Tíminn - 10.11.1966, Qupperneq 8
FIMMTUDAGUR 10. nóvember 196G
8
TÍMINN
- í
MINNING
ÓEafur FriðliiarrBarson
f dag verður Ólafur Friðbjarn-
arson, Stóragerði 13, Reykjavík,
jarðsunginn frá Fossvogskinkju.
Hann fórst í eldsvoða í verzlunar-
húsinu Kjörgarði 2. þ.m. Hafði
hann gegnt húsvarðarstarfi þar
frá því, að það hús var tekið í
not eða í 7 ár.
Ólafur var Þingeyingur, fæddur
26. febr. 1900 í Rauðuskriðu í Að-
aldælahreppi. Foreldrar hans voru
Friðbjörn Jónsson bóndi þar og
kona hans Rósa Sigurbjarnardótt
ir.
Friðbjörn var sonur Jóns bónda
■fi Hofi og Eyri á Flateyjardal Ei-
ríkssonar, bónda á Kambsmvrum
og Hofi Jónssonar.
Rósa var ættuð úr Fnjóskadal
Sigurbjarnardóttir Bjarnasonar.
Friðbjörn og Rósa byrjuðu bú-
skap sinn á parti af Rauðuskriðu
1898. en fluttust þaðan 1901, að
Kaðalstöðum í Hvalvatnsfirði i
Grýutbakkahreppi. Þar bjuggu
þau í átta ár við sára fátækt, því
Friðbjörn missti heilsuna. Hann
dó 1909 og tvístraðist þá fjöl-
skyldan. Börnin voru níu er upp
komust. Ólust þau upp hér og
þar. Móðir þeirra gerði allt, sem
í hennar valdi stóð, fyrir þau, en
aðstaða einstæðingsmóður var önn
ur á þeim tímum en nú, til að
h fa mörg börn hjá sér. Rósa
liíði til hárrar eUi- Hún andaðist
árið 1960 hjá dóttur sinni, Guð
nvju, húsfreyju þá að Klaustur-
holum í Grímsnesi.
Ólafur lenti í ýmsum vistum og
misjöfnum á bernsku og æskuár
um, en efniviðurinn í drengnum
var góður og hann komst snemma
vel til manns.
Árið 1924 tók Ólafur höndum
saman við þrjá bræður sína, Njál,
Jón og Þórð, og systur sína, Guð-
nvju, og hófu systkinin sem þá
voru öll ógiít, búskap á jörðinni
Sandhólum á Tjörnesi. Móðir
þeirra fluttist þangað til þeirra.
Jörðina tóku þau á leigu og
bjuggu þar um skeið, — sum allt
til 1932. Var ég bóndi á Tjörnesi
á þessum árum og fagnaði komu
hins unga fólks í sveitina, enda
gerðist það góðir þátttakendur i
félagslífi byggðarinnar.
Við Ólafur Friðbjarnarson höfð
um ekkert kynnzt fyrr en hann
kom í Sandhóla, en _með okkur
tókst þá vinsemd, er Ólafur rækti
þar íbúðarhús úr timbri. En
snemma sumars 1939 urðu þau fyr
ir því óhappi, að íbúðarhúsið
brann til kaldra kola og allt inn-
búið. Börn björguðust með naum-
indum. Var þetta mikið tjón.
Um haustið brá Ólafur búi og
fluttist með fjölskyldu sína norð
ur til Húsavíkur. Keypti hann
sér þar trillubát og gerðist sjó-
maður um hríð.
Árið 1941 réðist hann fastur
starfsmaður hjá Kaupfélagi Þing-
eyinga. Hafði á hendi utaabúð-
arstörf og verkstjóm við skip<;af
greiðslu og naut mikilla vinsælda
við þau verk. Stundaði hann þessa
atvinnu í áratug. Á þessu timabili
var hann árum saman formaður
Verkamannafélags Húsavíkur og
um skeið átti hann þá sæti i mið
stjórn Alþýðusambands íslands.
Alltaf hafði hugur Ólafs staðið
mjög til sveitabúskapar, og það
mun hafa verið árið 1951, að
hann keypti jörðina Heiðarbót í
Reykjahreppi ásamt áhófn og
fluttist þangað. Var ætlunin eian-
ig að Brynhildur kona hans tæki
að sér barnaskóla sveitarinnar, því
hún er ágætur kennari, sem hefur
sterka köllun til kennslustarfa.
iVið barnaskólann í Húsavik var
ihún kennari nálega áratug af þeim
ttíma, er hún átti þar heima-
Eftir að Ólafur kom i Heiðarbót
itók hann kappsamlega til starfa
ivið umbætur á jörðinni. En að
ifjórum árum liðnum varð hann
■að hætta búskapnum- Konan var
heilsubiluð og þurftj að vera
•undir hendi sérfræðinga til lækn-
inga. Þau fluttust til Reykjavíkur
1955.
