Vísir


Vísir - 28.11.1975, Qupperneq 11

Vísir - 28.11.1975, Qupperneq 11
VISIR Föstudagur 28. nóvember 1975. II HEYRÐU MANNI - HVERNIG ER VEÐRIÐ ÞARNA UPPI? Hver er staða konunnar...? Þrátt fyrir kvennaárið, sýnir skoðanakönnun nokkur, sem gerð var nýlega, i Bandarikjun- um að flestir ungir menn og konur telj? enn að staður kon- unnar sé innan fjögurra veggja heimilisins. Unga fólkið, sem spurt var taldi 2,510 manns og af þeim svöruðu 59% játandi. Bandariska liftryggingastofn- unin framkvæmdi þessa könn- un. Borið saman við sósialistarik- in, eiga konur i Vestur-Þýska- landi enn langa leið fyrir hönd- um áður en þær ná fullu jafn- rétti á vinnumarkaði til jafns við karlmenn. Tæplega helmingur kvenna á aldrinum milli 15 og 64 vinna úti, en ef marka má könnun er gerð var meðal drengja og stúlkna á aldrinum frá ellefu til sextán ára, munu þessi hlutföll aukast. Ungt fólk leggur á það mikla áherslu, að hjónin haldi bæði áfram að vinna. Það eru einkum stúlkurnar, sem reyna að jafna byrðina milli vinnu og húshalds á milli hjónanna. Pilt- arnir eru einnig fylgjandi jafn- rétti. Tveir af hverjum þremur ætla að anna sinum skyldum á heimilinu og ala börn sin upp ásamt eiginkonum sinum. Gertrud Schmidt hefur búið i tuttugu ár i Nordhorn i V.- Þýskalandi og ræktað korn til manneldis. Loks hefur henni tekist að rækta upp mjög arð- bæra tegund byggs, er hún nefnir Ogra. Tegundin hefur nú verið skráð hjá EBE. Það er mjög náskylt hveiti, og má skera það upp og þreskja eins og hveiti. Það ber sex raðir axa, og fræ þess eru sjaldan færri en 55. Það er fremur ónæmt fyrir kvillum og þarf vart meira en 250 teningsgrömm á hvern hektara. Útsæði verður fáanlegt í stóru magni á næsta ári. Landbúnað- arsérfræðingar eru þess full- vissir, að Ogra-byggafbrigðið muni ná mikilli útbreiðslu um allan heim. Meðalaaldur meðlima í róðr- arklúbbi kvenna i Oakland i Kaliforniu — er um 75 ár. Flestar þeirra eru ömmur eða langömmur, en þær sjá ekkert skrýtið við að fara út að róa á Merritt-vatninu i Oakland i hverri viku. Gertrude Camping- ton situr við stýri, en hún er 75 ára. Ein kvennanna sem er áttræð, segir: ,,Það er ekkert vit i þvi, að sitja kyrr, þegar ellin færist yfir. Maður fær lika góða matarlyst af að róa.” Hann ólst upp meðal dýra. Hann á eftirtektarsömum ná- grönnum lif sitt að launa. Saga hans er ótrúleg. Sinischa fæddist óskilgetinn i þorpinu Suvi Do nálægt Vranje, i Suður-Siberiu, sem eitt sinn var sjálfstætt riki, en er nú eitt hinna sex lýðvelda Júgóslaviu. Hefði hann ekki verið óskil- getinn, hefði lif hans liklega orð- ið með eðlilegum hætti, en rétt eftir fæðingu drengsins hvarf faðir hans. Hann hugðist leita gæfunnar annars staðar og eftir stóð móðirin unga með korna- barnið. Hún var einmana og útskúfuð og brátt gat hún ekki haldið það út. Einn daginn fékk hún barnið móður sinni i mestu kyrrþey og hvarf siðan sjálf. Afanum og ömmunni var barnið þung byrði og hin mesta smán. Þau voru gamaldags og frumstæð i hugsun, og þvi óhugsandi að þeirra dæmi, að ala óskilgetið barn upp á bænum — hvaða rétt átti hann til lifs- ins? Það var ekki þeirra að hugsa um barnið, að þeirra mati og þvi var barninu varpað til dýranna. Þar mátti hann. lifa eða deyja. Aðrir þorpsbúar vissu ekkert um þetta, og ekkert fæðingar- vottorð hafði verið gefið um drenginn. Hann var gleymdur af öllum og látinn sjá um sig sjálfur, tæplega