum loknum hafa þeir hlotið cllefu stig, aðeins tveimur færri, en efstu liðin, Fram og ÍA, sem forustu hafa með 13 stig hvort félag. Staða KR-inga er orðin Iskyggileg. Farið er að slga á seinni hluta keppninnar og þeir sitja nú einir eftir á botninum, með sjö stig. Tony Knapp ætlar ckki aö ganga eins vel með þá og landsliöiö. „Sóknin er bezta vörnin”, er þekkt spakmæli úr knattspyrnu- heiminum og i anda þess léku KR-ingar i gærkveldi. Auðvitað hafa þeir ætlað að sanna þá kenn- ingu, en raunin varð allt önnur. Þeir sóttu en IBK skoraði mörkin, — náði um tima þriggja marka mun, 4:1 en KR-ingar skoruðu að lokum úr umdeildri vitaspyrnu, sitt annað mark. STAÐAN 2. DEILD Staðan i 2. deild eftir leikina um helgina: Haukar — Þróttur 1:1 Völsungur — Ármann 1:1 Reynir A — Selfoss 1:1 Víkingur Ó — Breiðablik 0:2 Breiðablik 10 9 0 1 38:0 18 Þróttur 10 8 1 1 21:8 17 Ármann 10 5 3 2 16:9 13 Selfoss 10 4 4 2 '9:12 12 Haukar 10 3 1 6 13:19 7 Reynir A 10 3 1 6 12:14 7 Völsungur 10 1 3 0 7:21 5 Víkinguró 10 0 1 9 4:31 1 Markhæstu menn: Hinrik Þórhallsson, Breiðabl. 11 Sumarliði Guöbjartsí. Selfoss io ólafur Friðriksson Breiðablik 8 Þorvaldur I. Þorvaldsson Þrótti 7 KR-ingar hófu leikinn af mikl- um krafti, líkt og gegn Val. Ætluðu þeir sýnilega að koma IBK I opna skjöldu, en varnar- múrinn var traustur fyrir og gaf sig hvergi, Gisli Torfason og Einar Gunnarsson, miðverðir, slepptu ógjarnan nokkrum knetti fram hjá sér i leiknum öllum. Einar lét sig heldur ekki muna um að fylgja vel eftir i skyndiupp- hlaupum tBK og það var hann, sem kom Keflvikingum á bragðið með glæsilegu marki af um 20 metra færi á 17. minútu. Halldór Björnsson reyndi að keyra KR-liðið áfram i sókninni, og sköpuðust nokkur góð tækifæri fram að hléi, þar sem skothæfnin brást eða tBK vörnin bjargaði, oft á elleftu stundu, eins og þegar Astráður bakvörður var neyddur til að skjóta hörkuskoti, rétt framhjá eigin marki, — upp á von og óvon. Ekki voru liðnar nema örfáar minútur af seinni hálfleik, þegar Keflvikingum var dæmd vita- spyrna. Aðdragandinn var sá, að Hilmar Hjálmarsson, sem vex ásmegin með hverjum leik, brauzt fram miðjuna, knötturinn barst fyrir markið, til Steinars, sem reyndi skot. Magnús mark- vörður KR var kominn úr jafn- vægi, en náði þó aðeins að snerta knöttinn, en ekki hefta för hans áleiðis I markið. Halldór Björns- son sá sitt óvænna, varpaði sér glæsilega e'ins og þaulvanur markvörður og gómaði knöttinn á marklinunni. Steinar Jóhannsson skoraði síðan úr vitaspyrnunni, 2:0 KR-ingar létu samt engan bil- bug á sér finna þrátt fyrir mót- lætið og hertu sóknina. Eftir stanzlausan darraðardans i vita- teig ÍBK tókst Ólafi ólafssyni, miðverði, loks að skora með fallegri kollspyrnu úr horni. fyrra mark KR-inga, án þess að Þorsteini Ólafssyni tækist að verja. Litlu siðar munaði minnstu, að Guðmundi Yngvasyni tækist að jafna metin. Hörkuskot hans af löngu færi hafnaði I þverslá, án þess að Þorsteinn hreyfði legg né lið til varnar. Seint i fyrri hálfleik var Grétar Magnússon, dugnaðarforkurinn