í Reykjavík hafa þau síðan átt
heima- Ólafur stundaði fyrst smið-
ar í Reykjavík og ýmsa vinnu svo
sem afgreiðslustörf hjá Mjólkur-
félagi Reykjavíkur — unz hann
gerðist húsvörður í stórhýsinu
Kjörgarði.
Brynhildur kona Ólafs endur-
heimti heilsu sína allvel og réðst
sem fastur kennari hjá Reykja-
víkurborg. Þau byggðu sér vand
aða íbúð að Stóragerði 13.
Brynhildur og Ólafur áttu barna
láni að fagna. Þau eignuðust fjög-
ur börn — tvo sonu og tvær dæt-
ur. Ennfremur ólu þau upp tvær
dætur af fyrra hjónabandi Bry.i
hildar, þvj Ölafur var seinni mað-
ur hennar. Þriðja bam (sonur)
af fyrra hjónabandinu ólst upp é
vegum föður síns.
Börn Ólafs og Brynhildar i a!d-
ursröð talin eru:
1. Hrafnhildur, gift Ásgeiri
Torfasyni. Þau búa á Halldórsstöð
um í Laxárdal í S-Þing-
2. Hanna Jórunn, gift Denny
Penrod, sem er loftsiglingafræð-
ingur í flugher Bandaríkjanna.
Þau búa í Columbus, Ohio.
3. Þröstur, giftur Moniku Buttn
er,, Hann er við hagfræðinám í
Þýzkalandi.
4. Gnðmundur Páll, ógiftur,
skólastjóri við Barna- og unglinga-
skóla Blönduóss.
Börn Brynihildar af fyrra hjóna
bandi:
1. Guðrún Karlsdóttir, gift
Huga Andreasen, sem vinnur hjá
Raforkumálaskrifstofu ríkisins. Bú
sett í Reykjavík.
2. Ásta Karlsdóttir, gift Rögn
valdi Þorleifssyni sjúkrahúslækni
í Neskaupstað.
3. Guðmundur Stefán Karlsson,
vélstjóri, Reykjavík, giftur Odd-
björgu Kristjánsdóttur.
Ólafur var börnum sínum fram-
úrskarandi umhyggjusamur og
einnig fósturdætrum sínum, gerði
þar engan mun á, enda unnu þær
honum eins og föður. Var hann
til hinztu stundar takmarkalaust
fús til að taka á sig útlát og
erfiði fyrir fólk sitt, ef með þyrfti.
Hjónaband hans var mjög ástúð
legt. Hjónin skildu hvort annað
með ágætum vel.
Er ósegjanlega mikill harmur
kveðinn að vandamönnum hans
við fráfall hans — og mikils missr.
Samhryggist ég þeim innilega.
Ólafur Friðbjarnarson stóö í
mörgu og fékk margt að reyna
um daga sína. Hann var óvenju
lega fjölhæfur maður, verkdjaríur
og áræðinn. Með hverju nýju við-
fangsefni virtust nýir hæfileikar
koma í ljós í fari hans. Hann var
bjartsýnn og úrræðagóður mjög.
Hann hefði getað haft sem kjör-
orð þessar hetjulegu Ijóðlinur
skáldsins:
Stormur þurrkar segl i svip,
þótt setji um stund í bleyti.
— Og alltaf má fá annað skip.“
Ólafur Unni framförum í hví-
vetna. Var félagslyndur og ótrauð
ur til liðsemdar góðum málefn-
um. Fljótur tii að rétta hjálpar-
hönd, ef samferðamaður s'.óð
höllum fæti.
Hann var gleðimaður á goðri
stund. orðfær og hafði til á seinni
áruni að bregða fyrir sig ’jóða
s-míði.
Ólafur var ekki nema 66' ára,
þegar hann dó. Það þykir núorð
ið ekki sérlega hár aldur a ís
landi. Og víst er um það, að hann
áttí þrótt, lífsást og áhuga, sem
enzt hefði til miklu lengri jarð
vistar, ef eldsvoðaslysið hefði ekki
að höndum borið.
Kenning Jónasar Hallgrimsson-
ar skálds var, að lengd mannsæv
innar yrði ekki réttilega mæld í
árum, heldur færi hún eftir því,
hve mikið uaðurinn lifði.
