Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1926, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1926, Side 1
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS. Simnudagiim 21. febrúar ’26. Frá Hiðurlönöum. Eftir Balldór Kiljan [iaxnESS. i. Jeg er að ferðast um þessi svo kölluðu Niðurlönd, og kemst að þeirri niðurstöðu, að jeg kann Flandramál, án þess að hafa lært það, á sama hátt og jeg upp- götvaði einusinni að jeg kunni færeysku að mjer óvörum, og öðru sinni að jeg kunnj nýnorsku. Jeg tek bæði stórum og smáum opinberunum fegins hendi. Jeg dvel nokkra daga í Lou- vain, og minnist þá þess, iaC hjer var Benedikt Gröndal í einhverju reiðuleysi fyrir margt löngu. Lou- vain er gömul mentaborg og há- skóla, en það var skotið á hana í stríðinu og Sánkti Pjeturs dóm- kirkja er í lamasessi og bó“kasafn ið brann til kaldra kola, eitt hið merkasta í álfunni. Jeg bý í Hótel de la Gare, af því að það er siður minn, að biia altaf í fyrsta hóteli, sem mig ber að; þó bý jeg ekki í gistihúsum þar sem fólk er vin- gjarnlegt. Hjer eru allir undnir upp í hrútshorn, og mjer líður fremur vel. Að vísu láta litirnir í veggjapappírnum fremur ófrið- lega í augum mínum og auglýs- ingaspjöldin í borðsalnum eru sami gargandi ófögnuðurinn og annarsstaðar. Þessir herjans aug- lýsingamenn, sem finna sig knúða til að selja fólki víntegundir, kex- tegundir, sósutegundir, kjötten- inga, súkkulaði o. s. frv., ofsækja mann látlaust með þessum eilífu spjöldum sínum, sem þeir hengja upp í sporvögnum, járnbrautar- lestum, matsöluhúsum, kaffihús- um og kvikmynda, eða á götu- hornum. Alstaðar skrækja fram- an í mann skrípamyndir þeirra. Um eitt skeið þorði jeg ekki inn í strætisvagna vegna Bovrils. Það er næstum ótrvílegt hvílíkum of- sóknum jeg hefi orðið að mæta af hálfu Bovrils, ekki aðeins í Englandi, heldur um þvert og endilangt meginland. Á hverju götuhorni í Lundúnum ógnar Bovril og Bovril ræður lögum og lofum um alt meginland. Jeg hefi aldrei sjeð jafn dónalega mynd eða jafn ruddaleg orð, eins og utan um Bovril. pað er gríð- arstór mynd af rosknum, klof- stuttum borgara með pípuhatt. Á eftir honum rennur afskaplegur griðungur, setur undir sig haus- inn og bölvar, en ‘fram fir nösum hans standa strokur. Manngreyið glenuir sig alt hvað af tekur, til að forða sjer undan skepnunni, en það er engin von. Eftir nokk- ur augnablik hefir nautið dregið manninn uppi. En svo hroðaleg sem myndin er, þá er þó yfir- skriftin öllu agalegri, en þar standa þessi orð: ..Bovril puts beef into you!“ — Það útlegst: Bovril setur í yður griðung. Þessi ruddaskapur er útbreidd- astar bókmentir í Englandi og fólk verður vitstola í stórhópum, þ. e. a. s.: menn álpast eins og dáleiddir inn í fyrstu búðarholu og biðja um eina flösku af Bov- ril í örvæntingu sinni. Nautið dregur manninn uppi. Bovril fer sigurför um allan- heim. Enginn er nógu kloflangur til að fá um- flúið Bovril. Lifi Bovril! Bovril setur í yður griðung! Jeg sest að kvöldverði innan um fimtíu auglýsingar á borð við Bovril. Gargið í hljómsveit- inni er nregilega hrottalegt til þess að geta fælt belgiska tröll- jálka. Alt í kringum mig eru hlutir, sem hafðir eru til að æsa skilningarvit manna, sumir lif- andi, sumir dauðir, en þjónarnir setja upp tíguleg andlit í horn- unum, eins og eigi að fara að taka af þeim ljósmynd. Jeg læt eins og mjer standi alveg á sama. Salurinn smáfyllist, eftir því sem líður á kvöldið. Það koma menn, konur og börn, drelcka kaffi og bjór og setja upp fáráð- linga-andlit í hávaðanuin. Fólk sækist eftir hávaðanum, til að geta fengið tækifæri til að setja upp fáráðlings-andlit, einkum þó hjón, sem hafa talað um veru- leika-atriði árum saman og at- hugað alt undan sjónarmiði skjrn- seminnar, frá borgarstjórakosn- ingum alt niður í jólagjafir til fátækra, en oru nú farin að þryyt- ast. Andspænis mjer sest virðu- legur borgari á fimtugsaldri, og hneigir sig svo djúpt fyrir mjer um leið og hann sest, að mjer liggur við að vikna; það er eins og hann hafi lært mannasiði í Þýskalandi; hann er með dýrlega hringa á höndunum, og yfir- skegg, en jeg læt e;ns og ekkert sje. Nokkru siðar kom^ tvær stúlkur og kaupa sjer bjór. Þær eru sýnilega allþungt haldnar af árangurslausum heiðarleik, koma sjer þó um síðir til að afhneppa kápunum og sýna borgaranum niínum nýju kattomenium-treyjurn ar sínar, Síðan koma virðuleg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.