Vísir - 28.11.1975, Blaðsíða 24

Vísir - 28.11.1975, Blaðsíða 24
VÍSIR Föstudagur 28. nóveniber 1975. Borgin greiðir bœtur fyrir unglinga Borgarráð hefur samþykkt að heimila bóta greiðslur til tveggja starfsmanna Tónabæjar vegna tjóns/ sem þeir urðu fyrir í starfi s.l. sumar. Er hér um a& ræða tvö óskyld atvik, annars vegar lenti starfs- maður i ryskingum utanhúss, og hlaut af þvi meiðsli svo hann var frá vinnu um tima, og auk þess urðu skemmdir á fötum hans. Ekki bar hann kennsl á viðkom- andi ungling, og fór þvi fram á að borgin greiddi sér bætur. 1 hinu tilvikinu var starfsmaður sleginn með þeim afleiðingum að rándyr gleraugu hans brotnuðu. Gesturinn sem að þessu var vald- ur var tekinn til yfirheyrslu af lögreglunni og lofaði að greiða tjónið, en hefur ekki staðið við það. Að sögn Jóns Tómassonar skrifstofustjóra hjá borginni mun upphæð þessara bóta samtals vera eitthvað um hundrað þúsund. -EB. FÁGÆT I frímerki boðin upp á morgun A morgun verður fyrsta fri- merkjauppboð Félags fri- inerkjasafnara haldið f Hótel Loftleiöum. Mörg fágæt fri- merki veröa seld, meöal ann- ars flest skildingafrimerki, bæöi almenn og þjónustu. IJau eru óstimpluð eins og mikill hluti uppboö.séfnis. A uppboðinu eru tvö yfir- prentuð frimerki frá 1897, og fylgja þeim vottorð frá Grön- lund. Þá verða boðin upp öll þrjú merkin úr Hópflugi itala 1933. Segja má að á uppboðinu verði frimerki allt frá merkj- um Kristjáns IX. 1902-04 og fram undir 1970. Einkum má geta Alþingishátiðarmerkj- anna frá 1930. Þá verða boðin upp nokkur sjaldgæf fyrstadagsumslög. Merkin verða til sýnis á morgun á hótel Loftleiðum frá klukkan 10 til 14. Skoskir þjóð- ernissinnar mótmœla Fulltrúi Skoska þjóöernis- sinnallokksins á lslandi hefur sent breska sendiherranum i Reykjavik, K.A. East, bréf þar sem harðlega er mótmælt innrás breska flotans I is- lenska landhelgi. Þá segir að Skoski þjóðernissinnaflokkurinn muni styðja allar aðgerðir is- lenskra stjórnvalda til að reka innrásarherinn af höndum sér,— Minnt er á, að þetta sé i þriðja sinn á 17 árum, að enska hernum sé beitt gegn Is- lendingum. Þess er krafist að öllum hernaðaraðgerðum inn- an 200 milna verði hætt þegar i stað. IðRNINN IFLEYGUR OG FÆR Á NÝ Kof bátof erðirnar eru hernaðaHeyndarmál — Því miður f lokkast allur árangur af kafbátaeftirlití okkar undir hernaðar- leyndarmál/ sagði tals- maður varnarliðsins í morgun, þegar Vísir spurði um þjóðerni kafbátsins sem gæsluvélin TF-SÝR sá í gærdag. — Ef við skýrðum opinberlega frá þvi að við hefðum fundið einhvern ákveðinn kafbát á ákveðnum stað á ákveðnum tima, værum við að gefa upp hernaðar- leyndarmál sem „aðrir” myndu taka fegins hendi. Talsmaðurinn taldi ekki úti- lokað að rússneskur kafbátur kæmi upp á yfirborðið þó breskt herskip væri i nánd. Þetta væri alþjóðleg siglingaleið og diesel- knúnir kafbátar frá Sovétrikjun- um sæjust iðuiega á siglingu ofansjávar. -ÖT. Oliuataður örn fannst i fjöru vestur i Helgafeilssveit i haust. Mjög var af fuglinum dregiö og var hann fluttur á vegum Náttúrufræðistofnunarinnar til Reykjavikur og þaöan upp á Keldur, þar sem hann var tekinn til meöferöar. Dr. Finnur Guðmundsson sá um fuglinn, mataði hann á hrossakjöti, fiski og hjörtum. Er fuglinn var kominn i gott stand var hafist handa með að losa hann við oliuna. Var fuglinn úðaður með efni sem samsett var hérlendis, og tókst þannig eftir nokkrar tilraunir að losa hann við oliuna og koma honum i sæmilegt ástand.