Samkvæmt þeirri kenningu lifði
Ólafur Friðbjarnarson tvímæla
laust lengi.
Langminnug þökk okkar vina
hans og samferðamanna fylgir
honum til grafar.
pt. Reykjavík, 10. nóv. 1966.
Karl Kristjánsson
Með nokkrum orðum langar mig
til að láta í ljós þakklæti mitt
til vinar míns Ólafs Friðbjarnar
sonar, sem var húsvörður í Kjör-
garði frá því að húsið var opnað
fyrir tæpum 7 árum, og til dauða
dags er hann lézt af slysfórum
við skyldustörí
Á þessum árum hefur samstarf
okkar verið mjög náið, og við oft
þurft að ráða sameiginlega fram
úr ýmsum málum, og aldrei hefur
borið minnsta skugga á okkar
samstarf.
Með því að starfræksla nussins
Kjörgarðs er með nokkuð óvenpi-
legum hætti, þar sem m. a. margar
verzlanir eru á sama gólff.eti, án
skilveggja — var frá upphafi Ijóst
að vel þurfti að vanda vai a hús-
verðinum.
Fljótlega kom í ljós aö þotta
val hafði heppnazt sérlega vei.
Með sinni góðu greind og frá-
bærum umgengishæfileikum, íokst
Ólafi fljótt að haga máium svo
að allir undu vel við. Menn fundu,
að húsverðinum mátti treysta
Smá vandkvæði sém fram komu
í byrjun, með því að leigjendur
voru óvanjr hinum sérstöku að-
stæðum í þessu húsi — hurfu sem
dögg fyrir sóiu, eftir að Ólafur
hafði tekið á þessum vandamálum
með þeirri festu, og þó mýkt, sem
honum var lagin.
Ólafur hafði ýmsa hæfjleika sem
hann lét lítið á bera, nema í hóDi
vina sinna. Til dæmis kom oft
fyrir að hann laumaði að okkur,
sem vel þekktum hann, hnittinni
stöku um atburði dagsins, eða
málefni, sem ofarlega voru á
baugi.
Ólafur hafði lífandi áhuga á
þjóðmálum, og bar farsæld þjóð-
ar sinnar í heild fyrir brjósti, en
var laus við þröng eiginhagsmuna
— eða stéttarsjóharmlð. Víðsýni
hans og góðvild komu glögglega
í ljós í þjóðmálaafstöðu hans —
jafnt sem í allri hans framkomu
og dagfari.
Ólafur lét sér mjög annt um
fjölskyldu sína. Fann ég oft á
tali hans hlýhug hans í garð konu
og bama og mikil gleði var
honum velgengni sona hans við
skólanám.
Oft bámst í tal milli okkar
Ólafs sameiginlegir átthagar okk-
ar, norður í Þingeyjargýslu, og
menn og málefni þar. Kunni hann
frá mörgu að segja frá yngri ár-
um. í þessu sambandi minnist ég
ummæla, sem ég heyrði föður
minn Friðrik j Efri-Hólum, við-
hafa um Ólaf. Þau voru á þá lelð
að hann hefði metið laf því meir
sem hann kynntist honum betur,
og nákvæmiega sama var mín
reynsla af Ólafi.
Ég votta konu hans, Brynhildi
Jósepsdóttur, og bömum þetrra
— sem svo mikils hafa misst —
dýpstu samúð mína, svo og Sigur
birni bróður hans, sem dyggi-
lega hefur starfað með honam í
Kjörgarði síðustu árin.
Ég veit að eigendur verzlan
anna og starfsfólk yfirleitt í Kjör
garði saknar Ólafs og mundi taka
undir þann þakklætisvott, sem é?
hef reynt að tjá með þessum hr
um.
Kristján Friðriksson
vel til æviloka-
Árið 1928 fór Ólafur í Bænda
skólann á Hvanneyri og útskrif-
aðist þaðan vorið 1930. Halldór
Vilhjálmsson skólastjóri bauð hon
um að styðja hann til náms er-
lendis. En Ólafur, sem þá var þrí
tugur orðinn, taldi sig of gaml-
an til þess að halda áfram skóla-
göngu .Vann hann þerta sumar m.
a við byggingu vita á Öndverðar-
nesi og Straumnesi. Tók um haust
ið á leigu hálfa jörðina Rekavik
í Norður-fsafjarðarsýslu og gerð-
ist gæzlumaður Straumnesvita.
Gekkst hann strax fyrir stofnun
búnaðarfélags í hreppnum og var
trúnaðarmaður Búnaðarfélags ís
lands þar um sveitir.
