Tíminn - 12.11.1966, Side 16

Tíminn - 12.11.1966, Side 16
ÁRSSKÝRSLA BÚNAÐARBANKANS 1965 Tekjurnar á árinu 108,9 milljönir kr, BOLINN HLJÓP UM GÖTUR BORGARNESS KJ-Eorgarnesi, föstudag. í morgun, þegar verið var að reka nautgripi af bílpalli til slátrunar í sláturíhúsinu hér í Brákarey, tók eitt nautið á rás út úr hópnum og hljóp upp í bæinn. Var þetta 3ja—4ra ára naut ofan úr héraðinu, sem átti að reka í sláturhúsréttirnar á- samt nokkrum kúm, en boli var ekki beint vanur að láta reka sig í hús og tók því á rás út úr hópnum. Starfsmenn við Sláturhúsið, og þeir sem komu með nautgripina til slátrunar, tóku þegar á rás á eftir bola og barst leikurinn yfir brúna á Brákarsundi, en við Verzlunar félagið tókst mönnum að ná í haiann á bolanum og handsama hann. Þeir, sem fást mikið við skepnur eins og þennan bola, kunna það ráð að stýra þei.m með halanum og vildi svo vel til að einn slíkur var í hópnum sem elti, og áttu menn þvr auð velt með að hafa yfirhöndina, eftir að hafa náð í halann á skepnunni. Atburður þessi vakti talsverða afhygli hér í bænum, og var ekki laust við að ónotakennd færi um suma þegar bolinn geystist framhjá þeim á fullri ferð eftir einni aðalgötunni, enda var hann hið mesta ferlíki og mannýgur að því sem sum ir segja. Guðni Sigurðsson Hið lága fiskverð virðist vera aðkaliandi rannsóknarefni SJ—Reykjavík, föstudag. Eins og margoft hefur vcrið rakið, eiga minni bátarnir, sem gera út á bolfiskveiðar, í miklum erfiðleikum. Með hverju ári, sem líður, hækkar kostnaður við út- gerðina og jafnhliða því reynist sífellt erfiðara að fá sjómenn til starfa ,þar sem aðrar atvinnugrein ar geta boðið betri vinnuaðstöðu og betri laun. í dag er svo komið að aflahæstu bátarnir gera vart meira cn standa undir bcinum kostnaði við veiðarnar og nær einsdæmi ,ef eitthvað er afgangs í afskriftir. f dag er talið, að bát Bréf til sonar míns Æviminningar Jónasar Þorbergssonar, fyrrv. ritstjóra og útvarpsstjóra FB—Reykjavík, föstudag. Bréf til sonar míns nefnast ævi- minningar Jónasar Þorbergsson- ar, fyrrum ritstjóra og útvarps- stjóra, sem Skuggsjá gefur út Æviminningarnar eru í formi sendibréfa til sonar Jónasar Þor- bergssonar, og segir liann þar frá hinni viðburðaríku ævi sinni. í formála segir höfundur, að fyrir þrábeiðni barna sinna ráðist hann í að rita hið helzta úr minn ingum ævi sinnar. Hann segist sjá Jónas Þorbergsson í hendi sér, að þær rúmist ekki fyrir í einni bók, svo að vel fari og kjósi hann því að hafa bækurn ar tvær. „Líf og auðna ræður, hvort mér tekst að rita þær til enda. Þessi fyrri bók verður auð- veldari með því að ég sem aðrir man Ijósast atburði bernsku minn ar og æsku“, segir Jónas Þor- bergsson. Á bókarkápu segir: „Hann (þ.e. j Jónas Þorbergsson) lýsir í þessum] bréfum bernskuminningum sínum, rekur smalaslóðir sínar í dölum Þingeyjarsýslu, lýsir mörgum bæj- um og bújörðum, húsbændum sín- um og samtímafólki, aldarfari fyr ir og um eftir aldamótin síðustu,! skemmtilegri og ævintýralegrij sumarvist á Svalbarðseyri, þriggja vetra skólavist