- Nú er búið að fara með örninn vestur á Snæfellsnes og sleppa honum á sömu slóðum og hann fannst, og er það von þeirra, sem að meðferð hans unnu, að hann nái sér eftir þetta áfall en sem kunnugt er er arnar- stofninn mjög fáfuglaöur. -EB. við Nokkur ólæti uröu við bústað breska sendiherrans eftir úti- fundinn á Lækjartorgi i gær. Björn Jónsson, fundarstjóri hvatti menn til að fara með friði af fundinum,en nokkur hundruð unglingar söfnuðust saman við bústað sendiherrans. Þar var fyrir mikið lögreglu- lið sem tókst ágætlega að halda hópnum friðsömum. Tvær rúður voru að visu brotnar og nokkr- um eggjum kastað, en lögreglan tók sjö af aðalmönnunum i sina vörslu, og leystist þá hópurinn fljótlega upp. -ÖT. Einn óróaseggjanna fjarlægður. Myndir Jim. , ■ L.... breska sendiráðinu. Ólœti breska sendiráðið | „Guð hef- iur gefið I fslandi þorskinn" Margt og mikið hefur veriö | ritaðlbresk blöð um landhelgis- málið. Stundum hafa þessi skrif Iveriö meö miklum ólikindum. Eitt dæmi. iná nefna úr The Daily Telegraph. Þar skrifar David Adamson frá Reykjavik. Hann kveðst hafa komið i ILandsbanka tslands, og þar á ein starfsstúlkan að hafa sagt við hann: „Takið ekki þorskinn frá okkur. Guö hefur gefið Itslandi þorskinn”. Síðan segir hann aö hversannur islendingur telji aö allt sem syndi eða skriöi innan 200 mílna frá strönd landsins sé heilög og siöferðileg Ieign hans. Adamson segir siðan að is- lendingar hafi kynnst þvi að það sem Guð hafi gefið geti hann Ieinnig tekið ótrúlega fljótt. Hann nefnir i þvi sambandi ýmsar náttúruhamfarir, sildina og þorskinn. Hann getur þess, og hefur eftir breskum sjó- Imönnum að islendingar sjálfir veiði á friðuðum svæðum þar sem séu hrygningarstöðvar þorsksins. — AG. Kópavogsbœr skuldor Rvík- urborg sextún milljómr kr. Bœjarritari mótmœlir „Gjaldfallnar viöskiptaskuld- ir viö Reykjavfkurborg voru 1. nóvember þær aö Kópavogur skuldaöi rétt um 16 milljónir, Seltjarnarnes 4,4 milljónir og Mosfellshreppur 2,4 milljónir. Þetta eru skuldir vegna ýmissa viðskipta, t.d. mal- bikunar, vatnslagna og auk þess t.d. skuldir Selt jarnarness vegna þátttöku i rekstri heilsu- verndarstöövar,” sagöi Jón Tómasson skrifstofustjóri er Vísir innti hann eftir útistand- andi skuldum borgarinnar. „Aö sjáifsögöu hefur borgin ekki efni á þvi aö eiga svona miklar útistandandi skuldir,” sagöi Jón Tómasson. Visir hafði samband við Jón Guðlaug Magnússon ritara Kópavogsbæjar og spurði hann hvernig stæði á þessum skuld- um: „Ég mótmæli þvi harðlega að Reykjavikurborg gefi upp svona tölur til fjölmiðla án þess að út- skýra þær nánar,” sagði Jón Guðlaugur. „Við teljum að við eigum svipaða upphæð hjá hitaveitu Reykjavikur, þannig að það hefur ekki komið til að þetta yrði borgað. Kópavogskaupstaöur hefur frá 1. mars ’73 að hitaveita Rvk yfirtók rekstur hitaveitu Kópa- vogs og fór að hirða tekjur af henni, lagt út fyrir afborgunum og vöxtum af skuldum, sem hitaveita Rvk á að gera. Ef þetta dæmi væri reiknað upp, tel ég að talan yröi svipuð,” sagði Jón Guðlaugur Magnússon. Að endingu sneri Visir sér til Jóhannesar Zoega hitaveitu- stjóra og lagði málið fyrir hann: „Þetta er i engu sambandi hvað við annað. Er hitaveita Rvik yfirtók hitaveitu Kópavogs var gerður samningur um að HR keypti eignir HK á mats- verði. Greiðslan færi þannig fram að HR yfirtæki skuldir HK. Kópavogsbær áfrýjaði matinu til yfirmats og það ligg- ur ekki fyrir enn. Hins vegar þykir mér óliklegt að afborgarnir og vextir af þessum skuldum séu komnar I þessa upphæð sem um ræðir,” sagði Jóhannes Zoega. -EB.+

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.