eins árs að aldri. Hann lifði í um eitt og hálf ár meðal svina, geita og kúa. Afi hans og amma hentu við og við til hans einhverju ætilegu af ein- skærri meðaumkun. Þau undr- uðust það stórlega að hann skyldi enn halda lifi. En loks sprakk blaðran, Ná- grannana fór að gruna ýmis- legt, þegar þeir voru ekki lengur velkomnir gestir á bæ gömlu hjónanna. Að visu voru þau álitin sérvitur, en af hverju ein- öngruðu þau sig allt i einu svona alveg að ástæðulausu? Dag einn kom lögregluþjónn þorpsbúa og knúði að dyrum. Þegar ekki var opnað, braust hann inn og hræðileg sýn mætti honum: i t miðjum skitnum skreið agnarlitil vera um á f jórum fót- <um. Hann gat ekki staðið upp- réttur — hann hreyfði sig mjög svipað og dýr. Bak hans var kreppt, hann minnti mest á smáapa. Hann var nakinn með öllu og þakinn þykku lagi af óhreinindum. Ef nokkur kom nálægt rak hann upp undarleg hljóð — hann kunni ekki að tala og neitaði að koma, þegar lögrégluþjónninn kallaði á hann. Handleggir hans og fætur voru afmyndaðir, handleggirnir óeðlilega langir, og fæturnir snúnir þannig, að allt benti til þess, að hann gengi alltaf á fjór- um fótum. Hann var að breytast í dýr. Yfirvöld gripu strax i taumana, og drengurinn var sendur á sjúkrahús i Belgrad, en þar vissu læknarnir fyrst i stað ekki, hvað þeir áttu að gera við veruna litlu, sem skreið hrædd við fætur þeim. Siðan var byrjað að gera uppskurði. Smám saman réttist úr bakinu og honum var kennt að standa uppréttum. Færustu skurðlæknar landsins umbreyttu höndum hans og fótum — það varð að gera mannveru úr Sinischa. Yfirvöldin rannsökuðu uppruna hans og gátu að lokum haft samband við hina réttu foreldra. Þau bjuggu nú i sitt hvorum landshluta og áttu maka og börn. Hvorugt þeirra vildi kannast við „grisinn” Sinischa. „Við getum ekki eyðilagt hjónabönd okkar, með þvi að þurfa að sjá fyrir honum.” Læknarnir auglýstu i blaði eftir fólki sem væri tilbúið að taka hann i fóstur. 17 hjón svör- uðu auglýsingunni og snáðinn valdi sér foreldra sjálfur. Petrkovic-fjölskyldan sem tók drenginn að sér er meðal þeirra auðugustu i þorpinu — þau eiga dráttarvél. „Þegar ég verð búinn með skólann, ætla ég að aka dráttar- vél allan daginn. Enginn skal mega snerta hana, þvi ég ætla að eiga hana,” segir Sinischa, og sest i ökumannssætið. „Hún er svo kraftmikil, skilurðu.” bætir hann við. Dýravernd- unarmenn vilja banna refaveiðar í Englandi Klukkustundum saman, þeystu rauðklæddir refa- veiðimenn hrópandi um engj- arnar, en fundu engan refinn. En á undan þeim lilupu dýra- verndunarmenn með lúðra, og rugluðu þá allt hvað þeir gátu, með hvellum og blæstri. Að áliti margra dýravina, eru refaveiðar „blóðug iþrótt” og ber að stöðva þær. En þetta endaði þó með skelf- ingu einn daginn, þegar með- limir veiðifélagsins Ticham Hunt i Kent, réðust á dýravinina og börðu þá suma illilega með svipum sinum. „Við vorum rétt búnir, að skilja hundana frá veiðimönn- unum” sagði Ðave Wetton, rafavinur „þegar þeir urðu allt i einu óðir, og réðust á okkur.” Samtök dýravina hafa nú sett á fót sérstakt félag, sem hefur það fyrir markmið að eyði- leggja ánægju yfirstéttarfólks- ins af refaveiðum. Lögreglan lætur skærur þess- ar afskiptalausar. „Þetta er þeim báöum að kenna” segja þeir, en þegar hafa nokkrir verið fluttir á spitala með skrámur og önnur meiðsl.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.