í Gagnfræðaskóla Akureyrar, farkennslu, Ameríku- för sinni og sex ára dvöl vestan hafs við margháttuð störf og kynni manna og loks heimförinni árið 1916 með Goðafossi hinum elzta, en sú för varð all ævintýra- leg. Uppvaxtarsögu Jónasar Þorbergs sonar má telja með fádæmum örð- uga og ævintýralega. Hann er fæddur árið 1885, á miðjum veður harðasta áratug 19. aldar, þegar hvert ísa- og grasleysisárið rak Framhaid á bls. 14 ur þurfi að minnsta kosti að afla 8 íonn í róðri til að endarnir nái saman, og er þá reiknað með bein um kostnaði við róðurjnn einan. j Blaðamaður Tímans fór þess á leit við tvo útgerðarmenn, sem gera út báta, sem eru Iiðlega 50 tonn, að gera grein fyrir sjónarmið um sínum varðandi útgerð þessara báta, og fer hér á eftir grein eftir Guðna Sigurðsson, sem gerir út Brcka RE 134 ,scm er 52 tonn. Síðar mun svo birtast grein eftir Kristján Gunnarsson, sem gerir út Þóri, sem er 54 tonna bátur. Guöni ræðir einkum um fiskverðið í sinni grein, en Kristján mun eink um fjalla um þátt ríkis, bæjarfé- laga og banka í sambandi við ú(> gerð þessara báta. Hér á eftir fer svo grein Guðna Sigurðssonar: „Á hverju hausti undanfarin ár hafa borizt hingað fréttir um fiskverð hjá nágrönnum okkar, Norðmönnum og hvert haust hef- ur maður staðið jafn undrandi yf- Framhald á bls 15 EJ-Reykjavík, föstudag. f ársskýrslu Búnaðarbankans fyr ir árið 1965, 35. starfsár bankans, segir, að tekjur á árinu hafi sam tals verið 108.9 milljónir, en 86.3 millj. árið 1964. Rekstrarkostn aður varð 28.0 millj. á móti 20.6 milljónum 1964. Tekjuafgangur varð 9.1 milljón, en 4-4 milljónir 1964. Af afgangi síðasta árs voru 5.5 milljónir lagðar í varasjóð. en 2.1 milljón árið á undan. Er vara sjóður nú 39.3 milljónir. Innlán bankans voru samtals í árslok 1965 1197.8 millj. og höfðu aukizt um 285.6 milljónir eða 31.3%. Spariinnlán voru [ árs byrjun 776.2 miúj., en 1040.1 millj ón j árslok, aukningin var 264 milljónir eða 34%. Útlán sparisjóðsdeildarinnar voru samtals í árslok 1965 988.1 milljón og höfðu hækkað um 247.9 millj. eða 33.4%. tnnifalið í þessum tölum eru endurseldir afurðavíxlar 1964, 66.5 milljónir, og 99-5 milljónir árið 1965. Aukn ing þeirra hefur því orðið 33 millj ónir. Úr veðdeild Búnaðarbankans var lánað á árinu 6.4 milljónir til 85 bænda, eingöngu til kaupa á jörð um. Stofnlánadeildin veitti á árinu 1965 1493 lán, samtals að fjár hæð 127.8 milljónir, þar af 209 lán til íbúðarhúsa að fjárhæð 17.1 milljón ýmist til nýbygg- inga eða til að ljúka smíði eldri húsa, og 1284 lán að upphæð 110.7 milljónir til útihúsa, vélakaupa, ræktunar og annarra mannvirkja í þágu landbúnaðarins. Alls hafa verið veitt frá upp hafi 16905 lán úr Ræktunarsjoði og Stofnlánadeild A, að fjárhæð 720.8 milljónir, en úr Byggingar sjóði og Stofnlánadeild B 4170 lán að fjánhæð 187.6 milljónir kr Fjögur útibú bankans starfa hér i Reykjavík. Innistæðufé þeirra í árslok 1965 var sem hbr segir: Austurbæjarútibú 154.6 milljón ii. Miðbæjarútibú 37.7 milljónir. Vesturbæjarútibú 30.2 miUjónir og Melaútibú 