Vísir - 05.12.1975, Síða 14

Vísir - 05.12.1975, Síða 14
14 Föstudagur 5. desember 1975. VISIR LIF OG LIST UM HELGINA Ingvar Þorvaldsson sýnir í Hamragörðum Undanfarna viku hefur staðið yfir sýning á mál- verkum Ingvars Þor- valdssonar í Hamragörð- um. A sýningunni eru um 30 myndir, einkum frá sjávarsið- unni, og eru þær unnar á siðustu tveim árum. Ingvar hefur stundaö listmál- un lengi og var við n£m i Myndsýn. Þetta er önnur sýning hans i Reykjavik en hann hefur einnig tekið þátt i samsýning- um. — Sýningunni lýkur á sunnu- dagskvöld. SKÍÐAFATNAÐUR Finnski skíðdfatnað urinn er kominn nú sem fyrr er hann á mjög góðu verði, lita- úrvaliö er mikið og fallegt, og allar stærðir eru til. Einnig mikið úrval af: skíðum, skíðahönskum, skíðahjálmum, skíðagleraugum, skíðahúfum og CABER skíðaskóm „SÝNING ER EKKI SJÁLFS- FRÓUN, HELDUR SÝNDARFÝSN," SEGIR DAGUR SIGURÐARSON Dagur Sigurðarson opn- ar á morgun aðra einka- sýningu sína í Bogasaln- um. Dagur er frekar þekktur fyrir Ijóðagerð en myndlist sem stafar að hans sögn af því að því að honum er lítið um að láta mikið á málverkum sínum bera nema þegar hann heldur sýningar. A sýningunni verða um 30 málverk flestallt akrilmyndir og leynast nokkur oliumálverk innan um. Myndirnar eru unnar á siðustu 4-5 árum. „Við röbbuðum litillega við Dag á meðan hann var að velja úr myndir á sýninguna: Það getur verið að einhverjar þessara mynda sem þú sérð hérna verði ekki á sýningunni, ég kem ekki öllum myndunum fyrir. Þær eru „frekar” og taka mikið pláss, og i gær varð ég að fara með bilhlass af myndum heim.” Dagur sagðist hafa mestan áhuga á að fjalla um mannlifið i myndum sinum, ekki landslag eða uppstillingar, annars kæmi bestfram i myndunum, það sem hann hefði áhuga á að koma á framfæri. — Sýningin stendur til 7. desember og er opin frá kl.. 2- 10 daglega. Dagur heldur á myndinni „Kona og maður” og viö hliðina stendur „Ólétt kona”. Öldurhús, diskótek, Leikbrúðuland frumsýnir „Jólasveinar einn og ótta„ ó sunnudaginn klukkan 15 táninga- dansleikir Ilótcl Saga. Lokað föstudag vegna einkasamkvæmis. Á laugardag leikur hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt Þuriði Sigurðard. og á sunnu- dagskvöld heldur Styrktarfélag vangefinna styrktardansleik. Klúbburinn. Júdas og Kaktus leika föstudag, Kaktus og ? á laugardag Mexico og Júdas á sunnudagskvöld. Köðull. A föstudag leikur Stuðlatrió. Hljómsveitin Alfa Beta á laugardag og Stuölatrió á sunnudagskvöld. Tónabær. Peiican skemmtir á föstudagskvöld. Hótel Borg. Hljómsveit Arna Isleifs og Linda Walker skemmta. Sigtún: Pónik og Einar skemmta laugardag og sunnu- dag. A sunnudag leika Drekar fyrir gömlu dönsunum. Glæsibær. Asar skemmta alla helgina að venju. Skiphóll Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar skemmtir. Leikhúskjallarinn. Skuggar leika alla helgina. Lindarbær: Gömlu dansarnir. Hljómsveit Rúts Kr.Hannesson- ar og Jakob Jónsson. Sesar og Óðal. Diskótek. Leikbrúðuland frum- sýnir á sunnudaginn leik- ritið Jólasveinar einn og átta. Fjallar það um lít- inn dreng sem er einn heima með ömmu sinni á jólanótt og kynnist þá álf- um, grýlu og leppalúða. Leikritið er eftir Jón Hjartarson en Siguróli Geirsson útsetti þjóðlögin og annast undirleik ásamt Frey Sigurjóns- syni. Brúðuleikhúsflokkurinn Leik- brúðuland er nýkominn úr leik- húsför frá Chicago þar sem hann tók þátt i alþjóðlegri kynningu á jólasiðum i ýmsum löndum. Við inntum Hallveigu Thorla- cius ; eftir hvernig ferðin hafi gengið: „Ferðin var ánægjuleg i alla staði. Við sýndum einu sinni eins og til stóð og fengum mjög góða dóma. Auk þess sýndum við ásamt hinum Norðurlanda- þjóðunum sunnudaginn 30. nóv. Þátttakendur voru frá yfir 30 löndum og sýndi ein þjóð á hverju kvöldi,” sagði Hallveig. Frumsýningin verður að Fri- kirkjuvegi 11 á sunnudaginn og önnur sýning sama dag kl. 5. Leikritið veröur sýnt fram aö jólum á þessum sama tima.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.