mikli, tekinn út af. Var hann sýni- lega ekkert ánægður með þá ráð- stöfun og mörgum þótti hæpið að setja inn á i staðinn Friðrik Ragnarsson, gamalkunnan leik- mann, sem ekki hefur leikið með meistaraflokki alllengi. En þessi ráðstöfun átti eftir að bera ávöxt. vörnina, þegar staðan er þeim i hag og verjast siðan af öllum lffs og sálar kröftum til að halda fengnu forskoti. t tæpar 89 minút- ur gáfu þeir Skagamönnum aldrei færi á að setja „spilamaskinuna” i gang og sjálfir létu þeir allar skipulagðar sóknaraðgerðir lönd og leið, — sendu knöttinn fram völlinn, iðulega án þess að nokkur væri þar til staðar til að taka við honum. Akurnesingar reyndu án afláts að jafna metin. En á mölinni i Kaplakrika voru þeir nánast eins og þorskar á þurru landi og þar við bættist, að Matthias Hall- grimsson var i leikbanni, en án hans var framlinan eins og púð- urlaust skothylki, — allt „klikk- aði”, þegar mest á reið, en þeir Karl Þórðarson, Árni Sveinsson og siðast en ekki sizt Teitur Þórð- arson áttu allir mjög góð færi á að jafna metin, en mistókst illa. tA- vörnin getur skrifað markið á sinn reikning, a.m.k. þrir stóðu eins og steinrunnir, þegar Ólafur fékk knöttinn og skoraði. Aftasta vörn FH átti stærstan þátt i sigrinum, með þá Janus og Magnús sem traustustu menn, en einnig áttu þeir Logi Ólafsson og Jón Hinriksson mjög góðan leik. Dómarinn, Guðmundur Haralds- son, leysti sitt verkefni vel af hendi. Ekki voru Skagamenn samt ávallt sáttir við úrskurði hans og fengu þrir þeirra að sjá gula spjaldið. Tvö seinni mörk IBK skoraði Friðrik, — að visu með dálltilli heppni, var á réttum stað eftir grófleg varnarmistök KR-inga og renndi knettinum af öryggi 1 netið. Sænski dómarinn, sem dæmdi tsland-Noregur, sællar minn- ingar, fékk heldur betur orð I eyra fyrir vitaspyrnuna, sem hann dæmdi á Gisla Torfason. Annað- hvort eru isl. áhorfendur mjög glámskyggnir — eða þá að sá sænski hefur haft rétt fyrir sér eftirallt saman. Tvivegis siðan er búið að dæma vitaspyrnu á þenn- an sama Gisla, án þess að brotið sé augsýnilegt og það gerði Bjarni Pálmarsson einmitt I gær- kveldi. Or vitaspyrnunni skoraði Atli Þór Héðinsson, svo lokatölup leiksins urðu 4:2. Bjarni stóð sig vel I dómarahlutverkinu fram undir hið síðasta, að úthaldsleysið fór að há honum. Þrátt fyrir flughálan völl, sem minnti meira á skautasvell en knattspyrnuvöll, var leikurinn hinn skemmtilegasti á að horfa og menn höfðu furðugott vald á knettinum á moldarflákunum, sem sýnilega vöktu athygli svip- brigðalausra Rússa, sem komu og virtu völlinn fyrir sér fyrir miðvikudagsátökin. —emm STAÐAN 1. DEILD Staðan 11. deild eftir leikina um helgina: Valur — Vikingur FH — Akranes ÍBV —Fram KR—Keflavlk Akranes Fram Keflavik Valur Vikingur FH tBV KR Markhæstu menn: örn óskarsson tBV 7 Guðmundur Þorbjörnsson Val Matthlas Hallgrimsson Akran. Steinar Jóhannsson ÍBK 5 Atli Þór Héðinsson KR 4 Teitur Þórðarson Akranes 4 Þjálfaðar hendur Munda leika um styttuna og allt I einu...

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.