Þarna vesturfrá kynntist hann
eftiriifandi konu sinni Brynhildi
Snædal Jósefsdóttur, bónda að
Látrum í Aðalvík Hermannsson-
ar. Hún var kennari að mennt-
un. Þau ■riftust 6. okt. 1935 og
hófu búskap saman að Iðavöllum
: Aðalvík, en þar höfðu afi og
amma Brynhildar búið: Hannes
Sigurðsson og Jórunn Einarsdótt
ir Sívertsen-
Skömmu seinna fluttust svo
Óiafur og Brynhildur að Tungu í
Fljótum í sömu sveit. Hófu strax
umbætur á jörðinni og byggðu
SÍLDARSKÝRSLA FISKIFÉLAGSINS
Sóldveiðarnar norðanlands og
austan vikuna 30. okt. til 5- nóv
1966
\
í vikubyrjun var norðanstorm
ur á miðunum og öll síldveiði
skipin í höfn, en á þriðjudag var
Ikomið sæmilegt veiðiveður og
fengu þá mörg skip góða veiði.
Á miðvikudag var veður gott til
hádegis en þá tók að hvessa af
SV og héldu þá skipin úl lands.
Gott veður var svo á fimmtudag
og fengu mörg skip þá góða veiði,
en á föstudag hvessti af norðri
og fóru flest eða öll skip til
lands. Veður fór batnandi á laug
ardag en fáir bátar voru komnir
á miðin og fengu þeir einhverja
veiði.
Aðalveiðisvæði vikunnar var 55
—70 sjóm. undan landi í Norð-
fjarðardýpi.
Aflinn, sem barst á land í v:k-
unni nam 26-243 lestum, - þar af
fóru 1.888 lestir í frystingn og
saltað var í 1.239 tunnur.
Heildaraflinn í vikulok var orð
inn 576058 lestir og skiptist þann
ig eftir verkunaraðferðum:
í salt 55.904 lestir, í fyrstingu
4.800 lestir, í bræðslu 515.354 lest-
ir.
Auk þess hafa erl skip landað
1.022 uppsölt. tunnum og 4.680
iestum í bræðslu
Á sama tíma í fyrra var heild-
araflinnn 426,228 lestir og skiptist
þannig eftir verkunaraðferðum
í salt 58,541 lest í frystingu
3.102 lestir, í bræðslu 364.585 lest
ir.
Helztu iöndunarstaðir era þess-
ar: Lestir
Reykjavík 35.062
Bolungavík 6634
Siglufjörður 24.091
Ólafsfjörður 6 491
Hjalteyri 10.022
Krossanes 16.240
Húsavík 4.260
Raufarhöfn 53.235
Þórshöfn 2.041
Vopnafjörður 31.246
Borgarfjörður eystri 7.188
Seyðisfjörður 141.768
Mjóifjörður 1.107
Neskaupstaður 85.804
Eskifjörður 60.842
Reyðarfjörður 33.388
Fáskrúðsfjörður 30.494
Stöðvarfjörður 9.137
Breiðdalsvik 7.965
Djúpivogur 10.187
Vestmannaeyjar 1.741 Lestir
Akraborg, Akureyri 3.177
Akurey Hornafirði 1.495
Akurey Reykjavík 5 020
Andvari Vestmannaeyjum 580
Anna Siglufirði 2.096
Amar Reykjavík 5.860
Arnames, Hafnarfirði 1.569
Arnfirðingur Reykjavík 2.973
Árni Geir Keflavík
Árni Magnússon Sandgerði
Arnkell Hellissandi
Ársæll Sigurðsson Hafnart
Ásbjörn Reykjavík
Ásþór Reykjavjk
Auðunn Hafnarfirði
Baldur Dalvík
Barði Neskaupstað
Bára Fáskrúðsfirði
Bergur Vestmannaeyjum
Bjarmi Dalvík
Bjarmi II. Dalvík
Bjartur Neskaupstað
Björg Neskaupstað
Björgúlfur Dalvík
Björgvin Dalvík
Brimir Keflavík
Búðaklettur Hafnarfirði
Dagfari Húsavík
Dan Ísafirðí
Einar Eskifirði
Einar Hálfdáns Bolungavík
Eldborg Hafnarfirði
Elliði Sandgerði
1.582
5.307
1.028
2.446
6.150
4.571-
3.636
í.es-u
6.136
4.567
2.65I-
1.14!
5.82U
6-36*
293
3.276
2.926
1.07'
4.13
7.02-
77'
748
98s
5.008
4.65.