19.8 milljónir. Hið Isíðastnefnda var stofnað árið 1965. Út- og innlán aðalbankans og útibúanna í Reykjavík voru í árs lok 1965: Útlán 733.1 mil'.jón, innlán 900.8 milljónir. Framhald á bls. 15. Búrfellsfundur EJ-Reykjavík, föstudag. Sáttafundur hófst í Búrfellsdeil unni kl. 10 í morgun og stóð til hádegis. Nýr fundur var boð aður kl. 20.30 í kvöld, og var honum ólokið þegar blaðið fór í prentun. Hve stór á lýsisherzlu- verksmiðj- an að vera? Blaðinu hefur borizt eft- irfarandi athugasemd frá Jóni Gunnarssyni, verkfræð ing: „Vegna umræðna á Al- ■ þingi og ummsela í dag- blöðum vil ég taka fram, að ég hef ekki lagt til, að byggð verði lýsisherzÍUverksmiðja með 50 tonna afköstum á sólanhring. f álitsgerð minni not aði ég stærð verksmiðju, sem unnið gæti úr 50 tonnum af lýsi á sölarhring sem grund völl til að reikna út hvort tímabært væri að reisa lýs isherzluverksmiðju á ís- landi, en jafnframt tók ég fram í álitsgerðinni að rannsaka þyrfti, áður en lýs isherzluvcrksmið j a væri byggð, hve hagkvæmt væri að hafa afköst hennar mik il. — Jón Gunnarsson.“ Tímanum þykir rétt að taka fram, að blaðið hefur ekki átt þess kost, að sjá álitsgerð Jóns Gunnarsson ar. Frétt blaðsins var byggð á þeim upplýsingum, sem sjávarútvegsmálaráðherra tilfærði úr skýrslunni í um ræðum á Aiþingi. 9 verkalýðsfélög kaupa húsið Skólavörðust. 16A Níu verkalýðsfélög í Reykjavík hafa fest kaup á húseigninni að Skólavörðustíg 16A, og munu fé- lögin hafa þar starfsemi sína. Auk þess fær Sparisjóður alþýðu þar húsnæði. Aðaleigendur hússins eru félögin i Málm- og skipasmiðasain bandinu, einkum þó járniðnaðin um og Iðja, félag iðnverkafclks. E'fsta hæð hússins fylgdi, ekki með í kaupunum. Húsið, sem er nú orðin sameign þessara níu félaga, er stórt stein hús, og mun félögunum skapast þar mjög gott rúm og gað að staða til skrifstofuhalds, funda og annarra starfsemi. Atvinnuíeysis- tryggingasjóður veitti lán til kaupanna. Iðja mun eiga 42% i húseign inni, Félag járniðnaðarmanna 30%, Félag bifvélavirkja 10%, Starfs stúlknafélagið Sókn 5%, Verka- kvennafélagið Framsókn ö% og Félag blikksmiða, Sveinafélag skipasmiða, Fólag Kjötiðnaðar- manna og Samband málm og skipasmiða 2% hvert. SAMSÆTI AÐ SÖGU Aögöngumiða aö afmælisfagnaöi þeim, sem haldinn verður vegna sextugsafmælis Eysteins Jónssonar að Sögu á sunnudagskvöldið, má vitja í skrifstofu Framsóknarfélaganna og á afgreiðslu Tímans í Bankastræti í dag. Akranes Framsóknarfélag Akraness held ur skemmtisamkomu í félaSsheim ilinu, Sunnubraut 21, sunnudaginn 13. nóvember og hefst hún kl. 8.30 Skcmmtiatriði: Framsóknarvist og kvikmyndasýning. Öllum heimill aðgangur. Aðalfundur FUF í Keflavík. verður haldinn í Tjarnarkaffi þriðjudaginn 15. þ. m. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. venjuleg aðalfundarstörf. 2. ávarp flytur Baldur Óskarsson, formaður SUF. Félagar fjölmennið. Stjórnin SKRIFSTOFA FRAM- SÓKNARFÉLAGANNA Tjarnargötu 26 verður opin til kl. 5 í dag. Símar 1-60-66 og 1-55-64.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.