Vísir - 24.11.1975, Qupperneq 19
VISIR Mánudagur 24. nóvember 1975.
19
Marlon Brando rekinn
af hóteli vegno ólóta..
Marlon Brando og aðrir leik-
endur og tæknimenn úr kvik-
myndinni „Missouri Breaks”
eru illa séðir i bænum Billings I
Montana. „Hann (Brando) kom
hingað inn eitt kvöldið með sex
eða sjö manns i eftirdragi og
bauð þeim öllum upp á drykk.
En borgaði ekki krónu,” segir
Marilyn Brown, framreiðslu-
stúlka i diskóteki i bænum.
Kvikmyndahópurinn hafði
tekið á leigu herbergi i War
Bonnet gistihúsinu. Þeim var
sagt upp, eftir að framkoma
þeirra hafði þótt keyra úr hófi.
„Þeir héldu fylliriisparti, eld-
uðu uppi hjá sér og voru með
hunda i herbergjunum,” sagði
William Evans, hótelstjóri.
„Þetta er allt brot á settum
reglum, og lokum sögðum við
þeim upp.”
Dan Woods, framkvæmda-
stjóri diskóteksins, hafði þetta
að segja: „Brando kom hingað
með vinum sinum um hálfellefu
leytið og var til klukkan tvö, en
þá lokuðum við. Brando varð
vel drukkinn og gerðist þá dóna-
legur. Sagði ekki einu sinni takk
fyrir vinið.”
„Hann reyndi eitthvað að
dansa, en var alltof fullur til
þess. Þá vildi hann fara upp á
sviðið og leika á trommúrnar,
en hljómsveitin hafði ekki réttu
trommurnar handa honum.”
En það sem olli svo vinslitum
á milli Brando’s og starfsliðsins
og ibúa Billings, var, að þeir
þóttu fara illa með skepnur þær
er fram komu i kvikmyndinni.
„Þeir ætluðu að drepa hest i
einu atriðanna en slikt getum
við ekki þolað hérna,” sagði
Ruth Lloyd, formaður dýra-
verndúnarfélagsins á staðnum.
„Okkur þykir sérstaklega vænt
um hesta, og þess vegna ætlum
við að fylgjast með upptökun-
um, ti! að sjá til, að ekki verði
farið illa með þá.”
En Marilyn Brown fram-
reiðslustúlka hafði þetta að
segja að lokum:
„Ef þetta eru sýnishorn af
starfsmönnum Hollywood, þá
geta þeir siglt sinn sjó.”
r
A
skíðum
innan-
húss!
Norski sendiherrann i
Washington, Sören C. Somm-
erfelt og Elisabeth Ege frá
Túnsbergi, eru þarna á mikilli
ferð á innanhússskiðabraut.
Þetta stóð i sambandi við
skiðasýningu, sem haldin var i
Boston, og var þar m.a. sýnd
norsk skiðainennska. Það var
Sommerfelt mikið ánægjuefni
að fá að sýna norræna skiða-
tækni, þvi að norðmenn hafa
átt niarga heimsmeistara á
skiðum.
w\\á
hefur Charlton Heston
sagt sig úr stjórn Sambands
kvikmyndaleikara — vegna
þess hve leiður hann er á að
þurfa alltaf að finna vinnu
handa meðlimum.
Heston hefur i 15 ár verið
mikilvægasti meðlimur sam-
takanna, fen segir að starf sitt sé
orðið „ömurlegt”.
„Samtökin eru nú einu sinni
nokkurs konar stéttarfélag, og
það er skylda hvers stéttarfé-
lags að sjá meðlimum sinum
fyrir nægri atvinnu. En meira
en fimmti hluti leikarasamtak-
anna er atvinnulaus.”
„Það er niðurdrepandi og
ömurlegt að vita til þess hve
margir leikarar með hæfileika
ganga atvinnulausir. Framboð-
ið er bara meira en eftirspurn-
in.”
Jackie var einmana og
kenndi í brjósti um hann
Jacqueline Kennedy giftist Aristotle Onassis
einungis vegna þess, að „hún kenndi i brjósti um
hann”.
Roosevelt Grier, sem var áður knattspyrnu-
stjarna og lifvörður þeirra Kennedybræðra, er
góður vinur Jackie.
„Hún sagðist vera einmana og engan hafa til að
hugsa um sig, og nú var John Kennedy ekki lengur
lifs.”
Grier, sem nú er 42 ára að aldri, er leikari (sást i
kvikmyndinni „Skyjacked”, sem Gamla bió sýndi
fyrir nokkru) og sérlegur ráðunautur borgar-
stjóra Los Angeles um málefni unglinga og aldr-
aðs fólks. Honum er hlýtt til Kennedy-fjölskyld-
unnar og fylgir henni hvert sem hún fer.
„Hún sagði að ég væri alltaf svo vingjarnlegur
við alla, og þvi væri öllum vel við mig.”
„Ég svaraði henni þvi, að það væri svei mér
engin tilgerð, þvi að mér þætti vænt um fólk.
Henni er vist vel til min, þvi að hún hefur oft
orðið fyrir biturri reynslu frá fólki i samkvæmis-
heiminum.”
Ktgii:
117 ára og
syndir eins
og selur....
Hin 117 ára gamla
Genoveva Gutierrez
fer oft i baðföt og
syndir i sundlaug hjá
heimili sinu i Texas.
Hún fæddist i
Guanajuanto i Mexi-
kó árið 1858, en kom
16 ára gömul til Tex-
as. Hún er ekkja og
hefur átt 14 börn, og
þar af eru niu enn
lifs. Nú býr hún hjá
74 ára syni sinum og
konu hans i bænum
San Marcos.
Heyrn hennar er
slæm, en þó gengur
hún á hverjum degi
til kapellu nokkurrar
alllangt frá og biðst
fyrir. Henni finnst
gaman að baka rúg-
kökur, en skemmti-
legast þó að synda.
og hún sækir sund-
tima ásamt öðru
gömlu fólki i sund-
laugínni i San Mar-
cos.